Skessuhorn


Skessuhorn - 22.03.2017, Síða 23

Skessuhorn - 22.03.2017, Síða 23
MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2017 23 Aukinn kaupmáttur og vaxandi væntingar er jafnan ávísun á aukna kaupgleði. Þess sjást meðal ann- ars merki í neyslu á mat og drykk. Í nýrri skýrslu Rannsóknaseturs verslunarinnar kemur fram að í febrúar var velta dagvöruverslana 3% meiri en í sama mánuði í fyrra og að jafnaði hefur velta dagvöru- verslana aukist um 6% síðustu 12 mánuði. Þar sem verð á matvæl- um fer lækkandi er magn þess sem keypt meira en velta í krónum gef- ur til kynna. Velta áfengisverslunar vex einnig og var 8% meiri í febrú- ar en í sama mánuði í fyrra. Athygli vekur að í hinum mikla hagvexti, sem að nokkru er drifinn áfram af aukinni neyslu, skuli fataverslun dragast saman. „Velta fataverslana var 12,4% minni í febrúar síðast- liðnum en í sama mánuði í fyrra. Á þessu tólf mánaða tímabili lækk- aði samt verð á fötum um 7,3%. Þess ber að geta að fataverslunum hér á landi hefur farið fækkandi frá áramótum, en það er mikilvægur hluti skýringarinnar. Veltutölurn- ar byggja á upplýsingum frá öllum stærstu verslunarkeðjum, sem selja föt hér á landi. Sumar þeirra hafa lokað hluta af fataverslunum sín- um,“ segir í samantekt RMV. Þá segir að ætla mætti að hluti skýringar á minnkandi verslun með fatnað sé aukin netverslun frá út- löndum auk þess sem sterkar vís- bendingar eru um að landsmenn kaupi stóran hluta fatnaðar þegar þeir ferðast til útlanda. Þetta á hins vegar ekki við um skóverslun því hún jókst um 23,7% í febrúar. Verð á skóm í síðasta mánuði var 6,1% lægra en í sama mánuði í fyrra. Hraður vöxtur er jafnframt í hús- gagnaverslun, sem jókst um 13,9% á tólf mánaða tímabili, og bygg- ingavöruverslun, sem jókst um 14,2% frá febrúar í fyrra. Verð á húsgögnum fer lækkandi en verð á byggingavörum hækkaði lítillega í árssamanburði. Eftir langt tímabil vaxtar í raf- tækjaverslunum og verslunum með skyldar vörur, virðist sem held- ur hafi dragið úr vextinum. Sala á minni raftækjum, svokölluðum brúnum vörum, jókst vissulega um 10,3% í febrúar frá febrúar í fyrra en velta stærri heimilistækja var svipuð og í fyrra. Greiðslukortavelta heimilanna innanlands var 57,2 milljarðar kr. í febrúar. Kortavelta erlendra ferða- manna hér á landi var 16,8 millj- arðar kr. sem er næstum 30% af innlendu veltunni. Tölur um ein- staka útgjaldaliði erlendar korta- veltu hér á landi sýnir að lang- stærstu upphæðir sem fara til versl- ana er til kaupa í dagvöruverslun- um. Hins vegar virðist sem dragi úr vexti veltu á kaupum útlendinga á útivistarfatnaði, sem e.t.v. má rekja til styrkingar krónunnar að undan- förnu. Athygli vekur að debetkorta- velta Íslendinga í útlöndum jókst um 54% frá febrúar í fyrra, sam- kvæmt tölum Seðlabankans. mm Aukin kaupgleði og vaxandi væntingar Það var eftirvænting í loftinu með- al Alaska Husky sleðahundanna í Hlíðarbæ á Hvalfjarðarströnd þeg- ar blaðmaður Skessuhorns leit þar við á dögunum. Hann var mættur til að spjalla við eiganda þeirra, Pál Tryggva Karlsson, sem hefur rækt- að sleðahunda af þessari tegund í tæpa þrjá áratugi. Páll er „mus- her“ eins og það heitir á tungumáli inúíta á Norðurslóðum, þar sem rætur hundanna liggja, en það er heiti sem notað er um sleðamenn. Hafa dregið í aldir „Það er fátt ánægjulegra en að vera á fullri ferð á sleðanum fjarri manna- byggðum. Það heyrist ekki múkk í hundunum meðan þeir draga af fullri ákefð eins og þeir hafa kyn til. Eina sem heyrist er hvinur- inn í sleðanum. Þetta eru dásam- legar stundir,“ segir Páll við upp- haf spjalls. Þegar blaðamann bar að garði var Páll að ljúka við að hreinsa út úr hundakofunum í hundabyrg- inu sínu eða „kennelnum“ eins og musherar segja gjarnan. Ekki var að annað sjá en að hundarnir, sem eru sjö talsins, væru sáttir með eig- anda sinn og geltu dátt honum til heiðurs. Þrír áratugir eru síðan Páll eign- aðist sinn fyrsta Alaska Husky. „Það eru tæp 30 ár síðan. Ég bjó þá í Ár- bænum í Reykjavík og var að vinna hjá fyrirtæki miðsvæðis í borginni. Ég fór oft á hjóli í vinnuna og þá notaði ég hundinn til að draga mig áfram,“ segir Páll. Hann segir hundana þrautþjálfaða til að draga og gildir einu hvort það er sleði, reiðhjól eða jafnvel gamalt fjórhjól sem er dregið. „Á sumrin fer ég um á gömlu fjórhjóli sem ég á með hundana. Það vekur vitanlega nokkra athygli hér í sveitinni,“ segir hann kíminn. „Þessi hundategund hefur dregið í aldir og er þrautþjálfuð í því en eins og nafnið gefur til kynna er hún upprunnin í Alaska.“ Miklir karakterar Páll segir hundana mörgum gáfum gæddir. „Þetta eru miklir karakterar en hundarnir búa yfir alveg gríðar- legu þoli. Mitt hlutverk sem mus- her er að hlúa vel að þeim, þjálfa þá og kenna þeim að hvíla sig,“ segir hann og undirstrikar að hvíld sé mjög mikilvægur hluti þegar keppt er í sleðakappakstri. Einn- ig skiptir máli að fylgjast vel með líkamlegu ástandi hundanna, huga að liðmótum og loppum. „Erlend- is er keppt á allt að 1600 kílómetra leið. Slík keppni getur tekið um 10 daga og þá reynir á að beita hund- unum rétt. Yfirleit fer hvíld fram á 40 kílómetra fresti og þá er stopp- að í allt að þrjár til fjórar klukku- stundir. Þá þarf musherinn að róa hundana, gefa þeim að borða og búa um þá svo þeir geti sofið. Það reynir því líka mikið á musherinn sem þarf að vera í afar góðu formi til að takast á við svona verkefni. Aðstæður eru líka yfirleitt erfiðar, frost og snjór.“ Karakter hundanna kemur stundum fram í því að þeir gera mannamun á fólki. „Þeir draga ekki fyrir hvern sem er. Ef þeim líkar ekki við einhvern þá sitja þeir á rassinum. Þetta eru höfðingjar.“ Páll hefur í þjálfun sinni innleitt hálfgert stýrikerfi til að stjórna hundunum. „Ef ég segi „OK“ þá fara þeir af stað. Þeir fara síðan til vinstri og hægri ef ég kalla þau orð og taka u-beygju í aðra hvora átt- ina ef ég bæti „snú“ aftan við. Svo stoppa þeir ef ég segi „hó“. Það hljóma ég pínulítið eins og jóla- sveinn,“ bætir Páll við brosandi. Undankeppni á döfinni Páll er meðlimur í félaginu Drag- hunda Sport Iceland. Hann seg- ir félagsmenn búa út um allt land og er nokkur virkni í hópnum sem heldur reglulega innanfélagsmót. „Síðan er hópur sleðahundaeig- enda með stóra keppni í undirbún- ingi hér á landi sem ætlunin er að verði undankeppni fyrir Evrópu- mót alþjóða sleðahundaíþrótta- sambandsins (IFSS). Stefnt hefur verið að halda mótið núna í apríl en leiðin sem farin verður er 200 km. Planið er að fara leiðina Bif- röst-Blönduós. Ekki er þó útséð hvort að ennþá verði snjór á þess- ari leið og því er verið að skoða hvort hægt sé að munstra leið frá Þingvöllum og í Húsafell. Þetta mun allt skýrast á næstunni,“ seg- ir Páll. Sleðaferðir fyrir ferðamenn Í vetur hóf Páll að bjóða upp á sleðaferðir fyrir ferðamenn und- ir merkjum Skriðhusky og hafa undirtektir verið nokkrar. „Þetta er tilraunaverkefni hjá mér og hef ég fengið nokkra ferðamenn til mín. Ég legg áherslu á að þeir fari ekki bara í sleðaferð heldur taki líka þátt í undirbúningi ferðar- innar með mér. Þannig fá þeir að kynnast hundunum betur og öllu umstanginu í kringum umönnun þeirra og þjálfun. Það er stór hluti af sportinu,“ segir Páll. Í sumar hyggst Páll bjóða upp á styttri ferðir frá Laxárbakka í Leirársveit. „Það mun ég vera með hundana mína og bjóða ann- að hvort upp á ferð á reiðhjóli eða fjórhjólinu. Það verður spennandi að sjá hvernig viðtökurnar verða,“ segir Páll að lokum. hlh Hundarnir eru miklir karakterar Rætt við Pál Tryggva Karlsson, „musher“ á Hvalfjarðarströnd Páll Tryggvi Karlsson ásamt sleðahundinum Kristal. Páll við fjórhjólið sem hundarnir hans draga. Alaska Husky hundarnir er miklir karakterar. Hér eru hundarnir Kristall og Snær í kennelnum hjá Páli. Annar af sleðum Páls. Allir hundarnir sjö draga sleðann og geta þeir dregið allt að 200 kg á 15 kílómetra meðalhraða á 40 kílómetra leið, án hvíldar.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.