Skessuhorn - 22.03.2017, Qupperneq 24
MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 201724
Þeir eru ófáir íbúarnir á Borgarfjarð-
arsvæðinu sem hafa farið í spinning
eða þrektíma hjá Guðrúnu Emil-
íu Daníelsdóttur í Borgarnesi eða
„Gunnu Dan“ eins og hún er gjarnan
kölluð. „Hreyfing og samvera skiptir
verulegu máli fyrir okkur öll. Hvort
tveggja er lífsnauðsynlegt eldsneyti
fyrir daglegt líf og algjört leiðar-
ljós í tímunum hjá mér. Og ekki má
gleyma gleðinni og stuðinu sem má
ekki vera langt undan,“ segir Gunna
sem staðið hefur fyrir spinning og
þrektímum í yfir tvo áratugi.
Nýverið greip hún á lofti áform
Borgarbyggðar um að sækjast eft-
ir vottun frá Landlæknisembættinu
um að gerast heilsueflandi samfélag.
Hún hóf að hvetja starfsfólk vinnu-
staða í sveitarfélaginu til að koma
í spinning og þrek til sín og við-
brögðin létu ekki á sér standa. „Eitt
leiddi af öðru og nú hópast þeir hver
af öðrum til mín. Samfélagið er nú
sannarlega að komast á hreyfingu.“
Tímarnir urðu að
fastapunktum
Gunna Dan er borinn og barnfædd-
ur Borgnesingur og má rekja ættir
hennar til fyrstu íbúa bæjarins sem
fluttu þangað um aldamótin 1900.
Hún hefur unnið sem bankastarfs-
maður í Borgarnesi frá níunda ára-
tugnum, lengst af hjá Sparisjóði
Mýrasýslu, en síðustu ár hjá Ar-
ion banka. Meðfram því hefur hún
skipulagt spinning og þrektíma en
upphaf þeirra má rekja til þess þegar
hún átti sitt síðara barn árið 1993.
„Við vorum nokkrar mæður hér í
Borgarnesi með ung börn og vorum
að sækja þreksalinn í Íþróttamið-
stöðinni á svipuðum tíma á morgn-
ana. Okkur vantaði einhverja skipu-
lagða hreyfingu inn í rútínuna okk-
ar. Svo tókum við vinkonurnar, ég
og Erla Kristjánsdóttir, okkur til og
fórum að vera með blandaða tíma
alla virka morgna, hún klukkan sjö
og ég klukkan átta. Það myndað-
ist strax góð stemning og vatt þetta
upp á sig. Svo bættum við stöllurn-
ar við síðdegistímum í spinning og
síðar svokölluðu kvennaþreki sem
var tvisvar í viku um nokkurra ára
skeið,“ segir Gunna.
„Einnig var æskuvinkona mín Íris
Grönfeldt með annálaða tíma og
er enn með hádegispúl og vatns-
leikfimi. Áður en langt um leið var
Indriði Jósafatsson, sem var íþrótta-
og æskulýðsfulltrúi hér í bænum,
búinn að munstra tímana inn í dag-
skrá Íþróttamiðstöðvarinnar þann-
ig að hver sem vildi gat verið með,“
segir Gunna. „Þetta gekk eftir og
urðu tímarnir að fastapunktum hjá
mörgum,“ segir hún.
„Mæti fyrir þig
Gunna mín“
Gunna Dan segir sterk og ánægu-
leg tengsl hafi myndast hjá hópn-
um sem mætti til að taka á því.
„Vinskapurinn sem myndaðist
hjá okkur í morgunhópnum mín-
um var einstakur, yndislegar kon-
ur. Það var líka margt brallað fyrir
utan hreyfinguna; farið til Reykja-
víkur í bíó og upp á Hvanneyri í
laufabrauðgerð. Svo var stundum
skellt í olíunudd og andlitsbað, ó
já, það var ýmislegt brallað á þess-
um árum,“ segir Gunna og brosir
við upprifjunina.
„Það er gaman að geta þess að
við erum fjórar úr þessum morg-
unhópi sem enn hittumst reglu-
lega og borðum saman, þó að þess-
ir tímar séu hættir fyrir nokkrum
árum,“ bætir hún við og segir að
minningarnar ylji.
Margir hafa mætt í tímana í ára-
raðir. „Það hefur verið einstaklega
gefandi að standa í þessu og er ég
svo hrærð og þakklát hvað fólk
hreinlega nennir að mæta til mín.
Það er alveg dásamlegt,“ segir
Gunna í léttum tón og viðurkenn-
ir að henni vökni um augun þegar
hún staldrar við og hugsar tilbaka.
„Sumir segja stundum: „Ég mæti
fyrir þig Gunna mín“. Mér finnst
það góð tilhugsun því þá er klárt
að viðkomandi fær góða hreyfingu
í sinn hlut. „Ég er afar þakklát yfir
viðtökunum í gegnum árin.“
„Dansað, hlegið
og sungið“
Gunna hefur spilað eftir eyranu í
skipulagningu tímanna sinna en
hún hefur lagt áherslu á að þar sé
„dansað, hlegið og sungið,“ eins og
hún orðar það. „Ég titla mig sem
leiðbeinanda en ég er ekki íþrótta-
kennari að mennt. Ég hef allt-
af reynt að fara fjölbreyttar leiðir
í prógramminu sem ég býð upp á.
Síðustu ár hef ég notað internetið
mikið, fer gjarnan inn á YouTube
og skoða hverjar eru heitustu æf-
ingarnar hverju sinni sem ég inn-
leiði svo í prógrammið mitt,“ seg-
ir hún en dagskráin samanstendur
af alls konar blönduðum æfingum
með og án lóða, á hjóli og á dýnum
og pöllum.
„Svo er líka pínu húmor í þessu
hjá mér. Nýjasta æfingin sem ég er
með er klósettrúlluæfingin. Hún
felst í alls kyns styrktaræfingum
með klósettrúllum. Svo legg ég
mig fram um að velja hressandi
og taktfasta tónlist sem hæfir pró-
gramminu. Það skiptir máli upp á
hraðann og stemninguna,“ segir
Gunna en hún ver gjarnan sunnu-
dögum í undirbúning fyrir vikuna.
Vinnuveitendur
hvetji til hreyfingar
Gunna segir brýnt að fólk hreyfi sig
reglulega. „Það hefur oft komið fyr-
ir að fólk mæti í tíma hjá mér sem
hefur aldrei verið í íþróttum. Stund-
um er erfitt að brjóta ísinn og byrja.
Eitt skipti kom kona að máli við mig
sem hafði lengi langað að hreyfa sig
meira en vantaði frumkvæðið vegna
stöðugra anna heimafyrir og í vinnu.
Ég vissi að henni langaði mikið til
að vera með og bauð henni að koma
einn daginn og prófa. Þetta gerði
það að verkum að hún fór að mæta
reglulega og hún naut þess í botn,“
segir Gunna sem telur virkni fólks
og vellíðan ráðast mikið á því hvort
fólk hreyfi sig reglulega.
„Þetta skiptir mjög miklu máli,
ekki síst fyrir vinnustaði. Það eru
meiri líkur á því að sá sem hreyfir
sig reglulega er virkari starfskraft-
ur en sá sem hreyfir sig ekki neitt.
Við erum einfaldlega ekki hönnuð
frá náttúrunnar hendi til setu við
skrifborð allan daginn. Það eru líka
minni líkur á því að sá sem hreyfir
sig veikist. Ég vil því skora á vinnu-
veitendur hér á svæðinu til þess að
hvetja starfsfólkið sitt til að stunda
hreyfingu.“
Hvetur fólk til dáða
Varðandi hvatninguna í tengslum
við heilsueflandi samfélag í Borgar-
byggð segir hún að ánægjulegt hafi
verið að fylgjast með viðbrögðun-
um. „Ég átti alls ekki von á þessu og
kom þetta ánægjulega á óvart. Það
er mjög gaman að fá að taka þátt í
þessu með starfsfólki hinna ýmsu
fyrirtækja enda hverjum hollt að
fara út fyrir þægindarammann og
prófa eitthvað nýtt. Ég er búin að
fá hvern vinnustaðinn á fætur öðr-
um til mín og það eru hópar skráðir
nánast á hverjum degi út mars. Það
var mjög gaman að sjá í þeim hópi
fólk sem ég hef hreinlega aldrei séð
áður í íþróttum,“ segir Gunna sem
hvetur fólk til dáða.
„Vonandi verður þetta allt til þess
að fleiri fari að hreyfa sig. Það er
stóra markmiðið. Ég er í það minnsta
að reyna að leggja mitt af mörkum af
ástríðu í þágu hreyfingar og gleði,“
segir hún að lokum og vill um leið
þakka af öllu hjarta öllum sem hafa
komið í tíma til sín í gegnum árin.
„Minningarnar eru fjölmargar og
yndislegar.“ hlh
Í þágu hreyfingar og gleði
Rætt við Gunnu Dan, spinning- og
þrekleiðbeinanda í Borgarnesi
Guðrún Emelía Daníelsdóttir (Gunna Dan). Ljósm. Gunnhildur Lind.
Í tíma hjá Gunnu Dan á laugardaginn. Ljósm. Gunnhildur Lind.
Hver vinnustaðurinn á fætur öðrum í Borgarbyggð hefur farið í tíma hjá Gunnu Dan að undanförnu. Hér eru starfsmenn
Borgarbyggðar ásamt tveimur sveitarstjórnarmönnum sveittir og glaðir eftir að hafa tekið vel á því. Ljósm. Gunna Dan.