Skessuhorn - 03.05.2017, Qupperneq 29
MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2017 29
Vantar bílamalara og bifreiðasmið
í vinnu
Réttingav. Jóns B ehf. Flugumýri 2, 270
Mosfellsbæ, vantar vanan bifreiða-
smið og bílamálara í vinnu. Erum 5
stjörnu BGS vottað réttinga- og máln-
ingarverkstæði með hátt þjónustustig.
Upplýsingar í síma 697-7685.
Óska eftir húsnæði
Er einstæð með 3 börn, vantar íbúð
sem fyrst á Akranesi, 3-4 herbergja. Er
með öruggar tekjur og borga alltaf á
réttum tíma. rakelosk92@hotmail.com
Heiðarbraut, 8 herbergi
Til leigu húsið Heiðarbraut 57 á
Akranesi, húsið er kjallari hæð og ris
og skipst í allt að 8 herbergi, tvö bað-
herbergi, eldhús og þvottaherbergi.
Laust strax. Upplýsingar hjá Geir í síma
775-3939. Hentar vel fyrir verktaka.
Antik sófi frá ca. 1920 mjög
glæsilegur til sölu
Antik sófi frá ca. 1920, nýbólstraður og
eikar tréverk fallega útskorið og sér ekki
á. Málin á sófanum: 200 cm (L) x 87 cm
(B) x 77 cm (H). Hægt að taka bak af
vegna flutninga. Verð 90 þús. og upp-
lýsingar í síma 696-2334.
Kerra til sölu
Til sölu jeppakerra. Gæti t.d. rúmað þrjá
snjósleða. Upplýsingar í síma 892-1525.
Hnífabrýningar
Brýni flestar gerðir bitjárna. Er á Akra-
nesi. Uppl. í síma 894-0073.
Markaðstorg Vesturlands
ATVINNA
Stykkishólmur -
miðvikudagur 3. maí
Breiðafjörður - mikilvægasta fugla-
svæði landsins! Kristinn H. Skarp-
héðinsson, Náttúrufræðistofnun
Íslands, segir frá því að við Breiða-
fjörð eru lykilbúsvæði margra
fugla, sem byggja afkomu sína á
víðáttumestu fjörum landsins og
gjöfulu grunnsævi. Rætt verður
um ástand og verndun þessara
fuglastofna. Fyrirlesturinn er á
efstu hæð ráðhúss Stykkishólms-
bæjar, Hafnargötu 3, og hefst
klukkan 20. Aðgangur er ókeypis.
Grundarfjörður -
miðvikudagur 3. maí
Kvöldguðsþjónusta Grundar-
fjarðarkirkju kl. 20. Vígslubiskup
Kristján V. Ingólfsson og prófastur
Þorbjörn H. Árnason heimsækja
sóknina. Kaffispjall eftir athöfn.
Allir velkomnir.
Borgarbyggð -
fimmtudagur 4. maí
Opið hús hjá búfræðinemum
LbhÍ í áfanganum Búsmíði-járn,
í Bútæknihúsinu (BÚT) á Hvann-
eyri. Nemendur bjóða öllum sem
áhuga hafa, að koma og skoða
smíðagripi sem þau hafa hannað
og smíðað, á milli kl 14.30 og
15.30. Allir velkomnir! Heitt verður
á könnunni. Sjá nánar á www.
lbhi.is
Snæfellsbær -
fimmtudagur 4. maí
Aðalfundur Umf. Víkings/Reynis kl.
20 í Íþróttahúsinu í Ólafsvík. Dag-
skrá: Fundur settur, ársreikningur
kynntur, kosning fulltrúa í stjórn,
önnur mál.
Borgarbyggð -
föstudagur 5. maí
Kór Menntaskólans að Laugarvatni
heldur tónleika í Reykholtskirkju
kl. 20:30. Kórinn er á sjötta starfsári
og hann skipa nú 82 nemendur.
Kórinn kemur fram á tónleikum
og á ýmsum viðburðum innan
skólans. Eyrún Jónasdóttir er
stjórnandi kórsins. Hún starfar sem
söngkennari, organisti og kórstjóri.
Snæfellsnes -
laugardagur 6. maí
Norræni strandhreinsunardagur-
inn. Hreinsaðar verða þrjár strend-
ur á Snæfellsnesi; að Skógarnesi,
að Hofgörðum og í Beruvík kl. 13.
Strandhreinsun fer fram á öllum
Norðurlöndunum samtímis. Að
deginum standa Landvernd og
nokkur umhverfisverndarsamtök
á Norðurlöndum auk annarra
skipuleggjenda á Íslandi sem eru
Svæðisgarðurinn Snæfellsnes,
EarthCheck Snæfellsnesi, Lions-
hreyfingin á Íslandi og Blái herinn.
Sjálfboðaliðum af Snæfellsnesi,
félagsmönnum Landverndar,
Lionshreyfingarinnar og Bláa
hersins er boðið að taka þátt.
Frekari upplýsingar og viðtöl veita
Margrét Hugadóttir s: 697-3660
og Rannveig Magnúsdóttir s:
865-0065.
Snæfellsbær -
laugardagur 6. maí
Björgunarsveitin Lífsbjörg í Snæ-
fellsbæ fagnar tíu ára afmæli í
Björgunarmiðstöðinni Von, klukk-
an 14 - 16. Allir velkomnir í veislu.
Borgarbyggð -
laugardagur 6. maí
Léttsveit Reykjavíkur heldur tón-
leika í Reykholtskirkju kl. 14. Flutt
verða létt og skemmtileg lög úr
ýmsum áttum. Þema tónleikanna
er lög úr kvikmyndum. Aðgangur
er ókeypis og allir hjartanlega
velkomnir.
Akranes - sunnudagur 7. maí
Fjölskyldudagur Akraneskirkju í
Vatnaskógi kl. 12.30. Dagskráin
hefst með stuttum sunnudaga-
skóla. Að því loknu er frjáls dagskrá
í Vatnaskógi. Grillaðar pylsur. Farið
er á eigin bílum. Verð: Fullorðnir
kr. 1500 – Frítt fyrir börn 15 ára og
yngri. Skemmtilegur dagur fyrir alla
fjölskylduna.
Snæfellsbær -
sunnudagur 7. maí
Messa í Ólafsvíkurkirkju kl. 14.
Safnaðarheimsókn Víðistaðasóknar
í Garðabæ og vísitasía vígslubisk-
ups í Skálholti, séra Kristjáns Vals
Ingólfssonar. Afmælisviðburður og
kirkjukaffi. Sameiginleg messa fyrir
báða söfnuði prestakallsins.
Akranes - sunnudagur 7. maí
Kjördæmisráð Samfylkingarinnar
í Norðvesturkjördæmi boðar til
aðalfundar sunnudaginn 7. maí kl.
12-16 í húsnæði Samfylkingarinnar
Stillholti 16-18 á Akranesi. Stjórn
kjördæmisráðs hvetur alla félags-
menn til að mæta á aðalfundinn
og taka þátt í undirbúningi og
umræðum vegna komandi sveitar-
stjórnarkosninga á næsta ári. Þing-
maður kjördæmisins og formaður
mæta.
Grundarfjörður -
sunnudagur 7. maí
Jóhanna Guðrún í nærmynd
- Grundarfjarðarkirkja kl. 20.
Einlægir og skemmtilegir tónleikar
þar sem söngdívan Jóhanna
Guðrún flytur sín uppáhaldslög
og segir skemmtilegar sögur af
ferlinum, sem spannar nú 18 ár.
Gítarleikarinn Davíð Sigurgeirsson
spilar undir hjá Jóhönnu. Miðaverð
er 2.990.
Snæfellsbær - mánudagur 8. maí
Vortónleikar Tónlistarskóla Snæ-
fellsbæjar í Klifi kl. 18:30. Enginn
aðgangseyrir er á tónleikana.
Eftir tónleika verður Foreldra- og
styrktarfélag Tónlistarskóla Snæ-
fellsbæjar með kaffi, djús og kökur
til sölu á kr. 500,- pr. mann. ATH.
Ágóði af kaffisölu fer í styrktarsjóð
til kaupa á hljóðfærum.
Borgarbyggð -
þriðjudagur 9. maí
Fyrirlestrar í héraði: Brot af
atvinnusögu í Reykholti. Bíla-
verkstæði Guðmundar Kjerúlf
1960-1981. Guðmundur Ingi
Kjerúlf flytur í Bókhlöðu Snorra-
stofu. kl. 20:30. Sjá nánar framar í
blaðinu.
Á döfinni
TIL SÖLU
LEIGUMARKAÐUR
Allir á völlinnÍA – Valur
Mánudaginn 8. maí kl. 19:15
PEPSI-DEILD KARLA:
MÆTUM ÖLL GUL OG GLÖÐ
NORÐURÁLSVÖLLUR
Aðalstyrktaraðili er:
ÝMISLEGT