Skessuhorn - 03.05.2017, Page 22
MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 201722
Mikið var um dýrðir á laugardag-
inn þegar sveitarfélagið Borgar-
byggð efndi til hátíðardagskrár í til-
efni af 150 ára afmæli Borgarness.
Dagskráin hófst með opnun sýn-
ingar í Íþróttamiðstöðinni tengd
ljóðum, list og íþróttum. Opnuð
var sýning á ljóðum annars vegar
eftir Borgnesingana Ásbjörn Jóns-
son, Finn Torfa Hjörleifsson og
Jón Þ. Björnsson og Mýramanninn
Egil Skallagrímsson. Hins vegar
var sýning eftir nemendur í 5. bekk
Grunnskólans í Borgarnesi. Ljóð-
in prýða glugga Íþróttamiðstöðvar-
innar og innilaugar. Um leið frum-
fluttu tveir nemendur 5. bekkjar,
þau Kolfinna Dís Kristjánsdóttir
og Sara Sól Guðmundsdóttir lag
um Borgarnes í tilefni afmælisins.
Verkið Hlaupaleiðir í Borgarnesi
og Landslagsverk sem unnið er eftir
hæðarlínum fjallanna í kringum bæ-
inn voru afhjúpuð en þau eru eftir
Borgnesinginn Loga Bjarnason. Þá
var ólympíufarinn og íþróttaþjálf-
arinn Íris Inga Grönfeldt heiðruð
þegar afhjúpað var veggspjald um
glæsilegan íþróttaferil hennar. Íris
er fæddur og uppalinn Borgnesing-
ur og er sá íþróttamaður sem náð
hefur lengst á afrekssviðinu í sögu
Borgarness. Íris keppti í tvígang í
spjótkasti á Ólympíuleikum, árið
1984 í Los Angeles og 1988 í Seo-
ul.
Dagskráin yfir í
Hjálmaklett
Dagskráin hélt áfram eftir hádegi
þegar blásið var til afmælishátíðar
í Hjálmakletti þar sem verkið Saga
Borgarness eftir frændurna Egil
Ólafsson og Heiðar Lind Hans-
son var formlega gefið út. Fjöldi
fólks mætti á hátíðina en talið er að
á fjórða hundrað gesta hafi kom-
ið. Forseti Íslands, Guðni Th. Jó-
hannesson, og eiginkona hans Eliza
Reid voru sérstakir heiðursgestir
hátíðarinnar og veitti forsetinn við-
töku fyrstu formlegu eintökunum
af sögu Borgarness. Guðni forseti
ávarpaði samkomuna í kjölfarið þar
sem hann þakkaði fyrir sig og ósk-
aði héraðsbúum til hamingju með
afmælið og glæsilegt ritverk. Um
leið minntist hans Egils Ólafssonar,
annars höfunda Sögu Borgarness,
með fögrum orðum.
Fulltrúar allra kynslóða
stigu á stokk
Flutt voru hátíðarávörp og stigu í
pontu þau Björn Bjarki Þorsteins-
son forseti sveitarstjórnar, Birna G.
Konráðsdóttir formaður ritnefndar
Sögu Borgarness og Heiðar Lind
Hansson annar höfunda verks-
ins. Þá fluttu fulltrúar tveggja kyn-
slóða Borgnesinga, þau Ingibjörg
Hargrave og Guðlaugur Þór Þórð-
arson utanríkisráðherra, skemmti-
legar ræður þar sem þau rifjuðu
upp æskuár sín í Borgarnesi. Flutt
voru tónlistaratriði á vegum nem-
enda Tónlistarskóla Borgarfjarðar,
Gleðigjafi, kór eldri borgara, söng
fyrir gesti og þá heiðraði Lína lang-
sokkur samkomuna með hressilegri
nærveru sinni, en Lína var leikin
af Írisi Líf Stefánsdóttur nemenda
í Grunnskólanum í Borgarnesi.
Veislustjórn var í höndum Bjarkar
Jóhannsdóttur formanns hátíðar-
nefndar 150 ára afmælisins Borg-
arness.
Nánar má fræðast um afmælishá-
tíðina og dagskrá hennar í með-
fylgjandi myndum sem flestar eru
teknar af Gunnhildi Lind Hans-
dóttur.
mm/hlh
150 ára afmælis Borgarness fagnað á hátíðarsamkomu
Leikskólabörn á leikskólunum Klettaborg og Uglukletti í Borgarnesi sungu lög fyrir veislugesti við góðar undirtektir.
Ljósm. Unnur Lárusdóttir.
Það kom í hlut Björns Bjarka Þorsteinssonar forseta sveitarstjórnar Borgar-
byggðar að færa Guðna Th. Jóhannessyni forseta Íslands fyrstu eintökin af Sögu
Borgarness fyrir hönd sveitarfélagsins. Áður en forsetinn fékk eintökin hafði
Birna G. Konráðsdóttir formaður ritnefndar afhent Bjarka eintökin fyrir hönd
ritnefndar. Hér standa Björn Bjarki og Birna ásamt Guðna forseta sem heldur á
eintökunum góðu.
Heiðar Lind Hansson, annar höfunda sögu Borgarness, flytur ávarp þar sem hann
kynnti verkið.
Sveitastjórnarkonurnar Hulda
Hrönn Sigurðardóttir og Guðveig
Anna Eyglóardóttir ásamt Gunnlaugi
Júlíussyni sveitarstjóra.
Borgnesingurinn og utanríkisráðherr-
ann Guðlaugur Þór Þórðarson flutti
skemmtilegt ávarp á hátíðinni þar
sem hann rifjaði upp uppvaxtarár sín í
Borgarnesi.
Nemendur Tónlistarskóla Borgar-
fjarðar fluttu tónlistaratriði. Hér leikur
Elinóra Ýr Kristjánsdóttir á þverflautu
við undirleik Ólafs Flosasonar.
Ljósm. Kristján Ingi Hjörvarsson.
Systurnar Valborg Elva og Kristný Halla Bragadætur notuðu tækifærið ásamt
Almari Orra Kristinssyni og gripu Guðna forseta með í selfie.
Eftir að Guðni forseti hafði fengið fyrsta eintakið af sögu Borgarness í sínar
hendur voru forseld eintök afhent. Fjölmargir gestir notuðu líka tækifærið og
keyptu sér eintak. Hér sést kápa fyrra bindis, Byggðin við Brákarpoll.
Theodóra Þorsteinsdóttir og Björk Jóhannsdóttir stýra samsöng. Björk, sem var
formaður hátíðarnefndar, var jafnframt veislustjóri.