Skessuhorn - 25.07.2018, Blaðsíða 18
MIÐVIKUDAGUR 25. JÚlÍ 201818
Bragi Geir Gunnarsson á og rek-
ur Hverinn á Kleppjárnsreykjum í
Borgarfirði. Þar er gott tjaldstæði,
veitingastaður og gistiaðstaða.
„Þetta blauta sumar,“ segir Bragi
þegar blaðamaður Skessuhorns
tyllir sér niður andspænis honum
inni á veitingastaðnum. „Nei, nei,
ég er mjög ánægður með traffíkina
þrátt fyrir veðrið,“ bætir hann sam-
stundis við glaður í bragði og seg-
ir að það sé búið að vera meira að
gera á veitingastaðnum en nokkurn
tímann fyrr.
Góð aðstaða
fyrir ættarmót
Bragi tók við Hvernum í maí 2011
og hefur staðurinn farið í gegnum
miklar úrbætur síðan. „Ég ætlaði
fyrst bara að kaupa veitingastað-
inn og tjaldstæðið en svo gat ég
ekki annað en keypt gróðrarstöð-
ina Björk með. Á þessum tíma voru
glerin brotin í gróðurhúsinu og
það þurfti að verja miklum tíma í
að hreinsa upp svæðið og gera það
snyrtilegra.“ Nú er búið að breyta
gróðurhúsi í gistiaðstöðu, hálfgerða
„inni“ gistingu, fyrir þá sem vilja
tjalda á þurru landi. „Við köllum
þetta Hobbitahúsið og nú eru þrjú
ár síðan það kom í gagnið. Þetta er
gífurlega vinsælt hjá ferðamönnum
og núna sérstaklega í þessu rigning-
arsumri,“ segir Bragi. Ásamt Hob-
bitahúsinu þá býður Hverinn upp
á heimagistingu fyrir 25 manns í
uppbúnum rúmum og gott og mik-
ið tjaldstæði. „Hér er tilvalið að
koma og halda ættarmót, það eru
þegar búin að vera nokkur og fleiri
bókuð í sumar. Svo erum við með
þessa flottu partýskemmu þar sem
85 manns komast auðveldlega fyrir
og geta átt góðar stundir saman.“
Sumarið hefur
gengið vel
Ferðamenn sem stoppa við hjá
Braga eru aðallega fólk á einkabíl-
um. „Rúturnar keyra beint hérna í
gegn. Fólkið þar er með fyrirfram
planaða dagskrá og allt er þaul-
skipulagt niður í hverja mínútu.
Aftur á móti þá eru gestir og við-
skiptavinir okkar mun afslappaðri.
Þeir koma hérna og stoppa á leið
sinni um Borgarfjörðinn, fá sér að
borða eða bara til að njóta útiver-
unnar,“ segir Bragi sem bætir við
hlæjandi að hann hafi fyrst orðið
var við Íslendinga fyrir tíu dögum
síðan. „Það er líklega heimsmeist-
aramótinu í fótbolta að þakka en
svo ferðast flestir Íslendingar bara
þangað sem er gott veður.“
Heilt yfir segir Bragi sumarið
hafa gengið vel þrátt fyrir leiðinlegt
veður. „Fólk er þegar búið að bóka
ferðirnar sínar hingað til Íslands
þannig það er að koma hvort sem
það er sól eða rigning.“ Starfsemi
verður í Hvernum fram að síðustu
helginni í október en þá er heilög
helgi fyrir Braga. „Það er fyrsti í
rjúpu og því missi ég aldrei af, það
er alveg heilagur tími,“ segir hann
að lokum.
glh
„Matvælastofnun hefur borist
ábending frá Býflugnaræktenda-
félagi Íslands. Stjórn félagsins hef-
ur lýst yfir áhyggjum sínum af rétt-
arstöðu býflugnabænda og vel-
ferð býflugna í tengslum við notk-
un eiturefna við eyðingu á skordýr-
um,“ segir í tilkynningu frá Mat-
vælastofnun. „Notkun eiturefna við
garðaúðun, eftirlit með slíkri starf-
semi og útgáfa starfsleyfa á því sviði
heyrir ekki undir Matvælastofnun.
Öðru máli gegnir hins vegar með
velferð býflugna. Samkvæmt lögum
um velferð dýra nr. 55/2013 hefur
Matvælastofnun eftirlit með því að
ákvæðum laganna sé framfylgt. Í 2.
gr. laganna er tekið sérstaklega fram
að lögin taki til býflugna. Matvæla-
stofnun vill að þessu tilefni vekja at-
hygli þeirra sem leyfi hafa til gar-
ðaúðunar að samkvæmt starfsleyfi
þeirra skulu þeir ávallt gæta varúð-
ar við meðferð varnarefna þannig
að ekki valdi tjóni á heilsu eða um-
hverfi utan þess svæðis sem verið er
að meðhöndla og skal leitast við að
koma í veg fyrir neikvæð umhverf-
isáhrif. Sé þess kostur skal skipta út
varnarefnum sem eru talin geta haft
í för með sér óæskileg áhrif á heilsu
manna eða skaða umhverfið utan
þess sem verið er að meðhöndla,
fyrir hættuminni varnarefni. Varn-
arefnum skal einungis dreift á þau
svæði sem meðhöndla skal.
Í starfsleyfinu kemur einnig fram
að áður en úðun hefst skuli meta
hættuna á því hvort úðinn berist
annað en honum er ætlað. Tilkynna
skal umráðendum aðliggjandi lóða
við úðunarstað fyrirfram um fyrir-
hugaða úðun. Við þetta bætist síð-
an sú hætta að hunangsframleiðsla
býflugna sem nýtt er til manneldis
getur orðið fyrir skemmdum ef bý-
flugur sem lent hafa í garðaúðun-
areitri bera það inn í búið og eitr-
ið borist þannig hugsanlega ofan í
neytendur. Hafa ber í huga að bý-
flugnabú eru nú nokkuð á annað
hundrað og er að finna víðs vegar
um landið. Matvælastofnun brýn-
ir fyrir þeim sem leyfi hafa til gar-
ðaúðunar að kanna vel hvort bý-
flugnabú eru í nágrenni við þá
garða þar sem til stendur að úða.“
mm
Nóg að gera í Hvernum á Kleppjárnsreykjum
Veitingastaðurinn hefur aldrei verið vinsælli.
Bragi Geir Gunnarsson, rekur Hverinn
á Kleppjárnsreykjum.
Freisting vikunnar
Þetta hrökkbrauð er einstaklega
einfalt að gera og gott að eiga
þessa uppskrift í skúffunni inn í
eldhúsi. Það er auðvelt og tekur
enga stund að henda í eitt heima-
bakað hrökkbrauð. Ég tala nú ekki
um þegar það koma gestir, þá er
oft skemmtilegra að bjóða upp á
eitthvað sem maður hefur búið til
sjálfur. Hrökkbrauðið er best ný-
bakað, sjálf set ég smjör og læt
það bráðna ofan á. Gott er líka
að stappa niður lárperu og smyrja
ofan á með dulitlu salti yfir fyrir
bragðlaukana.
Innihald:
1 dl sólblómafræ
1 dl hörfræ
1dl sesamfræ
1 dl graskersfræ
1dl gróft haframjöl
3 dl fínt spelt
1 tsk himalayasalt
2 dl vatn
1¼ dl olía (bragðlítil)
Aðferð:
Hitið ofninn í 180°C. Allt hrá-
efni sett saman í skál.
Deiginu er svo skipt til helminga
á tvær ofnplötur. Gott er að hafa
smjörpappír undir deiginu svo það
festist ekki við ofnplötuna. Notist
við smjörpappír til að fletja deigið
út. Skerið með pizzuskera áður en
sett er inn í ofn. Bakið í um 8-10
mínútur eða þar til fallegur litur er
kominn á hrökkbrauðið. Best bor-
ið fram volgt með smjöri.
Verði ykkur að góðu,
Sveinbjörg Stefánsdóttir
Heimabakað hrökkbrauð
Við garðaúðun á að huga
að velferð býflugna