Skessuhorn - 03.05.2017, Síða 10
MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 201710
Á sjávarútvegssýningunni í Brus-
sel í liðinni viku var tilkynnt um
stofnun nýs markaðsfyrirtækis á
sviði skipalausna; Knarr Mari-
time. Að hinu nýja fyrirtæki
standa íslensku fyrirtækin Skaginn
3X, Nautic, Kælismiðjan Frost,
Brimrún, Naust Marine og Verk-
fræðistofan Skipatækni. Öll þessi
fyrirtæki hafa á undanförnum
árum komið að hönnun, þróun,
smíði og sölu á búnaði og skip-
um til veiða og vinnslu á sjávar-
fangi. Þorgerður Katrín Gunnars-
dóttir sjávarútvegsráðherra sagði
við þetta tilefni ánægjulegt að hafa
komið að því að ýta þessu verkefni
úr vör. Hún segir hugvit og frum-
kvæði íslenskra hátæknifyrirtæki
hafa skipað þeim og sjávarútvegi
okkar í fremstu röð og það skref
sem stigið var með stofnun fyrir-
tækisins staðfesti það frumkvæði
og forystu.
Þrátt fyrir að fyrirtækin sex hafi
nú stofnað sameiginlegt markaðs-
fyrirtæki hafa þau átt í talsverðu
samstarfi á undanförnum árum og
má þar nefna samstarf við hönn-
un, smíði og uppsetningu vinnslu-
stöðva innanlands og utan auk þess
sem þau taka flest svipaðan þátt í
smíði þeirra skuttogara sem hafa
verið og eru nú í smíðum fyrir ís-
lensk sjávarútvegfyrirtæki. Starf-
semi Knarr Maritime byggir því í
raun á áratuga reynslu og þekkingu.
„Íslenskur sjávarútvegur og iðnaður
hafa ávallt verið í fararbroddi hvað
þekkingu og tækni varðar og sam-
starf þessara fyrirtækja getur styrkt
þá stöðu enn frekar,“ segir Finn-
bogi Jónsson sem er stjórnarfor-
maður hins nýja fyrirtækis.
Bjóða fiskiskip af
ýmsum stærðum
Fyrirtækin sem að Knarr Maritime
standa munu hvert um sig koma
að hönnun og smíði á afmörk-
uðum þáttum sem ýmist verða
smíðaðir af fyrirtækjunum sjálf-
um eða undirverktökum þeirra.
Smíði aðalvéla og skipsskrokksins
sjálfs verður síðan ákveðin í nánu
samstarfi við kaupendur skip-
anna hverju sinni. Þannig verður
hægt að bjóða fiskiskip af ýmsum
stærðum og gerðum allt eftir ósk-
um kaupenda hverju sinni. „Við-
skiptavinir okkar geta á einum
stað nálgast allt það besta við fisk-
veiðar sem Íslendingar hafa fram
að færa hvort heldur vinnslan fer
fram um borð í veiðiskipi eða í
landi,“ segir Haraldur Árnason
nýráðinn framkvæmdastjóri Knarr
Maritime, en hann hefur um ára-
tugaskeið stjórnað ýmsum fyrir-
tækjum Hampiðjunnar víðs vegar
um heim.
mm
Sex fyrirtæki standa að
baki Knarr Maritime
Alfreð Túliníus framkvæmdastjóri Nautic, Ingólfur Árnason framkvæmdastjóri Skagans 3X, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
sjávarútvegsráðherra, Finnbogi Jónsson stjórnarformaður Knarr Maritime og Haraldur Árnason framkvæmdastjóri Knarr
Maritime. Myndin var tekin þegar tilkynnt var um stofnun Knarr Maritime á sjávarútvegssýningunni í Brussel.
Sveitarstjórn Reykhólahrepps sam-
þykkti á síðasta fundi sínum stofn-
un fyrirtækis um rekstur ljósleiðara.
Fyrirtækið mun heita Fjarskipta-
félag Reykhólahrepps og verður al-
farið í eigi sveitarfélagsins. Ástæða
þess að sveitarfélagið ræðst í stofn-
un fyrirtækisins er sú að engin fjar-
skiptafélög sýndu því áhuga að koma
að uppbyggingu ljósleiðarakerfis í
sveitarfélaginu þegar auglýst var eft-
ir slíku. „Þar sem sveitarstjórn Reyk-
hólahrepps telur núverandi ástand á
nettengingum í sveitarfélaginu óá-
sættanlega hefur hún tekið ákvörð-
un um að ráðast í það verkefni að
leggja ljósleiðaranet til allra heimila
í sveitarfélaginu þar sem íbúar hafa
skráð lögheimili og hafa þar heils-
ársbúsetu,“ segir í fundargerð frá
síðasta fundi sveitarstjórnar.
Miðað er við lögheimili eins og
þau voru skráð 1. desember 2016.
Þá verður einnig lagður ljósleið-
ari í húsnæði fyrirtækja með heils-
ársstarfsemi. Eigendum sumarhúsa
í sveitarfélaginu verður boðið að
tengjast kerfinu, en slíkar tengingar
verða gerðar eftir samkomulagi við
hvern og einn sumarhúsaeiganda.
„Sveitarstjórn Reykhólahrepps er
meðvituð um þá miklu þörf sem er
á því í nútíma samfélagi að hafa að-
gang að háhraða nettengingu. Slík
eftirspurn eykst stöðugt og telst nú
þegar nauðsyn í daglegu lífi einstak-
linga og í daglegum rekstri fyrir-
tækja,“ segir í fundargerð og telur
sveitarstjórn enn fremur að skort-
ur á háhraða nettengingu geti haft
neikvæð áhrif á framþróun sveitar-
félagsins. „Sveitarstjórn Reykhóla-
hrepps telur aðgang íbúa sveitar-
félagsins að háhraða nettengingu
vera þjónustu sem hefur almenna,
efnahagslega þýðingu.“
Kerfið í eigu
sveitarfélagsins
Fjarskiptafélag Reykhólahrepps
verður rekið sem deild innan sveit-
arfélagsins og því alfarið á ábyrgð
þess og í yfirumsjón sveitarstjórn-
ar. Ljósleiðarakerfið verður alfarið í
eigu sveitarfélagsins. „Bókhaldi Fjar-
skiptafélags Reykhólahrepps skal
haldið aðskildu frá bókhaldi sveitar-
félagsins með skýrum hætti. Sveitar-
stjórn skal fylgjast með rekstri, bók-
haldi og fjárhagsstöðu verkefnisins,“
segir í fundargerð.
Fjarskiptafélagið verður fjár-
magnað af sveitarfélaginu, þeim
tekjum sem af þjónustunni hljótast
og með styrk ríkisins. Sveitarfélagið
fékk sem kunnugt er 19 milljónir til
ljósleiðaravæðingar þegar síðast var
úthlutað úr Fjarskiptasjóði, auk sér-
staks byggðastyrk til lagningar ljós-
leiðara að verðmæti 6,5 milljónir
króna. Frumhönnun og kostnaðar-
mat á ljósleiðaravæðingu sveitar-
félagsins hefur þegar verið sam-
þykkt af sveitarstjórn.
kgk/ Ljósm. úr safni.
Stofna Fjarskiptafélag Reykhólahrepps
Skaginn 3X hefur samið um smíði
á uppsjávarverksmiðju um borð í
hollenskt verksmiðjuskip. Um er
að ræða áframþróun á búnaði og
tækni sem fyrirtækið hefur selt til
nokkurra staða í landvinnslur á
undanförnum árum, meðal annars
til Færeyja en nú síðast til Eskju á
Eskifirði en sú verksmiðja var tekin
í notkun á síðasta ári.
Fyrr í þessum mánuði var geng-
ið frá samningi milli útgerðar-
fyrirtækisins France Pelagique og
norsku skipasmíðastöðvarinnar
Havyard um smíði þessa fullkomna
uppsjávarverksmiðjuskips sem mun
frysta afurðirnar um borð. Skipið
er 80 metrar að lengd og tæpir 18
metrar að breidd. Gert er ráð fyrir
að smíði skipsins ljúki í árslok 2018.
Verksmiðjubúnaður skipsins verður
hannaður og settur upp af Skagan-
um 3X.
Jón Birgir Gunnarsson, mark-
aðs- og sölustjóri Skagans 3X, segir
að verksmiðjuna vera mjög tækni-
vædda, allt frá því að fiskur kemur
úr veiðarfærum skipsins þar til full-
frosin afurð verður komin á vöru-
bretti í frystilest skipsins. Með-
al annars verði notast við mynd-
greiningartækni sem greinir hvern
einasta fisk eftir tegund, stærð og
gæðum og gefur möguleika á rekj-
anleika í gegnum allt vinnsluferl-
ið. Hjartað í þessu afkastamikla
vinnslukerfi eru sjálfvirkir plötu-
frystar sem þróaðir hafa verið á síð-
ustu árum.
mm
Smíða búnað í fullkomið
hollenskt verksmiðjuskip
Tölvugerð mynd af skipinu sem verður um 80 metrar að lengd og 18 metra breitt.
Svipmynd úr uppsjávarvinnslu Eskju á Eskifirði, en þaðan er búnaður frá
Skaganum 3X.
Úrslitakeppnin í Skólahreysti fór
fram í Laugardalshöll í Reykjavík
að kvöldi síðasta miðvikudags. Til
úrslita kepptu lið frá tólf skólum
víðs vegar af landinu. Grunnskól-
inn í Stykkishólmi var fulltrúi Vest-
urlands í úrslitum, en liðið tryggði
sér keppnisrétt á lokakvöldi Skóla-
hreystis eftir sigur í æsispennandi
undankeppni í marsmánuði. Lið
Grunnskólans í Stykkishólmi var
skipað þeim Birtu Sigþórsdóttur,
Heiðrúnu Eddu Pálsdóttur, Tinnu
Alexandersdóttur og Ara Berg-
mann Ægissyni úr 8. bekk og Ein-
ari Bergmanni Daðasini og Ayus-
htseren Khash-Erdene úr 10. bekk.
Fulltrúar Grunnskólans í Stykk-
ishólmi stóðu sig með stakri prýði
í keppninni. Liðið náði öðru sæti
í hreystigreip og þriðja sæti í arm-
beygjukeppninni en náði sér ekki
jafn vel á strik í upphýfingum, dýf-
um og hraðaþrautinni. Fór að lok-
um svo að Grunnskólinn í Stykk-
ishólmi hafnaði í 10. sæti með 30
stig. Sigurvegari Skólahreystis
2017 var Síðuskóli á Akureyri með
59 stig. Liðið sigraði þrjár grein-
ar af fimm og setti nýtt Íslands-
met í hraðaþrautinni. Jafnframt var
þetta í fyrsta skipti sem skóli utan
Reykjaness og höfuðborgarsvæðis-
ins vinnur í keppninni. kgk
Hólmarar kepptu til
úrslita í Skólahreysti
Lið Grunnskólans í Stykkishólmi. Ljósm. Stykkishólmspósturinn.