Skessuhorn


Skessuhorn - 22.03.2017, Blaðsíða 13

Skessuhorn - 22.03.2017, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2017 13 Leiksýning í Tónbergi á Akranesi fimmtudaginn 23. mars kl. 20 Leikari: Elfar Logi Hannesson Leikstjórn: Þröstur Leó Gunnarsson Miðaverð er kr. 3.500/Eldri borgarar kr. 3.000/ Kalmansvinir kr. 2.500 Miðapantanir í síma 865-8974 Miðasala í Tónbergi frá kl. 18 á sýningardegi Gísli á Uppsölum SK ES SU H O R N 2 01 7 ATVINNA Óskum eftir að ráða vana vélamenn og bílstjóra. Mikil verkefni framundan. Áhugasamir hafi samband við Guðmund sími: 860-4200 eða í tölvupósti: skoflan@simnet.is Skóflan hf. - Faxabraut 9, 300 Akranesi SK ES SU H O R N 2 01 7 Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is „Það kom ekki annað til greina en að kaupa hús hér í gamla bænum eftir að við ákváðum að flytja í Borgar- nes. Við vildum ekki vera í skutlinu hér líka,” segja Flosi Hrafn Sigurðs- son og Þórunn Kjartansdóttir sem fluttu í Borgarnes úr Reykjavík síð- asta sumar ásamt börnunum sínum tveimur, Einari Jósef 5 ára og Önnu Diljá 2 ára. Ýmislegt kom til að þau fluttu frá Reykjavík, ekki síst ná- lægð við fjölskyldu og hagstætt fast- eignaverð í Borgarnesi. Á endanum keyptu þau einbýlishús undir Skóla- holtinu svonefnda við Skallagríms- götu, í faðmi Skallagrímsgarðs. „Það er varla hægt að hugsa sér betri stað- setningu. Hér geta börnin gengið í skólann og í íþróttahúsið og notið umhverfisins.“ Með skrifstofu heima Flosi og Þórunn eru bæði Vestlend- ingar að uppruna. Flosi er 31 árs, fæddur og uppalinn í Borgarnesi og á ættir að rekja á Akranes. Foreldr- ar hans eru Sigurður Már Einars- son fiskifræðingur og Anna Steinsen viðskiptafræðingur, búsett í Borgar- nesi. Þórunn er 33 ára og frá bænum Nýjubúð í Eyrarsveit á Snæfellsnesi, dóttir bændanna Kjartans Jósefsson- ar og Sigríðar Diljá Guðmunsdóttur sem þar búa. Flosi er héraðsdómslögmaður og er einn eigandi OPUS lögmanna í Reykjavík. „Það er alls ekki fyrir- staða að starfa í Reykjavík og búa hér í Borgarnesi. Ég er með skrif- stofu hér heima og vinn að jafnaði tvo daga þar og þrjá í Reykjavík, en þar er ég er líka með skrifstofu. Þetta er einungis 50 mínútna akstur sem fer vonandi minnkandi á næstu árum,“ segir Flosi sem bindur vonir við að einhvern tímann verði ráðist í mannvirki eins og Sundabraut. „Ég held að slíkt mannvirki munu hafa mikil áhrif í Borgarbyggð og gera sveitarfélagið að enn vænlegri búsetukosti. Ég mun alla vega ekki kvarta því þá get ég ekið beint af Kjalarnesinu og niður í miðbæ þar sem skrifstofan mín er. Þá getur maður sleppt öllum hringtorgunum í Mosfellsbæ sem mér finnst stund- um vera lengsti hluti ferðarinnar,“ bætir hann við og segir mjög líklegt að fleiri munu festa rætur í sveitarfé- laginu ef leiðin til Reykjavíkur stytt- ist. Ekki slæmt að geta gengið í vinnuna Þórunn er þjóðfræðingur að mennt en þegar fjölskyldan flutti í Borgar- nes hóf hún störf sem kennari við Grunnskólann í bænum. Hún kenn- ir krökkum í 5. bekk þar sem hún er umsjónarkennari. „Það leggst vel í mig að starfa í Grunnskólanum og þar hef ég kynnst mörgu heima- fólki. Borgarnes er nýtt fyrir mér þó við höfum komið hingað reglulega á undanförnum árum til að heim- sækja ömmu og afa. Ekki er heldur slæmt að geta gengið nokkur skref til að komast í vinnuna,“ segir Þór- unn, en grunnskólinn er á holtinu fyrir ofan hús hennar og Flosa við Skallagrímsgötu. „Síðan tek ég virkan þátt í starfi þjóðfræðinga hér á landi. Síðasta haust var ég kjörin formaður Fé- lags þjóðfræðinga á Íslandi. Það er ýmislegt á döfinni hjá okkur og ber helst að nefna undirbúning ráð- stefnu með Reykjavíkur-Akademí- unni og Sagnfræðingafélagi Íslands. Við munum halda hana hér í Borg- arnesi helgina 27. – 28. maí nk. Fyr- ir nokkrum árum stóðu félögin fyrir árlegum ráðstefnum á landsbyggð- inni sem lögðust svo niður. Nú er mikill áhugi að endurvekja þær og völdum við Borgarnes þar sem bær- inn er vel í sveit settur auk þess sem bærinn fagnar 150 ára afmæli í ár,“ segir Þórunn sem segir að dagskrá ráðstefnunnar verði kynnt nánar þegar líður á vorið. Óhugnanlegur fast- eignamarkaður Það eru ýmsir þættir sem höfðu áhrif á það að Flosi og Þórunn ákváðu að flytja úr Reykjavík og í Borg- arnes. Tvö atriði vógu þó þyngst segja þau, fasteignaverð og nálægð við fjölskyldumeðlimi. „Við bjugg- um í tæplega 80 fermetra íbúð í fjöl- eignahúsi í Sundahverfinu í Reykja- vík sem við keyptum árið 2011. Það lá fyrir að við ætluðum að stækka við okkur og þá var spurning hvað við myndum gera. Fasteignarverð í Reykjavík er hins vegar í furðulegu ástandi þessi misserin og því fór- um við að skoða vel eignir fyrir utan borgina. Borgarnes kom þar sterk- lega til greina. Þar er allt til alls fyr- ir barnafjölskyldur og svo er fast- eignaverðið þar með þeim hætti að við gátum keypt einbýlishús á verði íbúðar í fjöleignarhúsi í Reykjavík. Mismunurinn á fasteignaverðinu er eiginlega óhugnanlegur þegar mað- ur spáir í því,“ segja þau. „Inn í ákvörðunina spilaði einnig nálægð við fjölskyldumeðlimi. For- eldrar mínir búa hér í Nesinu og þá búa systur Þórunnar ásamt fjöl- skyldum í Borgarfirði,“ bætir Flosi við. „Það er líka styttra að fara vest- ur til mömmu og pabba. Þessar að- stæður höfðu mikil áhrif,“ segir Þór- unn. Íbúar geri bæinn sjálfbæran Þórunn og Flosi telja upp þrjár barnafjölskyldur til viðbótar sem hafa flust í Borgarbyggð á síðustu mánuðum. Allir eiga það sameig- inlegt að hafa búið á höfuðborgar- svæðinu og að annar makinn sæki þar vinnu. „Það hefur mikla þýðingu fyrir okkur að búa í samfélagi eins og Borgarnesi. Maður finnur strax fyrir meiri nálægð við íbúa og þann- ig finnst okkur við vera meiri hluti af samfélaginu en í Reykjavík. Kannski spilar inn í að við erum bæði utan af landi,“ segja þau. „Síðan skiptir máli fyrir íbúa í bæ eins og Borgarnesi að rækta vel tengslin við nærsamfélagið og leggja af mörkum til að gera bæinn eins sjálfbæran og kostur er. Nefna mætti sem dæmi að versla eins og hægt er í heimabyggð. Þannig höldum við íbúarnir uppi þjónustustiginu og gerum bæinn enn vænlegri til bú- setu en ella,“ segja þau að lokum. hlh Varla hægt að hugsa sér betri staðsetningu Rætt við Flosa Hrafn Sigurðsson lögmann og Þórunni Kjartansdóttur kennara og þjóðfræðing í Borgarnesi Horft yfir Borgarbraut í Skallagrímsdal í Borgarnesi. Skallagrímsgarður sést til hægri. Þórunn og Flosi ásamt börnum sínum Einari Jósef og Önnu Dilja í stofunni heima á Skallagrímsgötu. Ljósm. Gunnhildur Lind.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.