Skessuhorn


Skessuhorn - 10.10.2018, Blaðsíða 6

Skessuhorn - 10.10.2018, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 10. OKTÓBER 20186 Meiri umferð í september LANDIÐ: Umferðin á Hringveginum í nýliðnum septembermánuði jókst um tæp sex prósent sem er töluvert meira en með- altalsauking september- mánaða frá því árið 2005. Aukningin er hins vegar töluvert minni en hún hef- ur verið nýliðin ár. Um- ferðin jókst mest á Suður- landi, eða um 10,5%, en hún dróst saman um 2,1% á Norðurlandi. Á Vest- urlandi jókst umferð um 3,1% í mánuðinum, en til samanburðar jókst hún um 7% milli septembermán- aða 2016/17. Það sem af er ári hefur umferðin á lands- vísu aukist um 4,4%. -mm Innkalla Ora fiskbúðing í dósum LANDIÐ: Matvælastofn- un vekur athygli neytenda á innköllun á Ora fiskbúð- ingi vegna galla í dósum. Ora hefur innkallað fram- leiðslulotur með tveimur „best fyrir“ dagsetning- um, í samvinnu við Heil- brigðiseftirlit Hafnarfjarð- ar- og Kópavogssvæðis. Innköllunin nær til eftir- farandi vöru: Vöruheiti: Ora Fiskbúðingur í 1/1 dós (855 grömm), strika- merki: 5690519000032 og lotunúmer L1C1561, L1C1562, L1C1563, L1C1071, L1C1072. Var- an er merkt best fyrir: 17.04.2022 og 06.06.2022. „Neytendum sem keypt hafa Ora fiskbúðing með þessum lotunúmerum er bent á neyta hans ekki. Neytendur geta skilað vör- unni til ÍSAM, Tunguhálsi 11, 110 Reykjavík eða haft samband við gæðastjóra Ora í síma 522 2770 eða á netfangið helgam@ora.is.“ -mm Opinn fundur um sjávarútvegs- mál SNÆFELLSBÆR: Hald- inn verður opinn fund- ur um sjávarútvegsmál með Kristjáni Þór Júlíus- syni sjávarútvegsráðherra á Hellissandi á morgun, fimmtudaginn 11. október. Fundurinn verður hald- inn í félagsheimilinu Röst á Hellissandi og hefst kl. 20:00. -kgk Hreystigarður fyrir fullorðna AKRANES: Bæjarráð Akra- neskaupstaðar samþykkti á fundi sínum sl. fimmtudag að settur verði upp hreystigarð- ur fyrir fullorðna á Langa- sandssvæðinu. Verður garð- urinn fyrir neðan Akranes- höllina. Hreystigarðurinn verður útbúinn átta líkams- ræktartækjum með gervi- gras sem undirlag og gróð- ur í kring til skjól- og rýmis- myndunar. Sömuleiðis verða sett upp upplýsingaskilti sem sýna m.a. hvernig nota megi tækin til fjölbreyttar líkams- ræktar. Tækin sem sett verða upp í hreystigarðinum koma frá danska fyrirtækinu Nor- well og eru sérstaklega ætl- uð til heilsueflingar utan- dyra. Fyrirtækið hefur m.a. sett upp sambærilega garða í Reykjavík og Kópavogi. Tækin eru vottuð og pó- lýhúðuð með hertu gúmmíi sem kemur í veg fyrir að þau ryðgi eða festist. Heildar- kostnaður við uppsetningu hreystigarðsins er um sex milljónir króna. -kgk Mjólkurbíll bilaði HVALFJ: Síðdegis á föstu- daginn þurfti að loka fyr- ir umferð um Hvalfjarðar- göngin. Ástæðan var sú að mjólkurbíll bilaði í göng- unum og var umferð stöðv- uð þar til búið var að koma bílnum út. Töluverðar bið- raðir mynduðust, enda er föstudagssíðdegi einn um- ferðarþyngsti tíminn. -mm Byggðarráð Borgarbyggðar er nú í fyrsta sinn aðeins skipað konum. Það eru þær Lilja Björg Ágústsdóttir, for- seti sveitarstjórnar og oddviti Sjálf- stæðisflokksins, Halldóra Lóa Þor- valdsdóttir, oddviti Vinstri hreyfing- arinnar græns framboðs og formað- ur byggðarráðs, og Guðveig Anna Eyglóardóttir oddviti Framsóknar- flokksins sem skipa ráðið. Blaðamað- ur Skessuhorns leit við hjá þeim að loknum byggðarráðsfundi síðastlið- inn fimmtudag þar sem fjórða kon- an sat sem áheyrnafulltrúi, María Júlía Jónsdóttir úr Samfylking- unni. „Magnús Smári Snorrason er áheyrnafulltrúi en hann komst ekki á fund núna. Við erum því venjulega með einn karlmann við borðið auk okkar,“ segir Lilja og brosir. Góð samvinna snýst ekki um að vera alltaf sammála Aðspurðar hvernig samstarfið gangi brosa þær allar og horfa hver á aðra áður en þær segja samhljóma að það gangi mjög vel. „Samvinnan er mjög góð þó svo við séum vissulega ekki alltaf sammála. Góð samvinna snýst heldur ekki um að vera alltaf sam- mála,“ segir Halldóra Lóa og Lilja og Guðveig taka undir. „Þetta snýst fyrst og fremst um að geta virt skoð- anir annarra og að taka það ekki nærri sér þó aðrir séu ekki alltaf sammála,“ segir Guðveig og bætir því við að stundum komi smá ágreiningur og þá sé mikilvægt að geta tekist á án þess að taka því persónulega. „Við verðum að geta tekist smá á um málefnin, til þess erum við hér,“ segir hún og bros- ir. „Þegar við göngum svo hér út úr húsi erum við allar góðar vinkonur,“ segir Lilja og bætir því við að henni þyki mikilvægt að geta skilið pólitík- ina eftir í vinnunni. „Allir sem fara í pólitík verða að geta tekist aðeins á en það er líka mikilvægt að vera til- búin að setja sig vel inn í málefnin og hlusta á aðra með opnum huga, jafn- vel þó viðkomandi sé pólitískur and- stæðingur,“ segir Guðveig. „Lang- flest sem við gerum hér í byggðarráði hefur líka ekkert með flokkspólitík að gera. Við erum allar hér til að vinna fyrir íbúa Borgarbyggðar og ég veit fyrir víst að allar viljum við gera okk- ar besta, þó við séum ekki alltaf sam- mála um hvað það sé,“ bætir Lilja við og brosir. Skiptir aldur kvenna meira máli en karla? Aðspurðar hvort þær hafa orðið varar við einhverja óánægju í samfélaginu með að það sé enginn karlmaður í byggðarráði neita þær því. „Sjálf er ég mjög hlynnt því að við reynum alltaf að hafa kynjahlutföll sem jöfnust en stundum hittir bara svona á. Þetta er bara partur af lýðræðinu en núna hittist þannig á að í þremur framboð- um af fjórum voru konur í oddvita- sæti,“ segir Halldóra Lóa. En hvern- ig hefur þeirra upplifun sem konur í pólitík almennt verið? „Eitt sem ég tók eftir um leið og ég fór að blanda mér í pólitíkina var hvernig aldur kvenna virðist skipta meira máli en aldur karla. Á þessum tíma var ég 38 ára og þá var talað um að ég væri svo ung stelpa í pólitík. Karlkyns jafn- aldrar mínir voru samt aldrei sagð- ir vera neitt áberandi ungir og ég heyri ekki oft talað um karlmenn í pólitík sem stráka,“ segir Guðveig og Halldóra Lóa og Lilja taka und- ir. „Ég hef líka oft fengið spurning- ar út í fjölskylduhagi, hversu mörg börn ég eigi og hvernig ég nái að samræma pólitík og fjölskyldulíf. Ég er ekki viss um að karlmenn í pólitík fái sambærilegar spurningar,“ bætir Halldóra Lóa við. arg Byggðarráð skipað konum Lilja Björg Ágústsdóttir, Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir, Guðveig Anna Eyglóardóttir og María Júlía Jónsdóttir að loknum byggðarráðsfundi síðastliðinn fimmtudag. www.skessuhorn.is

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.