Skessuhorn


Skessuhorn - 22.03.2017, Blaðsíða 18

Skessuhorn - 22.03.2017, Blaðsíða 18
MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 201718 Grundfirðingurinn Marta Magn- úsdóttir var á dögunum kjörin skátahöfðingi Íslands. Varð hún þar með yngsti skátahöfðinginn í sögu Bandalags íslenskra skáta, aðeins 23 ára gömul. Hún er jafnframt að- eins önnur konan sem gegnir emb- ættinu. Skessuhorn hitti Mörtu að máli síðastliðinn fimmtudag og ræddi við hana um nýja embættið og skátastarfið. Hvers vegna ákvað hún að gefa kost á sér sem skáta- höfðingi? „Það var reyndar ekki vegna áskorana, ég hafði ekki fengið margar svoleiðis. Ég hef bara mjög mikinn áhuga á og ástríðu fyrir vel- ferð ungmenna og tel að hægt sé að tryggja hana að hluta til í gegnum skátastarfið,“ segir Marta. „Ég vildi leggja mitt af mörkum og ákvað því að gefa kost á mér til forystu. Á kjördag kom í ljós að aðrir skátar voru bara mjög ánægðir með mitt framboð,“ segir hún og þakkar traustið. „Ég hef fundið fyrir mikl- um stuðningi frá mörgu fólki og lít á þetta embætti sem skóla fyrir mig,“ segir hún og leggur áherslu á að við stjórn skátahreyfingarinnar og í skátafélögunum sé áhersla lögð á samstarf. „Þetta er sjálfboðaliðastarf eins og önnur störf innan hreyfing- arinnar, enda byggist allur okkar kjarni á sjálfboðavinnu,“ segir hún. Neistinn kviknaði í skátaferð Sjálf kveðst hún ekki hafa átt von á því þegar hún mætti á sinn fyrsta skátafund að átta árum síðar yrði hún skátahöfðingi Íslands. Það sem meira er, hún var ekki einu sinni viss um að hún myndi verða skáti yfir- höfuð. „Þegar ég byrjaði í skátunum 15 ára gömul þá hafði ég ákveðna ímynd af skátum og skátastarfinu. Þó ég eigi enn eftir að hitta þann skáta sem endurspeglar þá ímynd sem ég hafði þá truflaði þetta mig á fyrsta fundinum og ég var ekki alveg sannfærð. En skátarnir eru þann- ig að maður þarf að gefa þeim smá séns þegar maður kemur alveg nýr inn. Ég fattaði sjálf ekki hvað skát- arnir snúast um eftir fyrsta viðburð- inn. Það vildi bara þannig til að þegar ég mætti á fyrsta fundinn þá skráði ég mig í skátaferð og borg- aði fyrir hana. Ég ákvað því að gefa þessu smá séns og fara í ferðina. Þar small einhvern veginn allt og ég hef ekki séð neitt nema skátana síðan,“ segir Marta. „Ég áttaði mig ekki á því fyrr en síðar að það var í þessari ferð sem ég tók fyrst eftir því hvað almennt allir í skátunum eru örugg- ir með sig, ánægðir, glaðir og hjálp- samir,“ bætir hún við. Allir hluti af hópi „Það er mjög góður andi og hvatn- ing í skátunum. Þar er reynt að mæta hverjum og einum á þeirra eigin forsendum og gleðin höfð í fyrirrúmi í öllum verkefnum og ferðum. Þegar farið er svona að þá eflist sjálfstraust hvers og eins. Markmið skátanna er að efla ungt fólk til virkni í samfélaginu. Flest verkefna skátanna eru samvinnu- verkefni eða samfélagsverkefni og skátahreyfingin fagnar öllu sam- starfi skátanna og annarra félaga,“ segir Marta. Hún fræðir blaða- mann um það að í heiminum séu um 40 milljónir skátar sem geri skátahreyfinguna að stærstu æsku- lýðs- og friðarhreyfingu í heimin- um. „Allir skátar í heiminum sverja sama skátaeiðinn og skátastarfið byggir alls staðar á sama grunni. Þær eru nokkurs konar siðaregl- ur skátaheimsins, eiga að vísa veg- inn í rétta átt. Skátar upplifa sig alls staðar þannig að þeir séu mikilvæg- ur hluti af hópi; fyrst þeirra eigin skátahópi, svo sínu skátafélagi, síð- an skátahreyfingunni í sínu landi og loks alheimsskátahreyfingunni,“ segir Marta. Skátastarfið er fyrst og fremst ætl- að börnum og ungmennum á aldr- inum 8-25 ára. Það er hinn eiginlegi skátaaldur. „En „eitt sinn skáti, ávallt skáti“ og til að geta mætt öllum börn- um og ungmennum og veitt þeim þá leiðsögn sem við viljum geta veitt þeim, þá þarf að sækja í mannauð þeirra sem eldri eru,“ segir Marta og bætir því við að síðustu ár hafi það færst í vöxt að fólk prófi skátastarf- ið í fyrsta sinn á unglingsaldri, eins og hún sjálf, eða jafnvel þegar það er komið yfir tvítugt og á fullorðinsár. „Ég mæli með skátastarfi fyrir alla á öllum aldri. Það fylgir því ótrúlega mikil gleði og skátastarf snýst mikið um að læra á lífið. Þau verkefni sem lögð eru fyrir á skátafundum eiga að vera skemmtileg og gagnleg. Hvort manni tekst að leysa þau er aukaat- riði, það er lífsýnin og hæfnin sem maður fær út úr því að reyna sem er aðal atriðið. Þess vegna er skátastarf fyrir alla, hvort sem fólk vill starfa í innsta hring og koma að vikulegu starfi skátafélaganna eða vera í bak- landinu og geta stokkið í tilfallandi verkefni. Það geta allir gert gagn og fengið hlutverk við sitt hæfi,“ segir hún. Gott starf á Vesturlandi Á Íslandi eru starfandi 25 skátafélög. Þau er að finna í hverjum landshluta en þó ekki í hverju bæjarfélagi. „Það var þannig einu sinni að skátafélög voru í hverjum bæ, en ekki leng- ur. Verkefni síðustu ára hefur verið að hvetja fólk sem vill sjá skátastarf í sínu bæjarfélagi til að stofna félag eða endurvekja skátastarf sem hef- ur af einhverjum ástæðum lagst af,“ segir Marta og hvetur alla áhuga- sama um slíkt til að hafa samband við skrifstofu Bandalags íslenskra skáta. „Starfsfólkið þar og sjálfboða- liðar eru boðnir og búnir að aðstoða við að endurvekja eða stofna skátafé- lög,“ segir hún. Á Vesturlandi eru starfandi fjögur skátafélög; á Akranesi, Borgarnesi, Grundarfirði og Búðardal. „Skáta- starf á Vesturlandi er að mínu mati gott og mjög skemmtilegt samstarf á milli félaganna. Einkum Akra- ness og Borgarness annars vegar og svo Grundarfjarðar og Búðardals hins vegar. Félögin hafa í samein- ingu staðið að ferðum og fjölmörg- um viðburðum. Það veitir skátum á hverjum stað einstakt tækifæri til að kynnast öðrum í sínum landsfjórð- ungi,“ segir Marta. „Góður kjarni skátaleiðtoga og fullorðinna halda uppi mjög faglegu og góðu starfi á Vesturlandi. Skátarnir sjálfir virðast vera ánægðir með starfið og það er það sem skiptir mestu máli,“ bætir hún við. Almennt segir Marta skátahreyf- inguna vel setta og starfið gott. „Við erum mjög ánægð með okkar starf. Í framtíðinni ætlum við að reyna að gera enn betur til að skátar geti notið sín á sama tíma og við bjóð- um nýja skáta velkomna. Öll tann- hjól snúast, við erum eins og er með gott fólk víða um land sem vinnur að fundum og viðburðum og síðan vinnur skrifstofan og vinnuhópar sjálfboðaliða að stoðefni sem sjálf- boðaliðar á hverjum stað geta nýtt sér,“ segir hún. „Við munum halda áfram að hvetja fólk til að taka þátt í skátastarfi, hvort sem það hefur gert það áður eða ekki og við bjóð- um nýja og gamla félaga velkomna í hópinn,“ bætir hún við. Heimsmót á Íslandi í ágúst En það er ýmislegt spennandi á döf- inni hjá íslenskum skátum. Marta hefur orð á því að á sumri kom- andi verði haldinn hér á landi stærsti viðburðurinn í sögu skátahreyf- ingarinnar á Íslandi. „Eitt af því skemmtilegasta sem skátar hvar sem er í heiminum gera er að fara á al- þjóðlegt skátamót. Ástæðan er sú að skátar hafa allir svarið sama eiðinn. Þeir lifa því eftir sömu gildum og hafa svipaða lífssýn. Það er því búið að brjóta ísinn þegar margir skát- ar koma saman og skátar eiga mjög auðvelt með að kynnast innbyrð- is,“ segir hún. „Hér á Íslandi verð- ur í byrjun ágúst haldið heimsmót Roverskáta, það er að segja skáta á aldrinum 18-25 ára. Við eigum von á um fimm þúsund skátum frá öll- um heimsálfum, til dæmis ætla 300 skátar frá Brasilíu og 500 ástralskir að leggja á sig ferð yfir hálfan hnöt- inn til að mæta á þetta mót,“ segir hún. „Mótið stendur yfir í átta daga. Búið er að skipta skátunum upp í 50 manna hópa, en hver hópur inni- heldur tvo frá hverju landi. Fyrstu fjóra dagana munu þessir skáta- hópar sinna samfélagsverkefnum víðs vegar um landið, þar á meðal á Akranesi,“ segir hún og bætir því við að áhugasamir skátar af Vestur- landi geti haft samband við sín fé- lög eða skrifstofu bandalagsins og fengið að taka þátt í þessum verk- efnum. „Síðustu fjóra dagana hittast síðan allir á Úlfljótsvatni og verð- ur þar því eina helgi eitt af stærri bæjarfélögum landsins og tvímæla- laust það fjölbreyttasta þar sem fjöl- breytileiki, gleði og vinátta fær að njóta sín,“ segir Marta. „Heimsmót- ið verður einstakur viðburður fyrir íslensk ungmenni og íslenskt sam- félag,“ segir Marta Magnúsdóttir, skátahöfðingi Íslands, að lokum. kgk „Skátastarf snýst mikið um að læra á lífið“ -segir Marta Magnúsdóttir í Grundarfirði sem nýverið var kjörin skátahöfðingi Íslands Marta Magnúsdóttir, skátahöfðingi Íslands. Skáti og verðandi skátahöfðingi í helgarferð í Húsafelli. Þátttakendur í Skátapeppi, skátamóti sem haldið var í Grundarfirði haustið 2015. Um 80 ungmenni tóku þátt í mótinu. Grundfirskir skátar á Landsmóti á Úlfljótsvatni á síðasta ári.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.