Skessuhorn - 25.07.2018, Qupperneq 2
MIÐVIKUDAGUR 25. JÚlÍ 20182
Framundan eru ýmsar hátíðir á Vest-
urlandi. Bæjarhátíðin á Góðri stund
í Grundarfirði er að hefjast en þetta
er tuttugasta afmælisár hátíðarinnar.
Þá verða Reykhóladagar um helgina
og sömuleiðis tónlistarhátíðin Reyk-
holtshátíð.
Á morgun gengur í austan- og norð-
austan 10-18 m/s og hvassast verður
við suðausturströndina. Talsverð rigning
verður á Suður- og Austurlandi en ann-
ars minni úrkoma og dregur úr vindi og
úrkomu um kvöldið. Hiti 9-17 stig og
hlýjast á Vesturlandi. Á föstudag er spáð
austlægri eða breytilegri átt 3-8 m/s
og rigning verður á köflum um aust-
anvert landið en annars þurrt að kalla.
Hiti 10-18 stig og hlýjast á Suðvestur-
landi. Frá laugardegi og fram á mánu-
dag er útlit fyrir austlægar áttir með
vætu í flestum landshlutum en fremur
hlýju veðri.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessu-
horns „Hefur þú eða munt þú taka þátt
í hátíðarhöldum vegna hundrað ára af-
mælis fullveldis?“ Flestir eða 84% svör-
uðu því neitandi og 9% sögðust ekki
vita það. 6% svarenda svöruðu spurn-
ingunni játandi.
Í næstu viku er spurt:
Opnar þú gluggaumslög sem koma
inn um lúguna hjá þér?
Skessuhorn tók tali fáeina garðyrkju-
bændur eins og lesa má um í blaði vik-
unnar. Þar á meðal er Sveinn Björnsson
garðyrkjubóndi í Varmalandi í Reyk-
holtsdal sem hefur ræktað tómata sam-
fellt í 54 ár. Hefur hann þar af leiðandi
mestu starfreynslu garðyrkjubænda
á Íslandi. Sveinn er dugnaðarforkur, sí-
vinnandi og er að þessu sinni Vestlend-
ingur vikunnar.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Veðurhorfur
Vestlendingur
vikunnar
Næstu blöð
SKESSUHORN: Athygli er
vakin á útgáfu Skessuhorns
næstu vikurnar. Blaðið kem-
ur út samkvæmt venju í næstu
viku, miðvikudaginn 1. ágúst.
Venju samkvæmt fer starfs-
fólk svo í frí vikuna um versl-
unarmannahelgi og kemur því
EKKI út blað miðvikudaginn
8. ágúst. Næsta blað eftir frí
verður gefið út miðvikudag-
inn 15. ágúst.
-mm
Varð vélarvana
um tíma
HVALFJ: Hvalveiðiskip-
ið Hvalur 9 varð vélarvana út
af höfninni á Grundartanga í
Hvalfirði eftir hádegið í gær.
Mikill viðbúnaður björgun-
araðila af Akranesi og höfuð-
borgarsvæðinu var vegna bil-
unarinnar, enda sagt í fyrstu
boðum að hætta væri á að skip-
ið strandaði. Aðstæður voru
engu að síður góðar á firðin-
um, lítill vindur og reyndist
því ekki teljandi hætta á ferð-
um. Varðskipið Týr hélt til
aðstoðar sem og nærliggjandi
björgunarbátar. Eftir að að-
stoð barst tókst að gangsetja
vél Hvals 9 að nýju og sigldi
skipið því fyrir eigin vélarafli
út fjörðinn.
mm/Ljósm. glh
Stefnir í góða
makrílveiði
MIÐIN: Makrílveiðar hófust
af krafti í síðustu viku. Stóru
skipin voru þá að veiðum
sunnan við landið. Að sögn
Kristjáns Þorvarðarsonar skip-
stjóra á Venus NS var meðal-
vigtin á makríl sem landað var
á Vopnafirði á fimmtudaginn
um 440 grömm, vel haldinn
fiskur og átulítill. Um svip-
að leiti var skipum að fjölga á
miðunum og auðveldaði það
leit að veiðanlegum torfum.
Makríll er byrjaður að veið-
ast í grænslenskri lögsögu og
þá hafa sjómenn á Breiða-
firði orðið varir við makríl að
undanförnu sem og þeir sem
renna fyrir fisk í höfnum, t.d.
á Akranesi, sem gefur vísbend-
ingu um að mikið sé af mak-
ríl víða við suður- og vestur-
ströndina.
-mm
Í tilefni af 100 ára fullveldisaf-
mæli Íslands var haldin vegleg
veisla á Hrafnistu fimmtudaginn
18. júlí. Þangað var boðið Íslend-
ingum sem fæddir voru 1918 og
áður, fullveldisbörnunum. Eins
og fram kemur í annarri frétt hér
í blaðinu eru nú 52 Íslending-
ar hundrað ára og eldri og hafa
þeir aldrei verið fleiri. Í veisluna
á Hrafnistu boðuðu tuttugu full-
veldisbörn komu sína.
Ýmis skemmtiatriði og vegleg
dagskrá var í veislunni í anda full-
veldisins. Guðni Th. Jóhannes-
son forseti Íslands flutti ávarp og
boðið var upp á fullveldisköku en
uppskrift að henni byggir á vin-
sælum uppskriftum frá því fyrir
hundrað árum. Það var landslið
bakara sem stóð að kökubakstr-
inum.
mm/ Ljósm. Áskell Þórisson.
FISK Seafood ehf. í Grundarfirði hefur
ákveðið að segja upp 19 starfsmönnum
við rækjuvinnslu frá og með næstu mán-
aðamótum. Tveimur að auki er boðin
vinna áfram við að taka niður tæki og
undirbúa sölu þeirra. Var starfsmönn-
um kynnt þessi ákvörðun á fundi í síð-
ustu viku. Í tilkynningu frá FISK Sea-
food segir að veiðar og vinnsla rækju
hafi átt erfitt uppdráttar hérlendis á
undanförnum árum og sé ákvörðun-
in tekin í ljósi langvarandi tapreksturs
í Grundarfirði „sem ekki virðist gerlegt
að vinda ofan af við núverandi aðstæð-
ur,“ eins og segir í tilkynningunni. FISK
Seafood kveðst harma þessar málalyktir
en vekur athygli á að rekstrarumhverfi
veiða og vinnslu rækju á Íslandi hefur
breyst verulega á undanförnum árum
með óhjákvæmilegum samdráttaráhrif-
um. Forsvarsmenn fyrirtækisins vildu,
þegar Skessuhorn leitaði eftir því í byrj-
un þessarar viku, ekkert láta hafa eft-
ir sér um framhald annarrar starfsemi
FISK í Grundarfirði.
Engin önnur leið sökum
taprekstrar
„Það er sárt að horfast í augu við
þennan veruleika. Rækjuveiðar við
Íslandsstrendur eru orðnar innan
við 10% af því sem var þegar best
lét og hráefnið, sem stöðugt hækk-
ar í verði, kemur nú orðið að lang-
mestu leyti erlendis frá. Gengi ís-
lensku krónunnar, stóraukinn
launakostnaður og aðrar innlend-
ar kostnaðarhækkanir ráða einnig
miklu um versnandi afkomu og við
núverandi aðstæður er leiðin út úr
vandanum því miður ekki einung-
is vandfundin heldur væntanlega
ófær,“ segir Friðbjörn Ásbjörns-
son aðstoðarframkvæmdastjóri
FISK Seafood í fréttatilkynningu.
Eftir að rækjuvinnslu verður hætt
í Grundarfirði eru einungis fimm
rækjuvinnslur starfræktar í landinu.
Á síðustu tuttugu árum hefur þeim
því fækkað gríðarlega.
Kalla eftir
mótvægisaðgerðum
lok rækjuvinnslu í Grundarfirði
er reiðarslag fyrir byggðarlagið þar
sem 834 búa. Nærri lætur að tutt-
ugu starfsmenn jafngildi um 5% af
vinnuafli í bæjarfélaginu. Bæjarráð
Grundarfjarðar lítur uppsagnirnar
alvarlegum augum og hefði kosið
að fyrirtækið hefði haft samráð við
bæjaryfirvöld þannig að mögulega
hefði mátt undirbúa mótvæðisað-
gerðir. „Bæjarráð Grundarfjarðar-
bæjar lýsir yfir miklum áhyggjum af
lokun rækjuvinnslu FISK Seafood
á staðnum, þar sem 21 starfsmanni
var sagt upp. Rekja má rætur FISK
Seafood í Grundarfirði frá kaup-
um þess á Hraðfrystihúsi Grundar-
fjarðar fyrir rúmum 20 árum og síð-
ar útgerð Farsæls SH-30 og nú síð-
ast Soffaníasi Cecilssyni ehf. ljóst
er að þessi uppsögn er mikið högg
fyrir atvinnulíf bæjarins. FISK Sea-
food er einn stærsti atvinnurekandi
og fasteignaeigandi bæjarins og ber
því mikla samfélagslega ábyrgð í
Grundarfirði,“ segir í bókun bæj-
arráðs.
Þá lýsir bæjarráð yfir vilja til
góðs samstarfs við fyrirtækið og
kallar eftir mótvægisaðgerðum af
hálfu þess til að lágmarka skaða
samfélagsins. „Bæjarráð óskar jafn-
framt eftir öðrum fundi með fram-
kvæmdastjóra og forsvarsmönnum
fyrirtækisins, þar sem rætt verði
mögulegt samstarf til framtíðar.”
mm/ Ljósm. tfk.
Fullveldisbörnum
boðið til veislu
Anna Sigfúsdóttir er fædd
12. júní 1918 á Hvalsá við
Hrútafjörð, var lengi garð-
yrkjubóndi í Skrúð í Reykholts-
dal, en flutti fyrir fjörutíu árum
til Reykjavíkur.
Hópurinn sem mætti í veisluna. Hér ásamt forsetahjónum og fleiri.
Hætta rækjuvinnslu í Grundarfirði
og segja upp starfsfólki
Reiðarslag fyrir atvinnulíf bæjarins