Skessuhorn - 22.03.2017, Page 11
MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2017 11
Aðalfundur
Við höldum 1. vetrardag hátíðlegan og
blásum til veislu í Kaupfélagi Borgfirðinga
laugardaginn 25. október 2008 kl. 12-15
Flugger litir veita ráðgjöf og verða með tilboð
Mjólka kynnir vörur sínar
Kynning á hreinsiefnum frá Kemi
Kynning og tilboð á Kerckhaert
járningavörum, umboðsmaður
á staðnum, býður upp á ís
* Vetrarskeifurnar með
breiða teininum komnar *
Tískusýning á vetrarfatnaði,
tilboð á fatnaði frá 66°N
10 - 50 % afsláttur af völdum vörum
í versluninni
Royal Canin, glaðningur fylgir
öllum pokum af hunda-og kattamat.
Umboðsmaður á staðnum
Kaffi og rjómaterta
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Aðalfundur Kaupféla s Borgfirði ga
verður haldinn að Hótel Borgarnesi
fimmtudaginn 23. mars 2017 og hefst kl. 20:30
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum
félagsins.
2. Önnur mál.
Skv. 14. gr. samþykkta KB þá hafa allir félagsmenn aðgang að
fulltrúafundum og hafa þar málfrelsi og tillögurétt.
Borgarnesi, 9. mars 2017
Stjórn Kaupfélags Borgfirðinga.
Límtré Vírnet ehf. í Borgarnesi leitar að starfsmönnum
Framleiðsla
Um er að ræða almenn og sérhæfð störf, við völsunarlínu fyrirtækis, jafnvel verkstjórn.
Reynsla af umgengni við vélar æskileg.
Blikksmiðja
Leitum að fólki við vinnu við blikksmíði, menntun eða reynsla í blikksmíði æskileg.
Járnsmiðja
Leitum að fólki til vinnu við járnsmíði, menntun eða reynsla í þessu fagi eða skildum
greinum æskileg.
Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Símonarson í síma 617-5302 eða á netfangið:
alli@limtrevirnet.is
Umsóknir ásamt ferilskrá sendist á: asa@limtrevirnet.is fyrir 28. mars 2017.
Störfin henta jafnt konum sem körlum og er um framtíðarstörf að ræða.
Atvinna í Borgarnesi
Ágætis horfur eru á bygginga-
markaði á Akranesi. Að sögn Sig-
urðar Páls Harðarsonar, sviðs-
stjóra skipulags- og umhverf-
issviðs, er nú verið að byggja á
nokkrum stöðum. Auk þess eru
lausar til umsóknar tæplega 40
íbúðarhúsalóðir og mun þeim
fjölga þegar líður á árið. „Sú upp-
bygging sem er fyrst og fremst í
gangi er í Skógarhverfi 2. Þar eru
byrjaðar framkvæmdir við fjöl-
býlishúsalóðir og verið að byggja
bæði parhús og raðhús. Fjölbýlis-
hús við Asparskóga 27 verður til-
búið í sumar og sami framkvæmda-
aðili mun reisa tvö fjölbýlishús til
viðbótar við Asparskóga 24 og 29.
Samtals eru þetta 32 íbúðir,“ seg-
ir Sigurður Páll. Hann segir það
aðallega vera verktaka sem sæki
um fjölbýlishúsalóðirnar. „En ein-
staklingar og fyrirtæki sækja um
parhúsa- og einbýlishúsalóðirnar.
Það er búið að úthluta einhverjum
slíkum lóðum. Trésmiðjan Akur
hefur til dæmis lokið við byggingu
við Blómalund 2-4 og það eru að
bætast tvö parhús við til viðbótar í
þeirri götu, ásamt raðhúsalengju.“
Sigurður Páll segir að til standi
að fleiri rað- og parhús verði reist
og einnig sé verið að byggja ein-
býlishús við nokkrar götur í Skóg-
arhverfi. „Þetta er svona í pípun-
um og svo er verið að spyrjast fyrir
um eitt og annað. Það líður varla
sá dagur að ekki berist einhverjar
fyrirspurnir,“ heldur hann áfram.
Hann segir að einnig sé verið að
skoða hugsanlegar breytingar
annars staðar í bænum. Við Vall-
holt 5 sé skipulagsferli í gangi en
þar verður gert ráð fyrir fjölbýlis-
húsi með tólf íbúðum. „Það var
áður tengt fjölbrautaskólanum og
breytingin felst í því að núna yrðu
íbúðirnar fyrir almennan mark-
að.“
Forgangur að ljúka
skipulagsvinnu
Þá eru einnig í pípunum tvö stór
mál sem eru í skipulagsferli. Ann-
ars vegar er um að ræða Dalbraut-
arreitinn og hins vegar Sements-
reit. „Þetta er í báðum tilfell-
um skipulagsvinna sem er kom-
in vel af stað en svolítið eftir að
hún klárist. Það er töluvert magn
íbúða þar undir. Um 200 íbúðir
eru á Dalbrautarreitnum en þær
eru töluvert fleiri á Sementsreitn-
um,“ segir Sigurður Páll. Þeg-
ar skipulagsferli lýkur þarf yfir-
leitt að fara í framkvæmdir tengd-
ar gatnagerð. Sigurður segir að á
Dalbrautarreitnum þurfi ekki að
fara í miklar aðgerðir til að gera
lóðirnar byggingarhæfar. „Þar er
mest allt til staðar. Varðandi Sem-
entsreitinn, þá verða fyrstu lóðirn-
ar sem fara út við Suðurgötuna og
það er í sjálfu sér allt klárt.“ Sam-
hliða skipulagsvinnunni við Sem-
entsreitinn er verið að útbúa gögn
varðandi niðurrif mannvirkja á
reitnum. Reiknað er með því að
þær framkvæmdir hefjist síðsum-
ars á þessu ári. Það sem liggur
undir er efnisgeymslan, ofnhúsið
og allt þar á milli. Það stendur til
að halda eftir skrifstofubygging-
unni, pökkunarhúsinu, sements-
sílóunum við höfnina og stromp-
Margar tiltækar íbúðarhúsalóðir
lausar á Akranesi
urinn er inni eins og er, annað er
að fara.“ Skipulagsvinnan við bæði
Sementsreitinn og Dalbrautar-
reitinn hefur verið í gangi frá því
á síðasta ári. Sigurður Páll segir
þessa vinnu hafa tekið töluverðan
tíma og að heilmikil vinna sé þar á
bakvið. „Það er forgangsatriði hjá
okkur að ljúka þessari skipulags-
vinnu. Þessi skipulög munu klár-
ast á nánast sama tíma, vonandi í
kringum júlí eða ágúst.“
grþ
Hér má sjá þær lóðir sem eru tiltækar í Skógarhverfi 2 á Akranesi, en þar er töluverð uppbygging í gangi.
Svona gæti yfirbragð byggðar við Sementsreit orðið. Gunnar Örn Sigurðsson arkitekt sýndi meðal annars þessa mynd þegar
hann kynnti tillögur að deiliskipulagi á Sementsreit á íbúafundi sem haldinn var um skipulagsmál fyrr á árinu.
Snorrastofa í Reykholti
Fyrirlestrar í héraði
Snorrastofa, menningar- og miðaldasetur
í Reykholti
Sími 433 8000
www.snorrastofa.is
snorrastofa@snorrastofa.is
Þriðjudagurinn 28. mars 2017
kl. 20:30
í Bókhlöðu Snorrastofu
Hvenær varð Hákon gamli
konungur Íslendinga?
Sverrir Jakobsson sagnfræðingur flytur
Umræður og kaffiveitingar
Aðgangur kr. 500
Fjallað verður um hina
dramatísku stjórnmálasögu
Íslands á 12. og 13. öld. sem
gegnt hefur miklu hlutverki
í sögulegu minni þjóðarinnar.