Skessuhorn - 04.01.2017, Síða 22
MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 201722
Vörur og þjónusta
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
Sprautu- og bifreiðaverkstæði
Sólbakka 5, Borgarnesi • 437-1580 • sbb@simnet.is
Tjónaskoðun – Bílamálun – Réttingar – Bílrúðuskipti
Þjónustum öll tryggingafélög
Borgarness
www.skessuhorn.is
Þjónustuauglýsingar
Skessuhorns
Auglýsingasími:
433 5500
Auður H. Ingólfsdóttir, lektor við
Félagsvísindadeild Háskólans á
Bifröst, varði doktorsritgerð sína
Climate Change and Security in
the Arctic. Analysis of Norms and
Values Shaping Climate Policy in
Iceland í Háskólanum í Lapplandi
16. desember síðastliðinn. Um er
að ræða sameiginlega doktorsgráðu
frá Stjórnmálafræðideild Háskóla
Íslands og Félagsvísindasviði Há-
skólans í Lapplandi. Þar með eru
allir fastir kennarar við Félagsvís-
indadeild Háskólans á Bifröst með
doktorsgráðu.
Rannsóknarefni Auðar voru
loftslagsbreytingar og öryggis-
mál á Norðurslóðum og voru leið-
beinendur Auðar þau Þorgerð-
ur Einarsdóttir, prófessor í kynja-
fræði við Stjórnmálafræðideild, og
Lassi Heininen, prófessor í mál-
efnum norðurslóða við Háskólann í
Lapplandi. Andmælendur voru þau
Dr. Teemu Palosaari og Dr. An-
nica Kronsell. Dr. Lassi Heininen
stjórnaði athöfninni.
Hugtök úr femínisma og
kynjafræði notuð sem
greiningartæki
Auður leitar svara við eftirfarandi
spurningu í doktorsrannsókn sinni;
Þrátt fyrir að loftslagsbreyting-
ar ógni bæði náttúru og samfélög-
um manna hefur alþjóðasamfélagið
verið svifaseint að bregðast við.
Hvaða pólitísku og efnahagslegu
hagsmunir og menningarlegu gildi
koma í veg fyrir að við grípum til
aðgerða? Hún beitir tilviksrannsókn
til að skoða
áhrif lofts-
lagsbreytinga,
pólitíska orð-
ræðu og und-
i r l i g g j a n d i
gildi þessarar
orðræðu í einu
ríki á Norð-
urslóðum, Ís-
landi. Rann-
sóknin byggist á kenningum femin-
ískrar mótunarhyggju þar sem hug-
tök úr femínisma og kynjafræði eru
notuð sem greiningartæki. Gögn-
in sem stuðst er við samanstanda af
stefnumarkandi skjölum, viðtölum
við fólk sem hefur beitt sér í um-
ræðu um loftslagsmál og ræðum
stjórnmálamanna.
„Tilviksrannsóknin sýnir að þrátt
fyrir að fólk upplifi loftslagsbreyt-
ingar sem ógn á Íslandi þá sé ógn-
in óljós og fjarlæg og litlar rann-
sóknir eru til um samfélagsleg áhrif
hennar. Eftir greiningu á stefnu-
mótun og orðræðu um loftslagsmál
á Íslandi er niðurstaðan sú að þau
undirliggjandi gildi sem vísa veg-
inn í opinberri stefnumörkun eru
hvorki afgerandi karllæg né kven-
læg. Rannsóknin dregur hins vegar
fram mikilvægi þess að horfa heild-
stætt á umræðuna í samfélaginu og
setja orðræðu um loftslagsbreyting-
ar í samhengi við ríkjandi orðræðu
um öryggi og efnahagsþróun,“ segir
Auður um niðurstöður rannsóknar-
innar.
Hægt er að nálgast rafræna út-
gáfu af ritgerð Auðar á heimasíðu
Háskólans á Bifröst.
mó/mm
Nýr doktor við félags-
vísindadeildina á Bifröst
Eldur kviknaði í bíl rétt við bæinn
Brautarholt í Dölum á sjöunda tím-
anum að kvöldi annars dags jóla.
Fjögur ungmenni voru í bílnum og
komust þau sjálf út þegar eldsins
varð vart og sakaði ekki. Slökkvi-
lið Dalabyggðar fór á staðinn og
slökkti eldinn en bíllinn er gjöró-
nýtur.
Þetta var í annað skiptið í desem-
ber sem slökkviliðið er kallað út
vegna elds í bíl en 7. desember varð
bíll alelda sunnan Austurárdals.
sm
Bílbruni í Dölum
Enn eitt árið er liðið í aldanna
skaut. Upplifun hvers og eins af
hverju ári getur að sjálfsögðu ver-
ið margvísleg, sigrar, töp, gleði,
óhamingja eða hvað við viljum
kalla hlutina. Eins dauði getur
verið annars brauð.
Um áramót er gjarnan farið yfir
hvernig til hefur tekist á árinu.
Margt hefur vafalítið gengið vel
og annað miður eins og gengur í
lífsins ólgusjó. Framundan er nýtt
ár og enginn veit hvað það ber í
skauti sér. Vafalítið munu skiptast
á skin og skúrir á árinu sem er
að hefjast og vandamálin verða
mörg til að leysa. Ýmsar blikur
eru á lofti, mynda þarf nýja ríkis-
stjórn, sem enn hefur ekki tekist,
enda þótt góður tími sé liðinn frá
kosningum. Þarf að kjósa á nýjan
leik eða munu hin mismunandi
öfl samfélagsins sjá sig tilknúin
til þess að vinna saman og sigla
þjóðaskútunni sem öruggasta leið
gegnum brimskafla þjóðlífsins?
Auðvitað er það besta lausnin tak-
ist að taka upp ný og bætt vinnu-
brögð á Alþingi, þar sem þing-
menn taka saman höndum um að
leysa úrlausnarmálin á sem farsæl-
astan hátt fyrir þjóðina. Eftir slík-
um vinnubrögðum er kallað í dag.
Spennandi verður að sjá hvernig
ríkisstjórn við fáum.
Ásetningur og markmið flestra
er góður í upphafi hvers árs, en á
slíkum tímamótum er algengt að
fólk setji sér markmið, svo sem að
hætta að reykja, auka líkamsrækt,
vera góður við náungann eða ná
einhverjum sérstökum áföngum
á lífsleiðinni. Ekki síður er mikil-
vægt að muna eftir öllum hinum
góðu gildum lífsins.
Margir geta fagnað góðum ár-
angri á árinu, aðrir eiga um sárt
að binda sökum ástvinamissis eða
annarra óhappa. Við ástvinamissi
eða áfall af einhverjum toga kem-
ur vel í ljós hversu mikilvægt það
er að eiga sanna vini og hafa kær-
leikan að leiðarljósi. Við höfum öll
þörf fyrir það að þörfum okkar sé
mætt.
Á aðventunni luku flest sveitar-
félög í landinu við fjárhagsáætl-
anir sínar, þar sem sett eru fram
markmið um það sem gera skal á
nýju ári. Jafnhliða þessari vinnu
var skoðað hvernig til hefur tekist
á yfirstandandi ári og hvað hefði
mátt fara betur.
Hér í Grundarfirði hefur at-
vinnulífið blómstrað með ágætum
bæði til lands og sjávar á árinu sem
er að kveðja. Átök hafa verið nokk-
ur á vinnumarkaði og tekist hefur
að semja við suma hópa en ósam-
ið er við aðra. Verkfall sjómanna
er í gangi sem auðvitað er erfitt í
sveitarfélagi eins og Grundarfirði
sem byggir langstærstan hluta at-
vinnulífs íbúa á fiskveiðum og
fiskvinnslu. Vonandi tekst að leysa
þessa deilu hið snarasta það er best
fyrir alla.
Rekstur sveitarfélagsins á árinu
2016 gekk með ágætum. Mark-
mið sem sett voru fram í fjárhags-
áætlun nýliðins árs hafa að mestu
gengið eftir. Náðst hefur að sinna
allri grunnþjónustu í rekstri sveit-
arfélagsins vel. Auk þess sem unn-
ið hefur verið að margvíslegum
framkvæmdum og má þar nefna
lagfæringu sundlaugar, viðhald
skóla, malbikun gatna, endurskoð-
un aðalskipulags, lagfæringum við
helstu ferðamannastaði í sveitar-
félaginu Kirkjufellsfoss og Kolg-
rafafjörð og margt fleira.
Jafnframt hefur tekist að greiða
nokkuð niður skuldir og er það
mjög mikilvægt til þess að róð-
urinn inn í framtíðina verði létt-
ari. Skuldsetning sveitarfélagsins
hefur til skamms tíma verið allt
of mikil. Árangur hagræðingar og
og aðhalds er að skila sér í lækk-
un heildarskulda sveitarfélagsins.
Þessi árangur mun auðvelda okk-
ur að sinna skyldum sveitarfélags-
ins til framtíðar.
Í fjárhagsáætlun Grundarfjarð-
ar fyrir árið 2017 var ákveðið að
stilla álögum á íbúa í hóf. Marg-
ar gjaldskrár eru óbreyttar milli
ára. Má þar nefna fasteignagjöld,
leikskólagjöld, sem verða óbreytt
milli ára, fæðisgjald í leikskóla og
skóla hækkar um áætlaða verðlags-
breytingu. Gjaldskrár sundlaugar,
bókasafns og tjaldsvæðis eru einn-
ig að mestu óbreyttar. Ákvörðun
um litlar hækkanir á gjaldskrám
sveitarfélagsins skila sér til íbú-
anna. Jafnframt er ákvörðunin
tekin í þeirri von að hin alkunna
verðbólga sem Íslendingar þekkja
vel fari ekki á skrið. Mikill hagur
er í því fólgin að verðbólgustig
haldist lágt. Með því móti verð-
ur mun betra að reka fyrirtæki og
heimili landsins en ella væri.
Nýta verður vel tækifæri, sem
við höfum til þess að byggja upp
atvinnu og þjónustu á svæðinu.
Við þurfum að hlúa vel að grunn-
atvinnugreinunum og auka veg
þeirra sem mest. Mikilvægt er
að nýta þá miklu möguleika sem
felast í ört vaxandi ferðamanna-
straumi til svæðisins. Áhugi fólks
er mikill fyrir Snæfellsnesi, enda
státar svæðið af gríðarlegri nátt-
úrufegurð og hreinleika, sem
óhætt er að halda á lofti.
Jafnframt er mikilvægt að fjar-
skipti séu góð og ekki lakari en
best gerist á landinu. Nýjungar í
frekari vinnslu sjávarafurða og líf-
tækniiðnaður tengdur sjávarút-
vegi er einnig mjög áhugaverður.
Skapa þarf aukin fjölbreytileika í
atvinnuflórunni þ.a. ungt mennta-
fólk sjái sér hag í því að snúa heim
til starfa að afloknu námi.
Þrátt fyrir að ávallt sé nokkuð
öldurót í efnahagsmálum þjóð-
arinnar geta Grundfirðingar lit-
ið björtum augum til framtíðar-
innar. Með samstilltu átaki allra
getum við gert gott samfélag enn
betra. Landsbyggðafólk á óhikað
að halda á lofti kostum þess að búa
úti á landi, því þeir eru margir.
Með bjartsýni og krafti bæjar-
búa er ég fullviss um það að ný-
byrjað ár verður gott fyrir okkur
hér í Grundarfirði.
Ég vil að lokum þakka fyrir
samstarfið á árinu sem var að líða
og óska öllum Grundfirðingum
og nærsveitamönnum farsældar á
komandi ári.
Þorsteinn Steinsson, bæjarstjóri
Grundarfirði
Nýárspistill 2017
frá Grundarfirði
Pennagrein