Skessuhorn - 12.09.2018, Blaðsíða 21
MIÐVIKUDAGUR 12. septeMbeR 2018 21
Þannig hljómar fyrsta ljóðlínan
í kvæði brewster M. Higley sem
Friðrik A Friðriksson þýddi á ís-
lensku fyrir margt löngu. Oft hef-
ur kvæði þetta verið verið sungið
við ólík tilefni, en lagið gerði ann-
ar ameríkani; Daniel e. Kelly sem
uppi var síðla á 19. öld. Uppruna-
legi textinn, Home on the Range,
er einatt tengdur vesturfylkjum
bandaríkjanna og er reyndar þjóð-
söngur Kansas-ríkis. sjaldan á
þetta ljóð betur við en að hausti
þegar gangnamenn halda til fjalla
og leita fjár. Meðfylgjandi mynd
tók Höskuldur Kolbeinsson í
stóra-Ási í borgarfirði í morgun-
blíðu þegar gangnamenn áðu við
Reykjavatn á Arnarvatnsheiði síð-
astliðinn fimmtudagsmorgun. ei-
ríksjökull skartaði sínu fegursta í
haustblíðunni. sjaldan hefur betur
átt við en þá niðurlag þessa fyrsta
erindis; „...Þar er vistin mér góð,
aldrei heyrðist þar hnjóð, þar er
himinninn víður og tær.“
mm
Fram í heiðanna ró
Þegar flestir bændur landsins halda
til fjalla og smala fé þá halda eyja-
bændur til hafs og heimta fé í eyj-
um og hólmum. síðastliðinn laug-
ardag héldu breiðfirskir eyjabænd-
ur út í einar sjö eyjar til að heimta
fé úr sumarbeitinni. Farið var í
blíðskapar veðri og gekk ferðin að
óskum. Að sögn kunnugra hefur
þessi háttur verið viðhafður í ald-
ir og líklega frá landnámi. eyjarnar
sem farið var í eru sellátur, Gimb-
urey, Vaðstakksey, seley, Fagurey
og Akureyjar. Meðfylgjandi myndir
tók sumarliði Ásgeirsson á laugar-
daginn og leyfum við þeim að tala
sínu máli.
sá
eyjafénu safnað og siglt í land