Skessuhorn - 03.05.2017, Qupperneq 16
MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 201716
Dalakonan Christine Sarah Arndt,
jafnan kölluð Stína, hyggur á vit
ævintýrana snemma í ágúst í sum-
ar. Hún verður keppandi í erfiðustu
og líkast til hættulegustu kappreið-
um heims. Keppin fer fram í Mong-
ólíu og gengur undir nafninu Mon-
gol Derby. Stína er fædd í Þýskalandi
1979 og þótt hún hafi aldrei átt hross
þar í landi hafði hún alla tíð góð tæki-
færi til að umgangast hross. Þá komst
hún reglulega á hestbak og æfði með-
al annars hindrunarstökk. Árið 1998
kom Stína til Íslands með þau áform
að fara í dýralæknanám. Þar sem hún
komst ekki inn í námið í fyrstu ákvað
hún að nýta biðtímann og sótti um
starf sem vinnukona í sveit.
„Mig langaði alltaf að læra að um-
gangast kýr og kindur og vildi kynn-
ast íslenska hestinum í leiðinni. Ég
hef alltaf haft mikinn áhuga á hestum
en ég var mest í stóru hestunum úti.
Ég hefði þurft að bíða í ár með að
komast inn í dýralækninn og þá byrj-
aði ég á því að fara á Leirulæk á Mýr-
um og vann þar við almenn bústörf,“
segir Stína.
Gerðist sauðfjárbóndi
í Dölum
Eftir árið á Leirulæk breyttust náms-
áform Stínu og hélt hún til náms í
Landbúnaðarháskólanum á Hvann-
eyri þar sem hún útskrifaðist sem
búfræðingur. Sumarið áður en hún
hóf námið á Hvanneyri kynntist
hún Guðbrandi Þorkelssyni og fljót-
lega tóku þau saman. Eftir útskrift
frá Landbúnaðarháskólanum ákváðu
þau að stökkva til og gerast bændur,
keyptu jörðina Skörð í Dalabyggð og
búa þar í dag ásamt tveimur börnum
sínum.
„Við erum aðallega með sauð-
fjárbúskap, tæplega 700 fjár og eig-
um í kringum 20 hross. Þegar ég átti
börnin dró úr hestamennskunni hjá
mér en á síðustu misserum er hún
að koma sterkar inn aftur. Áhuginn
er gríðarlegur. Ég hef verið mikið í
kringum hesta frá því að ég var smá-
krakki,“ segir Stína sem ásamt búskap
stundar nám í kennslufræðum við
Háskólann á Akureyri og stefnir á út-
skrift í haust.
Búbót fyrir
hirðingjafjölskyldur
Keppnin Mongol Derby hefst
9. ágúst í sumar og segist Stína beita
ýmsum leiðum til að undirbúa sig. Hún
hefur fylgst með keppninni í nokk-
ur ár og m.a. góðum árangri Anítu
Margrétar Aradóttur sem keppti árið
2014. Fyrir tveimur árum tók norsk
kona, sem Stína hafði kynnst á Ís-
landi, þátt í keppninni og Stína fylgd-
ist spennt með. Það varð til þess að
kveikja áhugann hjá henni sjálfri fyrir
því að taka þátt í þessari keppni og nú
á að láta drauminn rætast.
„Ég mæti til Mongólíu nokkrum
dögum fyrir keppni en við fáum að
undirbúa okkur í þrjá daga og sá und-
irbúningur hefst 6. ágúst. Ég er að
fylgja einhverri ævintýraþrá og finnst
líka mjög spennandi að kynnast hirð-
ingjamenningunni,“ segir Stína. „Þetta
eru mongólskir hestar sem hirðingjar
rækta. Það er mikil hefð fyrir því að
það sé keppt á þeim, litlir krakkar
keppa á þessum hestum, allt niður í
sex ára gömul. Börn hirðingjanna fara
á bak þegar þau hafa líkamlega burði
til þess. Hestarnir eru mjög mikilvæg-
ir fyrir hirðingjafjölskyldurnar,“ bæt-
ir Stína við. Hún segir keppnina vera
mikla búbót fyrir hirðingjafjölskyldur
en þær leggja til hesta fyrir keppnina
og sjá um allan undirbúning og fá fyrir
það greiðslu. Einnig sjá þær keppend-
um fyrir fæði og gistingu.
Sá fyrsti á stöð getur valið
hross
„Hver knapi fær tæplega þrjátíu hesta
meðan á keppni stendur því það þarf
að skipta reglulega. Og það er fólk
í utanumhaldi þar í kring. Keppn-
in byggist á gamalli hefð þar sem líkt
er eftir póstleiðum frá tímum Geng-
his Khan en undir hans stjórn varð til
mongólska heimsveldið upp úr 1200
eftir Krist. Þá fóru knapar ákveðnar
leiðir með skilaboð og á leiðinni gátu
þeir skipt um hesta. Þannig var hægt
að fara langar leiðir með skilaboðin,“
útskýrir Stína.
Þannig er fyrirkomulagið einnig í
keppninni en á völdum stöðum eru
stöðvar þar sem keppendur geta skipt
út hestum en hver leggur leiðarinnar
er um 40 kílómetrar. Sá sem fyrstur
kemur á stöð getur valið úr stóði en
hestarnir í keppninni geta verið mjög
mismunandi.
Safnað til
góðgerðarmála
The Adventurists er fyrirtæki sem á
og rekur keppnina Mongol Derby.
Fyrirtækið skipuleggur mismunandi
og óvenjulegar ævintýraferðir á ým-
iskonar fararskjótum.
„Viðburðir sem þeir skipuleggja
ganga líka út á að fólk safni pen-
ingum til góðgerðarmála. Allt sem
kemur umfram kostnað hjá mér fer
til styrkja. Ég þarf að safna lágmarks
upphæð og það er tvennt sem þarf að
styrkja. Annars vegar það sem The
Adventurists hefur valið en það er
verkefni um uppbyggingu og vernd-
un regnskóga í Amazon sem Cool
Earth stendur fyrir. Hins vegar er
það málefni sem keppandinn sjálfur
velur. Og ég valdi að styrkja Barna-
spítala Hringsins,“ segir Stína.
Margir falla úr keppni
Stína segir keppendur hafa tíu daga
til að klára þá 1000 kílómetra sem
keppnisleiðin telur. Þeir sem fyrst-
ir hafa komið í mark eru oft að ljúka
keppni á átta dögum en það er þó
langt frá því að allir nái að ljúka
keppni.
„Það er oft talað um villta hesta í
þessari keppni en það er samt ekki
þannig að maður stökkvi upp á næsta
hest úti á túni heldur er haldið utan
um þá og hestarnir eru undirbúnir
undir keppni sem þessa. Þeir eru þó
misvilltir í hegðun en þeir eru þjálf-
aðir til keppni, þolið er þjálfað. Þeir
eru ekki fulltamdir í okkar skilningi.
Margir hafa dottið, slasast eða gefist
upp á keppni,“ segir Stína.
Gætt að velferð dýra
Það eru ákveðnar reglur í kring-
um keppnina og bæði lækna- og
dýralæknateymi er til staðar. Mikil
áhersla er lögð á að fara vel með dýr-
in og því fylgja sektir í formi refsi-
stiga ef einhver misbýður hrossi.
„Það eru strangar reglur um hve-
nær maður má fara á bak og hvenær
skal hvíla, það er t.d. algjör hvíld á
nóttunni. Allir keppendur eru með
„Tracker“ svo hægt sé að fylgjast
með ferðum þeirra, bæði upp á ör-
yggi og eins til að auðvelda eftirlit
svo farið sé eftir reglum. Keppand-
inn fær líka leiðina upp gefna í GPS
tæki,“ segir Stína.
Hægt að fylgjast með
staðsetningu keppenda
Áhugasamir geta farið inn á vefsíðu
hjá Mongol Derby og fylgst með
framgangi keppninnar á keppnis-
tímabilinu. Meðal annars verður
hægt að sjá staðsetningu keppenda
og fylgjast þannig með gengi Stínu í
keppninni. Þegar síðan verður gefin
upp áætlar Stína að miðla henni á Fa-
cebook síðu sinni „Saddeling up for
Mongolia“ en síðuna bjó Stína til í
þeim tilgangi að miðla upplýsingum
um keppnina og segja fréttir af sér og
sinni reynslu.
„Það má hafa með fimm kílóa far-
angur, fyrir utan fötin sem maður
mætir í til keppni. Þar inn í er t.d.
svefnpoki og einhver neyðarbúnað-
ur, t.d. auka ístaðsól, plástrar og þess
háttar. Drykkjarvatn er ekki inni í
þessari fimm kílóa tölu. Það þarf að
sjálfsögðu að hafa vatn meðferðis
og svo fær maður vatn á skiptistöð-
vum. Þessa tíu daga er ekki í boði að
fara í sturtu eða neitt slíkt, það verð-
ur skrautlegt að ljúka keppni,“ segir
Stína brosandi yfir tilhugsuninni og
bætir við: „Fólk hefur dottið, slasast,
gefist upp og ofþornað. Það eru ýms-
ar ástæður fyrir því að fjöldi manns
nær ekki að ljúka keppni en þetta eru
taldar vera erfiðustu og lengstu kapp-
reiðar í heiminum,” bætir Stína við.
Hefur háleitt markmið
Stína veit til þess að einn af þeim
keppendum sem sigraði keppni í
fyrra ætlar að mæta aftur með það
að markmiði að klára keppnina og
standa uppi sem einn sigurvegara. En
sigurvegararnir voru þrír í fyrra. Þeir
fóru samferða sem liðsheild í gegn-
um markið þótt þeir hafi ekki lagt
upp í keppnina sem liðsheild í upp-
hafi. Þegar Stína er spurð út í eigin
markmið stendur ekki á svörum:
„Mitt markmið er fyrst og fremst
að ljúka keppni, það væri rosalega
mikið. Svona miðað við að allt að
helmingur hefur dottið út og ekki
náð að ljúka keppni af mismun-
andi ástæðum held ég að það sé gott
markmið.“
Leitar styrkja vegna
keppninnar
Keppnin kostar sitt og eins og áður
hefur komið fram þarf að styrkja val-
in málefni. Þessa dagana fer fram
vinna við að leita styrkja og biður
Stína áhugasama um að hafa sam-
band við sig í gegnum Facebook
síðu sína „Saddeling up for Mong-
olia“ eða með tölvupósti á netfang-
ið stinafina79@hotmail.com Frjáls
framlög er hægt að leggja inn á
reikning 0312-13-110073, kennitala
190279-2009. sm
Stefnir á þátttöku í erfiðustu
kappreiðum heims
Christine Sarah Arndt keppir í Mongol Derby í ágúst í sumar
Christine Sarah Arndt undirbýr sig nú fyrir þátttöku í einum erfiðustu kappreiðum
heims. Ljósm. sm.
Svipmynd úr keppni og gleðin við völd.
Ljósm. Mongol Derby, photos: Richard Dunwoody.
Dýralæknar fylgjast vel með ástandi og líðan hrossanna meðan á kappreiðunum
stendur. Ljósm. Mongol Derby, photos: Richard Dunwoody.
Keppnin er að sjálfsögðu öll tekin upp á myndband. Hægt er að fylgjast með stað-
setningu keppenda á meðan keppnin stendur yfir.
Ljósm. Mongol Derby, photos: Richard Dunwoody.
Baldinn foli í upphafi eins leggsins á ferðinni. Heimamenn fylgjast með.
Ljósm. Mongol Derby, photos: Richard Dunwoody.