Skessuhorn


Skessuhorn - 22.03.2017, Blaðsíða 28

Skessuhorn - 22.03.2017, Blaðsíða 28
MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 201728 Vörur og þjónusta Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Drei bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 Sprautu- og bifreiðaverkstæði Sólbakka 5, Borgarnesi • 437-1580 • sbb@simnet.is Tjónaskoðun – Bílamálun – Réttingar – Bílrúðuskipti Þjónustum öll tryggingafélög Borgarness www.skessuhorn.is Þjónustuauglýsingar Skessuhorns Auglýsingasími: 433 5500 Almennar bílaviðgerðir Rúðuskipti Smurþjónusta Stjörnuviðgerðir á framrúðu Dekkjaskipti og viðgerðir Tölvulestur Sólvellir 5 – Grundarfjörður – s: 438-6933 – kbbilav@simnet.is Opnunartími 8-12 og 13-17 – Verið velkomin Pennagrein Árleg byssusýning Veiðisafnsins á Stokkseyri, sem í ár verður í sam- vinnu við verslunina Hlað, verður haldin laugardaginn 25. og sunnu- daginn 26. mars frá kl. 11–18 í húsa- kynnum Veiðisafnsins, Eyrarbraut 49, Stokkseyri. Þar mun Hjálmar í Hlað og félagar sýna úrval skot- vopna og búnað til skotveiða ásamt sjónaukum og aukabúnaði, til sýnis og sölu. Fjölbreytt úrval skotvopna verður til sýnis; haglabyssur, rifflar, skammbyssur, herrifflar ásamt ýmsu tengdu skotveiðum, m.a úr einka- söfnum. Thomas Danielsen frá Bla- ser í Þýskalandi verður á staðnum ásamt Arnfinni Jónssyni byssusmið sem kynnir sýna vinnu. Kynntir verða rifflar frá Blaser, Sauer, hagla- byssur frá Marocchi og Blaser, sjón- aukar frá Zeiss og Meopta ásamt hljóðdeyfum frá Hausken, Devik og Freyr, endurhleðsluvörum frá Hor- nady, Redding, Lyman, Berger Bul- lets og fl. Einnig verða til sýnis skotvopn og munir frá Sverri Scheving Thor- steinssyni, Sigurði Ásgeirssyni, Einari frá Þverá, Sveini Einarssyni fv.veiðistjóra, Sigmari B. Hauks- syni og Drífu-haglabyssur frá Jóni Björnssyni heitnum frá Dalvík svo eitthvað sé nefnt. Skotvís verður einnig með kynningu á sinni starf- semi. Allt áhugafólk um skotvopn og veiðar er velkomið, aðgangseyrir er kr.1500 og 750 kr. börn 6-12 ára. -fréttatilkynning Byssusýning í Veiðisafninu á Stokkseyri Þjóðvegir landsins eiga sér árhundr- aða sögu, þeir hafa verið byggðir upp og þeim við haldið af þegnunum samkvæmt lagafyrirmælum og svo er enn þótt þeir beri nú önnur skrán- ingarnöfn. Þannig munu í lögum ákvæði um að hluti gjalda af bifreiða- eldsneyti, hluti þungskatta af bifreið- um og hluti innflutningsgjalda af bif- reiðum skuli renna til uppbyggingar og viðhalds vega. Í upphafi þessarar aldar þ.e. til 2008 var uppbygging og viðhald vegakerfisins í viðunandi farvegi þótt vissulega væru ekki allir ánægðir. Við hrunið 2008 breyttist geta sam- félagsins mjög til hins verra. Talið er að kostnaður ríkisins (þegnanna) af hruninu hafi numið 500 – 700 millj- örðum og þurfti víða að leita fanga til að mæta því. Óhjákvæmilegt reynd- ist þá að skera mjög niður framlög til uppbyggingar og viðhalds þjóð- veganna þótt gjaldtaka af bifreiða- eigendum breyttist ekki. Því má með nokkrum rétti halda því fram að ríkið hafi fengið neyð- arlán hjá þjóðvegunum á árabilinu 2009 til 2014. Ekki verður hér reynt að meta heildarupphæð lánsins en sé miðað við vegafé fyrir hrun og á fjár- lögum ársins 2017 annars vegar, og vegafé 2009 – 2014 hins vegar, nem- ur upphæðin væntanlega einhverjum tugum milljarða. Sem betur fer voru ekki öll fram- lög ríkisins í kjölfar hrunsins tapað fé. Þannig mun ríkið t.d. hafa lagt Arion banka til um 50 milljarða sem horfur eru á að verði endur- greiddir að fullu á næstu mánuðum. Því vakna nú eðlilega spurningar um hvernig eigi að ráðstafa því fé. Flest- ir virðast sammála um að fénu skul- ið varið til að greiða niður skuldir, en hvaða skuldir? Við skuldauppgjör er skuldum jafnan skipt í forgangskröfur (sem greiða skal fyrst) og almennar kröfur. Söfnun skulda við þjóðvegina hefur leitt til þess að nýbyggingar vega hafa verið mög takmarkaðar frá hruni og viðhaldi ábótavant. Þetta er óviðun- andi og þó enn verra fyrir mjög auk- ið álag á vegi landsins vegna aukins fjölda ferðamanna. Þessir ferðamenn eru í raun bjargvættir þjóðarinnar og meginskýring þess hve efnahag- ur þjóðarbúsins hefur batnað hratt. Ætla má að ástand þjóðveganna sé eitt alvarlegasta vandamálið varðandi þjónustu við ferðamenn og líklegast til að spilla orðspori okkar. Veigamikil rök hníga þannig að því að skuldin við þjóðvegina sé for- gangskrafa sem greiða skuli á undan öðrum skuldum ríkisins, sé svo ætti að nýta a.m.k. hluta þess fjár sem fæst við sölu Arionbanka til sérstaks átaks í vegagerð óháð nýsamþykktum fjár- lögum. Ari Teitsson. - Greinin birtist fyrst í Skarpi, 9. mars 2017. Er skuld við þjóðvegi landsins forgangskrafa? Pennagrein Sveitarfélög á Íslandi eru enn of mörg og sameining þeirra hef- ur verið framkvæmd með eins heimskulegum hætti og hugsast getur – hér á sennilega að standa „með ómarkvissum hætti“. Hún hefur tekið áratugi og farið fram í einhvers konar vinsældarkosning- um þar sem markmiðið er að íbúar hins sameinaða sveitarfélags græði peninga. Þjónustan á að verða betri og rekstrarkostnaðurinn lægri. En hvað sveitarfélagið á að taka sér fyrir hendur hefur oft verið hálfgert aukaatriði þó einstaka sinnum hafi rekstur stofnunar eða meðferð ein- hverra eigna verið aðal atriðið. Alþingi Spaugilegast af öllu er þó að Al- þingi – stofnunin sem setur sveit- arfélögum reglur til að vinna eft- ir – harðneitar að koma að sam- einingu sveitarfélaga með öðrum hætti en fjárframlögum sem ætlað er að egna með fyrir kjósendur sem tekist hefur að plata í sameiningar- kosningu það og það skiptið. Það er kannski ein leið til að auka veg hins háa Alþingis að skipta út þing- mannafrumvörpum um vínbúðir og það hvað klukkan eigi að vera fyrir tillögur um bætta stjórnsýslu í landinu (og auknar refsiheimildir til handa mannanafnanefnd!). Skólar Mér datt þetta í hug þegar ég sá vitnað í sveitarstjórn Borgarbyggð- ar sem var nú að vandræðast með það að dýrara væri að reka mötu- neyti í grunnskólum í dreifbýli heldur en í Borgarnesi. Áttaði mig reyndar ekki á því hvort markmið- ið væri að gera reksturinn dýrari í Borgarnesi eða ódýrari í sveit- unum en einhvern veginn virt- ist sumum sveitarstjórnarmönn- um þetta eiga að kosta það sama. Ég man að þegar ég sat í þessari stöðu – að vera sveitarstjórnarmað- ur í Borgarbyggð – voru menn sí- fellt að finna að rekstri mötuneyt- isins við Grunnskólann í Borgar- nesi. Maturinn var ekki nógu góð- ur, verðið var of hátt eða of lágt, börnin þurftu að ganga of langt og Pétur græddi of mikið. Ekki veit ég um ávinning hótelhaldar- ans (sumir virðast græða bæði við það að draga andann og reka við) en vona að áformaðar byggingar- framkvæmdir við skólann verði vel lukkaðar. Hver þróunin verð- ur svo í skólamálum í héraðinu er ekki gott að segja til um en þó er orðið ljóst að áform sveitarstjórnar um breytingar á skipan skólahverfa sem voru að gerjast frá 2008 út árið 2009 byggðu á framtíðarsýn sem ekki hefur gengið eftir. Senni- lega er því gott að draga lappirn- ar og fara sér hægt þegar mönnum sýnist lag að loka skólum. Finnbogi Rögnvaldsson Hugleiðingar gleymds stjórnmálaleiðtoga: Sameinaðir stöndum vér Pennagrein Í fjárhagsáætlun Borgarbyggðar sem lögð var fram fyrir árið 2017 var lögð fram framkvæmdaáætlun fyrir 2017-2020. Sú áætlun gerir ráð fyr- ir að ríflega milljarður verði lagð- ur í framkvæmdir og fjárfestingar á tímabilinu. Má þar nefna endurbætur og viðbyggingu við Grunnskólann í Borgarnesi sem löngu tímabært er að ráðast í. Nýjan 40 barna leikskóla á Kleppjárnsreykjum, viðbyggingu við leikskólann Klettaborg, útikennslu- stofu á Hvanneyri og endurbætur á Íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi. En áætlunin gerir ráð fyrir að ráðist verði í framkvæmdir og fjárfestingar í skólahúsnæði og íþróttamannvirki á tímabilinu fyrir ríflega 800 milljónir. Í samanburði er einungis gert ráð fyrir að á tímabilinu verði lagðar um 130 milljónir í brýn verkefni eins og götur, vegi, gangstéttir og stíga. Og um 50 milljónum er ráðstafað í aðra liði. Þar heyra undir slökkvilið, áhaldahús, ferðaþjónusta fatlaðra, ljósleiðaraverkefni o.fl. Meirihluta sveitarstjórnar virð- ist í fjögurra ára framkvæmda- og fjárfestingaáætlun sem lögð er fram skorta vilja eða getu til að leggja fram framtíðarsýn á nýtingu fasteigna í eigu sveitarfélagsins til framtíðar. Á yfirstandandi ári er gert ráð fyrir að um 50 milljónir fari í viðhaldsfram- kvæmdir. Þessi fjárveiting eins og gefur að skilja dugar þó aðeins til að ráðast í brýnasta viðhald á fasteignum í eigu sveitarfélagsins. Fyrir liggur að þörf er á endurbótum og miklu við- haldi á flestum eignum sveitarfélags- ins t.a.m. mörgum félagsheimilum, félagslegum íbúðum, stofnunum sem og viðhaldi á flest öllu skólahúsnæði. Þetta á við um leikskólana Hraunborg á Bifröst og Klettaborg í Borgarnesi. Grunnskóla Borgarfjarðar á Varma- landi, Kleppjárnsreykjum og Hvann- eyri. Sveitarfélagið á mikið safn eigna í Brákarey sem eru að stórum hluta í slæmu ástandi og kostnaður við end- urbætur myndi hlaupa á hundruðum milljón króna ef ráðist yrði í þær. Í upphafi kjörtímabilsins var lögð mikil vinna í að rýna í rekstur og eignasafn sveitarfélagsins með það að markmiði að hagræða, bæta nýtingu á húsnæði og selja eignir. Afrakstur af þessari nauðsynlegu endurskipulag- inu og sölu eigna skilaði fljótt mikl- um viðsnúningi í rekstri og jákvæð- um niðurstöðum. Því miður virðist núverandi meirihluta með aðgerða- leysi gagnvart samþykktum verkefn- um og skorti á eftirfylgni með fjár- hagsáætlun ekki vera að takast að við- halda þessum árangri sem ætlað var að treysta undirstöður sveitarfélags- ins til framtíðar. Í allri uppbyggingu og endurbót- um á húsnæði, gatnagerð og annars í eigu sveitarfélaginu er mikilvægt að líta til íbúaþróunar og forgangs- raða verkefnum. Um mikla fjármuni er ræða og fjárfestingu til framtíðar. Ábyrgð kjörinna fulltrúa er mikil og því lykilatriði að skýr framtíðarsýn liggi fyrir til grundvallar ákvörðun- um sem byggja á ráðgefandi þekk- ingu um skipulagsmál og lýðfræði- lega þróun. Annað er ábyrgðarleysi. Guðveig Eyglóardóttir Höf. er oddviti Framsóknarmanna í Borgarbyggð. Hundruð milljóna í skólahúsnæði án framtíðarsýnar

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.