Skessuhorn - 26.04.2017, Síða 16
MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 201716
Eins og greint er frá hér til hlið-
ar hefur Verkalýðsfélaga Akraness
gagnrýnt harðlega Norðurál og
telur fyrirtækið hafa brotið á fyrr-
verandi starfsmanni, sem sagt var
upp í kjölfar vinnuslyss í kerskála
22. mars síðastliðinn. Var ritað um
málið á heimasíðu VLFA á þriðju-
daginn í liðinni viku. Í niðurlagi
greinarinnar á heimasíðu verka-
lýðsfélagsins er greint frá því að
margir starfsmenn hafi haft sam-
band við verkalýðsfélagið og lýst
gremju sinni yfir uppsögninni,
en einnig yfir öðrum uppsögnum
sem átt hafa sér stað undanfarna
mánuði. Segir á heimasíðu VLFA
að starfsmenn upplifi að fyrir-
tækið reki óttastjórnun og harð-
neskjulega starfsmannastefnu.
„Einn starfsmaður sem var sagt
upp eftir 6 ára starf, fékk að fjúka
fyrir að segja einum liðsstjóra
að „þegja“ um leið og hann bað
hann að hlusta á sínar skýringar.
Öðrum varð á að slá í plasthlíf á
hjálmi liðsstjóra eftir að honum
fannst verið talað niður til sín, en
hann sá strax að sér og tók í hönd
liðsstjórans og bað hann afsök-
unar. Öðrum var sagt upp vegna
brota á öryggisreglum en sú ástæða
stóðst ekki nokkra skoðun og þá
var uppsagnarbréfinu bara breytt
og sagt að ástæða uppsagnar væri
samskiptaörðugleikar! Sá aðili hef-
ur lagt fram kvörtun til Vinnueftir-
litsins vegna eineltis af hálfu yfir-
manns,“ segir á heimasíðu VLFA.
Þar segir enn fremur að þessir
þrír starfsmenn hafi verið með með
samanlagt meira en 40 ára starfs-
reynslu og með flekklausan starfs-
feril hjá Norðuráli, hvorki munn-
legar né skriflegar áminningar og
hafi aldrei valdið tjóni.
No comment
Við vinnslu fréttarinnar fengust
þau svör hjá Norðuráli að fyrir-
tækið tjái sig ekki um málefni ein-
stakra starfsmanna.
kgk
Mikilvægt að starfsmenn
upplifi ekki óttastjórnun
Frá álveri Norðuráls á Grundartanga. Ljósm. Landsvirkjun.is.
Eins og segir í fréttinni hér að ofan
er umræddur brúkrani í álveri Norð-
uráls prófaður árlega af Vinnueftir-
litinu og ekki hafa verið gerðar at-
hugasemdir við virkni eða búnað
hans. Greint er frá því í frétt Vísis frá
20. apríl sl. að öryggisbúnaður kran-
ans hafi slegið út þegar slysið varð
og að búnaðurinn virki ekki þeg-
ar kraninn er keyrður í efstu hraða-
stillingu. Í fréttinni segir að Norð-
urál telji starsfmanninn sem stjórn-
aði krananum, og hefur verið vik-
ið frá störfum, hafa keyrt kranann
óvarlega. „Það er margt sem bend-
ir til þess að þessi búnaður virki ekki
eins og hann á að virka undir viss-
um kringumstæðum,“ segir Eyjólf-
ur Sæmundsson, forstjóri Vinnueft-
irlits ríkisins,
í samtali við
Vísi. „Bún-
aðurinn er
prófaður við
vissar að-
stæður og
þar stenst
hann próf-
anir. Hins
vegar virð-
ist öryggis-
búnaður slá
út þegar krananum er ekið hratt.
Það er ekki hægt við eftirlit að láta
kranann bakka á fullum hraða og gá
hvort hann stöðvist ekki örugglega
þegar hann mætir öðrum krana. Við
þurfum fyrst og fremst að draga lær-
dóm af þessu máli og kanna þetta í
þaula.“
Vilhjálmur Birgisson, formaður
Verkalýðsfélags Akraness, ritar um
fréttina á Facebook-síðu sína. Hann
segir alfarið á ábyrgð fyrirtækis-
ins að búnaður virki sem skyldi,
hvort sem ekið er of hratt eða ekki.
„Þetta væri svipað að bremsur á bíl-
um myndu hætta að virka ef hrað-
inn væri kominn yfir 90 kílómetra,“
segir Vilhjálmur og segir ábyrgðina
eftir sem áður liggja hjá fyrirtækinu.
„Forsvarsmenn Norðuráls [geta]
alls ekki sagt að það sé aðalástæðan
að starfsmaðurinn hafi keyrt kran-
ann óvarlega því ef öryggisbúnaður
kranans hefði virkað eins og lög og
reglugerðir Vinnueftirlitsins kveða
á um þá hefði þetta slys ekki átt sér
stað,“ skrifar hann. „Af hverju geta
forsvarsmenn Norðuráls ekki viður-
kennt það en vilja frekar varpa allri
ábyrðinni á starfsmanninn,“ spyr
Vilhjálmur.
kgk
Telja krananum hafa
verið ekið óvarlega
Eyjólfur Sæmundsson,
forstjóri Vinnueftirlits
ríkisins.
Verkalýðsfélag Akraness gagnrýn-
ir Norðurál á Grundartanga og tel-
ur það hafa brotið á fyrrverandi
starfsmanni sínum, sem sagt var upp
störfum í kjölfar vinnuslyss. Hinn
22. mars varð alvarlegt vinnuslys í ál-
verinu þar sem krani skall á töppun-
arkrana. Við áreksturinn slóst byrði
töppunarkranans, svokölluð bímg-
ræja, í starfsmann með þeim afleið-
ingum að hann slasaðist illa. Lá við-
komandi á gjörgæslu Landspítalans
í rúma viku, en líður í dag eftir at-
vikum vel og er á batavegi. Krönum
þessum er stjórnað af starfsmönn-
um með þráðlausum fjarstýringum.
Starfsmanninum sem stjórnaði kran-
anum þegar slysið varð var sagt upp
störfum 30. mars, átta dögum eftir
slysið. Hann þarf ekki að vinna upp-
sagnarfrestinn en fær hann greidd-
ann. Verkalýðsfélagið er óánægt
með framkomu fyrirtækisins í garð
fyrrverandi starfsmanns síns, segir
Norðurál ekki hafa hirt um andlega
líðan viðkomandi starfsmanns eft-
ir slysið og hafa varpað allri ábyrgð
slyssins yfir á hann. Verkalýðsfélag-
ið telur ábyrgð slyssins hins vegar
liggja hjá fyrirtækinu, vegna bilunar
í búnaði. Norðurál sendi síðastliðinn
miðvikudag frá sér yfirlýsingu þar
sem fram kemur að Vinnueftirlitið
hafi framkvæmt skoðun á viðkom-
andi krana í kjölfar slyssins og hafi
brúkraninn verið tekinn úr notkun.
Hefur árekstrarvörn hans nú verið
breytt samkvæmt nýjum tilmælum
Vinnueftirlitsins, sem fram komu
eftir að slysið átti sér stað.
„Ekki um bilun í
búnaði að ræða“
Á heimasíðu VLFA er greint frá því
að starfsmaðurinn hafi tjáð öryggis-
stjóra Norðuráls, strax eftir slysið,
að hann vissi ekki hvers vegna slys-
ið hefði orðið, taldi svona lagað ekki
eiga að geta gerst. Tveimur dögum
síðar var haft eftir fulltrúa fyrirtæk-
isins í fjölmiðlum að ekkert benti til
þess að slysið hafi verið vegna bilun-
ar í búnaði. „Við fyrstu sýn virðist
ekki hafa verið um bilun í búnaði að
ræða,“ sagði Sólveig Kr. Bergmann,
yfirmaður samskipta hjá Norðuráli,
í samtali við Skessuhorn, 24. mars
sl. og sama dag sagði hún við Vísi
að „við fyrstu athugun virðist ekkert
hafa verið að öryggisbúnaði.“ Sama
dag, 24. mars, ritaði Gunnar Guð-
laugsson, framkvæmdastjóri Norð-
uráls, yfirlýsingu um slysið í Fa-
cebook-hópinn „Norðurál - vinnu-
staðurinn okkar,“ sem er hópur ætl-
aður starfsfólki Norðuráls. Þar sagði
hann meðal annars: „Þá benda próf-
anir sem gerðar hafa verið á bún-
aði ekki til þess að honum hafi verið
ábótavant.“
Verkalýðsfélagið telur þessar yfir-
lýsingar forsvarsmanna fyrirtækisins
undarlegar í ljósi þess að þá voru að-
eins tveir dagar liðnir frá því slysið
átti sér stað. Rannsókn lögreglu og
Vinnueftirlitsins hafi því rétt verið á
frumstigi. „En með þessu framferði
forsvarsmanna Norðuráls, að lýsa
því einhliða yfir að ekkert væri að
búnaðinum var allri sök varpað mis-
kunnarlaust yfir á starfsmanninn,“
segir á heimasíðu VLFA.
Þá má geta þess að eftir að áður-
nefnd frétt Skessuhorns um slysið
fór í loftið á vefnum barst blaða-
manni símtal frá starfsmanni Norð-
uráls. Sá vildi ekki láta nafns síns
getið en fullyrti að kranarnir væru
útbúnir árekstrarvörn og ómögulegt
væri að keyra einum krana á annan
ef búnaðurinn virkaði sem skyldi.
Aðrir starfsmenn fyrirtækisins sem
Skessuhorn hefur rætt við hafa
sömu sögu að segja. Einn starfsmað-
ur hafði á orði að kranarnir kæmu
útbúnir árekstrarvörn frá framleið-
anda.
Engin vafi um
bilun í búnaði
Verkalýðsfélagið kallaði eftir öll-
um upplýsingum sem lágu fyrir um
málið og kallaði eftir því að lögmað-
ur félagsins kæmi einnig að málinu.
„Við skoðun VLFA og lögmanns
VLFA kom fljótt í ljós að það stæð-
ist alls ekki af hálfu Norðuráls að
ætla að varpa allri sök á þessu slysi
á herðar starfsmannsins,“ segir á
heimasíðu VLFA. „Það er skoðun
Verkalýðsfélags Akraness að ekki sé
neinn vafi á því að kraninn var bil-
aður og ef hann hefði verið í lagi
þá hefði þetta skelfilega slys aldrei
orðið,“ segir á heimasíðunni og í
því samhengi er vísað til reglugerð-
ar um öryggisbúnað krana og lyfti-
búnaðar. Þar er kveðið á um að ef
tvö eða fleiri lyftitæki eru á sömu
braut eða spori „skulu vera á þeim
nálgunarrofar til að koma í veg fyr-
ir árekstur,“ eins og segir í reglu-
gerðinni. „Kjarni málsins er að þetta
slys átti aldrei að geta gerst ef fyr-
irtækið hefði haft búnaðinn í lagi.
Því er það þyngra en tárum taki að
fyrirtækið skuli hafa vogað sér að
gefa út einhliða yfirlýsingu þar sem
allri ábyrgðinni var varpað á herðar
starfsmannsins. Í ljósi þessara stað-
reynda að búnaðurinn virkaði ekki
sem skyldi er eðlilegt að spyrja; hver
er ábyrgð fyrirtækisins á því að okk-
ar félagsmaður leið andlegar vítis-
kvalir vegna þessa slyss, hefur stöðu
sakbornings hjá lögreglu og hefur
misst lífsviðurværi sitt til 14 ára,“
segir enn fremur á vef VLFA.
Stjórnendur fría
sig ábyrgð
Þá er fullyrt á heimasíðu verkalýðs-
félagsins að VLFA og lögmaður þess
hafi ítrekað reynt að ná sátt í mál-
inu. Meðal annars hafi verið lögð
fram hugmynd að sáttatillögu sem
byggðist á því að fyrirtækið viður-
kenndi sína ábyrgð í málinu, það er
að segja að búnaðurinn hafi verið bil-
aður. „Því hefur alfarið verið hafnað
af hálfu fyrirtækisins.“ Þá segir enn
fremur að VLFA geri sér fulla grein
fyrir því að strangar reglur þurfi að
gilda um öryggismál. Þekkt sé að
störf í stóriðjum geti verið hættuleg
og starfsmenn þurfi að vera meðvit-
aðir um þær hættur sem geta skap-
ast ef ekki eru allir með fulla örygg-
isvitund. „Að sama skapi gerum við
þá skýlausu kröfu á fyrirtækið að all-
ur öryggisbúnaður tækja og tóla sé
í lagi og uppfylli lög og reglugerð-
ir enda er það alfarið á ábyrgð fyr-
irtækja að svo sé, eins og kveðið er
á um í lögum um aðbúnað og holl-
ustuhætti á vinnustöðum. Ábyrgðin
þarf að gilda í báðar áttir! Það geng-
ur alla vega ekki að skella alltaf „litla
manninum á gólfinu“ undir fallöx-
ina ef einhver óhöpp og slys eiga sér
stað og fyrirtækið og stjórnendur
fría sig allri ábyrgð,“ segir á heima-
síðu Verkalýðsfélags Akraness.
Yfirlýsing Norðuráls
Norðurál sendi á miðvikudaginn,
19. apríl, frá sér yfirlýsingu vegna
slyssins sem varð að kvöldi 22. mars
í kerskála álversins á Grundartanga.
Þar staðfestir fyrirtækið að annar
brúkraninn hafi verið kyrrstæður
og hinum brúkrananum hafi ver-
ið ekið á hann, með fyrrgreindum
afleiðingum. „Vinnueftirlitið hef-
ur prófað umræddan brúkrana ár-
lega, og ekki gert athugasemdir við
virkni eða búnað hans. Brúkraninn
var síðast yfirfarinn af Vinnueftir-
litinu í ágúst 2016. Í kjölfar slyss-
ins var brúkraninn tekinn úr notk-
un og hefur árekstrarvörn hans
verið breytt samkvæmt nýjum til-
mælum Vinnueftirlitsins, sem fram
komu eftir að slysið átti sér stað.
Þá hefur verið farið yfir búnað og
virkni annarra krana á vinnusvæði
Norðuráls,“ segir í yfirlýsingu fyr-
irtækisins sem send er af Sólveigu
Kr. Bergmann, áðurnefndum yfir-
manni samskipta. „Málið er litið al-
varlegum augum og verður allt gert
til að koma í veg fyrir að atburður
sem þessi endurtaki sig.“ Ekki er í
yfirlýsingu Norðuráls rætt um mál
fyrrgreinds starfsmanns, þess sem
stjórnaði krananum og var vikið úr
starfi átta dögum eftir slysið.
kgk
Segir Norðurál varpa ábyrgð slyss á starfsmann