Skessuhorn


Skessuhorn - 25.10.2017, Side 19

Skessuhorn - 25.10.2017, Side 19
MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 2017 19 EXPLORE WITHOUT LIMITS ® ARCTIC TRUCKS ÍSLAND EHF. KLETTHÁLSI 3 110 REYKJAVÍK SÍMI: 540 4900 NETFANG: info@arctictrucks.is www.arctictrucks.is DEKKJAÞJÓNUSTA TÍMABÓKANIR Í SÍMA 540 4900 JEPPADEKK fyrir íslenskar aðstæður VÖNDUÐ OG HLJÓÐLÁT DEKK UNDIR FLESTAR GERÐIR JEPPA OG JEPPLINGA. Sextánda bindi Árbókar Akurnes- inga er komið út í ritstjórn Krist- jáns Kristjánsson- ar. Meginefnið að þessu sinni er grein Önnu Láru Steindal um Guð- bjart Hannesson, Gutta, sem féll frá í október 2015, einungis örfáum mánuðum eftir að hann greind- ist með meinsemd þá sem varð hon- um að aldurtila. Gutti var frum- kvöðull og farsæll leiðtogi og jafn- framt lífsglaður og hlýr mannvin- ur sem lét gott af sér leiða í hverju því sem hann tók sér fyrir hendur. Lífshlaup Gyðu L. Jónsdóttur Wells er rakið í grein sem Guðrún Sigríður Har- aldsdóttir tók saman og birtist upphaflega á stórri yfirlitssýn- ingu um verk listamannsins. Bragi Þórðarson og Ásmundur Ólafsson hafa verið ötulir liðsmenn Árbók- arinnar um árabil og lagt henni til margar greinar. Bragi rifjar upp að þessu sinni fyrstu bílferðir Steina á Hvítanesi og Ásmundur segir frá kaupmönnum við Lambhúsasund. Ingibjörg Gestsdóttir rifjar upp sögu kartöfluræktunar á Akranesi, sem bar hróður Skagamanna víða, og Kristján ritstjóri lýkur síðan við ferðasögu frá siglingu um Ind- landshaf. Ljósmyndari Árbókarinnar að þessu sinni er Gísli J. Guðmunds- son, Gísli rakari. Ásta Björnsdótt- ir á Bókasafni Akraness gróf upp úr fjársjóðskistu Ljósmyndasafns Akraness myndir sem sýna að skemmtileg saga sem hún ólst upp við var vissulega sönn. Og sem fyrr eru birtir annálar og æviágrip í Árbókinni. Bókin er seld áskrif- endum en er einnig til í Eymunds- son á Akranesi. mm Árbók Akurnesinga er komin út Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is Látum hjartað ráða för Kjósum Samfylkinguna www.xs.is Jöfnuður er auðlind sem leiðir til heilbrigðara samfélags

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.