Skessuhorn


Skessuhorn - 29.11.2017, Page 28

Skessuhorn - 29.11.2017, Page 28
MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 201728 Vörur og þjónusta Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Drei bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 www.skessuhorn.is Þjónustuauglýsingar Skessuhorns Auglýsingasími: 433 5500 H P Pípulagnir ehf. Alhliða pípulagnaþjónusta Hilmar 820-3722 Páll 699-4067 hppipulagnir@gmail.com SK ES SU H O R N 2 01 7 Sprautu- og bifreiðaverkstæði Sólbakka 5, Borgarnesi • 437-1580 • sbb@simnet.is Tjónaskoðun – Bílamálun – Réttingar – Bílrúðuskipti Þjónustum öll tryggingafélög Borgarness Ólafsdalur er eitt merkilegasta minja- svæði landsins, ekki síst vegna marg- víslegra búnaðarumbóta og fram- kvæmda Torfa Bjarnasonar skóla- stjóra og manna hans þar. Torfi var einn af forgöngumönnum votheys- gerðar hérlendis – aðferðar sem í fyrstu var jafnan nefnd súrheys- gerð. Árið 1888 birti Torfi allræki- lega grein í Búnaðarriti (2. árg., bls. 95-115) þar sem hann greindi frá aðferðinni og fyrstu reynslu sinni af henni. Vorið 1885 hafði hann byggt „dálitla hlöðu handa súrheyinu“ er hann lýsti nánar þannig: „...hún er grafin í jörð, hér um bil 6 fet annars vegar; hinum megin minna. Er hún í botninn 12 álna löng [7,6 m] og 6 álna breið [3,8 m], er lít- ið eitt lengri og víðari að ofan. Allir veggirnir eru ofurlítið bogadregnir, svo hún líkist sporöskju. Botninn er hörð leirmöl og í hana grafið lokræsi með öðrum hliðveggnum og út úr barði, sem hlaðan stendur á, því eg óttaðist neðangönguvatn. Veggirn- ir eru hlaðnir úr tómu grjóti, nærri jafnhátt jörð, en þéttaðir og sléttað- ir innan með leir. Þar fyrir ofan eru veggirnir hlaðnir úr þéttum, vel sígn- um hnaus og þykktin eptir hæð, líkt og á vanalegum torfveggjum. Alls voru veggirnir frá gólfi 5½ alin [3,5 m], þegar hlaðan var nýbyggð, en hafa sígið nokkuð síðan.“ Samkvæmt lýsingu Torfa fylgdi „súrheyshlaðan“ svipuðu grunn- formi og þurrheyshlöður þeirrar tíð- ar: Hún var ferköntuð og ílöng en þannig virðast allra fyrstu íslensku súrheystóttirnar hafa verið. Fyrir- myndin að þeim mun ekki síst hafa verið sótt til Noregs en þar tíðkuð- ust súrheysgeymslur (surhåkjeller) í sama stíl úr tilhöggnu grjóti. Sýni- lega hefur verið vandað til súrheys- hlöðunnar í Ólafsdal, bæði t.d. með leirþéttingu steinhleðslunnar og lok- ræsi frá henni, að ekki sé nú gleymt þaki sem á hlöðuna var sett og Torfi lýsir svo: „Á veggina allt um kring voru lagð- ar hellur og þar á ofan tréflettingur – vegglægjur – hringinn í kring, og á þeim vegglægjum liggja bitarnir, og sperrur standa á þeim, sem bera þak- ið, er dregst að sér jafnt frá hliðum og göflum. Vegglægjurnar eru lagðar 3 - 6 þuml. frá innri brún veggjanna. Eptir þessu má skilja, að engin stoð er í hlöðunni. Dyr eru á öðrum hliðvegg ofan til, rúmar 3 álnir frá gólfi.“ Eftir tölum Torfa um hirðingu í súrheyshlöðuna fyrsta sumarið virð- ist mega áætla að í hana hafi komist jafngildi u.þ.b. 50 hestburða af þurr- heyi (5 tonn), sem var vetrarfóður fyrir a.m.k. 25-30 ær með nokkurri beit. Til þess að fergja súrheyið not- aði Torfi mikið af veggjamold (sem hann síðan lét nota til blöndunar við mykju en þannig hefur fengist af- bragðs góð gróðurmold!). Eftir tvo mánuði hóf Torfi að gefa heyið sem „var alstaðar óskemmt og sýndist mjög vel verkað,“ skrifaði hann. Telja má víst að nemendur í bún- aðarskóla Torfa hafi tekið virkan þátt í öllum verkum við gerð hlöðunnar, verkun heysins og síðan gjafir þess og þannig fræðst með verklegum hætti um hina nýju heyverkunarað- ferð. Ekki er heldur ólíklegt að þeir hafi sjálfir gert einhverjar tilraun- ir með aðferðina er skóladvölinni í Ólafsdal lauk og þeir teknir til sjálf- stæðra starfa. Líklegt er því að Torfa- tóftin hafi bæði orðið hvati og fyrir- mynd að hinum nýju heyverkunar- háttum í öðrum sveitum. Við skráningu Landbúnaðarsafns Íslands á ræktunarminjum í Ólafs- dal fyrir nokkrum árum töldum við Ragnhildur Helga Jónsdóttir okkur hafa gengið fram á þessa tóft og hana skráðum við. Á fallegu sunnudags- síðdegi í byrjun október sl. kom ég svo við í Ólafsdal til þess að skoða og mæla tóftina nánar og að bera sam- an ræktunarminjaskráningu okk- ar Ragnhildar Helgu Jónsdóttur og greinargóða lýsingu Torfa á súrhey- stóftinni frá 1888. Ekki varð ann- að séð en að allt falli þar í löð, eins og best verður lýst með meðfylgj- andi myndum. Tóftin er enn mjög vel sýnileg þar sem hún hefur verið grafin ofan í árdalsbrúnina spölkorn austur af bæjarhúsunum í Ólafsdal. Ekki virðist vafi leika á að skv. ræktunarminjaskráningunni og við- bótarathugun minni að tóftin er sú sem Torfi Bjarnason lýsti í súrheys- grein sinni í Búnaðarriti. Það eru lifandis undur að enn megi sjá svo glöggar leifar súrheystóftar sem gerð var vorið 1885. Bæði hefur verið vandað mjög til tóftarinnar í upphafi og það lent í blessunarverðri útideyfu að fylla tóttina með rusli, sem þó var jafnan gert á bæjum, því yfirgefnar vilpur sem þessi voru víða illa séðar vegna velferðar skepna og manna. Fróðlegt væri að skoða súrheystóft- ina nánar, m.a. að kanna botn hennar og hvort finna mætti leifar lokræsis- ins frá henni til þess að sjá gerð þess og frágang. Súrheystóftin í Ólafsdal telst til elstu minja um súrheysgerð hérlend- is og eru raunar þær elstu sem mér er kunnugt um. Hún er gagnmerk í ljósi íslenskrar búnaðarsögu og sem hluti af hinu merkilega minjasvæði í Ólafsdal. Hana þarf að rannsaka nánar og að ekki sé nú gleymt nauð- syn þess að halda yfir henni traustum hlífiskildi. Bjarni Guðmundsson Súrheystóftin í Ólafsdal - elstu minjar um súrheysgerð hérlendis? Horft inn í tóftina til austurs; hleðslan sést greinilega. Til hægri eru hún allt að 1,7 m á hæð. Tóftin hefur gengið nokkuð saman enda ekki ósennilegt að endurtekin frost hafi þokað veggjum inn í tóftina sem staðið hefur tóm um áratuga skeið. Sporöskjuformið hefur því að mestu horfið. Handan við austurgaflinn eru tóftir tvennra húsa, líklega fjárhúsa. Súrheystóftin hefur verið gerð nokkuð frá bæ og eins og sjá má á myndinni, og „út úr barði“ eins og Torfi skrifaði því hann óttaðist „neðangönguvatn“. Þar hefur verið auðvelt að losna við uppmoksturinn úr tóftinni ofan fyrir brekkubrúnina. Líklega hafa kappsamir skólasveinar unnið það verk. Enn má glöggt sjá steinlímið, „leirinn“, sem borið var í glufurnar á milli steinanna í tóftarhleðslunni til þéttingar. Mjög lausleg tilgátumynd af fyrstu súrheystóft (-hlöðu) Torfa í Ólafsdal sam- kvæmt lýsingu hans. (BG)

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.