Skessuhorn


Skessuhorn - 03.05.2017, Side 18

Skessuhorn - 03.05.2017, Side 18
MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 201718 Vorboðinn í fyrirlestrum Snorra- stofu að þessu sinni verður erindi Guðmundar Inga Kjerúlf um bíla- verkstæði föður hans, Guðmund- ar Kjerúlf, sem stóð með miklum blóma í Reykholti um tveggja ára- tuga skeið, frá 1960 til 1981. Fyr- irlesturinn verður í Bókhlöðunni þriðjudaginn 9. maí og hefst að venju kl. 20:30. Guðmundur Kjerúlf flutti í Reyk- holt árið 1936 með foreldrum sín- um Andrési Kjerúlf bónda á Akri og Halldóru Jónsdóttur. Hann nam bif- vélavirkjun og vann þarnæst á bíla- verksæði SÍS. Verkstæði sitt í Reyk- holti reisti hann fyrst í verslunar- húsi Steingríms Þórissonar, en árið 1963 byggði hann Litla-Hvamm í landi Breiðabólsstaðar, sem var sam- byggt íbúðar- og verkstæðishús. Auk almennra viðgerða voru bílar ýmist smíðaðir þar, settir saman eða end- urgerðir auk þess sem verkstæðið sinnti öðrum áhugaverðum verk- efnum. Fjöldi manna og kvenna starfaði hjá Guðmundi og voru þar nær 20 starfsmenn þegar flest var. Smíðaðar voru rútur, eldhúsbílar og jeppar, kerrur og brýr svo eitthvað sé nefnt. Þá voru einnig fluttir inn bílar frá Belgíu, settir saman og að- lagaðir íslenskum aðstæðum. Með félaga sínum, Guðna Sigurjóns- syni, smíðaði hann og gerði út tvær rútur, Soffíu II og III. Guðmundur hætti rekstri verkstæðisins 1981 og hlutafélagið Breiðverk tók við. Ný- lega er lokið endurgerð Soffíu II og Arnar Guðnason ekur henni í tilefni kvöldsins að Reykholti og segir frá endurgerðinni. Guðmundur Ingi Kjerúlf er sonur Guðmundar og Ingibjargar Helga- dóttur, fæddur á Akranesi 1968 og ólst upp í Litla-Hvammi í Reyk- holti. Hann lauk BA námi í heim- speki, MA prófi í stjórnmálafræði og hefur einnig lokið kennslufræði, allt við Háskóla Íslands. Hann starfar nú að fræðslumálum hjá Vinnueftirliti ríkisins. Arnar Guðnason er einn- ig fæddur í Reykholti sonur Guðna Sigurjónssonar og Elínborgar Krist- insdóttur. Hann var einn af forvígis- mönnum þess að Soffíu II var bjarg- að frá eyðileggingu og gerð myndar- lega upp. „Kvöldstundin með Guðmundi og Arnari, sem fellur í röð Snorra- stofu, Fyrirlestrar í héraði, er til- hlökkunarefni og Snorrastofa þakk- ar óeigingjarnt framlag þeirra í þágu atvinnu- og mannlífssögu héraðs- ins. Aðgangseyrir er kr. 500,“ segir í fréttatilkynningu. mm Brot úr atvinnusögu Reykholts: Bílaverkstæði Guðmundar Kjerúlf 1960-1981 Vinirnir Vilhjálmur Einarsson og Guðmundur Kjerúlf standa hér framan við Soffíu II. Soffía II var endurgerð fyrir tveimur árum að frumkvæði Elínborgar Kristinsdóttur ekkju Guðna Sigurjónssonar og barna þeirra. Nýverið var á aðalfundi í stjórn Vélabæjar hf. í Bæjarsveit í Borg- arfirði rifjað upp að á þessu ári eru sextíu ár frá því verkstæðis- rekstur hófst þar sem nú er starfs- stöð Vélabæjar hf. Fyrsta húsið á staðnum var byggt af Búnaðar- félagi Andakílshrepps í samvinnu við Ræktunarsamband Borgar- fjarðardala og voru helstu verkefni viðgerðir og viðhald á jarðvinnu- tækjum. Var hús byggt á leigu- lóð í Bæjarlandi og fyrsti starfs- maður Pétur Haraldsson. Frá árinu 1957 til 1970 var reksturinn áfram í nafni Búnaðarfélagsins. Þá tók Símon Aðalsteinsson rekstur- inn á leigu og rak bíla- og búvéla- verkstæði í eigin nafni til 1980 að Vélabær hf. var formlega settur á stofn. Stofnfélagar voru hjónin Símon Aðalsteinsson og Þuríður Jóhannesdóttir en auk þeirra þeir Einar Gíslason frá Lundi, Ólafur Óskarsson og Þorsteinn Júlíusson í Laugarbæ. Frá upphafi hefur í þrígang verið byggt við verkstæð- ishúsið. Þorsteinn Júlíusson starf- ar enn á verkstæðinu og á því lang- lengstan starfsaldur þar að baki. Verkstæðisformaður nú er Björn Björnsson í Ásbrún, frá Snartar- stöðum, en starfsmenn eru fimm til sex auk hans. Það var rifjað upp af þessu tilefni að þegar flest var hafi níu manns starfað í Vélabæ. Á uppvaxtarárum þess sem þetta skráir er þess minnst að verkstæð- ið í Vélabæ gegndi lykilhlutverki fyrir bændur í Borgarfirði. Þang- að var hægt að leita með viðgerð- ir og viðhald á tækjum bænda og annarra sem stunduðu rekstur, nú eða fá viðhald á heimilisbílinn. Þar var því oft mikið umleikis þegar til dæmis heyannir stóðu sem hæst enda þekkt að tæki bila náttúr- lega helst þegar þau eru brúkuð. Mikið mæddi á úrræðagóðum við- gerðamönnum sem gjarnan voru með sérstaka viðgerðabíla á ferð um héraðið. Stundum þótti henta að fá viðgerðamenn á bæina frem- ur en flytja bilaðar bindivélar eða önnur tæki um langa vegi. Björn Björnsson segir að mik- ið sé að gera í Vélabæ og þar hafi menn ekki þurft að kvíða verk- efnaskorti. Stór hluti vinnunnar sé viðhald og viðgerðir á tækjum bænda, en vaxandi hluti verkefn- anna tengist þó viðgerðum á bíl- um ferðamanna sem leið eiga um Borgarfjörð. „Það er nóg að gera og líklega vinnst okkur ekki tími til að halda formlega upp á sex- tíu ára afmæli verkstæðisrekstr- ar hér,“ segir Björn. Fyrir dyr- um eru breytingar innanhúss, en meðal annars á að bæta við við- gerðarými, gera nýjar innkeyrslu- dyr, færa skrifstofu og kaffistofu niður á jarðhæð og rífa þá milli- loft. Þetta verður gert til að bæta vinnuaðstöðu innanhúss. „Hér er nóg að gera og einna helst að verk- efnin breytist. Fyrir bankahrunið keyptu sumir nýjan dekkjagang ef sprakk á dekki, eða heilt pústkerfi ef smá gat kom á rör. Eftir hrunið breyttist þetta þannig að farið var að gera við og nýta verðmætin bet- ur. En tæki eru þeim eiginleikum gædd að þau bila og því höldum við ótrauðir áfram að bjóða við- gerðaþjónustu hér í Vélabæ þótt verkstæðisrekstur á þessum stað komist á sjötugsaldurinn,“ sagði Björn Björnsson að endingu. mm Vélabær er síungt sextíu ára vélaverkstæði Björn verkstæðisformaður lagfærir hér drifskaft á keðjudreifara en Haukur bóndi Engilbertsson á Vatnsenda fylgist með. Fimm af sjö starfsmönnum í kaffipásu. F.v. Eysteinn Örn Stefánsson, Þorsteinn Júlíusson, Björn Hákon Björnsson, Björn Björnsson og Ingi Þór Magnússon. Á myndina vantar Guðrúnu Ólafsdóttur og Elvar Ólason. Hundurinn Gáfi fylgist alla daga af kostgæfni með starfinu í Vélabæ. Nóg að gera. Ingi Þór í símanum og Björn Hákon að gera við ámoksturstæki. Milli þeirra eru tveir ungir menn sem voru í starfskynningu þennan dag, þeir Sigurður Aron og Axel Örn.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.