Skessuhorn - 25.07.2018, Side 13
MIÐVIKUDAGUR 25. JÚlÍ 2018 13
m i d i . i s
FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ
20.00 OPNUNARTÓNLEIKAR
REYKHOLTSHÁTÍÐAR
Kristinn Sigmundsson, bassi
Anna Guðný Guðmundsdóttir, píanó
Ari Þór Vilhjálmsson, fiðla
Sigurður Ingvi Snorrason, klarinett
Sigurgeir Agnarsson, selló
Guðnýju Guðmundsdóttur píanóleikara þarf vart að
kynna fyrir tónleikagestum. Kristinn á stórglæsilegan
feril að baki og hefur sungið víða um heim en kemur
nú fram í fyrsta sinn á Reykholtshátíð.
Á tónleikunum flytja Kristinn og Anna Guðný, ásamt
fleiri hljóðfæraleikurum Liederkreis Op. 24 eftir
Robert Schumann, Songs of Travel eftir Ralph
Vaughan Williams og nokkur af Jónasarlögum
Atla Heimis Sveinssonar.
LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ
13.00 FYRIRLESTUR Á
VEGUM SNORRASTOFU
Dr. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir flytur fyrirlestur
um alþýðufræðimanninn Jón lærða Guðmundsson
16.00 SUMARKVEÐJA
– ÍSLENSKAR KÓRPERLUR
Guðrúnar Halldórsdóttur, flytur íslenskar kórperlur
Hildigunni Rúnarsdóttur og Emil Thoroddsen.
20.00 MOZART OG BARTÓK
Kammersveit Reykholtshátíðar flytur Dúó fyrir fiðlu
og víólu í G-dúr og Flautukvartett í C-dúr eftir W. A.
Píanókvintett í C-dúr, en hann samdi verkið
sinn á Íslandi.
SUNNUDAGUR 29. JÚLÍ
14.00 HÁTÍÐARMESSA
16.00 HÁTÍÐARTÓNLEIKAR
FULLVELDI Í 100 ÁR – ÍSLENSK
KAMMERTÓNLIST FRÁ 1918 TIL 2018
Kammersveit Reykholtshátíðar
Kynnir: Guðni Tómasson
Á efnisskrá er úrval íslenskra kammerverka frá
fullveldisárinu 1918 og fram á okkar dag eftir
Viðar, Jón Nordal, Jón Ásgeirsson, Þorkel
Guðni Tómasson útvarpsmaður kynnir efnisskrána
hundrað ár sem liðin eru frá því að Ísland varð
fullvalda ríki. Tónleikarnir eru liður í afmælis-
dagskrá vegna 100 ára fullveldis Íslands.
r e y k h o l t s h a t i d . i s
Grundarfjarðarbær
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
Starf skipulags- og byggingafulltrúa
Grundarfjarðarbær auglýsir starf skipulags- og byggingafulltrúa laust til umsóknar. Leitað er að öflugum
og metnaðarfullum einstaklingi sem er reiðubúinn að þróa starfið á traustum grunni. Skipulags- og
byggingafulltrúi ber m.a. ábyrgð á skráningu mannvirkja, úttektum, staðfestingu eignaskiptayfirlýsinga,
gjaldtöku, skráningu, varðveislu og miðlun upplýsinga um mannvirki til íbúa.
Helstu verkefni:
Framkvæmd skipulags- og byggingamála
Áætlanagerð og eftirfylgni, mælingar, úttektir og útreikningar
Undirbúningur og eftirfylgni funda skipulags- og umhverfisnefndar
Samstarf við aðila utan og innan stjórnsýslunnar að verkefnum á sviði byggingamála
Yfirumsjón framkvæmda og eignasýslu í sveitarfélaginu
Önnur verkefni
Hæfniskröfur:
Menntun og löggilding, skv. ákvæðum 8. og 25. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010 og
7. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er nauðsynleg
Þekking og reynsla af úttektum og mælingum
Þekking á lögum um mannvirki, skipulagslögum og byggingareglugerð
Reynsla af stjórnun er æskileg
Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
Hæfni í mannlegum samskiptum, góðir samstarfs- og samskiptahæfileikar
Hæfni til þess að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
Góð almenn tölvukunnátta
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Upplýsingar um starfið veita bæjarstjóri og skrifstofustjóri í síma 430 8500 eða á netföngunum
thorsteinn@grundarfjordur.is og sigurlaug@grundarfjordur.is. Umsóknir skulu sendast á ofangreind netföng.
Umsókn skal fylgja greinargóð starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og
rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Umsóknarfrestur er til 5. ágúst 2018.
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Reykhóladagar verða haldnir um
næstu helgi og venju samkvæmt er
fjölbreytt og skemmtileg dagskrá
framundan alla helgina. Fyrsti dag-
skrárliður verður bátabíó á Báta- og
hlunnindasýningunni á föstudag-
inn klukkan 12. Þá taka við land-
búnaðarleikarnir í Hvannagarða-
brekkunni og þarabolti við Álfta-
land. Um kvöldið verður unglinga-
partý á Báta- og hlunnindasýning-
unni frá klukkan 19-21 þegar Hall-
dóra Kristín Unnarsdóttir tekur við
með uppistand fyrir 18 ára og eldri.
Á laugardeginum verður dagskráin
ekki af verri endanum og upplagt
fyrir alla að taka bíltúr að Reykhól-
um. Klukkan 10 verður 100 ára af-
mælishlaup UDN þar sem hlaup-
ið verður frá Grettislaug og geta
þátttakendur valið á milli þess að
hlaupa 2, 5 eða 10 km. Fyrir þá sem
vilja hlaupa aðeins lengra verð-
ur ræst frá Bjarkalundi klukkan 9
í 15 km hlaup. Eftir hádegið verð-
ur dráttarvélakeppni og læðutog,
lúxus vöfflukaffi á Báta- og hlunn-
indasýningunni. Búast má við góðri
skemmtun fyrir yngri kynslóðina,
og jafnvel þá eldri líka, á karnivali í
Hvannagarðabrekku þar sem verða
hoppukastalar, andlitsmálning,
krakkafjör og fleira skemmtilegt.
Veltibíllinn kemur í bæinn og BMX
Bros sýnir listir sínar. Þegar líður
að kvöldmat verður pása frá hefð-
bundinni dagskrá og kveikt verð-
ur í grillinu í Hvannagarðabrekku
og er öllum velkomið að koma með
á mat og grilla saman fyrir kvöld-
vökuna sem hefst klukkan 19:30.
Ingó veðurguð verður með brekku-
söng og klukkan 21 verður barna-
ball í íþróttahúsinu. Þá stígur Ingó
veðurguð á svið ásamt A liðinu í
íþróttahúsinu og leikur fyrir dansi
um kvöldið. Hátíðinni lýkur svo
með frisbígolfmóti á sunnudags-
morgninum.
-arg
Fjölbreytt dagskrá á
Reykhóladögum