Skessuhorn - 03.05.2017, Page 4
MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 20174
Eins og greint var frá í frétt í síðasta
Skessuhorni mun í sumar verða byrj-
að á lagningu 66 kV rafstrengs milli
Ólafsvíkur og Grundarfjarðar. Síð-
astliðinn föstudag var skrifað und-
ir samning þess efnis að Steypustöð
Skagafjarðar mun leggja strenginn.
Verkinu fylgir jarðvinna, slóðagerð
og frágangsvinna milli tengivirkja á
báðum þéttbýlisstöðunum. Vinna við
strenginn hefst á næstu vikum og er
stefnt að því að framkvæmdum verið
að fullu lokið með yfirborðsfrágangi
sumarið 2018. Guðmundur Ingi Ás-
mundsson forstjóri Landsnet segir
að með lagningu Grundarfjarðarlínu
II, 66 kV jarðstrengs milli Ólafsvík-
ur og Grundarfjarðar og byggingu
nýrra tengivirkja, aukist afhending-
aröryggi raforku á svæðinu til muna.
„Straumleysi hefur verið algengt á
Snæfellsnesi undanfarin ár. Loftlínan
á milli Ólafsvíkur og Grundarfjarð-
ar liggur um veðurfarslega mjög erf-
itt svæði á Fróðárheiði og m.a. þess
vegna var jarðstrengur talinn betri
kostur,“ sagði Guðmundur Ingi.
mm
Í gær var suðaustan 13-23 m/s vind-
ur og hvasst suðvestan til á landinu
og gekk á með snörpum vindhvið-
um við fjöll. Af þessum sökum var
bræla á miðunum út af Vesturlandi
og smábátaflotinn sem halda mátti
til strandveiða á þessum fyrsta
degi tímabilsins var víða bundinn
við bryggju. Meðfylgjandi mynd
var tekin í Ólafsvík í gærmorgun.
Heldur skaplegra veður var inn-
ar við Breiðafjörð og náðu nokkrir
smábátasjómenn að róa frá Grund-
arfirði.
Útlit er fyrir hægara veður um
og eftir miðja vikuna og má því bú-
ast við að flotinn haldi almennt til
veiða. Auk þess er spáð mjög heitu
veðri miðað við árstíma, allt að 20
stigum víða um land.
mm/ Ljósm. af.
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá-
auglýsinga er til 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 2.835 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða
kr. 2.457. Rafræn áskrift kostar 2.226 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.058 kr.
Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 750 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Guðný Ruth Þorfinnsdóttir gudny@skessuhorn.is
Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is
Heiðar Lind Hansson hlh@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Emilía Ottesen emilia@skessuhorn.is
Lísbet Sigurðardóttir lisbet@skessuhorn.is
Umbrot og hönnun:
Tinna Ósk Grímarsdóttir tinna@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Nallinn á sitthvoru túninu
Hér sit ég í vinnunni. Það er tekið að halla á dag verkalýðsins og úti
beljar regn. Búinn að skjótast út, ganga örlítið neðar á Kirkjubrautina
og taka myndir af því þegar Villi verkalýðs arkar í broddi fylkingar í
kröfugöngu með sínu fólki. Nú hefur hann Ólaf Arnarson skoðanabróð-
ir og svarinn andstæðing verðtryggingar og okurvaxta sér við hlið. Ég
hef myndað upphaf þessarar kröfugöngu undanfarin fimmtán ár. Mér
finnst það fylgja starfinu og skyldum þess. Starfi sem snúast á um að
greina frá því sem fólkið í landinu er að fást við hverju sinni. Segja frá
baráttu fólksins, sigrum þess og brostnum vonum. Fólksins sem ekki
hefur endilega fæðst með eða tekið við silfurskeiðum, heldur í besta falli
verið látið pússa þær í vinnumennsku hjá öðrum.
Þarna við miðja Kirkjubrautinni er fólk farið að safnast saman og
undirbýr gönguna. Það reitast dropar úr lofti og vindurinn er sunn-
anstæður, gengur á með allhvössum hryðjum. Spottinn í fánastönginni
slitnar í einni þeirra og íslenski fáninn fellur til jarðar. Fólk hleypur til
og kemur fánanum til bjargar. Þarna á fáninn ekki að liggja, fyrir honum
er nefnilega enn borin virðing - af flestum.
Gangan fer af stað, tromman gellur og innan skamms hljómar Nall-
inn í meðförum unga fólksins í Lúðrasveitinni og reyndar þeirra eldri
einnig sem manna þau hljóðfæri sem upp á vantar. Þetta er hátíðleg
stund og hugur í fólki sem staðráðið er í að berjast fyrir bættum kjörum
og réttindum. En það er samt beygur í fólki. Nú er fjöldi starfa í húfi á
Skaganum, fiskvinnslustörf eru lögð undir í baráttunni um aukinn arð
til handa eigendum útgerðarinnar, sem reyndar eru í stórum dráttum
lífeyrissjóðir þessa sama fólks. Störfin gætu horfið eins og hendi væri
veifað. Þessi beygur er alltumlykjandi, nánast svo þykkur að hægt væri
að skera hann. Hvað tekur við hjá þeim sem í áratugi hafa flakað, snyrt
og pakkað fiski til að hámarka verðmætin? Hvað á fiskverkakonan á sex-
tugs- eða sjötugsaldri að taka sér fyrir hendur? Kona sem kannski hefur
allt sitt líf unnið í fiski og kann fátt annað. Konan sem alla daga klukkan
sjö fimmtán hefur keik gengið framhjá glugganum heima hjá mér, áleið-
is í vinnuna með malinn í annarri hendi en baráttuviljann í krepptum
hnefa í hinni. Hvert á hún að fara klukkan sjö fimmtán ef búið verður að
loka fiskvinnslunni og flytja starfið hennar burt?
Eftir að ég var aftur kominn inn eftir þessa ljósmyndaferð las ég yfir
helstu fréttir stóru miðlanna. Sá mér til undrunar að í henni Reykja-
vík hafði launafólk ekki sameinast um einn útifund, heldur þurfti tvo.
Gangan hófst að vísu á sama stað, en svo tvístraðist hópurinn. Sumir
fóru á Ingólfstorg en aðrir á Austurvöll. Það er komin upp sundrung í
forystu launþega. Þeir tala ekki lengur saman, ekki sama mál. Geta ekki
staðið hlið við hlið uppi á vörubílspalli og skipst á að halda ræður. Þeir
þurfa sitthvort torgið þannig að ekki heyrist í hvor öðrum. En hver er
ástæðan? Jú, þeir eru ekki báðir að hugsa með sama hætti um kjör um-
bjóðenda sinna. Kannski bara annar þeirra? Ég las ræður þeirra á net-
miðlunum og það rann upp fyrir mér ljós. Auðvitað eru fiskvinnslu-
konurnar á Skaganum og annars staðar að missa störfin vegna þess að
fyrirtækin kjósa frekar að veðja á starfsemi þar sem forysta verkalýðs-
hreyfingarinnar gengur sundruð til verka. Þau vilja frekar vera þar sem
fólk er hætt að mæta í kröfugöngur og samtakamátturinn fer dvínandi.
Þar spila menn ekki Nallann fyrir Villa verkalýðs, Ólaf Arnarson eða
konuna sem ekki á lengur erindi framhjá glugganum hjá mér, keik og
knarreist á leið í vinnuna klukkan sjö fimmtán með malinn í hægri og
krepptan hnefa.
Magnús Magnússon
Leiðari
Strandveiðitímabilið hófst með brælu
Skagfirðingar leggja
rafstrenginn á Snæfellsnesi
Bygging tengivirkis í Grundarfirði hófst í byrjun síðasta árs og er verkið langt
komið.
Á myndinni eru fulltrúar Landsnets
og Steypustöðvar Skagafjarðar
þegar samkomulagið var undirritað
í síðustu viku. F.v. Guðmundur Ingi
Ásmundsson forstjóri Landsnets, Ás-
mundur Pálmason framkvæmdastjóri
Steypustöðvar Skagafjarðar, Anna
Sigga Lúðvíksdóttir sérfræðingur í
innkaupum hjá Landsneti, Friðrik
Pálmason verkefnastjóri og Stein-
grímur Óskarsson verkstjóri hjá
Steypustöð Skagafjarðar.
Standveiðar hófust í gærmorgun
þar sem gaf til sjós vegna hvass-
viðris. Skarphéðinn Ólafsson á
Þresti SH-19 fór um klukkan sex
í gærmorgun út frá Grundarfirði.
Var hann kominn að landi aftur
um níuleitið, fyrstu manna, með
fullan dagsskammt. Alls fóru fimm
smábátar til veiða frá Grundarfirði
í gærmorgun, að sögn hafnarvarð-
ar sem fréttaritari ræddi við.
sk/tfk
Varð fyrstur til að ná dagsskammtinum
Skarphéðinn Ólafsson
var fyrstur í land á nýju
strandveiðitímabili.
Ljósm. sk.
Magnús Jónsson á
Arney SH 162 var
kampakátur við
löndun í Grundarfirði
á fyrsta degi strand-
veiða. Hann var einn
af fáum sem fóru á
sjó frá Grundarfirði
enda var veðrið ekki
upp á sitt besta.
Magnús náði þó
skammtinum í þetta
skiptið eins og hinir
tveir bátarnir sem
komnir voru í land
þegar þessi mynd var
tekin. Ljósm. tfk.