Skessuhorn - 04.01.2017, Síða 14
MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 201714
Valdís Þóra Jónsdóttir, kylfingur úr
Golfklúbbnum Leyni á Akranesi
tryggði sér sem kunnugt er keppn-
isrétt á LET Evrópumótaröðinni,
sterkustu mótaröð Evrópu, með
glæsibrag eftir góða spilamennsku
á úrtökumótum í Marokkó fyrir jól-
in. Hafnaði hún í 2. sæti á úrtöku-
mótinu á samtals 15 höggum und-
ir pari. Er það besti árangur sem ís-
lenskur kylfingur hefur náð á lokaúr-
tökumóti fyrir Evrópumótaröðina.
Fyrir lokahringinn var Valdís í góðri
stöðu, sat í 4.-6. sæti á ellefu höggum
undir pari. Hún segist hafa haldið ró
sinni á meðan hún lék lokahringinn,
einbeitt sér að spilamennskunni og
ekki gefið stöðunni í mótinu neinn
sérstakan gaum. „Ég var voðalega
róleg, vissi í raun ekki í hvaða sæti
ég var á meðan ég var að spila enda
horfði ég ekkert á skortöflurnar úti á
velli. Ég var bara ánægð með spila-
mennskuna og það var mikill léttir
að klára þetta og gera það vel,“ seg-
ir Valdís Þóra í samtali við Skessu-
horn.
Aðspurð hvort ekki sé erfitt að
leiða stöðuna hjá sér í móti þar sem
mikið er undir segir Valdís það hafa
orðið sér til happs að töflurnar hafi
flestar verið á stöðum þar sem kylf-
ingar hefðu þurft að hafa aðeins fyr-
ir því að kíkja á þær. „Eina skortafl-
an sem ég passaði mig að kíkja ekki
á var sú sem blasti við eftir níundu
holu og við löbbuðum beint framhjá.
Ein var síðan milli 8. og 18. teigs og
í bæði skiptin var mér efst í huga að
komast á klósettið og síðan þurfti
ég að hlaupa á teig til að halda í við
næsta holl, þannig að ég gleymdi
bara þeim töflum,“ segir Valdís.
Erfitt ár að baki
Það var því ekki fyrr en mótinu
lauk að Valdís sá skorið sitt og ekki
fyrr en aðrir keppendur höfðu lok-
ið hringnum að endanleg sætaskipan
varð ljós. Hún var að vonum ánægð
með 2. sætið en kveðst hafa haft
fulla trú á því fyrir Marokkóferðina
að hún kæmist inn á Evrópumóta-
röðina. „Ég átti alveg von á því að
komast áfram og hafði trú á því að
ég gæti það. Ég vissi að ég gæti spil-
að golfið til þess að klára þetta. Ég
vonaðist til að ná að toppa á rétt-
um tíma og gerði það loksins,“ seg-
ir hún, en keppnisárið 2016 var erf-
iðara en mörg ár þar á undan. Hún
fór í uppskurð vegna meiðsla á fyrri
hluta ársins og átti oft og tíðum erfið
uppdráttar eftir það í mótum. „Árið
var mjög erfitt. Í mörgum mótum
þegar ég var að spila vel náði ég ekki
að klára marga hringina. Ég spilaði
heilt yfir langt undir getu meira og
minna allt árið og það var mjög erf-
itt,“ segir Valdís. „Svo loksins þeg-
ar ég spilaði vel, á Íslandsmótinu, þá
var ég jörðuð á netinu af fólki sem
var ósátt við að ég væri ósátt við að
tapa,“ segir Valdís. Hún lék frábært
golf og lauk keppni á níu höggum
undir pari en þurfti engu að síður að
játa sig sigraða þar sem sigurvegar-
inn, Ólafía Þórunn Kristinsdóttir,
lék á ellefu undir pari. Hún var að
vonum svekkt að hafa leikið svo vel
en þurft engu að síður að sætta sig
við silfrið og lýsti því í sjónvarps-
viðtali strax að móti loknu. „Þeg-
ar markmiðið er að vinna er mað-
ur ekki ánægður með neitt nema 1.
sætið. Þetta er ekki eins og í Mar-
okkó þar sem markmiðið var að vera
í topp 15, þá var 2. sætið bara fínt.
Það er allt annað þegar maður ætlar
sér að vinna,“ segir hún. „En þetta
tap og ekki síst það sem á eftir fylgdi
tók mjög á. Eftir þetta átti ég mjög
erfitt með æfingar og golfleik, en
með góðri hjálp og stuðningi komst
ég í gegnum það,“ segir hún.
Besta golfið á ferlinum
Það tókst og gott betur en það því
hún toppaði aldeilis á réttum tíma,
eins og hún sagði hér að framan. En
hvernig fer maður að því? „Þetta er
blanda af æfingum, æðruleysi, and-
legum undirbúningi og smá heppni.
Maður má ekki æfa of mikið því þá
er maður þreyttur þegar kemur í
mótið, en ekki of lítið heldur, því þá
er maður ekki nógu vel undirbúinn.
Þegar kemur að æfingum fyrir mót
er þetta spurning um að finna hinn
gullna meðalveg. Vinna nógu mik-
ið en gera síðan eitthvað allt ann-
að sem manni finnst skemmtilegt
þegar maður er búinn í þeirri vinnu
hverju sinni,“ segir hún. Hvað and-
legan undirbúning varðar kveðst
hún einnig hafa tekið hann föstum
tökum. „Ég er búin að vera að vinna
af og til með íþróttasálfræðingi allt
árið, allt frá því ég fór í aðgerðina
og í sumar í kringum Íslandsmót-
ið og eftir það líka. Síðan ræddi ég
við hann áður en ég byrjaði að keppa
úti í Marokkó. Fyrst fyrir fyrsta stig
mótsins og síðan fyrir annað stigið.
Þá ræðum við leikáætlunina mína,
ég segi honum frá henni upphátt
og það hjálpar til að hún virki raun-
verulegri og fleira slíkt,“ segir hún.
„Þar var markmiðið á fyrsta stiginu
einmitt að vera í topp tíu og ég náði
einmitt tíunda sæti. Síðan var mark-
miðið fyrir lokastigið að vera í topp
15 og ég yrði sátt með að spila á -6 í
heildina. En svo ákvað ég greinilega
bara að auka aðeins við það,“ bætir
hún við og brosir, enda besti árangur
sem íslenskur kylfingur hefur náð á
lokaúrtökumótinu. „Ég held að þetta
sé besta golf sem ég hef spilað. Á æf-
ingahringnum á fyrsta stiginu spilaði
ég rosalega vel og fékk smá auka búst
og meira sjálfstraust við það. Síðan
kom mótið þar sem ég var ekki al-
veg jafn góð en þá jók ég aðeins við
jafnvægisæfingar eftir hringina. Síð-
an á æfingahringjunum fyrir loka-
stigið spilaði ég líka mjög vel og þá
jókst sjálfstraustið aftur,“ segir hún.
„En þetta er klárlega besti sláttur
sem ég hef náð og sveiflan, sem við
erum búin að vinna í ég og þjálfarinn
minn Hlynur Geir Hjartarson, loks
að komast í þær skorður sem við vilj-
um hafa hana. Á þriðja hring í Mar-
okkó var ég til dæmis ósátt með að
vera bara á -3 því ég missti tólf pútt
fyrir fugli styttri en fimm metra og
eitt fjögurra metra pútt fyrir erni.
Þannig að ég vissi alveg að ég hefði
það í mér að spila á mjög lágu skori
og sú varð líka raunin daginn eftir,
þá féll þetta aðeins með mér.“
Stefnir á LPGA
Aðspurð um næsta keppnisár og
framtíðina segir Valdís að fljótlega
komi í ljós hvaða mót hún kemst
inn á og að í þeim ætli hún að gera
sitt allra besta. „Ég mun spila eitt-
hvað á Access mótaröðinni líka til
að halda mér í keppnisformi inni á
milli þeirra móta sem ég kemst ekki
inn á. En markmiðið er að halda
kortinu og vel það, sem sagt að vera
meðal 80 efstu á stigalistanum eft-
ir árið, til að þurfa ekki að fara aft-
ur í úrtökumót,“ segir hún. „Síð-
an er langtímamarkmiðið að kom-
ast inn á LPGA,“ bætir hún við, en
LPGA mótaröðin er sterkasta at-
vinnumótaröð kvenna í heiminum.
Til þess að komast inn á hana þarf
hún fyrst að komast í gegnum Sy-
metra mótaröðina. „Það er ekki
hægt lengur að fara beint í úrtöku-
mót fyrir LPGA lengur, núna þarf
að fara í gegnum Symetra túrinn
til að komast þangað inn. En þetta
kemur allt með kalda vatninu,“ seg-
ir Valdís og brosir.
Þangað til munu Skagamenn og
allir íslenskir golfáhugamenn fylgj-
ast grannt með gangi mála hjá Val-
dísi í mótum í Evrópu og heima á
Íslandi og styðja áfram við bakið á
henni, en fyrir stuðninginn er hún
afar þakklát. „Mig langar að þakka
öllu styrktaraðilunum mínum,
þjálfara, fjölskyldunni minni, Golf-
klúbbnum Leyni, Forskoti styrktar-
sjóði kylfinga og Íslensk ameríska
verslunarfélaginu fyrir þann frá-
bæra stuðning sem mér hefur verið
sýndur,“ segir Valdís Þóra Jónsdótt-
ir að lokum. kgk
„Ég held að þetta sé besta golf sem ég hef spilað“
- segir kylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir kylfingur frá Akranesi
Valdís Þóra Jónsdóttir, kylfingur úr Golfklúbbnum Leyni á Akranesi, á móttöku
sem haldin var í golfskálanum við Garðavöll eftir að hún sneri heim frá mótinu í
Marokkó. Ljósm. gbh.
Upphafshöggið á Íslandsmótinu í golfi 2015 sem haldið var á Akranesi.
Ljósm. kgk.
Fimmtudaginn 22. desember
stóðu Golfklúbburinn Leynir,
Golfsamband Íslands og Forskot
afrekssjóður fyrir móttöku í golf-
skálanum við Garðavöll á Akra-
nesi þar sem Valdís Þóra Jóns-
dóttir kylfingur var boðin vel-
komin heim eftir frækilega ferð
til Marokkó. Tilefnið var að Val-
dís Þóra tryggði sér keppnisrétt á
Evrópumótaröðinni í golfi 2017
en úrtökumótinu lauk fyrr í vik-
unni. Hún fékk fjölmargar góð-
ar kveðjur og sagði Þórður Emil
Ólafsson formaður Leynis að
klúbburinn ætlaði að styrkja Val-
dísi um 250.000 kr. í tilefni ár-
angursins sem og styðja við hana
á annan máta. Fjölmenni var
saman komið til að samfagna
með kylfingnum öfluga, en um
hundrað manns mættu.
Haukur Örn Birgisson forseti
GSÍ, Sigurhans Vignir úr stjórn
Forskots afrekssjóðs og Regína
Ásvaldsdóttir bæjarstjóri Akra-
neskaupstaðar héldu stuttar ræð-
ur þar sem afrek Valdísar voru rifj-
uð upp. Marella Steinsdóttir frá ÍA
og Hlynur Geir Hjartarson þjálf-
ari hennar héldu einnig ræður.
Valdís Þóra lauk síðan kvöldinu
með ræðu og ríkti mikil gleði hjá
félagsmönnum úr Leyni og fjöl-
skyldu Valdísar sem voru saman-
komin í golfskálanum.
mm/ Ljósm. gbh.
Valdís Þóra fékk
konunglegar móttökur
Þórður Emil Ólafsson, formaður Golfklúbbsins Leynis, færði Valdísi blómvönd eftir
að hann hélt stutta tölu þar sem hann upplýsti að klúbburinn myndi styðja hana
um 250 þús. krónur í tilefni árangursins.
Valdís Þóra Jónsdóttir, kylfingur úr Golfklúbbnum Leyni á Akranesi, tryggði
sér fyrir jólin þátttökurétt á sterkustu Evrópumótaröð kvenna í golfi eftir úr-
tökumót í Marokkó.
Fjölmenni var samankomið í golfskálanum við Garðavöll til að taka á móti Val-
dísi og gleðjast með henni.