Skessuhorn - 12.09.2018, Blaðsíða 24
MIÐVIKUDAGUR 12. septeMbeR 201824
Vörur og þjónusta
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
TEK AÐ MÉR GARÐAÚÐUN ALLA DAGA VIKUNNAR
GARÐAÚÐUN REYNIS SIG
SÍMI: 899-0304
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
HÓTEL
LAXÁRBAKKI
A BRIDGE TO THE WEST
laxarbakki@laxarbakki.is
tlf. +354 551 2783
www.laxarbakki.is
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Pennagrein
Meðfylgjandi er opið bréf sem for-
maður IOGt á Íslandi sendi á Há-
skóla Íslands, Rektor Háskóla Ís-
lands, Háskólaráð, Menntamála-
ráðherra og fjölmiðla síðastliðinn
föstudag:
Nú um þessa helgi eins og und-
anfarin haust boðar stúdentaráð
til Októberfest; bjórfylleríshátíðar
innfluttrar frá suður-Þýskalandi.
Fylleríið er haldið á lóð Háskóla
Íslands, skóla allra landsmanna, þá
væntanlega með leyfi rektors og
Háskólaráðs. Drykkjuhátíðin er þó
ekki haldin í október eins og búast
má við samkvæmt nafninu heldur
nú snemma í september í lok ný-
nemaviku. Væntanlega til að auka
líkurnar á að þeir nemendur sem
eru veikir fyrir víni falli sem fyrst
úr skóla. svona eins konar núm-
erus clausus? Það má færa rök fyrir
því að það sé brot á jafnrétti að Há-
skólinn skuli svona gróflega vinna
að því að fella ákveðinn hóp fólks.
Annar hópur stúdenta og ný-
stúdenta sem fer sístækkandi er
nú aldeilis ekki boðinn velkom-
inn í Háskólann í byrjun skóla-
árs. Það eru bindindismenn. sam-
kvæmt nýjustu könnunum Rann-
sóknar og greiningar þá neyta 46%
framhaldskólanema ekki áfengis.
en þessi hópur er hvattur til að
hefja drykkju þegar stúdentaráð
stendur svona með áfengisiðnað-
inum og heldur Októberfest með
þeim óbeinu skilaboðum að þú sért
ekki alvöru háskólastúdent nema
þú neytir eiturlyfja og helst mikið
af þeim. Minnka skattbyrði? Því
áfengisiðnaðurinn (eins og aðr-
ir eiturlyfjaframleiðendur) leggur
alla áherslu á að allir smakki eitr-
ið því það hámarkar fjöldann sem
verður fíkninni að bráð og þannig
græða þeir mest. t.d. í bretlandi
þá eru það 4% sem drekka 25%
af áfenginu. Já, viðskiptamódelið
byggir á að græða sem mest á fár-
veiku fólki.
Áfengisauglýsingar eru bannað-
ar á Íslandi. stúdentaráð auglýsir
samt grimmt, t.d. á Facebook síðu
sinni, fyllrerísveisluna sína og aug-
lýsir sérstök magnafsláttar bjór-
kort til að hvetja til sem mestrar
drykkju. boðið er upp á bjór í lítra-
könnum – en áfengismagn í ein-
um lítra af 5-6% bjór er álíka og
5 til 6 skot af vodka. Þetta er það
sem á ensku er kallað binge drink-
ing, þýtt á íslensku sem lotudrykkja
en á kjarnyrtri íslensku fyllerí. Átti
ekki innleiðing bjórsins að draga úr
fylleríi? ekki hefur bjórinn dregið
úr neyslu áfengis, hún hefur auk-
ist úr 4,3 lítrum á mann í næstum
því 8 lítra.
ef til vill lítur stúdentaráð (og
Háskólaráð) á fíkniefnaneyslu, þar
á meðal áfengisneyslu, sem at-
vinnuskapandi fyrir háskólamennt-
að fólk? Meira að gera t.d. hjá fé-
lagsfræðingum, sálfræðingum, lög-
fræðingum, dómurum, hjúkrunar-
fræðingum og læknum. Og ef til
vill greiðari leið inn á þing með
stuðningi áfengisiðnaðarins? Það
er ekki einleikið að æ ofan í æ að
þingmenn nýskriðnir á þing sem
hafa ekki minnst einu orði á áfengi
í kosningabaráttu sinni skuli gera
að sínu fyrsta máli frumvarp til að
veikja áfengisforvarnir í landinu.
tóbak er líka löglegt fíkniefni
eins og áfengi en það er ekki í tísku
og stúdentaráð gerir því ekki hátt
undir höfði en hvað ef svo hörmu-
lega færi að önnur fíkniefni yrðu
gerð lögleg? Myndi stúdentaráð
þá hampa kannabis með grasveislu?
Halda kókaín- og alsælureif? setja
upp Xanex- og ritalínbása á prófa-
tíma? eða ópíumbæli í stúdenta-
kjallaranum? Háskóli Íslands hefur
lýst yfir metnaði sínum að standa í
fremstu röð í heiminum – er það
kannski sem partí háskóli?
Um 3 milljónir dauðsfalla í
heiminum á hverju ári má rekja til
áfengisneyslu, 5,9% allra dauðsfalla
- og er hún helsta dánarorsök fólks
á aldrinum 15 til 49 ára. Normið
er samt að drekka ekki áfengi, því
takið eftir: 62% fullorðinna í heim-
inum neytir ekki áfengis og því er
þessi dánartíðni mun hærri hjá
þeim sem drekka. Áfengi er krabba-
meinsvaldur – tengt 9 mismunandi
tegundum, þar á meðal brjósta-
krabbameini. Áfengi er orsakavald-
ur í yfir meira en 200 sjúkdóma- og
slysaflokkum. 30 til 40% af dauðs-
föllum í umferðinni á Íslandi eru
tengd áfengisneyslu. Áfengisneysla
er þáttur í yfir 40% af heimilisof-
beldi hér á landi. Langflest morð
á Íslandi frá stofnun lýðveldis hafa
verið framin undir áhrifum áfengis
eða annarra vímuefna.
ef þjáningar, sjúkdómar og dauði
hnika ekki dálæti stúdentsráðs á
áfengi, ef til vill peningar? Árleg
byrði samfélagsins vegna áfengis og
annarra vímuefna er yfir 120 millj-
arðar og fer hækkandi. Landlækn-
isembættið áætlar að aukin neysla
á áfengi gæti aukið þjóðfélagsleg-
an kostnað um allt 30 milljarða á
ári! Vill stúdentaráð minnka álag-
ið og minnka kostnað í heilbrigðis-
kerfinu, lögreglunni, dómskerfinu,
fangelsiskerfinu? Auka framleiðni
og gæði hjá fyrirtækjum? Minnka
skattbyrði?
Vill stúdentaráð vinna að því
að Ísland og já, heimurinn allur
nái Heimsmarkmiðum samein-
uðu Þjóðanna um sjálfbæra þróun
fyrir árið 2030? Meginmarkmiðin
eru 17 og 13 af þeim eru tálmuð af
áfengi:
engin fátækt1.
ekkert hungur2.
Heilsa og vellíðan3.
Menntun fyrir alla4.
Jafnrétti kynjanna5.
Hreint vatn og hreinlætis-6.
aðstaða
Góð atvinna og hagvöxtur7.
Aukinn jöfnuður8.
sjálfbærar borgir & sam-9.
félög
Ábyrg neysla og framleiðsla10.
Aðgerðir í loftslagsmálum11.
Friður og réttlæti 12.
samvinna um markmiðin.13.
Þarna er mikið verk að vinna og
stúdentaráð gæti hafið það með því
að hætta að þjónka áfengisiðnaðin-
um. ef ekki, þá hafa stúdentaráð,
rektor, Háskólaráð Háskóla Íslands
og menntamálaráðherra margt að
svara fyrir með þessum spellvirkj-
um á íslensku samfélagi og árásum
á íslensk ungmenni.
Áfengi er engin venjuleg neyslu-
vara. bindindi borgar sig.
Björn Sævar Einarsson, formaður
IOGT á Íslandi.
Bindindi borgar sig
sigrún elíasdóttir flytur erindi í
safnahúsi borgarfjarðar fimmtu-
daginn 13. september kl. 19.30.
erindi hennar fjallar um fantasíur,
furður í bókmenntum og afþreying-
ariðnaði, og er hluti af fyrirlestra-
röð safnahúss á árinu. „Um þessar
mundir er sprenging í vinsældum
fantasíuefnis, eða furðusagna eins
og íslenska þýðingin hljóðar upp á.
Innan furðusagna rúmast drauga-
sögur, Ódysseifskviða, Harry pot-
ter, tolkien, Köngulóarmaður-
inn, Game of thrones og allt þar
á milli. sigrún fer yfir furðusvið-
ið í máli og myndum á léttu nót-
unum. Og þar sem fantasíur eru
ekki bara fyrir börn, eru fullorðnir,
jafnt sem börn hvattir til að mæta
og eiga skemmtilega og fróðlega
kvöldstund í safnahúsinu,“ segir í
tilkynningu.
Í fyrirlestrinum verður farið yfir
upphaf fantasíunnar í ævintýrum
og goðsögum vegna þarfa fólks til
að ímynda sér hið ómögulega. Þessi
þörf hefur endurspeglast á margan
hátt en oft ekki verið hátt skrifuð af
menntafólki í samfélögum.
sigrún elíasdóttir er sagnfræð-
ingur og rithöfundur. Hún hefur
lokið MA námi í ritlist og hefur
löngum haft mikinn áhuga á ævin-
týraheimum. Hún er fædd og upp-
alin í borgarfirði og býr á Ferju-
bakka í borgarhreppi.
Fyrirlestrar safnahúss tengjast
viðfangsefnum safnanna fimm sem
í húsinu eru. Í september er alþjóð-
legur dagur læsis. Þá er bókasafns-
deginum fagnað í íslenskum bóka-
söfnum og er fyrirlestur sigrúnar
ekki síst haldinn af því tilefni. Vak-
in er athygli á að sama dag kl. 10.30
er Myndamorgunn á vegum Hér-
aðsskjalasafnsins samkvæmt fyrri
kynningu. Þar er óskað eftir aðstoð
gesta við að greina ljósmyndir.
mm/gj
Fyrirlestur um fantasíu -
furður í bókmenntum og
afþreyingariðnaði
Sigrún Elíasdóttir.
Nýr skiptinemi hefur hafið nám
í Fjölbrautaskóla Vesturlands á
Akranesi. Kemur hann hingað til
lands á vegum Rótarýklúbbs Akra-
ness. Neminn heitir elena Vallad-
ares og kemur frá Madrid á spáni.
Hennar íslensku „foreldrar“ á með-
an á dvöl hennar stendur eru sig-
urbjörn Hallsson og Mjöll bark-
ar barkardóttir. Dóttir þeirra sjöfn
sólveig er nýfarin til Ítalíu til árs-
dvalar, einnig á vegum Rótarý. Á
myndinni eru; sigurbjörn, elena
og Jens benedikt baldursson for-
seti Rótarýklúbbs Akraness.
-fréttatilkynning
Skiptinemi á vegum Rótarý