Skessuhorn


Skessuhorn - 26.04.2017, Side 20

Skessuhorn - 26.04.2017, Side 20
MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 201720 Þorsteinn Haukur Harðarson var nýverið ráðinn framkvæmda- stjóri Umf. Víkings/Reynis. Mun hann halda utan um allan dagleg- an rekstur og íþróttastarf félagsins. Hann verður yfir meistaraflokkum karla og kvenna hjá Víkingi Ólafs- vík, sem og öllu barna- og ung- lingastarfi Víkings/Reynis. Þá mun hann einnig koma að Snæfellsnes- samstarfinu. Þorsteinn er 27 ára gamall og hefur starfað nær óslitið við fjöl- miðla frá árinu 2008. Síðast starf- aði hann hjá fjarskiptafyrirtækinu Vodafone. Aðspurður kveðst hann fullur eftirvæntingar fyrir nýja starfinu. „Ég er virkilega spennt- ur. Það hefur alltaf verið draumur minn að starfa innan íþróttahreyf- ingarinnar og Ólafsvík fannst mér spennandi kostur. Ég hef aðeins kynnst félaginu í gegnum tíðina, gaf til dæmis út kynningarblað um knattspyrnulið félagsins fyrir fyrsta tímabil þeirra í úrvalsdeild karla árið 2013,“ segir Þorsteinn í sam- tali við Skessuhorn. „Ég eignaðist síðan konu af svæðinu, frá Hellis- sandi, og hefur alltaf þótt vænt um félagið síðan þá,“ bætir hann við. Þorsteinn býr með Írisi Rut Jónsdóttur og eiga þau sitt hvora stelpuna af fyrri samböndum. Eru þau búsett í Garðabæ en Þorsteinn á von á að fjölskyldan flytji vestur innan tíðar. „Ég reikna með að við flytjumst alfarið vestur þegar eldri stelpan er búin í grunnskólanum og Íris búin í vinnunni,“ segir hann en Íris vinnur í grunnskóla. „Ég kem mér vestur sem fyrst og svo koma þær þegar þær eru búnar með sitt,“ bætir hann við. Hafa umgjörðina sem besta Aðspurður um áherslur sínar segir Þorsteinn þær fyrst og fremst vera að halda áfram að byggja ofan á það góða starf sem þegar hefur verið unnið. „Hvað varðar meistaraflokk karla þá vonandi getum við hald- ið áfram að skapa góða umgjörð í kringum liðið og stuðningsmenn. Ég mun leggja mitt af mörkum til að þetta litla bæjarfélag eigi áfram lið í efstu deild. Kvennamegin hefur verið unnið mjög flott starf undanfarin ár og liðið er í 1. deild núna. Við munum halda því starfi áfram með styrkingu yngri flokk- anna og reyna að skapa hefð fyr- ir kvennaknattspyrnu í Ólafsvík,“ segir hann. „Hvað varðar aðrar íþróttir þá á ég eftir að koma mér betur inn í það góða starf sem þar hefur verið unnið, er frekar nýtek- inn við starfi framkvæmdastjóra en við munum halda áfram að reyna að hafa umgjörðina sem besta fyrir iðkendur allra greina. Þó fótbolt- inn sé stærsta sportið þá má ekki gleyma að fleiri íþróttir eru stund- aðar. Þegar er boðið upp á sund, körfuknattleik og frjálsar íþrótt- ir. Stefnan er að styrkja það starf, reyna að fjölga iðkendum og hafa fjölbreytileikann sem mestan fyrir unga fólkið,“ bætir hann við. „Ég hlakka mikið til að byrja og fá að taka þátt í þessu flotta íþróttastarfi Víkings/Reynis,“ segir Þorsteinn Haukur að lokum. kgk Keppni í Pepsi deild karla í knatt- spyrnu hefst sunnudaginn 30. apríl næstkomandi með þremur leikj- um.Vesturland á tvo fulltrúa í efstu deild karla að þessu sinni, ÍA og Víking Ólafsvík og hefja félögin bæði leik á sunnudaginn kemur. Á Akranesvelli tekur ÍA á móti Ís- landsmeisturum FH, en sá leik- ur hefst kl. 17:00. Um kvöldið kl. 19:15 mætir Víkingur Ó. síðan liði Vals á Valsvellinum í Reykjavík. ÍA hafnaði í 8. sæti deildarinnar á síðasta ári en Víkingur í 10. sæti. Þjálfarar beggja liða höfðu á orði í samtali við Skessuhorn að þeir von- uðust til að gera betur í sumar en á síðasta keppnistímabili. Nánar er rætt við þá Gunnlaug Jónsson hjá ÍA og Ejub Purisevic hjá Víkingi Ó., um væntingar liðanna til kom- andi tímabils, markmiðin í deild- inni og fleira. kgk Boltinn rúllar af stað Svipmynd frá leik Vesturlandsliðanna tveggja á Akranesvelli síðasta sumar. Bæði ÍA og Víkingur Ó. leika í Pepsi deild karla á sumri komanda. Ljósm. úr safni/ gbh. Nýr framkvæmdastjóri Víkings/Reynis Þorsteinn Haukur Harðarson, nýr framkvæmdastjóri Víkings/Reynis. „Það er komin eftirvænting í hópnum eftir mótinu, það eina sem mætti lagast fyrir mót er veðr- ið. Það hefur ekki verið eins og við vildum helst hafa það, en það breytir því ekki að flautað verð- ur til leiks á sunnudaginn og við hlökkum til,“ segir Gunnlaugur Jónsson, þjálfari ÍA, í samtali við Skessuhorn. Síðdegis á sunnudag- inn hefst keppni í Pepsideild karla í knattspyrnu með þremur leikj- um. Einn þeirra er leikur ÍA og Ís- landsmeistara FH á Akranesvelli. Því næst mætir liðið Val og síðan KR í þriðju umferðinni. Aðspurð- ur um markmið sumarsins segir þjálfarinn eitt markmiðanna vera að byrja mótið betur en undanfar- in tvö ár. „Þó prógrammið fyrstu umferð- irnar virðist erfitt fyrirfram þá get- ur það verið kostur líka. Þessi lið eru rétt eins og við að byrja mót- ið og gætu átt eftir að finna takt- inn sinn, veðrið eins og það er og vellirnir eru ekki orðnir tilbúnir í fyrstu umferðunum. Ég held að það sé alveg klárlega tækifæri fyrir okkur til að stríða þessum sterku liðum í upphafi móts. Við erum hvergi bangnir þó það líti kannski þannig út á pappírum að fyrstu leikirnir verði erfiðir,“ segir hann. „Önnur markmið sumarsins eru að halda áfram að bæta og þróa liðið og ná meiri stöðugleika eftir svo- lítið kaflaskipt tímabil í fyrra. Von- andi mun að skila sér í því að við komumst ofar á töfluna en síðasta sumar,“ segir Gunnlaugur, en ÍA hafnaði í 8. sæti í deildinni á síð- asta ári. Ánægður með hópinn Gunnlaugur kveðst ánægður með leikmannahópinn. „Hann hefur tek- ið meiri breytingum en maður hefði helst viljað, við höfum lent í áföll- um í vetur og þurft að bregðast við þeim og þess vegna hafa breyting- arnar verið fleiri en við hefðum ósk- að okkur. En það er ekkert við því að gera, við verðum að bregðast við því og ég er ánægður með hópinn,“ seg- ir hann. „Hópurinn hefur slípast vel saman. Við spiluðum til dæmis fínan æfingaleik gegn Breiðabliki á laugar- daginn þar sem við gerðum afar vel í fyrri hálfleik. Þannig að þetta virðist allt vera að smella saman á hárrétt- um tíma,“ segir Gunnlaugur. Liðið stígi upp Fyrirliði liðsins til margra ára, Ár- mann Smári Björnsson, tilkynnti fyrr í vor að hann væri hættur knatt- spyrnuiðkun. Gunnlaugur segir erf- itt að fylla skarð hans. „Ármann hef- ur verið óumdeildur leiðtogi liðsins síðustu ár, fyrirliði og hefur spilað vel, sérstaklega átti hann gríðarlega gott sumar í fyrra. Það gefur augað leið að það er ekki auðvelt að finna leikmann sem stígur í hans spor, og ég held að hans skarð verði ekki fyllt eingöngu með því að finna mann í stöðuna hans. Það finnst ekki týpa eins og Ármann, hann hefur mót- ast í liðinu og samfélaginu svo lengi, hafði mikla reynslu að miðla. Ég tel að til að fylla hans skarð þurfi liðið sem heild þarf að stíga upp og þjappa sér saman,“ segir Gunnlaugur. ÍA varð fyrir öðru áfalli skömmu fyrir áramót þegar markvörðurinn Árni Snær Ólafsson sleit krossband í æfingaleik. Óvíst er hversu mikið Árni getur leikið með liðinu í sumar. Til liðsins var fenginn reynslumik- ill markvörður, Ingvar Þór Kale og mun hann berjast við Pál Gísla Jóns- son um stöðuna á milli stanganna. Hann var áður talinn í hópi bestu markvarða deildarinnar en átti erf- itt uppdráttar á síðasta ári. „Síðasta tímabil hjá Ingvari gekk ekki upp eins og hann vildi. Hann veit það sjálfur að hann þarf að stíga upp og sanna sig. Ég lít á það sem kost fyr- ir okkur að hafa leikmann sem vill ólmur sína hvað í hann er spunnið, auk þess sem það er mikill kostur að hafa tvo reynda markmenn að stóla á,“ segir Gunnlaugur. Hlakkar til að sjá fólk á vellinum Það er auðheyrt á þjálfaranum að hann bíður mótsins með eftirvænt- ingu og hefur trú á sínu liði. Hann vill hvetja Skagamenn til að fylkja sér á bakið liðið í sumar. „Ég hlakka til að sjá fólk á vellinum og hvet Skagamenn til að styðja við bakið á liðinu í blíðu og stríðu. Við mun- um lenda í áföllum í sumar eins og gengur og gerist í boltanum og þá er stuðningurinn strákunum mikil- vægur, bæði innan vallar og úti í bæ. En ég vona að við náum að búa til meiri stöðugleika og vonandi skil- ar það okkur ofar í töfluna að móti loknu,“ segir Gunnlaugur Jónsson að lokum. kgk „Allt að smella saman á hárréttum tíma“ Gunnlaugur Jónsson, þjálfari ÍA. Markahrókurinn Garðar Gunnlaugsson fagnar marki í leik gegn Val síðasta sumar. Ljósm. úr safni/ gbh.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.