Skessuhorn - 18.07.2018, Síða 14
MIÐVIKUDAGUR 18. JÚlÍ 201814
Í lok síðustu viku höfðu á þriðja tug hvala
veiðst og verið unnir í Hvalstöðinni í Hval-
firði. Þar er gengið fumlaust til verka og
gengur vel. ljósmyndari Skessuhorns fylgd-
ist með skurði á einni langreyði á plani Hval-
stöðvarinnar síðastliðinn fimmtudag. Á út-
sýnissvæði ofan við athafnasvæðið voru auk
blaðamanns nokkrir áhugasamir Íslending-
ar að fylgjast með hvalskurðinum. Fólki sem
rætt var við fannst þetta áhugavert og töldu
jákvætt að Íslendingar héldu í þessa fornu
hefð að veiða og nytja hvalinn. Meðal þeirra
var bændahjón vestan af Snæfellsnesi og
áhugaljósmyndarar frá Akranesi. Einnig var
á ferðinni hestamaður úr Skagafirði sem var á
heimleið af landsmóti hestamanna með við-
komu á Suðurlandi. Sagðist sá hafa unnið við
slátrun búfjár til fjölda ára og ætti sér þann
draum heitastan að fá að starfa á hvalskurðar-
plani í eina vertíð.
Veður var með ágætum meðan hvalurinn
var skorinn og sólin náði að ylja áhorfen-
dum og körlunum á plani af og til. Frá því
byrjað var að skera hvalinn og þar til verkinu
lauk leið ekki nema rúm klukkustund. Öll
tæki, gufuknúin spil sem önnur, virðast gan-
ga smurt jafnvel þótt mörg séu þau komin til
ára sinna líkt og hvalbátarnir sem báðir voru
að veiðum þegar þetta var. Þá er allt viðhald
mannvirkja á svæðinu, og ekki síður heima í
braggahverfinu, Hvali hf. til sóma.
Er og verður umdeilt
En hvalveiðar eru og verða sjálfsagt alltaf
umdeildar. Að hluta til má rekja það til þekk-
ingarleysis, en mörgum, einkum þó útlend-
ingum, finnst vænt um hvali og eru mót-
fallnir veiðum á þeim óháð öllum rökum um
sjálfbærar veiðar. Í síðustu viku komst svo í
heimspressuna þegar einn af hvölum þessarar
vertíðar reyndist að líkindum vera blendings-
afkæmi langreyðar og steypireyðar. Síðar-
nefnda tegundin hefur verið alfriðuð í sextíu
ár. Fullyrt var af dýraverndunarsamtökunum
Hard to Port að um hreinræktaða steypireyð
hefði verið að ræða og því væru Íslendingar að
brjóta lög. Fram kom í fréttum að erfðasýni
hefði verið tekið úr dýrinu og myndi rann-
sókn á því væntanlega fá úr því skorið hvort
um blending hefði verið að ræða eða ekki.
Blendingsafkvæmi hvala njóta ekki lagalegr-
ar verndar. Kristján loftsson forstjóri Hvals
hf. segir útilokað að hvalveiðimenn ruglist á
steypireyði og langreyði og er því pollrólegur
yfir niðurstöðu rannsóknarinnar. mm
Hvalveiðar í fullum gangi