Skessuhorn


Skessuhorn - 04.01.2017, Side 10

Skessuhorn - 04.01.2017, Side 10
MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 201710 Frá upphafi útgáfu hefur Skessu- horn staðið fyrir útnefningu á Vestlendingi ársins. Valið fer þann- ig fram að kallað er eftir tilnefn- ingum íbúa um þá sem þykja verð- ugir þess að hljóta þetta sæmdar- heiti fyrir árangur í starfi eða leik. Að þessu sinni bárust tilnefningar um 22 einstaklinga og vann dóm- nefnd úr þeim. Vestlendingur árs- ins 2016 er Andrea Þ. Björnsdótt- ir á Eystri-Leirárgörðum í Hval- fjarðarsveit. Hún er tilnefnd fyr- ir einstaka ósérhlífni við að koma til aðstoðar þeim sem þess þurfa. Hún hefur m.a. stutt við söfnun til handa Englaforeldrum og fyr- ir sjúka. Yfirleitt fjármagnar hún söfnun sína með því að kaupa lakkrís og önnur sætindi í heild- sölu og selja á mörkuðum og eftir pöntunum. Þannig hefur hún nú stutt við fjölda fólks með beinum og óbeinum hætti. Kjörorð henn- ar eru: „Það er ljúft að hjálpa.“ Þeir sem urðu í tíu efstu sæt- um í kjöri á Vestlendingi árs- ins eru í stafrófsröð: Andrea Þ. Björnsdóttir, Bjarki Freyr Örv- arsson í Ólafsvík, Bjarni Guð- mundsson á Hvanneyri, Bryndís og Sigurður á Miðhrauni í Eyja- og Miklaholtshreppi, Hanna Jóns- dóttir þroskaþjálfi í Stykkishólmi, Hlédís Sveinsdóttir frumkvöðull á Akranesi, Guðrún Jónsdóttir safn- stjóri í Borgarnesi, Ingólfur Árna- son forstjóri Skagans á Akranesi, Sigursteinn Sigurðsson arkitekt í Borgarnesi og forsvarsmaður Vit- brigða Vesturlands og Unnsteinn Þorsteinsson sjúkraflutningamað- ur í Borgarnesi. Ólst upp í frjálsræðinu við fjörðinn Andrea Þ Björnsdóttir er fædd og uppalin í Grundarfirði, eitt af níu systkinum úr stórum hópi. „Við vorum níu samtals og þar af fjög- ur alsystkini. Foreldrar mínir voru þau Björn K Ásgeirsson skipstjóri og Aðalheiður Lydia Guðmunds- dóttir. Þau eru nú bæði látin. Ég er fædd 1962 og ólst upp við það frjálsræði sem einkenndi allt á þessum tíma í firðinum fagra, frá fjörunni og til fjalls. Við börn- in lékum okkur úti frá morgni til kvölds og eiginlega var aðal höf- uðverkurinn að muna eftir að mæta inn í matinn. Svo þegar ég fór að stækka þá var ég pass- andi börn fyrir hina og þessa, var þá og er enn mikil barnakerling. Eftir það tók við vinna í fiski, þá mátti maður sko vinna, annað en blessuðum börnunum er leyfilegt í dag,“ segir Andrea. Um tvítugs- aldurinn stofnar hún til fjölskyldu og flutti á Akranes þar sem hún bjó næstu tíu árin. Eftir að hún skildi við fyrri mann sinn tók hún saman við núverandi eiginmann, Magnús Hannesson bónda á Eystri-Leir- árgörðum. Þar hafa þau búið með kýr. Barnahópurinn er stór því fyr- ir átti Andrea þrjú börn og Magn- ús fjögur. Barnabörnin eru tíu. Leið vel á Akranesi „Ég hef aldrei ætlað mér að verða gömul sveitakona. Mér leið allt- af vel á Akranesi og þar hefði ég ekkert á móti að búa í ellinni. En ástin virðir ekki sveitarfélaga- mörk og einhvern veginn aðlagast maður ágætlega lífinu í sveitinni. Hér búum við með kýr í eins ró- bóta fjósi og gengur búskapurinn prýðilega. Mér líður ágætlega að hafa nóg fyrir stafni og þótt mað- ur sé innst inni ekki mikil sveita- kerling, þá byggist þetta á að hafa nóg fyrir stafni og líða einnig vel félagslega. Ég á góðan mann og fullt af duglegum börnum, þannig að ekki kvarta ég.“ Byrjaði á söfnun fyrir langveika stúlku Andrea hefur stutt við ýmis góð málefni á liðnum árum. „Hún Guðbjörg dóttir mín á eiginlega frumkvæðið að því að ég fór að safna með nammisölu. Hún vildi hjálpa lítilli langveikri stúlku sem ættuð var úr Staðarsveitinni, en er nú eitt af englabörnunum blessun- in. Ég hafði verið að selja sultur og annað á matarmörkuðum og bætti einfaldlega við sölu á nammi og gotteríi og lét afrakstur sölunnar renna til foreldra litlu stúlkunnar og eftir það í önnur þörf málefni. Guðbjörg mín lendir síðan sjálf í því að missa barn og á þátt í að fé- lagið Englaforeldrar var stofnað af fólki í sömu stöðu sem hafði misst kornabörn. Englaforeldrar hefja söfnun fyrir vöggu á fæðingadeild- ina á Akranesi og tókst sú söfnun alveg ótrúlega vel og það var góð stund þegar við afhentum hana uppi á sjúkrahúsi.“ Veitir mér hlýju Eftir þetta segist Andrea hafa val- ið sér viðfangsefni til að safna fyr- ir. „Ég vel mér fólk sem ég held að þurfi á stuðningi að halda. Hef til dæmis stutt við fatlaðan mann og annan krabbameinssjúkan. Einu tengsl mín við þann síðar- nefnda eru þau að ég vann með föður hans í fiskinum á Skagan- um forðum.“ Andrea fer reglu- lega suður í Garðabæ og kaupir af Helga í Góu lakkrís á heildsölu- verði og selur hann síðan á mörk- uðum eins og áður segir. „Auðvit- að er ég þakklát kaupendum fyrir að styðja við þörf og góð málefni og ekki síður krökkunum mínum að hjálpa til við söluna. Ef ég á eft- ir að drepast við þetta, þá verður svo að vera, ég veit þá úr hverju ég fer! Ég er staðráðin í að halda áfram sölu, allavega meðan ein- hverjir eru til að kaupa. Lakkrís- inn hefur runnið út. Nú ef menn þola ekki lakkrísinn, fá kannski of háan blóðþrýsting, þá borða þeir bara marsipanið! Það gefur mér mikla hlýju í hjartað að geta hjálp- að fólki. Höfum líka alltaf í huga hin fleygu orð: Það þarf fólk eins og þig, fyrir fólk eins og mig,“ segir Andrea á Eystri-Leirárgörð- um að lokum. mm „Það er ljúft að hjálpa“ Andrea Björnsdóttir er Vestlendingur ársins 2016 Andrea Þ Björnsdóttir á Eystri-Leirárgörðum með áletraðan kristalsvasa og blóm frá Skessuhorni með kveðju frá íbúum á Vesturlandi. Magnús og Andrea með börnin sín og barnabörnin. Húsbóndinn fékk fjölskyldumyndatöku í gjöf þegar hann varð sextugur fyrir rúmu ári síðan. Eystri-Leirárgarðar. Ljósm. sbs. Magnús og Andrea að leyfa litlum afkomanda að prófa glansandi fínan Massey Ferguson 135, stolt hús- bóndans. Við afhendingu vöggunnar á fæðingadeildinni haustið 2015. Á myndinni eru Andrea Þ. Björnsdóttir og fulltrúar Englafor- eldra, HVE á Akranesi, Slysavarnadeildarinnar Lífar og Styrktarfélagsins Gleym mér ei Ljósm. grþ.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.