Skessuhorn


Skessuhorn - 22.03.2017, Side 20

Skessuhorn - 22.03.2017, Side 20
MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 201720 Síðastliðið fimmtudagskvöld var þrí- tugasti Flandraspretturinn hlaupinn í Borgarnesi og voru ýmis tímamót í hlaupinu að þessu sinni. Hlaupa- hópurinn Flandri stendur fyrir þess- um fimm kílómetra keppnishlaupum þriðja fimmtudag í mánuði frá októ- ber til mars, alls sex sprettir á vetri. Á fimmtudaginn var að ljúka fimmta hlaupatímabilinu. Fyrir nokkrum vikum fóru félagar í Flandra að ræða það sín á milli hvort þetta væri ekki rétti tíminn til að gera eitthvað fyr- ir Stefán Gíslason sem hefur verið aðalsprauta hlaupahópsins og lím- ið í starfi hlauparanna. Tilefnið var að kappinn fagnaði sextugsafmæli sínu 18. mars sl. Ákveðið var að nú skyldi slegið þátttökumet í Flandra- spretti en fyrra met var 33 þátttak- endur. Haft var samband við tengi- liði í hlaupahópum á höfðuborgar- svæðinu, Akranesi, Hólmavík og víðar og fólk hvatt til að taka þátt. Í stuttu máli þá tókst þetta svo um munaði því 77 hlupu þennan þrítug- asta Flandrasprett. Þar voru sleg- in fleiri met. Arnar Pétursson bætti eigið brautarmet frá árinu 2013 um 9 sekúndur, hljóp á tímanum 15:57. Einnig setti Elísabet Líf A. Ólafs- dóttir úr Fjölni brautarmet í flokki 18 ára og yngri, en hún hljóp á 23:56 mín, sem er tveggja mínútna bæting á fjögurra ára gömlu meti Irmu Jón- geirsdóttur. Elísabet er einungis 12 ára. Eftir að allir voru komnir í mark í hlaupinu höfðu nokkrir félagar útbúið veitingar, hellt uppá kaffi og kakó og boðið upp á aðrar veiting- ar. Sunginn var afmælissöngur fyrir „Stebbann“ og þar á eftir fór fram verðlaunaafhending. Einnig voru dregin út útdráttarverðlaun sem ýmsir aðilar höfðu gefið, meðal ann- ars Kaupfélag Borgfirðinga, Nettó, Hótel Hamar, Búnaðarsamtök Vest- urlands, Borgarsport, Landnáms- setirð, Ok bistro, La Colina, Salka og Mýranaut. Flandrahópurinn vill koma á framfæri þakklæti til þessara stuðningsaðila. Kom af fjöllum! Afmælisveislan sem hlaupafélagar Stefáns buðu til síðastliðið fimmtu- dagskvöld í íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi kom Stefáni á óvart. „Ég kom af fjöllum,“ sagði hann þegar blaðamaður heyrði í honum hljóð- ið næsta morgun. „Það er þá ekki í fyrsta skipti á liðnum árum sem ég geri það,“ bætir hann við léttur í bragði. Sjálfur segist hann ekki vera mikill efnishyggjumaður og fannst því afar vænt um að hlaupafélag- ar hans gæfu honum í afmælisgjöf að stuðla að metfjölda í þrítugasta Flandrahlauinu. Sextugsafmæli sínu fagnaði Stefán hins vegar með því að bjóta til útgáfuteitis í tilefni bókar sem hann hefur skrifað og bókafor- lagið Salka gefur nú út. „Já, það var þannig að í fimmtugs afmælisgjöf gaf ég mér að stefna að útgáfu bók- ar tíu árum síðar. Ég einsetti mér að hlaupa fimmtíu fáfarnar leiðir á næsta áratug, skrá ferðalýsingar og gefa síðan út bók á sextugsafmælinu um þessar hlaupa- eða gönguleiðir. Bókin Fjallavegahlaup er afrakstur- inn af því. Bókin var svo kynnt á Kex Hostel í Reykjavík á laugardaginn,“ segir Stefán. Fjallvegahlaup - 50 leiðir Verkefni Stefáns eru á sviði um- hverfisstjórnunar og sjálfur rekur hann fyrirtækið Environice í Borg- arnesi. Þá hefur hann verið formað- ur verkefnisstjórnar um rammaáætl- un. Það má því segja að útivistin og þetta áhugamál hans að hlaupa fjall- vegi og kynnast landinu samþætti með augljósum hætti starf og áhuga- mál. Bókin Fjallvegahlaup er 340 síðna bók eftir Stefán þar sem hann lýsir í máli, myndum og með kort- um þessum 50 hlaupaleiðum sem hann hefur farið síðasta áratuginn. Flestir landshlutar koma við sögu en þó segir Stefán að síst á Suður- landi megi finna fáfarnar hlaupa- leiðir á fjöllum. Vestfirðir, Norður- land og Austfirðir komi hins veg- ar sterkir inn. „Þetta eru almenn- ar leiðarlýsingar og gagnlegar upp- lýsingar sem ég hef skráð. Yfirleitt eru þessar hlaupaleiðir að tengja saman tvær byggðir eða áhugaverða staði. Til dæmis gamlar póstleiðir eða sögutengdar leiðir á einhvern annan hátt. Þessar leiðir þurftu að vera a.m.k. níu kílómetra langar og fara í 160 metra hæð yfir sjávarmáli. Stundum fór ég í þúsund metra hæð í þessum ferðum.“ Stefán segir að þegar hann hafi orðið fimmtugur hafi hann sett sér þrjú markmið. „Í fyrsta lagi að halda mér í formi á sextugsaldrinum og halda áfram að hlaupa. Annað hvort það eða búast við hægfara líkamlegri afturför. Í öðru lagi að vekja áhuga fleiri á útivist og gildi hollrar hreyf- ingar og í þriðja lagi vildi ég kynn- ast betur þessu fallega landi sem við eigum. Mér finnst að þessi markmið hafi öll gengið eftir og fyrir það er ég afar þakklátur nú á þessum tíma- mótum,“ segir Stefán. Stefán segir að upphaflega hafi hann ætlað að hlaupa þessar fimm- tíu leiðir einn. „Björk [Jóhanns- dóttir] konu minni fannst hins veg- ar ráðlegt að ég byði með mér fleir- um þegar ég færi þessi fjallvega- hlaup. Ég er dálítill einfari í mér en samþykkti þessa tillögu hennar og hlaupafélagar með mér í fjallvegas- kokkinu hafa verið frá einum og upp í tuttugu hverju sinni. Alls hafa 111 manns hlaupið þessi fimmtíu hlaup með mér,“ segir Stefán Gíslason að endingu. mm Flandrafólk kom hlaupagikknum á óvart Stefán Gíslason er einn fremsti lang- hlaupari landsins. Hann blæs vart úr nös þótt aldurinn sé eins og fram kemur á kertinu. Ljósm. Torfi Bergsson. Þátttökumet var ríflega tvöfaldað í þrítugasta Flandrasprettinum. Hér er hluti hópsins í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar í Borgarnesi. Ljósm. Sigríður Júlía. Þarna eru meðal annarra Stefán og Inga Dísa að afloknu hlaupi. Ljósm. Torfi Bergsson. Sigurvegarar í stigakeppni karla og kvenna veturinn 2016-2017. Jósep Magnússon Flandra og Vala Friðriksdóttir Hólmavík, ásamt helmingi af stjórn Flandra. Ljósm. Torfi Bergsson. Hópur Skagaskokks frá Akranesi. Ljósm. Torfi Bergsson. Forsíða nýju bókarinnar; Fjallvegahlaup sem kom út á sjálfan afmælisdaginn. Margt var um manninn þegar Stefán áritaði nýju bókina á laugardaginn. Ljósm. Etienne Menétrey.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.