Skessuhorn


Skessuhorn - 25.10.2017, Blaðsíða 31

Skessuhorn - 25.10.2017, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 2017 31 Fundarstjóri Heimir Fannar Gunnlaugsson Kl. ��:�� – ��:�� Opnun á málþingi Gunnar Sigurðsson fyrrverandi formaður KFÍA Kl. ��:�� – ��:�� Samstarf ÍA og KSÍ í gegnum árin Guðni Bergsson Formaður KSI Kl. ��:�� – ��:�� Saga knattspyrnunnar á Akranesi Jón Gunnlaugsson og Stefán Jónsson Kl. ��:�� – ��:�� Hvað hefur Akraneskaupstaður gert fyrir knatt- spyrnuna og hvaða áhrif hefur knattspyrnan haft á bæjarlífið síðan ���� – Gísli Gíslason Kl. ��.�� – ��:�� Hvað ungur nemur gamall temur Skarphéðinn Magnússon og Hjördís Brynjarsdóttir Kl. ��:�� – ��:�� Kaffihlé Kl. ��:�� – ��:�� Fótbolta- og skólabærinn Akranes Hulda Birna Kl. ��:�� – ��:�� Lífið var fótbolti dætur Ríkharðs Jónssonar Kl. ��:�� – ��:�� Samfélagið og afreksmenn Viðar Halldórsson Kl. ��:�� – ��: �� Umræður og spurningar í panel Kl. ��:�� –��:�� Vegurinn framundan Magnús Guðmudsson, formaður KFÍA Kl. ��:�� – ��:�� Samantekt í lok fundar Málþing um áhrif kna�spyrnunnar á Akranesi Dags málþings: ��. október ���� kl. ��:�� – ��:�� Hægt er að skrá sig á www.kfia.is og á www.ia.is í Tónbergi Mörg okkar muna Sigurð Helgason, íþróttakennara og síðar skólastjóra hér í Hólminum. Það var hann sem að gaf tóninn að hér myndi henta best að stunda körfubolta sem bolta- grein yfir vetrartímann. Við erum að tala um árin upp úr 1952. Allar götur síðan hefur verið gríðarlega gott sam- starf á milli UMF Snæfells, skólanna, bæjarfélagsins sem og bæjarbúa. Það hefur verið rauði þráðurinn í gegnum starfið sem heild. Árangur í öllu starfi tengist sannar- lega ýmsum þáttum s.s. einstakling- unum hverju sinni, aðstöðunni, sam- félaginu og síðast en ekki hvað síst, stemningunni í bæjarfélaginu fyrir hverju verkefni fyrir sig. Menn koma og menn fara og þannig verður það alltaf og þannig er það í öllu sem að við erum að gera. Þessi ferðalög kalla fram bæði jákvæðar sem og neikvæð- ar sveiflur í starfinu sem aftur gefa okkur önnur tækifæri. Ég undirritaður, sem tók að mér metnaðarfullt starf sem formaður körfuknattleiksdeildar Snæfells á vor- dögum 2009, er svo heppinn að hafa fengið tækifæri á að upplifa það að vera barn, unglingur og síðan full- orðinn maður hér í bænum. Stunda margt af því félagsstarfi sem í boði hefur verið hverju sinni. Við krakkarnir horfðum á eldri stjörnur bæjarins með glampa í aug- um og hlökkuðum mikið til að verða stór og þannig hefur það alltaf verið og verður áfram. Þannig liggur mikil ábyrgð á okkur sem að stöndum í for- svari fyrir félagsstarfi að vanda okkur í öllum okkar verkefnum. Það er alveg á kláru að við erum öll að gera okkar besta hvort sem við erum innan vallar sem utan. Markmið okkar er alltaf að gera betur í dag en í gær og eingöngu þannig verður framþróun. Sá hópur fólks sem nú heldur utan um starfið hjá meistaraflokk- um Snæfells er öflugur og gefur allt sem mögulegt er í verkefnið. Það eru ekki allir sem hafa áttað sig á því að frá árinu 2009 hafa meistaraflokk- ar Snæfells skilað 17 titlum í Hólm- inn – já við erum að tala um magn- aðan árangur hjá aðeins rúmlega 1200 manna samfélagi. Það er marg- ur stærri klúbburinn sem getur ekki státað sig af slíku en myndu gjarnan vilja vera í okkar sporum. Sannarlega er starfið miklu meira en þessir áðurnefndu titlar. Sjáum til að mynda aldursdreifinguna á leikj- um Snæfells eða ættum við bara að kalla leikina veislur? Fólk sem kem- ur úr öllum áttum og öllum störf- um samfélagsins. Hvað haldið þið að hafi m.a. staðið uppúr hjá yngri kyn- slóðinni og kannski fleirum þegar að Maríusystur voru heimsóttar af sjón- varpinu í sumar? Jú, þær léku sér í körfubolta við gaflinn á íþróttahúsinu í öllum sínum herklæðum og brostu allan hringinn. Það er svona sem að hlutirnir gerast og Maríusystur, eins og við hin, hafa beðið spenntar eftir að nýtt tímabilið hæfist því þetta er ein af þeirra leið- um til að kynnast bæjarlífinu sem og fólkinu í bænum sem best. Þær upp- lifa sig svo frjálsar og öruggar í þessu félagsmálaumhverfi eins og þær segja sjálfar. Í kringum hvern leik eru ótal verk- efni sem eru unnin í endalausri sjálf- boðavinnu. Það þarf að auglýsa leik- ina, flagga á leikdegi, gera húsið klárt, selja miða, halda utanum leikinn, selja eitthvað hollt í hálfleik, ganga frá eft- ir leik o.fl., o.fl. Síðan er það ritara- borðið sjálft með öllum sérfræðing- um leiksins. Til þessa starfa þurfum við að fá ca. 20 manna hóp hverju sinni og hefur það gengið ótrúlega vel og vil ég færa þessu frábæra starfs- fólki bestu þakkir. Nú er nýtt keppnistímabil nýhafið og mikill hugur í öllum hlutaðeigandi að standa okkur áfram vel. Strákahópurinn leikur í 1. deild. Það urðu okkar hlutskipti að falla niður um deild sl. vor. Því höfum við endurskipulagt allt okkar starf hjá ungu og gríðarlega efnilegu liði. Við ætlum áfram sem hingað til í hvern leik til að vinna en um leið efla okk- ur sem einstaklinga. Markmiðið er að verða enn betra körfuboltalið og vera komin aftur í hóp hinna bestu á næstu þremur til fjórum árum. Það hafa ekki verið fleiri heimamenn í strákaliði okkar lengi og er það vel. Þannig byggjum við best upp og það er það sem að samfélagið vill. Til við- bótar styrkjum við hópinn með öfl- ugum leikmönnum sem hafa áhuga og metnað fyrir okkar markmiðum og starfi. Stelpurnar eru sannarlega búnar að vera á toppnum í nokkur ár og hafa staðið sig ótrúlega vel miðað við sam- setninguna á hópnum. Þær eru mjög margar sem að hafa verið að stunda ýmiskonar framhaldsnám á háskóla- stigi og því æft með hinum ýmsu lið- um á Reykjavíkursvæðinu en kom- ið svo heim í æfingar og leiki. Það eru forréttindi að fá að starfa með slíkum krökkum sem vilja berjast áfram fyrir sitt uppeldisfélag sem og Hólminn, þótt að klárlega væri þægi- legra að ganga í einhvern stórklúbb- inn á Reykjavíkursvæðinu þ.e. í næstu götu. Nei Snæfell er íþróttafjölskyld- an okkar og þannig verður það, segja þær brosandi. Við skulum endalaust muna þann góða árangur sem að liðin okkar hafa unnið til og öll önnur verkefni sem þau hafa sinnt með stakri prýði. Við höfum ekki alltaf verið sátt við árang- ur eða niðurstöður leikja. Slík reynsla nýtist hins vegar til að verða betri. Kæru stuðningsmenn sem og styrktaraðilar! Án ykkar værum við ekki á þessum stað í okkar félags- starfi. Ég vil fyrir hönd Snæfellsfjöl- skyldunnar þakka ykkur mikla tryggð við starfið og um leið jákvæða hvatn- ingu því það er eingöngu þannig sem við náum að bæta okkur. Það er með íþróttafólkið eins og okkur öll að við mætum alltaf til leiks til að ná sem bestum árangri og það gerum við með því að gera alltaf okkar besta – meira getur maður ekki farið fram á. Í þessum töluðu orðum ættu að vera komnir seglar í hvert hús á Snæ- fellsnesi sem er gjöf frá okkur til ykk- ar. Þar sjáið þið hvar og hvenær liðin okkar eru að spila. Við hvetjum ykkur til að heimsækja okkur hér í Hólmin- um nú eða í útileikjum okkar. Þannig styrkjum við best hið öfluga starf sem að við Snæfellingar erum svo stolt af. Baráttukveðjur með endalausu þakklæti út um allan heim, Gunnar Svanlaugsson, formaður kkd Snæfells / meistaraflokka. Meistaraflokkur karla hefur unnið alla titla sem í boði eru hjá KKÍ Bikarmeistarar 2010 febrúar Íslandsmeistarar 2010 apríl Meistarar Meistaranna 2010 október Lengjubikarmeistarar 2010 október Deildarmeistarar 2011 Meistaraflokkur kvenna hefur unnið alla titla sem í boði eru hjá KKÍ Lengjubikarmeistarar 2012 september Meistarar Meistaranna 2013 október Deildarmeistarar 2014 mars Íslandsmeistarar 2014 apríl Meistarar Meistaranna 2014 október Deildarmeistarar 2015 mars Íslandsmeistarar 2015 apríl Meistarar Meistaranna 2015 október Bikarmeistarar 2016 febrúar Íslandsmeistarar 2016 apríl Meistarar Meistaranna 2016 október Deildarmeistarar 2017 mars Þökkum öflugan stuðning kæru Snæfellingar og áfram gakk! Pennagrein

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.