Skessuhorn - 22.03.2017, Side 30
MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 201730
insdóttir var kjörin meðstjórnandi
til tveggja ára og Þórhildur María
Kristinsdóttir var kjörin varameð-
stjórnandi til tveggja ára. Skoðun-
armenn reikninga voru kjörnir til
eins árs og það voru þeir Eiríkur
Ólafsson og Guðbrandur Brynj-
úlfsson og Einar Ole Pedersen til
vara.
pb
Rússneska Eurovisionstjarnan
Díma Bilán hefur verið á ferðalagi
um Vesturland síðustu daga. Af In-
stagram síðu hans að dæma hefur
hann mest haldið sig í Borgarfirðin-
um og augljóslega notið dvalarinn-
ar. Bilán skaust upp á stjörnuhim-
innin í Evrópu þegar hann hafn-
aði í öðru sæti í Eurovison söngva-
keppninni sem fram fór í Aþenu í
Grikklandi árið 2006, en þar söng
hann lagið „Never let you go“.
Tveimur árum síðar tók hann aft-
ur þátt og bætti um betur því hann
sigraði í keppninni. Sigarlag hans
hét „Believe“ en keppnin fór fram
í Belgrad í Serbíu.
Bilán nýtur mikilla vinsælda í
heimalandi sínu og hafa lög hans
notið mikillar hylli. Hann hefur
einnig leikið í kvikmyndum og ver-
ið dómari í rússnesku Voice keppn-
inni. Hann þykir minna á spænsku
poppstjörnuna Enrique Iglesias og
kallar Rússar hann stundum hinn
rússneska Iglesias.
Á ferð sinni um Vesturland gaf
Bílan sér að sjálfsögðu tíma til að
lesa Skessuhorn og kynnast þann-
ig nýjustu tíðindum úr landshlut-
anum. Hér sést hann djúpt sokkinn
í lesturinn. Myndin er af Instagram
síðu Bíláns.
hlh
Eurovisionstjarna á ferðinni
Laugardaginn 11. mars síðastlið-
inn var 95. sambandsþing UMSB
haldið í Hjálmakletti í Borgarnesi.
Dagskrá þingsins var hefðbund-
in samkvæmt lögum sambandsins
og fengum við góða gesti í tilefni
þingsins. Gunnlaugur Júlíusson,
sveitarstjóri Borgarbyggðar, færði
kveðjur frá ÍSÍ en hann situr í stjórn
ÍSÍ og Guðmundur Sigurbergsson
færði kveðju UMFÍ ásamt því að
hann veitti Írisi Grönfeldt starfs-
merki UMFÍ fyrir störf hennar í
þágu ungmenna og íþróttastarfs í
gegnum árin. Sólrún Halla Bjarna-
dóttir, sambandsstjóri UMSB,
færði Rósu Marinósdóttur viður-
kenningu sambandsins, en hún
vann flestar vinnustundir allra sjálf-
boðaliða í tengslum við undirbún-
ing og framkvæmd Unglingalands-
mótsins sem haldið var í Borgar-
nesi um síðustu verslunarmanna-
helgi. Það var mjög viðeigandi þeg-
ar heiðra átti Rósu fyrir sjálfboða-
liðastörf að hún var fjarverandi við
sjálfboðaliðastörf í þágu kvenfélags
sem var að sjá um kaffiveitingar
fyrir sjálfboðaliða í Björgunarsveit-
inni Ok. Það var því dóttir hennar
sem tók við viðurkenningunni fyrir
hennar hönd, en auðvitað fór Sól-
rún Halla sambandsstjóri síðar um
daginn og óskaði Rósu til hamingju
og fékk mynd.
Sex styrkir úr
afreksmannasjóði
Íris Grönfeldt sem situr í stjórn af-
reksmannasjóðs UMSB tilkynnti
um styrkveitingar úr sjóðnum fyr-
ir afrek ársins 2016. Það voru sex
íþróttamenn sem hlutu styrk úr
sjóðnum að þessu sinni en það eru;
Bjarki Pétursson golfari, Birgitta
Dröfn Björnsdóttir og Daði Freyr
Guðjónsson dansarar, Bjarni Guð-
mann Jónsson og Sigurður Aron
Þorsteinsson körfuboltamenn og
Ingibjörg Rósa Jónsdóttir badmin-
tonkona.
Stjórn kosin
Þingstörf gengu vel og Guðmund-
ur Sigurðsson og Kristján Gísla-
son þingforsetar stýrðu þinghald-
inu af miklum myndarskap. Fram
kom á þinginu að fjárhagslegur
rekstur UMSB gekk vel á árinu
2016 og skilaði hagnaði, en það
má að mestu leyti rekja til hækk-
unar á lottótekjum frá fyrra ári
og afgangi frá framkvæmd Ung-
lingalandsmótsins. Mikil sam-
staða var um þær tillögur sem af-
greiddar voru á þinginu og fund-
armenn almennt sáttir með gott
þing. Í lok þingsins var kosið um
laus embætti í stjórn og var Sól-
rún Halla kjörin sambandsstjóri
til eins árs, Kristín Gunnarsdótt-
ir var kjörin ritari til tveggja ára
og er hún að koma aftur í stjórn
UMSB eftir stutta fjarveru. Þórð-
ur Sigurðsson var kjörinn vararit-
ari til tveggja ára, Anna Dís Þórar-
Sambandsþing UMSB er afstaðið
Góður rekstur á árinu og ýmsar
viðurkenningar veittar
Þeir sem hlutu styrki úr afreksmannasjóði UMSB á þinginu. Frá vinstri: Bjarni Guðmann Jónsson sem tók við styrk fyrir sig og
systur sína Ingibjörgu Rósu badmintonkonu, Íris Grönfeldt, Sigurður Aron Þorsteinsson, Guðrún Þórðardóttir formaður Dans-
íþróttafélags Borgarfjarðar, fyrir hönd Daða og Birgittu og Pétur Sverrisson faðir Bjarka golfara.
Þingfulltrúar.
Guðmundur Sigurbergsson úr stjórn UMFÍ afhenti Írisi Grönfeldt starfsmerki
UMFÍ.
Rósa tekur hér við viðurkenningunni frá Sólrúnu Höllu sambandsstjóra UMSB.
„Hvers vegna stundar
þú hreyfingu?“
Spurning
vikunnar
(Spurt eftir spinningtíma hjá
Gunnu Dan í Borgarnesi)
Guðrún Kristjánsdóttir
Til þess að getað haldið lífi.
Jóhanna María Þorvaldsdóttir
Ég hreyfi mig til þess að líða
betur.
Sigríður Margrét Guðmunds-
dóttir
Fyrst og fremst svo mér líði
betur og til þess að halda góðri
heilsu. Svo er bara svo ofboðs-
lega gaman í tímunum hjá henni
Gunnu!
Svava Svavarsdóttir
Til að auka styrk og þol.
Inga Vildís Bjarnadóttir
Finnst það nauðsynlegt til að
halda mér í formi og líða vel.