Skessuhorn - 19.09.2018, Qupperneq 13
MIÐVIKUDAGUR 19. SepteMBeR 2018 13
Sjúkraflutningsmaður óskast í hlutastarf
hjá sjúkraflutningum Heilbrigðisstofnunar Vesturlands
í Borgarnesi.
Um er að ræða bakvaktir og afleysingar.
Æskilegt er að viðkomandi hafa grunnmenntun sjúkraflutninga EMT-B,
ökuréttindi og aukin ökuréttindi C1 (7.500kg) (Ekki skilyrði)
Viðkomandi þarf að hafa góða líkamsburði, gott líkamlegt
og andlegt heilbrigði.
Sjálfstæð, nákvæm og skipulögð vinnubrögð.
Frumkvæði, metnað, reglu- og samviskusemi.
Konur jafnt sem karlar eru hvattar til að sækja um starfið.
Umsóknarfrestur er til 30.09. 2019.
Upplýsingar um starfið gefur:
Gísli Björnsson
Yfirmaður sjúkraflutninga hjá Heilbrigðisstofnun Vesturlands.
s. 893 1367
gisli.bjornsson@hve.is
Sjúkraflutningar
- Borgarnes
Laugardaginn 15. september síðast-
liðinn voru liðin 25 ár síðan ÍA sigr-
aði hollenska stórliðið Feyenoord í
1. umferð evrópukeppni meistara-
liða. Liðin mættust á Laugardals-
velli þennan dag árið 1993 og lauk
leiknum með 1-0 sigri Skagamanna.
Sigur ÍA á Feyenoord hefur lengi
verið talinn einn sá fræknasti sem
íslenskt félagslið hefur nokkru sinni
unnið. Fáir bjuggust við þessum úr-
slitum fyrir leikinn og vöktu þau at-
hygli um alla evrópu.
Þrumuskalli Óla Þórðar
eina mark leiksins skoraði Ólaf-
ur Þórðarson á 75. mínútu með
þrumuskalla eftir lipra skyndisókn
Skagamanna. Sigursteinn Gíslason
lyfti boltanum snyrtilega úr á Mi-
hajlo Bibercic á vinstri kantinum.
Þaðan lagði hann boltann á Harald
Ingólfsson en tók sjálfur á rás upp
kantinn. Haraldur sendi boltann í
svæði ofar á vinstri kantinum, beint
í hlaupalínu Bibercis, sem kom síð-
an með fyrirgjöfina sem sveif í átt
að vítapunktinum. Þar kom Ólaf-
ur á fleygiferð, stakk sér fram fyrir
varnarmann Feyenoord og stangaði
boltann í hornið niðri. „Það flaug
í gegnum hugann þegar sending-
in kom frá Bibercic, að setja hann
í hornið. Ég smeygði mér framhjá
varnarmanninum og hitti boltann
vel og það var gaman að sjá hann
hafna í netinu. Þetta er án efa eitt
fallegasta og mikilvægasta markið á
ferlinum,“ sagði Ólafur Þórðarson
í samtali við Morgunblaðið að leik
loknum. Sigurður Jónsson tók undir
það með liðsfélaga sínum. „Við lék-
um vel í fyrri hálfleik og létum þá
boltann ganga en það gekk ekki al-
veg eins vel í þeim seinni, eða þar til
þetta líka mark kom - þvílíkt mark
frá minnsta leikmanninum á vell-
inum. Annars er Óli búinn að vera
að gera þetta á æfingum svo þetta
kom ekkert á óvart,“ sagði Sigurð-
ur og hló.
„Hneyksli“ sögðu hol-
lenskir fjölmiðlar
Hollenskir fjölmiðlar fóru ófögrum
orðum um frammistöðu Feyeno-
ord í leiknum gegn ÍA. Hollensku
meistararnir voru þá taplausir á
tímabilinu, þar til á Laugardals-
velli. „Hneyksli að 11 ólaunað-
ir leikmenn í pínulitlu félagi á Ís-
landi vinni besta knattspyrnulið
Hollands,“ sagði í einu blaðanna.
„Skagamenn léku mjög vel og miklu
betur en við bjuggumst við. Það er
ótrúlegt að þessir leikmenn skuli
vera áhugamenn. Það eru marg-
ir góðir leikmenn í liðinu sem ráða
yfir góðri knatttækni,“ sagði errol
Refus, hægri bakvörður Feyenoord,
í samtali við Morgunblaðið.
tvíburarnir Arnar og Bjarki
Gunnlaugssynir frá Akranesi höfðu
gengið í raðir Feyenoord frá ÍA árið
áður og Arnar spilaði fyrir Feyeno-
ord í leiknum á Laugardalsvelli.
„Skagamenn spiluð mjög vel og
náðu að loka vel svæðum Ég fékk
ekki mikið rými á kantinum,“ sagði
Arnar í samtali við Morgunblaðið
eftir leik. „Mér leið mjög undarlega
í leiknum. Það var skrýtið að leika
gegn sínum gömlu félögum. Satt að
segja vissi ég stundum ekki hvort ég
væri að fara eða koma.“
„Hafði allan tímann á
tilfinningunni að við
værum betri“
Á þessum tíma voru Skagamenn
með feykilega öflugt lið, líklega eitt
af þeim sterkustu sem teflt hefur
verið fram hérlendis fyrr og síðar
og þeir fóru í alla leiki til að vinna.
„Hugarfarið í liðinu á þessum tíma
var þannig að við trúðum því ekki
að við gætum tapað leikjum,“ sagði
Sigursteinn Gíslason í viðtali um
leikinn sem birtist árið 2011. Sigur-
steinn lék afar vel í leiknum gegn
Feyenoord og var einn af bestu
mönnum vallarins. „Ég hafði það
allan tímann á tilfinningunni að við
værum betri. Baráttan var mikil í
liðinu og þeir náðu sjaldan að skapa
sér færi,“ sagði Lúkas Kostic, fyrir-
liði ÍA í leiknum. „Við lékum okkar
bolta og bárum enga virðingu fyrir
þeim. Það þarf kjark og sjálfstraust
í svona leik og við höfðum það,“
sagði Guðjón Þórðarson, þjálfari
Skagamanna kampakátur í samtali
við Morgunblaðið eftir leik.
Tap í seinni leiknum
Hollandsmeistarar Feyenoord
sýndu mátt sinn og megin í síðari
leik liðanna í Rotterdam og unnu
öruggan 3-0 sigur sem fleytti þeim
áfram í næstu umferð keppninn-
ar. ÍA féll þar með úr leik en með
mikilli sæmd. Yfir þúsund Íslend-
ingar mættu á völlinn í Rotter-
dam og vakti það mikla athygli. „Ís-
lensku stuðningsmennirnir sköp-
uðu frábæra stemningu í bænum og
komu Hollendingum á óvart. Það
átti enginn von á svona frá litla Ís-
landi,“ sagði Sigursteinn Gíslason
um síðari leikinn.
kgk
Menntunar- og hæfniskröfur:
Þroskaþjálfa- eða iðjuþjálfamenntun
Reynsla af starfi með fötluðum
Góðir skipulagshæfileikar
Hæfni í mannlegum samskiptum
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
Sér um stjórnun, áætlanagerð og rekstur
Öldunnar
Ber ábyrgð á innra starfi,
starfsmannamálum og samskiptum við
aðstandendur og samstarfsaðila
Ber ábyrgð á starfs-, þjónustu- og
rekstraráætlunum
Veitir leiðsögn til starfsmanna og
leiðbeinenda
Ber ábyrgð á samvinnu við ýmsar
stofnanir og sérfræðinga sem tengjast
Öldunni
Forstöðumaður Öldunnar, Borgarnesi
Borgarbyggð auglýsir lausa til umsóknar 100% stöðu
forstöðumanns Öldunnar, verndaðs vinnustaðar í
Borgarnesi. Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi með
brennandi áhuga á málefnum fatlaðra.
Aldan starfar samkvæmt lögum um málefni fatlaðs fólks
nr. 59/1992, reglugerðum þeim tengdum og sáttmála
Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðra. Þar er komið til
móts við þörf fatlaðs fólks á dagþjónustu, vinnu og
hæfingu. Aldan rekur dósamóttöku, verslun, saumastofu,
kertagerð ofl. og sér um pökkun, límmerkingar á alls kyns
varningi fyrir stofnanir og fyrirtæki ásamt öðrum tilfallandi
verkefnum.
Upplýsingar veitir Inga Vildís Bjarnadóttir félagsmálastjóri,
sími 433-7100 á vildis@borgarbyggd.is
Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil
sendist Borgarbyggð á borgarbyggd@borgarbyggd.is
Umsóknarfrestur er til 1. október 2018.
Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands
íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
BORGARBYGGÐ
[Cite your source here.]
Aldarfjórðungur síðan
ÍA lagði Feyenoord
Skagamennirnir Arnar Gunnlaugsson og Sturlaugur Haraldsson eigast við í leik ÍA
og Feyenoord á Laugardalsvelli 15. september. Ljósm. KFÍA.
Ólafur Þórðarson í þann mund að stanga boltann í netið og tryggja ÍA frækinn
sigur á hollensku meisturunum. Ljósm. KFÍA.
Minnum á óbreyttan skilafrest auglýsinga
Auglýsingar í Skessuhorn þurfa að berast í síðasta lagi á hádegi á
þriðjudögum á netfangið auglysingar@skessuhorn.is.
Auglýsendum er einnig bent á heimasíðuna
www.skessuhorn.is þar sem boðið er
upp á helstu stærðir vefborða.
Nánari upplýsingar í síma 433-5500.