Skessuhorn - 29.11.2017, Page 21
MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 2017 21
Aðventa í Kjósinni
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Laust er starf vélamanns á þjónustustöð Vegagerðarinnar í Borgarnesi.
Starfssvið Menntunar- og hæfniskröfur
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður sem hentar jafnt báðum kynjum
og í samræmi við jafnréttisáætlun Vegagerðarinar eru konur með tilskyldar
Vélamaður
Síðastliðinn laugardag var spilað í
Logalandi í Borgarfirði eitt sterk-
asta briddsmót sem haldið hef-
ur verið í landshlutanum um langt
skeið. Um silfurstigamót er að ræða
í tvímenningi og það helgað minn-
ingu Þorsteins Péturssonar kennara
frá Hömrum sem lést fyrr á þessu
ári. Þorsteinn var mikill spilamað-
ur alla tíð og átti ásamt fleirum
þátt í að bridds hefur verið kennt
í héraðinu þannig að Bridgefélag
Borgarfjarðar er nú annað stærsta
briddsfélag landsins. Það var Ágúst
Þorsteinsson frá Hömrum sem
skipulagði mótið ásamt Þorvaldi
Pálmasyni og félögum í Bridge-
félagi Borgarfjarðar.
Til mótsins var boðið öllum
þeim sem vildu. Þegar upp var stað-
ið tóku 36 pör þátt, um helmingur
spilara kom af höfuðborgarsvæð-
inu en aðrir af Vesturlandi og allt
norður á Strandir. Meðal keppenda
má nefna landsliðsmenn og konur,
ríkjandi Íslandsmeistara í einmenn-
ingi og fyrrum heimsmeistara Að-
alstein Jörgensen. Engu að síður
voru það heimamenn sem hömp-
uðu bikar í mótslok, þeir Svein-
björn Eyjólfsson og Lárus Péturs-
son frá Hvanneyri. Forysta þeirra
var býsna sannfærandi og þeir vel
að sigurlaunum komnir. Höfðu
menn á orði að það væri ánægjulegt
að fyrrum spilafélagar Þorsteins á
Hömrum til áratuga næðu þessum
árangri. Í öðru sæti urðu Bernód-
us Kristinsson og Ingvaldur Gúst-
afsson úr Reykjavík en í þriðja sæti
urðu heimamennirnir Heiðar Bald-
ursson og Logi Sigurðsson, sem
tvímælalaust eru með efnilegustu
ungu briddsspilurum landsins um
þessar mundir.
Stefnt er að því að Þorsteinsmót
verði árlegur viðburðir hjá bridds-
fólki og spilað síðari hluta nóvem-
ber. Fjölmörg fyrirtæki og einstak-
lingar studdu mótið með ýmsum
hætti. Meðal annars var það Skorra-
dalshreppur sem gaf farandbikar
sem varðveittur verður í Logalandi
milli móta. mm
Heimamenn sigursælir
á fyrsta Þorsteinsmótinu
Þrjú efstu pör á fyrsta Þorsteinsmótinu í bridds. F.v. eru þeir Heiðar og Logi, Svein-
björn og Lárus og Bernódus og Ingvaldur.
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Ómar og Steinunni fóru í heimsókn á Tann-
læknastofu Ara Bjarnasonar í Snæfellsbæ.
Slakað á með rjúkandi kakó eftir góðan dag í Stykkishólmi.Sigurður Fannar var gestastarfsmaður í sundlauginni í Stykkishólmi.
Einar Marteinn var gestastarfsmaður hjá Íslenska gámafélaginu í Hólminum.