Skessuhorn


Skessuhorn - 29.11.2017, Blaðsíða 22

Skessuhorn - 29.11.2017, Blaðsíða 22
MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 201722 Viðburðir á aðventu á Vesturlandi Ritstjórn Skessuhorns kallaði í liðinni viku eftir upplýsingum um viðburði á döfinni hér á Vesturlandi á aðventunni og til jóla. Fjölmargir brugðust við og birtum við hér og á næstu síðum það sem fólk vildi koma á framfæri. Hlutaðeigandi er þakkað fyrir og íbúar jafnframt hvattir til að nýta sér fjölbreytta flóru á sviði listar, menningarlífs, í sóknum og á vettvangi sveitar- félaga á næstunni. Fyrirvari er gerður um að listi þessi er ekki tæmandi. Akranes Mikið verður af viðburðum á Akranesi á að- ventunni og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Dagskráin hefst strax á morg- un, fimmtudaginn 30. nóvember, í Dularfullu búðinni. Þar verður boðið upp á jólaglögg og piparkökur á meðan Gítardúóið „Góðir háls- ar“ spilar létta jólatónlist. Í Dularfullu búðinni verður mikil dagskrá í aðdraganda jóla, til að mynda verður lifandi tónlist í boði hússins frá kl. 22 til miðnættis föstudaginn 1. desember og laugardagana 9. og 16. desember. Þá verð- ur boðið upp á jólakakó og sögustund fyrsta sunnudag í aðventu, 3. desember, frá klukk- an 16-18. Fimmtudaginn 7. desember verð- ur Rithöfundakvöld í Dularfullu búðinni þar sem Halldór Armand, Bergur Ebbi og Valur Gunnarsson lesa upp og kynna nýútkomn- ar bækur sínar. Laugardaginn 16. desember mun félag Litháa á Íslandi vera með kynningu á landi og þjóð klukkan 14 og að lokum verða tónleikar með Korselettunum föstudaginn 22. desember klukkan 21. Aðventustemning verður með ljúfum jóla- tónum í Akranesvita alla laugardaga í des- ember klukkan 14. Laugardaginn 2. desember kemur tónlistarfólkið Valgerður Jónsdóttir og Þórður Sævarsson. Laugardaginn 9. desember verða Hanna Þóra Guðbrandsdóttir sópran og Birgir Þórisson. Laugardaginn 16. desember kemur Jónína Björg Magnúsdóttir söngkona og á Þorláksmessu koma þau Rakel Pálsdótt- ir söngkona og Birgir Þórisson spilar undir. Allir eru hjartanlega velkomnir og aðgangur ókeypis. Aðra aðventuhelgina verður sýningin Jólin, jólin allsstaðar opnuð í Lesbókinni á Akranesi. Þá mun Örlitla jólabúðin skjóta upp kollinum í miðbæ Akraness en búðin verður opin frá 7. - 10. desember. Laugardaginn 2. desember klukkan 13 verð- ur Jólamarkaður Skagamanna í matsal Sem- entsverksmiðjunnar við Mánabraut. Þar má finna ýmiskonar handverk, matvöru, skraut- muni, skargripi, fatnað og margt fleira. Seinna sama dag, klukkan 16:30, verða ljósin tendruð á jólatrénu á Akratorgi. Sú athöfn verður með hefðbundnu sniði og hugsanlega láta jólasvein- ar sjá sig. Laugardaginn 6. desember mun kór Akraneskirkju halda tónleika í Bíóhöllinni. Föstudaginn 15. desember klukkan 20 verð- ur Jólagleði í Garðalundi þar sem haldin verð- ur hamingjustund eftir kvöldmat, sérstaklega ætlað þeim sem vita að jólasveinarnir eru til og forráðamönnum þeirra. Allir verða að muna að klæða sig vel, mæta með vasaljósið og skilja síma og bíla eftir heima. Þá verður jólamark- aður í Guðnýjarstofu og Garðakaffi sunnu- daginn 17. desember frá klukkan 11-17. Vinkonurnar Katrín, Sigga og Hekla halda jólatónleika í Tónbergi miðvikudaginn 20. desember. Tónleikarnir bera nafnið „Korter í Jól,“ góðgerðatónleikar, en allur ágóði mun renna óskertur til Mæðrastyrksnefndar Akra- ness. Þær vinkonur fá til sín góða gesti á tón- leikunum svo sem Þórunni Antoníu, Stúkurn- ar, Jónu Öllu, Skólakór Grundaskóla og fleiri. Bubbi Morthens verður með tónleika í Bíó- höllinni þriðjudaginn 19. desember. Fyrir þá sem vilja slaka á rétt áður en jólin skella á verða Þorláksmessutónleikar í Gamla Kaupfélaginu frá klukkan 22 til miðnættis laugardaginn 23. desember með lifandi tónlist þar sem frítt er inn. Garðaprestakall á Akranesi Sr. Eðvarð Ingólfsson og sr. Þráinn Haraldsson 3. desember – Fyrsti sunnudagur í aðventu: Jólaföndur sunnudagaskólans klukkan 11 í Vinaminni. Aðventuhátíð í Vinaminni klukkan 14 og í Höfða klukkan 17. 10. desember – Annar sunnudagur í að- ventu: Jólaball sunnudagaskólans klukkan 11 í Vinaminni og Guðsþjónusta klukkan 14. 17. desember – Þriðji sunnudagur í að- ventu: Fjölskylduguðsþjónusta klukkan 14. 24. desember – Aðfangadagur: Aftansöng- ur í Akraneskirkju klukkan 18 og miðnæt- urguðsþjónusta klukkan 23. 25. desember – Jóladagur: Hátíðarguð- sþjónusta í Akraneskirkju klukkan 14. 26. desember – Annar dagur jóla: Guðs- þjónusta á Höfða klukkan 12:45. 31. desember – Gamlársdagur: Aftansöngur klukkan 18. 1. janúar – Nýársdagur: Hátíðarguðsþjón- usta klukkan 14. Hvalfjarðarsveit Í Hvalfjarðarsveit hefst aðventan með ár- legri Fullveldishátíð í Heiðarskóla á morg- un, fimmtudaginn 30. nóvember klukkan 17:15. Þar munu nemendur í 1. og 2. bekk ásamt elstu börnum leikskólans flytja söng- atriðið „Dýrin í Afríku“ og nemendur í 5. til 7. bekk sýna leikritið „Samferða um ævin- týrin.“ Þá verða einnig atriði frá Tónlistar- skólanum á Akranesi og að sýningu lokinni verður boðið upp á vöfflur, piparkökur, heitt súkkulaði og kaffi. Aðgangseyrir er 1.000 kr. og rennur óskiptur í ferðasjóð Nemenda- félagsins. Allir eru hjartanlega velkomnir. Á Laxárbakka verða aðventuhlaðborð bæði föstudag og laugardag næstu tvær helg- ar og skötuveisla föstudaginn 22. desember bæði í hádeginu og seinni partinn. Á Bjart- eyjarsandi verður árlegur viðburður „Jól í Álfhól“ laugardaginn 16. desember og byrj- ar dagskráin þá með markaði klukkan 13 þar sem hægt verður að kaupa ýmis matvæli frá Bjarteyjarsandi. Magnús Þór Hafsteinsson kemur og les upp úr nýrri bók sinni auk þess sem kaffihúsið verður opið. Smáréttahlað- borð verður opið á milli kl. 18:30 og 20:30 og að lokum verða þau Ragnheiður Grön- dal, Kristjana Stefánsdóttir og Svavar Knút- ur með tónleika klukkan 21. Saurbæjarprestakall Sr. Kristinn Jens Sigurþórsson 3. desember – Fyrsti sunnudagur í aðventu: Fjölskyldumessa í Hallgrímskirkju í Saurbæ klukkan 14. 10. desember – Annar sunnudagur í að- ventu: Aðventusamkoma í Innra-Hólms- kirkju klukkan 20. 14. desember – Fimmtudagur: Aðventusam- koma í Leirárkirkju klukkan 20. 24. desember – Aðfangadagur: Hátíðarguð- sþjónusta í Hallgrímskirkju í Saurbæ klukk- an 23. 25. desember – Jóladagur: Hátíðarguð- sþjónusta í Leirárkirkju klukkan 13:30 og hátíðarguðsþjónusta í Innra-Hólmskirkju klukkan 15. 31. desember – Gamlársdagur: Messa í Innra-Hólmskirkju klukkan 13:30. Borgarbyggð Margt spennandi er á döfinni í Borgarbyggð á aðventunni í ár. Má þar fyrst nefna að Tónlistarskóli Borgarfjarðar hefur sett upp söngleikinn Móglí og enn eru eftir fáeinar sýningar fram til laugardagsins 9. desemb- er en þá er lokasýning. Þá munu nemend- ur tónlistarskólans setja upp jólatónleika í Tónlistarskólanum í Borgarnesi mánudag- inn 11. desember klukkan 17 og 19, þriðju- daginn 12. desember klukkan 17 og mánu- daginn 18. desember klukkan 16:30. Einn- ig verða tónleikar á Bifröst þriðjudaginn 12. desember klukkan 20 og í Logalandi mið- vikudaginn 13. desember klukkan 18. Þau Rúnaa Einars og Sigmundur Ern- ir kynna bók sína „Rúna Örlagasaga“ í Líf- landi í Borgarnesi laugardaginn 2. desember klukkan 12. Ljósin verða tendruð á jólatrénu við Kveldúlfsgötu í Borgarnesi klukkan 17 sunnudaginn 3. desember. Jólalög verða sungin af Barnakór Borgarness undir stjórn Steinunnar Árnadóttur við undirleik Hall- dórs Hólm. Andrea Jónsdóttir mun spila á saxafón og nemendur Grunnskólans í Borg- arnesi ætla að bjóða upp á heitt kakó. Aldrei að vita nema jólasveinarnir láti sjá sig. Miðvikudaginn 6. desember verða tón- leikar sem bera nafnið „Ilmur af jólum“ haldnir í Reykholti. Þar mun Hera Björk koma fram ásamt góðum gestum úr heima- byggð. Með henni í för verða Björn Thor- oddsen gítarleikari og Ástvaldur Traustason píanóleikari. Jólatónleikar Hljómlistarfélags Borgar- fjarðar verða fimmtudaginn 14. desember í Hjálmakletti klukkan 20:30, miðaverð í for- sölu er 3.000 kr. og fer fram í Framköllunar- þjónustunni í Borgarnesi. Allur ágóði af tón- leikunum rennur beint í sjóð sem ætlaður er til að styðja við bakið á upprennandi tónlist- arfólki í Borgarfirði. Laugardaginn 16. desember verða hátíð- artónleikar Eyþórs Inga í Borgarneskirkju. Á Landnámssetrinu verða hollustuhlað- borðin á sínum stað í hádeginu en þann 7. desember verður hlaðborðið með jólaívafi. Þá mun rithöfundurinn Vilborg Davíðsdótt- ir segja sögu Auðar Djúpúðgu á Landnáms- setrinu sunnudaginn 3. desember klukkan 16. Markaður verður í Nesi í Reykholts- dal laugardaginn 9. desember frá klukkan 13-17, þar sem hægt verður að kaupa fallegt handverk, fatnað, ýmist matarkyns og margt fleira sem framleitt er í héraði. Spákonan verður á sínum stað með áramótaspána. Í Safnahúsinu í Borgarnesi fimmtudaginn 7. desember klukkan 10:30 verður mynda- morgunn á vegum Héraðsskjalasafnsins. Sýndar verða ljósmyndir víða að úr héraðinu og gestir beðnir að greina óþekktar myndir. Heitt verður á könnunni. Viðburðurinn er í Hallsteinssal á efri hæð Safnahúss og lýk- ur klukkan 11.45. Föstudaginn 8. desember verður lengd opnun í Safnahúsinu í tilefni aðventu. Bókasafnið verður opið til klukkan 20 og þá hefst frásögn Gunnlaugs A Júlíus- sonar af þátttöku hans í um 400 km hlaupi á Bretlandi fyrir nokkrum árum. Gunnlaug- ur er eins og kunnugt er sveitarstjóri Borg- arbyggðar, en einnig þekktur langhlaupari. Hefur hann tekið þátt í fjölmörgum lang- hlaupum, m.a. Thames Ring hlaupinu í London árið 2013 sem jafngildir tíu mara- þonhlaupum. Húsið verður opið til klukkan 21 þetta kvöld og boðið verður upp á kaffi- sopa og konfekt, aðgangur ókeypis. Safna- hús hefur gefið út sérstakt bókamerki í tilefni dagsins og er það gert í minningu tveggja einstaklinga sem báðir eru látnir, Jóns Guð- mundssonar (1901-1957) og Bjarna Valtýs Guðjónssonar sem lést 2013. Jólaljósin að koma upp á Eystri-Leirárgörðum Þeir sem beygja af þjóðveginum við Beitistaði og áleiðis upp að Leirá eða inn í Svínadal í Hvalfjarðarsveit á aðvent- unni, hafa vafalaust rekið augun í fallega upplýst bæjarhúsin á Eystri-Leirárgörð- um. Þau hjónin Magnús Hannesson og Andrea Björnsdóttir eru mikil jólabörn og finnst notalegt að lýsa upp í skamm- deginu fyrir sig og sína með fallegum ljósum. Andrea segir að það sé húsbónd- inn sem er í senn verkfræðingurinn og vinnumaðurinn við hönnun og uppsetn- ingu ljósaskreytinganna. „Hann Maggi minn er stöðugt að bæta við og þróa þessa lýsingu. Við erum jólabörn í okk- ur og finnst þetta notalegt og skemmti- legt,“ segir hún. Jónas H Ottósson ljósmyndari brá sér bæjarleið í síðustu viku fyrir Skessuhorn og festi á filmu skreytingarnar eins og þær voru þá. Honum var að vísu tjáð að eftir væri að koma fyrir jólatré og fleiri ljósum þannig að hann yrði bara að koma aftur. Það var auðsótt enda var húsmóðir- in þá þegar búin að baka vel yfir fimmtán sortir af jólasmákökum sem ljósmyndar- inn fékk að njóta. Það þarf ekki frekar að dekstra menn til að heimsækja þau hjón aftur. mm/ Ljósm. jho.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.