Skessuhorn - 10.10.2018, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 10. OKTÓBER 20182
hvet þá sem hafa áhuga að nýta sér
tækifærið og sækja um á meðan þessi
valmöguleiki er fyrir hendi,“ sagði
Sævar.
Eins og áður hefur komið fram
er það verktakafyrirtækið Modulus
sem mun annast bygginguna fyrir
Bjarg og arkitekt húsanna er Svava
Björg Jónsdóttir. Hagsýni er höfð að
leiðarljósi við hönnun íbúðanna til
að halda leiguverði lágu, enda Bjargi
ætlað að skapa tekjulægri hópum
gott og öruggt leiguhúsnæði. Til að
halda leiguverði lágu er meðal ann-
ars horft til fermetrafjölda. Íbúð-
irnar sem Bjarg byggir á Akranesi
verða 40,4 fermetra stúdíóíbúðir, 52
fermetra tveggja herbergja íbúðir,
77 fermetra þriggja herbergja íbúð-
ir og 93 fermetra fjögurra herbergja
íbúðir.
Gert er ráð fyrir að afhending
íbúðanna til leigutaka verði í tvennu
lagi næsta sumar; 1. júní annars veg-
ar og 1. júlí hins vegar. Akranes-
kaupstaður mun fá 25% íbúðanna til
ráðstöfunar, samkvæmt samkomu-
lagi bæjaryfirvalda við íbúðafélagið
Bjarg. kgk
Um næstu helgi, 12.-14. október, verð-
ur stór og vegleg landbúnaðarsýning
haldin í Laugardalshöllinni í Reykjavík.
Markmiðið með sýningunni er að kynna
íslenskan landbúnað og leiða saman
fyrirtæki og einstaklinga sem starfa í at-
vinnugreininni. Sjá nánar um sýninguna
í blaðinu.
Mjög breytilegt veður verður næstu
daga. Á fimmtudaginn gengur í aust-
an 13-20 m/s, hvassast verður með suð-
vesturströndinni. Rigning verður víða
um land en slydda eða snjókoma til
fjalla í fyrstu. Hlýnandi veður, hiti 6-13
stig síðdegis. Suðlægari um kvöldið,
dregur úr vindi og þurrt norðanlands.
Á föstudaginn verður austan 5-10 m/s,
skýjað og þurrt að kalla, en hægari og
bjart norðan til. Gengur í norðan 10-18
m/s um kvöldið með rigningu um land-
ið austanvert. Hiti 3-8 stig. Á laugardag-
inn er útlit fyrir norðvestan 8-13 m/s á
norðanverðu landinu með rigningu við
sjóinn, en slyddu eða snjókomu inn til
landsins. Hægari vindur og bjartviðri
sunnan til. Hiti frá frostmarki í innsveit-
um fyrir norðan, upp í 8 stig með suð-
austurströndinni. Lægir víða um kvöldið
með þurru veðri og kólnandi. Á sunnu-
dag og mánudag verður fremur hæg
suðlæg átt og dálitlir skúrir sunnan-
lands, en þurrt í öðrum landshlutum.
Hiti 2-7 stig. Útlit er fyrir að það verði
yfirleitt þurrt á landinu og bjart með
köflum á mánudag.
Í síðustu viku var spurt „Hversu lengi á
dag notarðu tölvu og/eða síma að jafn-
aði?“ Langflestir játuðu á sig „0-2 tíma“
notkun, eða um 30% svarenda. Næst-
flestir sögðust eyða „3-4 tímum“ í tækj-
unum eða 25%. 11% sögðust nota tölvu
eða síma í „9-10 tíma“ og í „5-6 tíma“.
9% nota tækin í „7-8 tíma“ og 7% sögð-
ust nota tækin í „13 tíma eða meira“. 5%
svarenda sögðust nota tölvu eða síma í
„11-12 tíma“. Aðeins 2% sögðust „eigin-
lega ekkert“ nota tölvu eða síma.
Í næstu viku er fólk
boðið að botna málshátt.
Guðrún Emelía Daníelsdóttir eða Gunna
Dan eins og flestir þekkja hana er Vest-
lendingur vikunnar að þessu sinni. Hún
safnaði rúmum 1,2 milljónum króna til
styrktar forvarnarstarfi sem Minningar-
sjóður Einars Darra stendur fyrir með
Spinninghópnum sínum, Spinnigal í
Borgarnesi.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Veðurhorfur
Vestlendingur
vikunnar
Tilboð opnuð í
lagningu
ljósleiðara
Hjá Ríkiskaupum voru í gær
opnuð tilboð í lagningu ljós-
leiðara í dreifbýli Borgar-
byggðar. Þrjú tilboð bár-
ust og kom hæsta tilboð-
ið frá Þjótanda ehf. að upp-
hæð 1.127.938.710 krón-
ur. Næsthæsta tilboðið átti
Borgarverk ehf. að upp-
hæð 1.032.904.586 krónur.
Lægsta tilboðið kom frá SH
Leiðaranum ehf. og hljóð-
aði það upp á 774.861.244
krónur. Um er að ræða eitt
stærsta verkefni í ljósleiðara-
lagningu í dreifbýli á Íslandi.
Eins og fram hefur komið í
frétt Skessuhorns fól sveitar-
stjórn Borgarbyggðar Ríkis-
kaupum að hafa umsjón með
gerð útboðsins. -arg
Með alltof
þunga kerru í
eftirdragi
VESTURLAND: Lögregl-
an á Vesturlandi hafði í lið-
inni viku afskipti af öku-
manni bifreiðar með kerru í
eftirdragi í þann mund sem
henni var ekið út á Snæ-
fellsnesveg. Vakti athygli
lögreglumanna að bifreið-
in virtist láta illa að stjórn.
Stórt og mikið timburbúnt
var á kerrunni, óbundið og
stóð langt aftur af henni. Þar
að auki var kerran ljóslaus og
óskráð. Að sögn lögreglu var
kerran tekin og vigtuð, en
um venjulega fólksbílakerru
var að ræða. Þær mega bera
750 kg. En þessi kerra vigt-
aði hvorki meira né minna
en 1.600 kg, eða 850 kg yfir
leyfilegri hámarksþyngd.
Mjög há sekt er við brotum
af þessu tagi, að sögn lög-
reglu. Fimm ökumenn voru
stöðvaðir í umdæmi LVL
í liðinni viku grunaðir um
akstur undir áhrifum fíkni-
efna. Að öðru leyti var vikan
fremur tíðindalítil að sögn
lögreglu, en þó alltaf nóg að
sýsla við eftirlit og annað.
-kgk
Leikskólinn
Klettaborg
40 ára
BORGARNES: Leikskól-
inn Klettaborg í Borgar-
nesi verður fjörutíu ára 11.
október næstkomandi. Starf-
semi í húsinu hófst 11. októ-
ber 1978. Börn og starfsfólk
leikskólans hafa í samein-
ingu skipulagt afmælisdag-
inn og verður skemmtun all-
an daginn. Foreldrar og aðr-
ir velunnarar eru velkomnir í
heimsókn til að þiggja veit-
ingar í leikskólanum milli kl.
15 og 16. -klj
Úrskurðarnefnd umhverfis- og
auðlindamála kvað upp þann úr-
skurð 21. september síðastliðinn að
fella skuli úr gildi ákvörðun bygg-
ingafulltrúans í Borgarbyggð frá 3.
ágúst 2017 þar sem hann samþykkti
umsókn um byggingarleyfi til að út-
búa þrjár stúdíóíbúðir á neðri hæð
Egilsgötu 6 í Borgarnesi og breyta
annarri hæð hússins. Mál þetta á sér
langa forsögu. Það var Ikan ehf.,
eigandi húseignarinnar að Borgar-
braut 4, sem kærði ákvörðun bygg-
ingafulltrúa á sínum tíma og krafð-
ist þess að ákvörðun hans yrði felld
úr gildi. Í niðurstöðum úrskurð-
arnefndar er málið reifað ítarlega
og m.a. vísað í þann ágalla á af-
greiðslu byggingarleyfis að meira
en ár hefði liðið frá því grenndar-
kynning fór fram þar til byggingar-
leyfi var gefið út. Á grundvelli þess
var byggingarleyfi fellt úr gildi. Nú
hefur verið ákveðið að umhverf-
is- og skipulagssvið Borgarbyggð-
ar mun taka málið til meðferðar á
nýjan leik og framkvæma grennd-
arkynningu til undirbúnings nýju
byggingarleyfi.
Málið var tekið fyrir á fundi um-
hverfis-, skipulags- og landbúnað-
arnefndar Borgarbyggðar 28. sept-
ember síðastliðinn. Þar var lögð
fram endurnýjuð umsókn eigenda
beggja hæða í húseigninni Eg-
ilsgötu 6 þar sem farið er fram á
byggingarleyfi til að „breyta íbúð-
arhúsi og geymslu á lóð nr. 6 við
Egilsgötu, í þrjár studíóíbúðir á
1. hæð og eina íbúð á 2. hæð með
breytingum, samkv. meðf. teikn.
dags. 05.02.2013 frá Ragnari Má
Ragnarssyni byggingarfr. Akra-
nesi. Ásamt afstöðumynd. Stærðir
óbreyttar,“ eins og segir í bókun
nefndarinnar, sem jafnframt sam-
þykkti: „Umhverfis-, skipulags- og
landbúnaðarnefnd samþykkir að
málið fari í grenndarkynningu og
felur Umhverfis- og skipulagssviði
að kynna nágrönnum sem hags-
muna eiga að gæta, fyrirhugaða
framkvæmd bréflega. Hagsmuna-
ðilar hafa fjögurra vikna frest til að
gera skriflegar athugasemdir. Að
þeim tíma liðnum mun umhverfis-,
skipulags- og landbúnaðarnefnd
taka afstöðu til athugasemda og
gefa umsögn um athugasemdir til
sveitarstjórnar.“
Jafnframt kvað úrskurðarnefndin
upp þann úrskurð í öðru málsnú-
meri 21. september að Borgar-
byggð skuli án ástæðulauss drátt-
ar, afgreiða beiðni Ikan ehf. um
aðgang að öllum gögnum vegna
fyrrgreindrar afgreiðslu bygginga-
fulltrúans og veiti kæranda þau
gögn sem hann krafðist. Þar fór
Ikan fram á að fá afrit; „allra bréfa
og tölvupósta, sem og upplýsingar
um öll skráð samskipti sveitarfélags-
ins við eigendur áðurnefnds gisti-
húss, frá ársbyrjun 2013 til október
2017. Jafnframt var farið fram á af-
hendingu sambærilegra upplýsinga
sem tengdust samskiptum sveitar-
félagsins við atvinnuvega- og ný-
sköpunarráðuneytið vegna kæru á
rekstrarleyfi gistihúss.“ Í viðtali við
Gunnlaug A Júlíusson sveitarstjóra
kom fram að umbeðin gögn hefðu
verið send fyrirspyrjanda 31. októ-
ber 2017. Þau hafi verið send á nýj-
an leik sem og til Úrskurðarnefnd-
ar umhverfis- og auðlindamála. Úr-
skurðarnefndin vísaði öðrum hluta
kærumálins frá. mm
Byggingarleyfi fellt úr gildi
og málið tekið upp að nýju
Egilsgata 4 og 6 í Borgarnesi. Ljósm. arg.
Fyrsta skóflustungan að íbúðum
sem Bjarg íbúðafélag byggir á Akra-
nesi var tekin síðastliðinn fimmtu-
dagsmorgun. Íbúðirnar verða 33
talsins og munu rísa við Asparskóga
12, 14 og 16.
Við skóflustunguna voru saman
komnir fulltrúar Akraneskaupstað-
ar, Bjargs íbúðafélags, verkalýðs-
hreyfingarinnar og Modulusar. Allir
sem kváðu sér hljóðs áður en skóflu
var stungið í jörð lýstu ánægju sinni
með verkefnið, undirbúning þess
og ekki síst að framkvæmdir væru
nú formlega hafnar. Opnað var fyr-
ir umsóknir um íbúðirnar um miðj-
an síðasta mánuð og fjölmargir hafa
þegar sótt um. Sævar Freyr Þráins-
son, bæjarstjóri á Akranesi, sagði
ánægjulegt hve vel verkefninu hefði
verið tekið. „Ánægjulegt er að vita
að umsóknir séu orðnar 81 talsins
um húsnæði við Asparskóga á Akra-
nesi og það er greinilegt að vel er
tekið í þennan nýja búsetukost. Ég
Framkvæmdir hafnar við leigíbúðir
Bjargs á Akranesi
Fyrsta skóflustungan tekin að leiguíbúðum Bjargs íbúðafélags við Asparskóga á Akranesi.
Teikning að Asparskógum 12. Ljósm. aðsend.