Skessuhorn - 22.03.2017, Page 8
MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 20178
Ný heimasíða
SSV
VESTURLAND: Samtök
sveitarfélaga á Vesturlandi
(SSV) hafa tekið í notkun nýja
heimasíðu http://ssv.is. Hönn-
uður síðunnar er Aron Halls-
son vefhönnuður. „Það er von
okkar að með nýrri síðu tak-
ist að bæta upplýsingamiðlun
og þjónustu við sveitarfélögin,
stofnanir, atvinnulífið og ein-
staklinga sem nýta sér hana.
Á nýrri heimasíðu verða jafn-
framt ýmiskonar upplýsingar
og fróðleikur um Vesturland,“
segir í tilkynningu frá starfs-
fólki SSV. -mm
Fékk hjólsög í
höndina
VESTURLAND: Lögregla
og sjúkralið var einnig kall-
að að bílskúr við heimahús á
Akranesi í vikunni sem leið. Þar
hafði karlmaður á fertugsaldri
fengið hjólsög í höndina. Slas-
aðist hann talsvert og var flutt-
ur til aðhlynningar á Landspít-
alann. Sjö umferðaróhöpp voru
að sögn lögreglu tilkynnt í lið-
inni viku og var um minnihátt-
ar meiðsli að ræða í nokkrum
þeirra. Akstur var stöðvaður
hjá tveimur ökumönnum sem
reyndust hafa smakkað áfengi
en mældust undir refsimörk-
um. Að sögn lögreglunnar hef-
ur verið nokkuð um að öku-
menn skafi ekki framrúður eða
aðrar rúður bifreiða sinna áður
en lagt er af stað. Vart þarf að
fjölyrða um afleiðingar þess ef
illa fer og vill lögreglan hvetja
alla til að huga að þessu áður
en lagt er af stað til að forð-
ast óhöpp og eða afskipti lög-
reglumanna. -hlh
Tungnamenn
öflugir í ein-
menningi
BORGARFJ: Síðastliðið
mánudagskvöld fór fram ár-
leg keppni Briddsfélags Borg-
arfjarðar í einmenningi. Spil-
að var á fimm borðum. Keppni
var fremur jöfn framan af en þó
höfðu efstu spilarar áunnið sér
dágott forskot þegar yfir lauk.
Nágrannar úr Stafholtstung-
unum sigruðu með glæsibrag
og ljóst að á þeirra bæjum mun
ekki skorta páskaegg. Kristján
Axelsson í Bakkakoti varð hlut-
skarpastur með 65,3% skor, Jó-
hann Oddsson á Steinum annar
með 61,8% og Ingólfur Helga-
son á Lundum þriðji með 60%.
Framundan hjá félaginu er
tveggja kvölda tvímenningur,
en pör geta þó ráðið hvort þau
mæti bæði kvöldin. Eftir það fer
Opna Borgarfjarðarmótið fram
með þátttöku spilara úr lands-
hlutanum en mótið er jafnframt
Vesturlandsmót í tvímenningi.
Spilað verður dagana 10. 24. og
27. apríl en staðsetning er ekki
komin á hreint. -mm
Rekstur LMÍ
innan rammans
AKRANES: Rekstur Land-
mælinga Íslands á Akranesi var í
góðu samræmi við fjárheimild-
ir árið 2016, segir í tilkynningu.
Vel gekk á afmælisári, en stofnun-
in varð 60 ára 2016. „Ýmsir mikil-
vægir áfangar náðust í rekstrinum
eins og endurmæling á hnitakerfi
landsins sem er grunnverkefni sem
tengist m.a. vöktun á náttúruvá og
margskonar framkvæmdum. Fjár-
mál stofnunarinnar voru í góðu
jafnvægi og var unnið eftir fast-
mótuðum ferlum við að greina frá-
vik og bregðast við þeim. Framlag
til starfseminnar á fjárlögum 2016
voru 307,7 milljónir króna en sér-
tekjur voru 22,4 milljónir króna.
Stærsti kostnaðarliður stofnun-
arinnar voru laun og launatengd
gjöld. Aðrir stórir kostnaðarliðir
voru rekstur húsnæðis og aðkeypt
þjónusta vegna tölvu- og hugbún-
aðarmála,“ segir í tilkynningu.
Ársskýrslu Landmælinga Íslands
2016 má nálgast á lmi.is. -mm
Spilað á Borðeyri
HRÚTAFJÖRÐUR: Síðastlið-
inn laugardag lögðu briddsspil-
arar land undir fót og héldu ár-
legt Borðeyrarmót í tvímenningi í
bridds, að þessu sinni með þátttöku
18 para. Þar komu saman Borg-
firðingar, Hólmvíkingar, Dala-
menn, Húnvetningar og Skagfirð-
ingar aukn nokkurra úr Reykjavík.
Spiluð voru 44 spil. Borgfirðingar
gerðu góða ferð, en með sigur af
hólmi fóru Ingimundur Jónsson og
Jón H Einarsson með 60,4% skor.
Í öðru sæti urðu Flemming Jes-
sen og Sveinn Hallgrímsson með
56,5%. Í þriðja sæti varð Kristján
Björn Snorrason sem spilaði við
Jón Sigurðsson á Sleitustöðum, 88
ára kempu úr Skagafirði. -mm
Aflatölur fyrir
Vesturland
dagana 11. - 17. mars
Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu:
Akranes 7 bátar.
Heildarlöndun: 3.019.539 kg.
Mestur afli: Víkingur AK:
1.529.110 kg í einni löndun.
Arnarstapi 4 bátar.
Heildarlöndun: 37.366 kg.
Mestur afli: Bárður SH: 25.541
kg í þremur löndunum.
Grundarfjörður 5 bátar.
Heildarlöndun: 280.569 kg.
Mestur afli: Geir ÞH: 71.004 kg
í fjórum löndunum.
Ólafsvík 16 bátar.
Heildarlöndun: 446.917 kg.
Mestur afli: Þórsnes SH: 71.022
kg í einni löndun.
Rif 15 bátar.
Heildarlöndun: 568.891 kg.
Mestur afli: Saxhamar SH:
82.594 kg í fjórum löndunum.
Stykkishólmur 6 bátar.
Heildarlöndun: 191.206 kg.
Mestur afli: Þórsnes SH: 132.379
kg í fórum löndunum.
Topp fimm landanir á tímabilinu:
1. Víkingur AK - AKR:
1.529.110 kg. 15. mars.
2. Qavak GR - AKR:
1.474.048 kg. 14. mars.
3. Þórsnes SH - ÓLA:
71.022 kg. 11. mars.
4. Hringur SH - GRU:
65.904 kg. 15. mars.
5. Tjaldur SH - RIF:
63.242 kg. 13. mars.
-grþ
Hinrik Pálsson íbúi á dvalarheim-
ilinu Jaðri í Ólafsvík situr ekki auð-
um höndum þrátt fyrir að verða
79 ára á árinu. Hann er að eigin
sögn við hestaheilsu og dundar við
að hnýta króka á tauma sem síðan
fara á línuna. Kveðst hann vera bú-
inn að hnýta um 10 þúsund króka
á tveimur vikum. Hann segist hafa
nóg að gera og er að hnýta á króka
fyrir KG fiskverkun í Rifi. „Síðustu
tvær vikur hef ég hnýtt á 10 þúsund
króka í rólegheitunum.“ Hinrik
hefur unnið við beitningu í mörg ár
en starfaði sem sjómaður og vann í
fiskverkun í mörg herrans ár. Hann
segist njóta þess að ganga um og
vera úti við allt árið. „Mér líkar afar
vel að búa hér á Jaðri. Hér er dekr-
að við mann eins og prins,“ segir
Hinrik Pálsson. af
Íbúi á Jaðri liðtækur í krókunum
Laugardaginn 18. mars síðastlið-
inn fagnaði Elna Bárðarson 95
ára afmæli sínu á Dvalaheimilinu
Fellaskjóli í Grundarfirði, en hún
er elsti núlifandi Grundfirðing-
urinn. Elna tók á móti gestum á
laugardaginn og var fjölmenni í
veislunni. Starfsmenn Fellaskjóls
sungu afmælissönginn á finnsku
fyrir afmælisbarnið en Elna fædd-
ist í Finnlandi en hefur búið á Ís-
landi mestan part ævi sinnar. Eft-
ir sönginn tóku gestir hinn hefð-
bundna íslenska afmælissöng áður
en í kræsingarnar var haldið.
tfk
Elsti núlifandi Grundfirðingurinn
Ráðuneyti ferðamála og Samtök
ferðaþjónustunnar skrifuðu í síð-
ustu viku undir samstarfssamning
við Slysavarnafélagið Landsbjörg
sem felur í sér stóraukinn stuðn-
ing við verkefnið Safetravel. Samn-
ingurinn hljóðar upp á 35 milljón-
ir króna á ári og er til þriggja ára til
viðbótar því fjármagni sem Slysa-
varnafélagið Landsbjörg leggur
til verkefnisins árlega auk ómælds
tíma og vinnu sem sjálfboðalið-
ar félagsins leggja til. Ráðuneyti
ferðamála leggur fram 25 milljónir
króna á ári en lagði til samanburðar
fram 16 milljónir á liðnu ári. Sam-
tök ferðaþjónustunnar auka sitt
framlag úr sex milljónum árið 2016
í tíu milljónir á ári. Auk þess styður
Icelandair Group verkefnið mynd-
arlega.
„Samningurinn markar tíma-
mót og skapar forsendur til að auka
verulega við Safetravel verkefnið
sem Slysavarnafélagið Landsbjörg
sinnir varðandi slysavarnir og ör-
yggismál ferðamanna og hefur fé-
lagið þó unnið mikið og gott starf
á þessu sviði um árabil,“ segir í til-
kynningu. Á meðal verkefna sem
stefnt er að á grundvelli þessa samn-
ings er m.a. að efla hálendisvaktar
Slysavarnafélagsins Landsbjargar,
skjáupplýsingakerfi ferðamanna,
Safetravel.is m.a. með þýðingu á
akstursefni vefsins á kínversku og
upplýsingamiðstöð Safetravel m.a.
með lengri viðveru starfsmanna.
Þá eru ótalin fjölmörg verkefni
sem Slysavarnafélagið Landsbjörg
hefur sinnt undir merkjum Safetra-
vel og mun gera áfram svo sem
margvísleg útgáfa á fræðsluefni,
fyrirlestrar, endurnýjun sprungu-
korta á jöklum og fleira. Samning-
urinn veitir einnig aukið svigrúm til
að móta áherslur og verkefni frá ári
til árs.
„Öryggi og slysavarnir, ekki
síst með góðri upplýsingagjöf og
fræðslu, eru eitt af forgangsmál-
um ferðaþjónustunnar og það er
ánægjulegt að undirstrika það hér
með afgerandi hætti. Það er okk-
ur dýrmætt í þessu sambandi að
geta nýtt þá framúrskarandi fag-
mennsku, metnað og þekkingu
sem Slysavarnafélagið Landsbjörg
býr yfir,“ segir Þórdís Kolbrún R.
Gylfadóttir, ráðherra ferðamála
þegar skrifað var undir samning-
inn.
mm
Stóraukinn stuðningur við
Safetravel verkefnið