Skessuhorn


Skessuhorn - 22.03.2017, Blaðsíða 27

Skessuhorn - 22.03.2017, Blaðsíða 27
MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2017 27 Krossgáta Skessuhorns Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að leysa. Auk þess birtum við lausn á kross- gátu síðustu viku. Þeir sem vilja geta sent Skessuhorni lausnarorð/in á netfang- ið: krossgata@skessuhorn.is fyrir klukkan 15 á mánudögum. Athugið að fullt nafn og heimilisfang þarf að fylgja með lausninni. Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvu- pósti sendi lausnir á: „Skessuhorn - krossgáta, Kirkjubraut 56, 300 Akranesi (póst- leggja þarf lausnir í síðasta lagi á föstudegi). Dregið verður úr réttum innsendum lausnum og fær vinningshafinn bókargjöf frá Skessuhorni; „Pétrísk íslensk orða- bók með alfræðiívafi,“ eftir sr. Pétur Þorsteinsson. Alls bárust 44 lausnir við krossgátunni í blaðinu í síðustu viku. Lausnin var: „Marglitar.“ Vinningshafi er Bára Sigurjónsdóttir, Skipalóni 4, 220 Hafnarfirði. Máls- háttur Venja Fríð Lag Nota Ögn Rák Lá Kyn Bíll þreytt- ur Skoða Hæðir Rykkorn Tóm Úthey Skap Dvel Planta Kusk MJór Sæl- gæti Ryk Fugl Rúlluðu Vía Lána Nú þegar Kræsinn Brodd- göltur Starf Flana Nýjung 9 Laust Troðn- ingar Dreifa Þreytir Loga Endur- skins- merki Þak- skegg Hægur 6 Temja Rasa Korgur Læti Hávaði Spyr Enn Spil Hólmi 4 Óvissa Söngl Hjól 1 Hrönn Gola Klípa 2 8 Öf.tvíhlj Reka Afana Skinn Gnapa Kona Kjarr Keppni Grugg Dyntir Rík Ákafi Að- koma Nót Þegar Sérhlj. Titill Skoða Ílát Flan Taumur Ryk Rækta Gljá- húð Metur Rönd Konan Röst Muldur Óværa 7 Vitra Samhlj. Titill Jagast Ausa Smá- aldin Ætla Norn Þar til Áhald Vissa Þegar Vesæl Kinka Efni Mynni 5 Samhlj. Fúll Hópur Sk.st. Pena Tónn Kvakar 3 1 2 3 4 5 6 7 8 9 B R É F A H Ö F T Í L A U R G U R Ú Ó H Á Ð U R M I Ð V Ö R V N A R T A Ö L T E D R A M B S K L Ó L Y F T I R K R A N S A M T F R A M I R Ö K Æ K I Ð E I K R E M I Ð N R E L L A F R Ú T F R E R I A F I L A U R S Á I R Ð Ö G N Æ T T R Ó T O T T L A E R T I R A O F I N F O R M I L J A R F A N A R A S U Á U A U A U R Ð N Á K O R T F R D R Ó S M A N N O R Ð L O K Ó S B U R M A R K Á R A T Æ R R R Á M A A L T N R M A R G L I T A RL A U S N Ú R S ÍÐ A S T A B L A Ð I Vísnahorn Upphafs- og blómaskeið ungmennafélaganna var um margt stórmerkilegur tími og aðstæður að ýmsu leyti sérstakar. Mikið af ungu fólki í sveitum landsins og aðstæður almennt batnandi bæði hérlendis og erlendis. Menn barmafylltust af ættjarðarást og gerðu flest með það í huga að þeir væru að starfa föðurlandinu til góðs. Hvort sem það var að moka skít eða ríða út á sunnudögum. Víða reistu ungmennafélögin samkomuhús og var þar ómælt unnið í sjálf- boðavinnu. Eitt af þeim húsum var í gamni nefnt Blíðheimur og eins og gengur voru stúlkurnar með í huga alls konar garðrækt og grænfóður til vítamínframleiðslu ósparlegrar. Eitt sinn er menn riðu að því góða samkomu- húsi mun þessi hafa fæðst: Blasir nú við Blíðheimur. Bygging sú er dáfögur. Vex þar drjúgum vorhugur, von og trú og kærleikur. Einhver stakk upp á að breyta svo síðustu línu í: ,,vínber, þrúgur, kartöflur“ en hins veg- ar veit ég ekkert um höfundana og gæti verið þökk í ef einhver vissi um þá eða gleggra um þessi mál. Í Glugganum sem er sjónvarpsdag- skrárblað á Blönduósi er gjarnan vísa vikunn- ar og eitt sinn var þessi merkt S.H. en enga hugmynd hef ég um tilefnið eða hvað á undan var gengið: Gleymið ei að Guðmundur gæti verið litblindur. Áður var hann ágætur en eitthvað misjafnt hagmæltur. Ýmsir hafa gaman af að halda saman göml- um vísum og um þá tómstundaiðkun sagði Þórarinn Þorleifsson: Oft það gaman eykur mér, ánægjuna prísum, að tína saman til hvað er af tækifærisvísum. Eftir að Jón Gunnarsson flutti frá Gröf í Víðidal að Böðvarshólum í Vesturhópi sendi Þórarinn honum þessa jólakveðju: Vona ég af valdastól Vísir himna slyngur. Gleðileg þér gefi jól gamli Víðdælingur. Þegar Þorleifur Jónsson, faðir Þórarins, lést orti Björn S Blöndal: Húnvetnsk snilldarlipur ljóð leika færri um bláinn. Þau eru dofnuð þeirra hljóð Þorleifur er dáinn. Meðan hvorki sýklalyf né sýklar voru eins þróuð og nú er orðið dugði oft að bera eitt- hvað sótthreinsandi í sárin eða að minnsta kosti var það látið duga. Ingvar Hannesson skrifaði á Brennslusprittglas: Blönduósshéraðs brennsluspritt bakteríum varnar. Klínir því á kaunið mitt Kristján Arinbjarnar. Kristján Árnason, sem við Borgfirðingar kennum við Kistufell en Skagfirðingar við Skálá, hugsaði til endalokanna og þess sem þá tæki við er hann kæmi að dyrum Himnaríkis: Ég stansaði lasinn og lúinn við ljómandi gullið hlið. Hikandi heilsaði Pétri; „Hér sérðu Kidda smið“. Hann virti mig ekki viðlits en vindli í muninn stakk. Á skjánum leiftraði letur; ,,Lykilnúmerið takk! Tuttugu stafa tala er táknið sem um er spurt“. Þegar ég gapti og þagði þá sagði Pétur: ,,Burt“! Ekki veit ég um hvern Teitur Hartmann orti eftirfarandi en það er eiginlega betra að vera laus við að fá svona skeyti. Líka er svo sem óvíst hvort sá hinn sami hefur komist alla leið að hinu gullna hliði eða snúið við í miðri brekku samkvæmt leiðarlýsingu Davíðs Stef- ánssonar: Hvað er að tala um hugsun hans, hún er öll á reiki. Yfirkokkur andskotans eldi hann og steiki. Stundum hendir það söngvara að fara eitt- hvað frjálslega með texta sem þeir syngja. Það dæmi sem fer hvað mest í taugarnar á mér er misþyrming Helga Björnssonar í textanum ,,Ríðum, ríðum“ sem Skagakvartettinn flutti á sínum tíma. Ætla ekkert að gagnrýna söng- inn sem slíkan enda hef ég engin efni á því. Hallmundur Kristinsson velti fyrir sér hvern- ig útkoman gæti orðið ef menn syngju alltaf eftir því sem þeir heyrðu úr óskýrum fram- burði annarra í söng: Þú hreina svarta bindið mitt við hörmum spilltra vanda. Fram laðar kvartett trosið sitt, þá er hér naumast andað. Ég finn mér innst í hálsi hrjá - svo marga þynnri hendir- þar sneið af pylsu er föst á ská, svo nú kom verri endir. Það hefur líka gjarnan verið leikur hag- yrðinga að spreyta sig á erfiðum rímorðum og eitthvert sinn var þessum fyrriparti slegið fram: Grætur hagli heimurinn, með hörðu vagli á auga. Og síðan var botnað: Eykst með sagli seimurinn og sífelt stagl við drauga. Eftirfarandi vísa mun vera botnuð af Rós- berg Snædal hver sem hefur stungið að hon- um frampartinum en Malkus heitinn sálugi mun hafa glatað eyra sínu í skilmingum við Pétur postula ef mig rangminnir ekki veru- lega um Passíusálmana: Eyrað Malkus marið fann milli kalksteinslaga. Salka Valka sat og spann suður á Balkanskaga. Fyrir sirka 90 árum eða svo sátu nokkrir hagyrðingar í veitingahúsi við Laugaveginn og vafalaust með einhverja vökvun á lífsblóm- ið. Einn þeirra Maríus Ólafsson botnaði taf- arlaust alla vísuhelminga, sem komið var með. Kemur þá inn Jóhann Garðar Jóhannsson og er honum sagt að þarna sé maður sem botni alla fyrriparta og skuli hann koma með vísu- helming og segir hann þá: Hafi ég reynt að henda steini, hefur hann lent á réttum stað. Maríus botnaði óðara: Hafirðu lofað hundi beini, hefurðu alltaf svikið það. Jón Ingvar Jónsson hefur oft starfað sem leiðsögumaður og því lent í hinum ýmsustu aðstæðum eins og gengur enda kvað hann í rigningatíð: Lækur tifar létt um máða stigi, lítil buna verður mikið fljót, það er eins og þúsund hryssur migi, því er gott að hlaupa ögn við fót. Sagði ég því soddan beint við frúna, sem var hvorki ástarvæl né breim: ,,Gæfir þú mér gúmmístígvél núna get ég þurrum fótum arkað heim“. Með þökk fyrir lesturinn, Dagbjartur Dagbjartsson Hrísum, 320 Reykholt S 435 1189 og 849 2715 dd@simnet.is Lækur tifar létt um máða stigi - lítil buna verður mikið fljót

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.