Skessuhorn - 03.05.2017, Page 13
MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2017 13
FRUMHERJI HF. – ÞEGAR VEL ER SKOÐAÐ
www.frumherji. is
Búðardalur 2017
Bifreiðaskoðun verður hjá K.M. þjónustunni ehf.
Vesturbraut 20
Fimmtudagur 18. maí
Föstudagur 19. maí
Lokað í hádeginu kl. 12.00 – 13.00
Tímapantanir í síma 570 – 9090 SKE
SS
U
H
O
R
N
2
01
7
Snorrastofa í Reykholti
Fyrirlestrar í héraði
Snorrastofa, menningar- og miðaldasetur
í Reykholti
Sími 433 8000
www.snorrastofa.is
snorrastofa@snorrastofa.is
Þriðjudagurinn 9. maí 2017
kl. 20:30
í Bókhlöðu Snorrastofu
Bílaverkstæði Guðmundar
Kjerúlf 1960–1981
Guðmundur Ingi Kjerúlf flytur
Umræður og kaffiveitingar
Aðgangur kr. 500
Rakin verður saga verkstæðisins
í Reykholti, sem veitti fjölda
manns atvinnu og stóð að
nýjungum í smíði og endurgerð
bifreiða. Arnar Guðnason segir
einnig frá nýlegri endurgerð
Soffíu II, sem byggð var á
verkstæðinu, og ekur henni
í Reykholt í tilefni kvöldsins.
DEILDARSTJÓRI OG LEIKSKÓLAKENNARI ÓSKAST
Á LEIKSKÓLANN HNOÐRABÓL Í REYKHOLTSDAL
Leikskólinn Hnoðraból er tveggja deilda leikskóli staðsettur í fallegu umhverfi sem starfar eftir hug-
myndafræðinni Leiðtoginn í mér. Þar dvelja að jafnaði 21 börn á aldrinum 12 mánaða til 5 ára.
Óskað er eftir deildarstjóra og leikskólakennara sem geta hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
Deildarstjóri vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra.
Hann er faglegur leiðtogi og ber ábyrgð á uppeldis- og menntunarstarfi sem fram fer á deildinni
ásamt skólastjóra.
Leikskólakennari vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskóla-
kennara.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Leikskólakennaramenntun.
Færni í mannlegum samskiptum.
Sjálfstæð vinnubrögð.
Skipulagshæfni, frumkvæði og metnaður.
Góð íslenskukunnátta.
Ef ekki fæst leikskólakennari í störfin kemur til greina að ráða starfsmenn með háskólapróf eða aðra
uppeldismenntun og /eða reynslu.
Í samræmi við jafnréttisstefnu Borgarbyggðar eru jafnt karlar sem konur hvött til að sækja um störf hjá
sveitarfélaginu.
Umsóknarfrestur er til 15. maí 2017.
Umsóknir skulu sendar rafrænt á sjofn@borgarbyggd.is.
Nánari upplýsingar veitir Sjöfn G.Vilhjálmsdóttir leikskólastjóri í síma 433-7180 eða 862-0064,
eða í tölvupósti, sjofn@borgarbyggd.is.
Leikskólinn Hnoðraból
Lífið er yndislegt með sól í hjarta
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Á síðustu misserum hefur umræð-
an um eflingu sveitarstjórnarstigs-
ins og sameiningu sveitarfélaga far-
ið vaxandi og eftir nokkurt hlé eru
viðræður um sameiningu sveitar-
félaga hafnar víða um land. Um
mitt síðasta ár sendi Sturla Böðv-
arsson, bæjarstjóri í Stykkishólmi,
erindi til oddvita Helgafellssveitar
og Eyja- og Miklaholtshrepps auk
forseta bæjarstjórnar og bæjarstjóra
Grundarfjarðarbæjar þess efnis
að efnt yrði til samráðfundar um
mögulega sameiningu umræddra
sveitarfélaga. Niðurstaða þeirra
samskipta varð sú að forsvarsmenn
Grundarfjarðarbæjar, Helgafells-
sveitar og Stykkishólmsbæjar skip-
uðu þrjá fulltrúa hvert sveitarfélag
í samráðsnefnd sem ætlað var að
vinna að undirbúningi sameining-
ar og íbúakosninga um hvort sam-
eina eigi sveitarfélögin þrjú. Áður
höfðu sveitarstjórnir í Snæfellsbæ
og Eyja- og Miklaholtshreppi gef-
ið frá sér aðild að viðræðum. Sam-
ráðsnefnd þessara þriggja sveitar-
félaga kom saman til fyrsta fund-
ar í byrjun nóvember 2016 þar sem
ákveðið var að óska eftir aðstoð at-
vinnuráðgjafar Sambands sveitarfé-
laga á Vesturlandi og hefur Páll S
Brynjarsson verið tengiliður nefnd-
arinnar við SSV.
Leitað til KPMG með
sviðsmyndagreiningu
Í tilkynningu frá nefndinni, sem
send var út í gær, segir að umræða
um sameiningu sveitarfélaga sé
með öðrum hætti en áður. „Meira
er horft til framtíðar og þess með
hvaða hætti sveitarfélög geta eflst
og verið stöndugri til að takast á við
sífellt fleiri verkefni og veita íbú-
um enn betri þjónustu, en minna
er horft til stöðu sveitarfélaganna
í dag. Nefndarmenn eru sammála
um að vanda verði til þessarar um-
ræðu í samráði við íbúa sveitar-
félaganna og því var ákveðið að
leita til ráðgjafadeildar KPMG um
næstu skref en hjá þeim liggur mik-
il þekking á sviðsmyndagreining-
um eða framtíðarfræðum, en ráð-
gjafarnir eru um þessar mundir að
aðstoða sveitarfélög víða um land í
samskonar viðræðum. Tilgangur-
inn með verkefninu og vinnu ráð-
gjafanna er að greina helstu drif-
krafta í starfsumhverfi sveitarfélag-
anna á Snæfellsnesi og móta í kjöl-
farið sviðsmyndir um hugsanlega
þróun þeirra bæði með og án sam-
einingar,“ segir í tilkynningunni.
Í vinnunni framundan verður
lögð áhersla á eftirfarandi atriði:
„Að skoða hvernig mikilvægar
forsendur í samfélaginu og áhrifa-
þættir í tengslum við starfsum-
hverfi sveitarfélaganna geti þróast á
komandi árum.
Öðlast skilning og þekkingu
á helstu drifkröftum og megin-
straumum sem munu móta vænt-
ingar til sveitarfélaga og innviða
þeirra í framtíðinni.
Skapa sameiginlega sýn á mögu-
legri þróun í sveitarfélögunum.
Setja fram á aðgengilegan hátt
ólíka valkosti sem dragi fram þá
lykilþætti sem skipta máli með/án
sameiningar.“
Ráðgjafarnir hafa sett upp tíma-
línu þar sem miðað er við að hið
eiginlega samtal við íbúa fari fram
síðsumars eða í haustbyrjun á þessu
ári og ef niðurstaða greiningarvinn-
unnar verður með þeim hætti að
samráðsnefndin telji að hagsbætur
séu af sameiningu fyrir íbúa sveit-
arfélaganna verður tillaga um sam-
einingu borin undir íbúa í kosningu
í byrjun desember 2017. „Samráðs-
Skoða kosti sameiningar þriggja
sveitarfélaga á Snæfellsnesi
nefndin mun halda íbúum upplýst-
um um framgang viðræðna eftir því
sem við á,“ segir í tilkynningu frá
samráðsnefnd, sem Hafdís Bjarna-
dóttir, forseti bæjarstjórnar Stykk-
ishólmsbæjar og ritari samráðs-
nefndar, sendi í gær.
mm/ Ljósm. úr safni.
www.skessuhorn.is