Skessuhorn - 29.11.2017, Page 25
MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 2017 25
Leitað er að dugmiklum og drífandi
UNGMENNASAMBAND
BORGARFJARÐAR
auglýsir eftir kraftmiklum
og metnaðarfullum
framkvæmdastjóra í
100% starf.
HELSTU VERKEFNI
•
•
•
•
•
•
HÆFNISKRÖFUR
•
•
•
•
•
•
FRUMHERJI HF. – ÞEGAR VEL ER SKOÐAÐ
www.frumherji. is
Búðardalur 2017
Bifreiðaskoðun verður hjá KM þjónustunni ehf.
Vesturbraut 20
Fimmtudagur 7. desember
Föstudagur 8. desember
Lokað í hádeginu kl. 12.00 – 13.00
Tímapantanir í síma 570 – 9090 SKE
SS
U
H
O
R
N
2
01
7
Í tilefni af umfjöllun í sjónvarpi um
brotamál og eftirlit í sjávarútvegi vill
Fiskistofa koma eftirfarandi á fram-
færi:
Fiskistofa fékk í sumar vitneskju
um myndefnið og þann vitnisburð
sem honum fylgdi og birtist í frétta-
skýringaþættinum Kveik þriðjudags-
kvöldið 21. nóvember sl. Sett hefur
verið af stað rannsókn og málið sett
í farveg sem mögulegt brotamál en
stofnunin var bundin ákveðnum
trúnaði gagnvart heimildarmannin-
um. Síðan þetta mál kom upp hef-
ur Fiskistofa sent eftirlitsmenn með
í veiðiferðir hjá viðkomandi útgerð í
tilefni af þessum upplýsingum.
Stjórnendur Fiskistofu hafa marg
oft bent á galla í reglum um vigtun
afla bæði gagnvart ráðuneyti, stjórn-
málamönnum og á opinberum vett-
vangi. Nefna má að Fiskistofa gerði
tillögur að mögulegum breyting-
um á vigtarlöggjöfinni og skilaði til
ráðuneytis sjávarútvegsmála. Ráðu-
neytið vann frumvarp á grundvelli
þeirra sem dagaði uppi. Stofnunin
telur sem fyrr mjög brýnt að endur-
skoða reglur um vigtun sjávarfangs
með þeim hætti að eftirlit og við-
brögð við brotum geti verið mark-
vissari en nú er.
Fiskistofa hélt úti svonefndum
bakreikningsrannsóknum á mögu-
legum brotum á vigtarlöggjöfinni á
árunum 2006 - 2012. Niðurstaða
þeirra 14 mála sem tekin voru fyr-
ir reyndist vera að 9 voru felld nið-
ur vegna þess að ekki var sýnt fram á
óeðlilegt misræmi, 2 málum var vísað
til annarra stjórnvalda vegna gruns
um tegundasvindl og einu máli lauk
fyrir dómstólum. Það varð ljóst að
árangur af þessum rannsóknum var í
engu samræmi við þann tíma og fjár-
muni sem í þær var lagt. Því var tek-
in sú ákvörðun í samráði við ráðu-
neytið að stofnunin beindi kröftum
sínum að öðru og árangursríkara eft-
irliti á grundvelli áhættugreiningar.
Fiskistofa hefur í mörg ár lagt
áherslu á birtingu upplýsinga um
veiðar, vigtun og vinnslu. Gagn-
sæinu í þessum upplýsingum er m.a.
ætlað að stuðla að því að allir aðilar
í sjávarútvegi geti átt þátt í að halda
aftur af brotum. Þetta hefur skilað
góðum árangri. Þannig eru niður-
stöður vigtunar alls landaðs afla að-
gengilegar á vef Fiskistofu. Áhafnir
hafa t.d. verið í sambandi við Fiski-
stofu vegna frávika í ísmagni við end-
urvigtun sem þær telja ekki stemma.
Sjómennirnir eru þeir sem ísa fisk-
inn og sé afli að hluta í raun skráður
sem ís við endurvigtun er verið að
hafa af áhöfninni réttan aflahlut og
flytja ágóðann af útgerð til vinnslu.
Sjómenn hafa því tekið þessari upp-
lýsingagjöf fagnandi og telja hana
veita aðhald.
Gagnaöflun Fiskistofu er einnig
notuð til svonefndrar áhættugrein-
ingar þar sem leitast er við að meta
hvar árangursríkast er að bera niður
í eftirliti út frá frávikum í aflasam-
setningu eða íshlutfalli, svo dæmi
séu nefnd. Þetta hefur reynst vel.
Nefna má að birting frávika við end-
urvigtun eftir því hvort eftirlitsmað-
ur er viðstaddur eða ekki hefur dreg-
ið fram þau fyrirtæki þar sem end-
urvigtun sker sig úr. Með þessu móti
hefur verið hægt að gera störf eftir-
litsmanna markvissari. Fjöldi eftir-
litsmanna og viðvera þeirra á sjó, í
höfnum og vinnslu er því ekki ein-
hlítur mælikvarði á umfang og ár-
angur eftirlitsins.
-fréttatilkynning
Eftirlit með brottkasti og
endurvigtun afla