Skessuhorn


Skessuhorn - 22.03.2017, Blaðsíða 12

Skessuhorn - 22.03.2017, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 201712 Sigurganga liðs Leiknis/Skáneyjar hélt áfram í Vesturlandsdeildinni í hestaíþróttum en keppt var í gæð- ingafimi í Faxaborg á föstudaginn. Þetta var fjórða mótið í röð sem liðið hreppti liðsplattann fyrir bestan sam- eiginlegan árangur í grein kvöldsins. Nú leiða því Reykdælingar keppn- ina með yfirburðum og eru í dágóðri stöðu hvað framhaldið varðar nú þegar tvær keppnisgreinar eru eftir. Það var Haukur Bjarnason með Ísar frá Skáney sem hafði sigur í gæðinga- fiminni með 6,74 stig. Önnur varð unnusta hans Randi Holaker á Þyt með 6,69 stig og Siguroddur Péturs- son þriðji með 6,61 stig. Í einstak- lingskeppninni nægði þriðja sætið Siguroddi til að halda forystu sinni, en hann er nú með 25 stig. Jöfn í öðru sæti eru þau Haukur og Randi á Skáney með 24 stig en frændsystkin- in Konráð Valur og Berglind á Laug- arvöllum eru í sætunum þar á eftir. Staðan í liðakeppninni er nú þessi: 1. Leiknir/Skáney - 187,5 stig 2. Berg/Hrísdalur - 153 stig 3. Snókur/Cintamani - 109 stig 4. Fasteignamiðstöðin - 96,5 stig 5. Gufudalur/Arnbjörg/Söðulsholt - 90 stig 6. KB/Fígaró/Mosi ehf. - 48 stig. mm/ Ljósm. iss. Samfelld sigurganga Leiknis/Skáneyjar Haukur Bjarnason og Ísar urðu efstir á föstudaginn. Verðlaunahafar í gæðingafiminni. Andrés Ingi Jónsson, alþingismað- ur VG í Reykjavík, hefur lagt fram fyrirspurn á þingi til umhverfis- ráðherra um kostnað almennings við förgun óumbeðins ruslpósts. Andrés Ingi segir fyrirspurn sína sprottna vegna umræðna á sam- skiptasíðunni Betri Reykjavík. „Þar hefur mikið verið rætt um ruslpóst og meðal annars er velt upp þess- ari spurningu: „Hvað ætli fari mörg tonn af óumbeðnum „fríblöðum“ og ruslpósti ólesin beint í tunnu á dag í Reykjavík?“ „Ég bý svo vel sem þingmaður að geta komið svona vangaveltum í farveg sem skilar svörum. Þess vegna setti ég af stað fyrirspurn til ráðherra um fríblöð og fjölpóst. Mikilvægt mál sem þarf að skoða af fullri alvöru,“ segir Andrés á Fa- cebooksíðu sinni. Í fyrirspurninn kallar þingmaðurinn eftir svörum ráðherra um hversu mikið af papp- ír ráðuneytið áætli að hafi borist inn inn á hvert heimil undanfar- inn áratug vegna dreifingar fríblaða og auglýsingaefnis sem þeim fylgir. Vill hann jafnframt vita hvort ráð- herra telji það eðlilegt að viðtak- endur óumbeðinna blaða, bækl- inga og annars efnis beri kostnað af förgun þess pappírssorps sem af því leiðir. Jafnframt spyr hann hvort umhverfisgjöld séu lögð á frí- blöð og auglýsingaefni sem dreift er endurgjaldslast og óumbeðið. Vill hann að skoðuð verði innleið- ing umhverfisgjalds á fríblöð og auglýsingaefni þannig að viðkom- andi dreifiaðilar myndu sjálfir kosta förgun þess sorps sem fríblöð og annar ruslpóstur ber með sér inn á heimili almennings. mm Vill skoða að lagt verði umhverfisgjald á ruslpóst Veturinn 2013 - 2014 var ráðist í miklar breytingar á Sundlaug Snæ- fellsbæjar. Ásamt því að lagfæra hús- næðið var það opnað þannig að það var gert bjartara auk þess sem úti- svæði með tveimur heitum pott- um, vaðlaug og barnarennibraut var útbúið. Seinna bættist svo við kald- ur pottur. Mikil ánægja íbúa hefur verið með þessa bættu aðstöðu. Sýn- ir það sig best á þeirri miklu fjölgun sundlaugargesta síðan breytingun- um lauk. Árið 2014 voru gestir sund- laugarinnar 9.030 en árið 2015 voru þeir 19.480. Fjölgunin hefur svo haldið áfram því á síðasta ári voru sundlaugargestirnir 23.071. Ekki er hægt að skrifa alla þessa aukningu á ferðamenn og því ljóst að heima- menn eru orðnir duglegri að sækja laugina eftir breytingarnar. þa Gríðarleg fjölgun gesta í Sundlaug Snæfellbæjar Það var nóg að gera hjá strákunum á Magnúsi SH síðastliðinn fimmtu- dag. Voru þeir að gera klárt á neta- veiðar og ætluðu að leggja á mánu- daginn. Sögðu þeir að gott væri að fá nokkra daga til að slípa sig sam- an og rifja upp netataktana frá síð- ustu vertíð en þeir fara á netarallið sem hefst eftir mánaðamótin. Þeir voru snöggir að rifja upp taktana og lönduðu 17 tonnum eftir fyrsta netaróðurinn. þa Fengu góðan afla í fyrsta netatúr HB Grandi mun næstkomandi fimmtudag opna með formlegum hætti nýja sorpflokkunarstöð við Vesturgötu 4 á Akranesi. Tilgang- urinn með starfrækslu stöðvarinnar er að safna saman á einn stað öllu sorpi sem fellur til vegna starfsemi félagsins og dótturfélaga þess á Akranesi. Stöðin mun draga úr urð- un sorps og auka hlutfall til endur- vinnslu. Fyrirmynd af sorpflokk- unarstöðinni eru flokkunarstöðvar sem starfræktar eru hjá fyrirtækinu í Reykjavík og á Vopnafirði. Við athöfn síðdegis á fimmtu- daginn mun Vilhjálmur Vilhjálms- son, forstjóri HB Granda, ávarpa gesti og Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri á Akranesi, flytja ávarp. Lýst verður úrslitum í samkeppni um nafn á flokkunarstöðinni sem staðið hefur yfir meðal starfsmanna undanfarnar vikur. Veitt verða verðlaun fyrir bestu tillöguna. Þá mun Bláa hernum verða veittur fjárstyrkur frá HB Granda til frek- ari hreinsunarstarfa, samtökin hafa sem kunnugt er látið mikið að sér kveða við hreinsun strandlengjunn- ar mörg undanfarin ár, meðal ann- ars á Akranesi. mm HB Grandi opnar sorpflokk- unarstöð á Akranesi Færeyski línubáturinn Skörin Fd-750 landaði rúmum 32 tonn- um í Ólafsvíkurhöfn á síðasta laug- ardag. Er þetta þriðji færeyski bát- urinn sem landar í Ólafsvík í vet- ur. Allir þessir bátar eru útbúnir með togarakössum sem hafa hing- að til verið hífðir upp úr bátunum og sturtað í kör á bryggjunni. Kall- aði það á meiri mannskap en vegna veðurs um daginn var það ekki hægt því þá hefðu kassarnir fokið út í buskann. Var aðferðinni þá breytt og sturtað úr kössunum í lestinni á bátnum og gekk það miklu bet- ur og allir ánægðir með þetta fyrir- komulag. Ekki er vitað hvort Skör- in eða einhver annar færeyskur bát- ur komi aftur en þessir bátar mega veiða ákveðið magn á nokkrum stöðum í íslenskri lögsögu. þa Þriðji færeyski línubáturinn sem landar í Ólafsvík

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.