Skessuhorn


Skessuhorn - 25.10.2017, Blaðsíða 15

Skessuhorn - 25.10.2017, Blaðsíða 15
 X-2017 ALÞINGISKOSNINGAR 15MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 2017 GLEÐIFUNDUR Í LOGALANDI Gleðifundurinn, árshátíð Ungmennafélags Reykdæla, verður haldinn hátíðlegur í Logalandi laugardaginn 4. nóvember. Boðið verður upp á lambalæri með viðeigandi meðlæti. Panta þarf í síðasta lagi miðvikudaginn 1. nóvember í matinn. Verð fyrir mat + skemmtiatriði + ball er 5.000 kr. fyrir félagsmenn í ungmennafélaginu en 6.000 kr. fyrir aðra. Miðapantanir fyrir matinn þurfa að berast fyrir kl. 22:00 miðvikudaginn 1. nóvember í síma 696-1544. Einnig getur fólk borgað sig inn á ballið eingöngu og kostar það 2.500 kr. og verður húsið opnað eins og áður segir á miðnætti. VEISLUSTJÓRI: JÁ SKEMMTIATRIÐI: JÁ MATUR: JÁ, LAMBALÆRI ÁSAMT MEÐLÆTI BALL: JÁ, SIGGI HLÖ SÉR UM AÐ ALLIR SKEMMTI SÉR HVAR: LOGALANDI HVENÆR: LAUGARDAGURINN 4. NÓVEMBER HÚSIÐ OPNAR KL. 20:30 BORÐHALD HEFST KL. 21:00 BALLIÐ BYRJAR KL. 00:00 SJÁUMST SEM FLEST, NEFNDIN SK ES SU H O R N 2 01 7 Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa- dóttir, ferðamála-, iðnaðar- og ný- sköpunarráðherra, skipar 2. sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í Norð- vesturkjördæmi. Hver er konan? „Skagakona ættuð af Vestfjörð- um, þrítugur lögfræðingur, tveggja barna móðir, gift Hjalta Sigvalda- syni Mogensen,“ segir Þórdís í samtali við Skessuhorn. „Ég hef ýmsa kosti eins og aðrir. Ég mikla hlutina ekki of mikið fyrir mér, það er ágætt í svona starfi. Ég er dugleg, óhrædd og meðvituð um að enginn veit allt og allir eru alltaf að læra. Ég er þakklát fyrir lífið og lít á það viðhorf sem mannkost. Ég hef óbil- andi trú á samfélaginu okkar og býð þess vegna fram mína krafta til þess að gera gott samfélag betra,“ segir Þórdís. „Ýmsa galla hef ég líka en ég opinbera þá nú ekki alla. Ég á það til að vera nokkrum mínútum of sein og vanmeta hversu langt er eftir af fundum,“ segir hún. Skattalækkanir eru að sögn Þór- dísar eitt af helstu áherslumálum Sjálfstæðisflokksins á landsvísu fyr- ir komandi kosningar. „Við leggj- um áherslu á skattalækkanir. Við ætlum að lækka neðra þrep tekju- skatts niður í 35%, sem felur í sér meira en 300 þúsund króna kjara- bót á ársgrundvelli fyrir hjón með meðallaun. Tryggingagjald þarf líka að lækka enn frekar og það skiptir miklu máli fyrir allan at- vinnurekstur, ekki síst lítil og með- alstór fyrirtæki,“ segir hún. „Við ætlum að setja um 100 milljarða í fjárfestingar í innviðum, einkum í samgöngum, heilbrigðiskerfi og menntakerfi. Þarna er um að ræða einskiptiskostnað sem fjármagn- aður verður með sérstökum arð- greiðslum úr bönkunum. Það er grundvallarmunur á þessu og að stofna til viðvarandi rekstrarkostn- aðar líkt og vinstri flokkarnir virð- ast vera að tala um,“ segir Þórdís. „Þá viljum við nýta væntanlegar arðgreiðslur frá Landsvirkjun til að gera stórátak á næstu árum í fjölg- un hjúkrunarheimila og auknum stuðningi við nýsköpun. Þessi örv- un hagkerfisins með skattalækk- unum og fjárfestingum fellur vel að efnahagsspám um hægari vöxt á næstu árum,“ bætir hún við. „Innviðir verða að vera fyrsta flokks“ En hver telur hún vera brýnustu hagsmunamál íbúa á Vesturlandi? „Uppbygging samgöngukerfis- ins. Byggðir landsins eiga fjölmörg sóknarfæri, ekki síst í ferðaþjón- ustu og matvælaframleiðslu. En það þarf skýran pólitískan vilja, for- ystu og kraft til að tryggja að hægt sé að nýta þau. Innviðir og önnur skilyrði verða að vera fyrsta flokks. Við í Sjálfstæðisflokknum höfðum forystu um að gera stórátak í ljós- leiðaravæðingu byggðanna. Nú þarf aukinn kraft í aðra innviði, fyrst og fremst samgöngur,“ seg- ir hún. „Álögur á atvinnulíf mega ekki vera of íþyngjandi og það gild- ir um veiðigjöld eins og annað. Ný- sköpun getur blómstrað sem sprot- ar út frá rótgrónum atvinnugrein- um á borð við sjávarútveg, stóriðju og landbúnað og því eru tækifæri á Vesturlandi til að nýta þann aukna stuðning við nýsköpun sem við boðum. Þá þarf að efla heilbrigðis- og hjúkrunarþjónustu á svæðinu, fyrir okkur öll.“ Þegar Þórdís er beðin að spá fyrir um skiptingu þingsæta í kjördæm- inu að kosningum loknum von- ast hún að sjálfsögðu eftir góðu gengi síns lista. „Samkvæmt flest- um könnunum stendur slagurinn á milli þriðja manns Sjálfstæðis- flokksins og þriðja manns Vinstri grænna. Það er mjög mikilvægt að Teitur Björn nái kjöri og að Sjálf- stæðisflokkurinn verði stærstur í Norðvesturkjördæmi,“ segir Þór- dís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir að endingu. kgk Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir skipar 2. sætið á lista Sjálfstæðisflokksins: „Við leggjum áherslu á skattalækkanir“ Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir skipar 2. sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjör- dæmi fyrir komandi alþingiskosningar.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.