Skessuhorn - 03.05.2017, Page 8
MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 20178
Þegar líður á þessa viku tekur að
hlýna um landið allt og má bú-
ast við að hiti verði upp undir 20
gráðum víða um landið. Það er
með fyrra fallinu að hitastig nái
þetta hátt. Í dag er spáð suðaustan
5-13 m/s á Suður- og Vesturlandi,
skýjað með köflum og þurrt að
kalla og hiti 10 til 16 stig. Hægari
suðlæg átt á Norður- og Austur-
landi, yfirleitt léttskýjað og hiti 14
til 20 stig. Á fimmtudag, föstudag
og laugardag verður hæg breytileg
átt, víða léttskýjað og hiti 13 til 20
stig víða um land en þá hefur hæð-
arsvæði tekið völdin yfir landinu.
Sums staðar verður þokuloft við
sjávarsíðuna og mun svalara veður
þar sem aðstæður verða með þeim
hætti. mm
Janúar arfaslakur í
aflaverðmæti
LANDIÐ: Í samantekt Hagstof-
unnar kemur fram að aflaverð-
mæti íslenskra skipa var 1,9 millj-
arðar króna í janúar, sem er 81%
minna en í sama mánuði 2016.
Setur verkfall sjómanna þar mest
strik í reikninginn. Engum upp-
sjávarafla var landað í mánuðinum.
Verðmæti botnfisks, flatfisks og
skeldýra var verulega mikið minna
í janúar á þessu ári. Þá var enginn
afli sjófrystur eða fluttur út í gám-
um í janúar. Á tólf mánaða tímabili
frá febrúar 2016 til janúar 2017 var
aflaverðmæti tæpum 26 milljörð-
um króna minna en á sama tíma-
bili árið áður, sem reiknast sem
17,1% samdráttur. -mm
Samfylking
heldur kjördæmis-
ráðsþing
NV-KJÖRD: Kjördæmisráð
Samfylkingarinnar í Norðvest-
urkjördæmi boðar til aðalfund-
ar sunnudaginn 7. maí kl. 12-16 í
húsnæði Samfylkingarinnar Still-
holti 16-18 á Akranesi. „Á að-
alfundi verða hefðbundin aðal-
fundarstörf. Guðjón S. Brjánsson,
þingmaður kjördæmisins, og Logi
Már Einarsson, formaður Sam-
fylkingarinnar, ávarpa fundinn og
taka þátt í umræðum. Stjórn kjör-
dæmisráðs hvetur alla félagsmenn
til að mæta á aðalfundinn og taka
þátt í undirbúningi og umræðum
vegna komandi sveitarstjórnar-
kosninga á næsta ári,“ segir í til-
kynningu frá stjórn kjördæmis-
ráðs. -mm
Aflatölur fyrir
Vesturland
dagana 22. - 28. apríl
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu:
Akranes 13 bátar.
Heildarlöndun: 75.440 kg.
Mestur afli: Eskey ÓF: 33.867
kg í fimm löndunum.
Arnarstapi 8 bátar.
Heildarlöndun: 52.219 kg.
Mestur afli: Bárður SH: 29.390
kg í þremur löndunum.
Grundarfjörður 9 bátar.
Heildarlöndun: 244.479 kg.
Mestur afli: Hringur SH:
63.445 kg í einni löndun.
Ólafsvík 26 bátar.
Heildarlöndun: 511.794 kg.
Mestur afli: Ólafur Bjarnason
SH: 58.229 kg í fimm löndun-
um.
Rif 25 bátar.
Heildarlöndun: 757.691 kg.
Mestur afli: Magnús SH: 87.552
kg í þremur löndunum.
Stykkishólmur 10 bátar.
Heildarlöndun: 281.090 kg.
Mestur afli: Þórsnes SH:
216.443 kg í sjö löndunum.
Topp fimm landanir á tímabilinu:
1. Rifsnes SH - RIF:
70.321 kg. 27. apríl.
2. Þórsnes SH - STY:
66.771 kg. 22. apríl.
3. Hringur SH - GRU:
63.445 kg. 26. apríl.
4. Örvar SH - RIF:
48.769 kg. 25. apríl.
5. Helgi SH - GRU:
47.514 kg. 24. apríl.
-grþ
Íþróttamót
Faxa og Skugga
BORGARNES: Móta-
nefnd hestamannafélaganna
Faxa og Skugga stendur fyr-
ir opnu íþróttamóti á félags-
svæði Skugga í Borgarnesi
dagana 6. og 7. maí. Mótið
nefnist Arionbankamót Faxa
og Skugga. Mótshald hefst
klukkan 10 á laugardegin-
um. Keppt verður í Polla-
tölti en í Barnaflokki verður
keppt í fjörgangi V2 og tölti
T3. Í Unglingaflokki verður
keppt í fjórgangi V2 og Tölti
T3. Í Ungmennaflokki verð-
ur keppt í fjórgangi V2 – tölti
T1, tölti T4 og fimmgangi
F2. Í 2. flokki verður keppt í
fjórgangi og tölti T3. Í Opn-
um flokki verður keppt í fjór-
gangi V2 – tölti T1 – tölti
T4 – fimmgangi F2 – 100
m. skeiði P2, 150 m og í 250
m. skeiði. Skráning á mótið
fer fram í gegnum Sportfeng
(mótshaldari Skuggi) og verð-
ur skráningu lokað á miðnætti
miðvikudaginn 3. maí.
-fréttatilk.
Strandhreinsun
á laugardaginn
SNÆFELLSNES: Norræni
strandhreinsunardagurinn
verður á Snæfellsnesi laugar-
daginn 6. maí, en sama daga
verða hreinsaðar strand-
lengjur víða á Norðurlönd-
unum. Björt Ólafsdóttir um-
hverfisráðherra mun taka
þátt í hreinsunarstarfinu. Á
Íslandi varð Snæfellsnes fyr-
ir valinu þar sem Snæfell-
ingar eru þekktir fyrir frum-
kvöðlastarf sitt við að vekja
athygli á og efla umhverf-
isvitund. Snæfellingar eru
hvattir til að kynna sér verk-
efnið og taka þátt en skrán-
ing er á hreinsumisland.
is. Í lok dags verður slegið
upp veislu í félagsheimilinu
Breiðabliki og þátttakendum
boðið í fiskisúpu og að hlusta
á ljúfa tóna.
-mm
Ný ráðuneyti
tekin til starfa
LANDIÐ: Ný ráðuneyti
tóku formlega til starfa á
mánudaginn, 1. maí. Dóms-
málaráðuneyti annars veg-
ar og samgöngu- og sveitar-
stjórnarráðuneyti hins veg-
ar. Koma þau í stað innan-
ríkisráðuneytisins. Breyt-
ingin byggist á ákvörðun
ríkisstjórnarinnar og sam-
þykki Alþingis á þingsálykt-
un um skiptingu innanrík-
isráðuneytisins. Í framhaldi
af þessu staðfesti forseti Ís-
lands þann 7. apríl síðastlið-
inn tillögur forsætisráðherra
um breytt skipulag Stjórnar-
ráðs Íslands og gefnir voru
út þrír forsetaúrskurðir, um
skiptingu Stjórnarráðs Ís-
lands í ráðuneyti, um skipt-
ingu stjórnarmálefna á milli
ráðuneyta og um skiptingu
starfa ráðherra. Ráðherrar
í nýjum ráðuneytum verða
Sigríður Á Andersen dóms-
málaráðherra og Jón Gunn-
arsson samgöngu- og sveit-
arstjórnarráðherra.
-mm
Verkfræðistofan Verkís hefur opn-
að starfsstöð á Borgarbraut 2 í
Stykkishólmi í húsi lögreglu og
Sýslumannsins á Vesturlandi. Með
opnuninni hyggst Verkís styrkja
net starfsstöðvanna í þeirri við-
leitni að auka þjónustu fyrirtæk-
isins á Snæfellsnesi og nærliggj-
andi sveitarfélögum. Starfsstöð-
in í Stykkishólmi mun styðja við
aðra starfsemi verkfræðistofunn-
ar á landsbyggðinni en Verkís er
nú þegar með starfsemi á Akra-
nesi, Borgarnesi, Ísafirði, Patreks-
firði, Akureyri, Húsavík, Egils-
stöðum og Selfossi. Útibússtjóri
Verkís í Stykkishólmi er Gísli Kar-
el Halldórsson en auk hans vinn-
ur á starfsstöðinni í Stykkishólmi
Dóra Lind Pálmarsdóttir, bygg-
ingatæknifræðingur. Bæði Dóra
Lind og Gísli Karel eru innfæddir
Snæfellingar.
mm
Verkís opnar starfsstöð í Stykkishólmi
Hitabylgja í kortunum
Hér er skjáskot af hitakorti á landinu um nónbil næstkomandi föstudag.
Heimild: Veðurstofa Íslands.
Dóra Lind Pálmarsdóttir og Gísli Karel Halldórsson.
Matvælastofnun og Hafrannsókna-
stofnun vakta þörungaeitur í bláskel-
inni, en svo er kræklingurinn einnig
nefndur. Nú bregður svo við að var-
að er við neyslu á skelfiski úr Hval-
firði þar sem svonefnd DSP-eitur-
efni eru yfir viðmiðunarmörkum. Al-
menna þumalputtareglan þegar far-
ið er í kræklingafjöru er að óhætt sé
að tína kræklinginn í þeim mánuð-
um sem hafa „r“ í nafninu. Þetta er
vegna þess að þörungablómi og eit-
urefni honum fylgjandi aukast yfir
sumarmánuðina þegar hitastig sjáv-
ar hækkar. Þörungaeitrið hefur hins
vegar verið viðvarandi í Hvalfirðin-
um í vetur sem er afar óvenjulegt.
Fylgjast má með mælingum Mat-
vælastofnunar og Hafrannsókna-
stofnunar fyrir Hvalfjörð á vöktun-
arsíðu síðarnefndu stofnunarinn-
ar: http://www.hafro.is/voktun/hval.
htm Þar má sjá að frá 25. maí 2016
hefur verið varað við neyslu skelfisks
á svæðinu ýmist vegna hættu á DSP
eða/og PSP eitrunar.
Ástæða er til að undirstrika að eit-
urefni hafa til dæmis ekki mælst í
kræklingi í Breiðafirði síðustu mán-
uði. Jafnframt er allur kræklingur
sem ræktaður er til sölu alltaf mældur
og vottaður öruggur til neyslu áður
en hann fer í verslanir. mm
Þörungaeitrun hefur verið við-
varandi í vetur í Hvalfirði
Íslandspóstur skrifaði föstum við-
skiptavinum sínum bréf 10. apríl síð-
astliðinn þar sem tilkynntar voru
breytingar á þjónustu fyrirtækisins frá
og með 1. maí 2017 og nýtt umsýslu-
gjald að auki. Varðandi árituð blöð og
tímarit er kynnt að ef þau berast eft-
ir klukkan 17 daginn fyrir dreifingar-
dag verður innheimt sérstakt vinnslu-
gjald fyrir hvern hafinn klukkutíma
sem tekur að vinna úr sendingunni,
að upphæð 6.100 krónur auk virðis-
aukaskatts. Enn meiri breytingar eru
þó gerðar á þjónustu vegna dreifing-
ar fjölpósts. Eingöngu verður í boði
tveggja daga dreifing á landsbyggð-
inni, að undanskildu höfuðborgar-
svæðinu og Akureyri. Á þeim svæð-
um verður fimmtudagsdreifing áfram
í boði samkvæmt gæðaviðmiðum.
Sömuleiðis ef fjölpóstur berst Ís-
landspósti eftir klukkan 17 daginn
fyrir dreifingardag, verður innheimt
6.100 króna gjald fyrir hafinn klukku-
tíma við vinnslu fjölpósts. Þá verður
innheimt sérstakt brotgjald fyrir fjöl-
póst sem er stærri en A4, grunngjald
5000 krónur en auk þess 1,45 krón-
ur á hvert eintak. Útgefendur fríblaða
utan höfuðborgar- og Akureyrar-
svæðisins fá ekki lengur aldreifingu á
sínum blöðum eftir þessa breytingu.
Af þeim sökum þurfa þeir í einhverj-
um tilfellum að flýta útgáfudögum
til að viðtakendur fái póstinn sendan
fyrir næstu helgi.
Breytingar þessar hefur augljósan
kostnaðaðarauka í för með sér fyr-
ir viðskiptavini Íslandspósts og um
hreina kostnaðarhækkun að ræða.
Fram til þessa hefur sú þjónusta sem
að framan greinir verið innifalin í
gjaldskrá Íslandspósts. mm
Íslandspóstur dregur úr
þjónustu og hækkar verð