Skessuhorn


Skessuhorn - 10.10.2018, Blaðsíða 14

Skessuhorn - 10.10.2018, Blaðsíða 14
MIÐVIKUDAGUR 10. OKTÓBER 201814 Síðdegis á fimmtudaginn kom upp eldur í bílaleigubíl sem er- lendir ferðamenn óku á Snæfells- nesvegi, á móts við Rauðkolls- staði í Eyja- og Miklaholtshreppi. Vegfarandi sem kom að slökkti eldinn sem þá logaði upp undan vélarhlíf bílsins. Fólkið komst út af sjálfsdáðum og náði auk þess að forða farangri sínum úr reykj- arkófinu. Slökkvilið var kallað út vegna brunans. þa Eldur kom upp í bíl ferðafólks Á bænum Stað í Reykhólasveit voru ábúendur önnum kafnir að sinna hefðbundnum haustverkum á bæn- um þegar blaðamaður Skessuhorns renndi þar í hlað síðastliðinn föstu- dag. Rebekka Eiríksdóttir bóndi tók á móti blaðamanni og bauð inn í kaffi. Þar sátu foreldrar hennar, þau Eiríkur Snæbjörnsson og Sigfríð- ur Magnúsdóttir, og skömmu síðar kom einnig Kristján Þór Ebeneser- son, maður Rebekku og settist móti blaðamanni. Erindið með heim- sókninni var að ræða nýjan Vest- fjarðaveg um Gufudalssveit en end- anleg staðsetning á veginum hefur enn ekki verið ákveðin. Nokkuð hef- ur verð tekist á í sveitarfélaginu um staðsetningu vegarins en Vegagerð- in hefur sagt svokallaða ÞH-leið vera vænlegasta kostinn. Þá myndi vegur- inn liggja frá Bjarkalundi áleiðis um Teigsskóg í átt að Skálanesi. Ekki ríkir algjör sátt um þá leið m.a. því Teigsskógur nýtur náttúruverndar. Sveitarstjórn Reykhólahrepps leit- aði því til norsku verfræðistofunn- ar Multiconsult eftir óháðu mati um hvar best væri að leggja framtíðar- veg til Vestfjarða. Niðurstöður voru kynntar á íbúafundi í sumar og var þar settur fram nýr möguleiki, svo- kölluð R-leið. Ef sú leið verður farin mun vegurinn liggja framhjá Reyk- hólum út Reykjanesið og Þorska- fjörður þveraður með brú og land- fyllingu. Ábúendur á Stað og ná- grannar þeirra, þau Ása Stefánsdóttir og Þórður Jónsson í Árbæ, hafa mót- mælt því að þessi leið verði farin. Tapa mikilvægum hlunnindum Í tillögu Multiconsult er gert ráð fyrir að vegurinn fari í gegnum fjór- ar bújarðir; Stað og Árbæ á Reykja- nesi og Berufjörð og Skáldstaði innst í Berufirði. Allar jarðirnar eru nýtt- ar og þar af eru þrjár í eigu Staðar- bænda en Berufjörð og Skáldstaði eiga þau ásamt föðurbræðrum Krist- jáns. „Þetta kemur mjög illa við okk- ur. Við nýtum allar þrjár jarðirnar að fullu svo ef vegurinn yrði lagður þvert yfir þessar jarðir væri það mik- ið varanlegt tjón fyrir okkur,“ segir Kristján. „Ofan á það eigum við enn aðra jörð hér innar í Þorskafirði sem við nýtum í þangslátt. Ef brúin yrði ekki bátgeng myndum við líka missa hlunnindi þar,“ bætir Rebekka við. Fyrst var gert ráð fyrir að vegurinn yrði lagður þvert yfir túnin á Stað en þegar því var mótmælt var lagt til að færa veginn nær sjó. „Þá erum við að tala um að leggja veginn þvert yfir æðavarpið,“ segir Rebekka. „Þar eru mikilvæg hlunnindi sem við nýtum ásamt bændum í Árbæ,“ bætir hún við. „Að skemma votlendi er óafturkræft“ „Manni sárnar að sveitarfélagið sé tilbúið að fórna okkur með þess- um hætti. Og svo hafa þau kallað þessa R-leið sáttaleið og oddviti hef- ur komið fram í sjónvarpsviðtali þar sem hann talar eins og almenn sátt ríki um þessa tillögu. Hann minn- ist ekki einu orði á okkar aðstæður og þá fórn sem við þyrftum að færa ef vegurinn færi hér yfir,“segir Re- bekka. „Svo ekki sé talað um þá um- hverfisspillingu sem hlýst af því að leggja veginn yfir votlendi og æða- varp,“ bætir Eiríkur við en einnig er gert ráð fyrir að vegurinn muni liggja yfir votlendi með tilheyrandi fuglalífi. „Ég skil bara ekki af hverju er verið að hafa áhyggjur af nokkr- um birkihríslum en á sama tíma sjá menn ekkert að því að spilla vot- lendinu. Þú getur plantað birki- trjám hvar sem er og búið til nýtt kjarr. Að skemma votlendi er óaft- urkræft,“ segir Eiríkur og Rebekka tekur undir. „Það skal allt vera lagt undir til að fá þennan veg hér framhjá Reykhólum og það er allt gert til að sannfæra fólk um að þessi leið sé ekki aðeins hagkvæmust heldur líka alveg gallalaus,“ segir Rebekka. „Já, Multiconsulant hef- ur eflaust sett heimsmet þegar þessi úttekt var gerð. Samkvæmt þeim virðist enginn galli vera við þessa R- leið og ég efast um að það hafi tekist áður,“ bætir Kristján við. Minni hagsmunir víkja fyrir meiri Eftir að tillaga Multiconsult var kynnt fóru Staðar- og Árbæjarbænd- ur á fund með oddvita sveitarstjórn- ar. „Þar sagði oddviti við okkur að minni hagsmunir yrðu að víkja fyr- ir meiri og átti sú réttlæting bara að nægja okkur. Það var augljóst að við og okkar atvinna og heimili væru minni hagsmunir og við eigum bara að vera tilbúin að fórna okkur fyrir heildina,“ segir Rebekka og Kristján tekur undir. „Þó hefur aldrei nein alvöru úttekt verið gerð á því hvað íbúar á Reykhólum vilja og því ekk- ert víst að það séu hagsmunir heild- arinnar að vegurinn fari hér í gegn. Fyrir okkur er eins og sveitarstjórn hafi pantað þessa niðurstöðu hjá Multiconsult og það með pening- um sem fengnir voru hjá Hagkaups- bræðrum,“ bætir Kristján við. „Sveit- arstjórn vill augljóslega fá veginn hér í gegn og engu máli skiptir hvað íbú- ar vilja eða hver fórnarkostnaðurinn er,“ segir Rebekka og bætir því við að þau hafi fundið mikinn stuðning íbúa á Reykhólum. „Það vilja ekkert allir íbúar á Reykhólum fá veginn í túnjaðarinn hjá sér,“ segir hún. Geta ekki haldið sama bústofni Á Stað eru um 700 ær og 20 mjólk- andi kýr og segir Kristján það út- séð að ef jarðirnar þrjár verði lagð- ar undir veginn geti þau ekki haldið sama bústofni. „Við fullnýtum þess- ar jarðir og getum ekki haldið áfram svona ef við getum ekki heyjað þetta allt og missum beitiland. En það virðist ekki skipta neinu máli,“ segir Kristján. Aðspurð hvort þau ætli sér að berjast gegn því ef ákveðið verður að fara þessa leið játa þau því. „Vissu- lega munum við ekki gefast upp en okkur þykir leitt að þurfa að eyða sauðfjárinnlegginu í lögfræðinga til að berjast við sveitarfélagið sem er styrkt af auðmönnum. En ég tel það nokkuð ljóst að við neyðumst til þess, allavega ef marka má orð odd- vita. Hann kom fram í sjónvarpsvið- tali í gærkvöldi [síðastliðið fimmtu- dagskvöld] þar sem hann virtist sannfærður um að framkvæmdir við R-leið gætu hafist strax á næsta ári,“ segir Rebekka. „Í allri umfjöll- un sveitarstjórnar er ekki haft hátt um að ef R-leið verður farin verður hún annað hvort 4 eða 7 kílómetr- um lengri en ef ÞH-leið verður fyrir valinu. Auk þess sem ekki er gert ráð fyrir kostnaði við lagfæringu á veg- inum inn að Reykhólum en Multi- consult fullyrti að ekki þyrfti að gera neitt við þann veg strax. Vegagerð- in hefur þó áður sagt að vegurinn sem er þar núna muni ekki ráða við þessa auknu umferð,“ segir Kristján og bætir því við að þau bindi vonir við að Vegagerðin geri góða úttekt á R-leið og komi þá með raunhæft kostnaðarmat. „Kostnaðurinn sem Multiconsult setur fram getur ekki staðist, við trúum því ekki. Vonandi kemur annað hljóð í mannskapinn þegar Vegagerðin hefur klárað sína úttekt.“ Upplifa þetta sem árás sveitarstjórnar „Okkur þykir afskaplega undarlegt hvernig sveitarstjórn hefur farið fram í þessu máli síðan tillaga Multi- consult var kynnt í sumar. Vegagerð- in á enn eftir að koma fram með sína skýrslu svo það er ástæðulaust fyrir sveitarstjórn að taka afstöðu strax. Fyrir okkur er þetta eins og árás sveitarstjórnar á okkur,“ segir Krist- ján og Rebekka, Eiríkur og Sigfríður taka öll heilshugar undir. „Það þykir í lagi að raska búsetuskilyrðum okkar fyrir þennan veg en það má ekki taka upp nokkur birkitré,“ segir Eiríkur og bætir því við að vissulega muni það hafa mikil áhrif á fleiri bændur í sveitinni ef vegurinn verður lagð- ur þvert yfir Þorskafjörð og Kristján tekur undir það. „Þetta er ekki bara slæmt fyrir okkur og Ásu og Þórð í Árbæ. Þetta myndi gera Djúpadal að afskekktasta bæ Reykhólahrepps. Afleggjarinn heim að þeim bæ yrði um 22 kílómetrar og þar eru börn sem þurfa að sækja skóla. Ekkert hefur verið rætt um kostnaðinn við snjómokstur og viðhald á veginum inn Djúpadal. Sveitarfélagið þarf að tryggja að börnin þar geti sótt skóla og getur það orðið kostnaðarsamt á snjóþungum vetrum. Sveitarstjórn hefur ekkert talað um þetta,“ segir Kristján. arg „Manni sárnar að sveitarfélagið sé tilbúið að fórna okkur með þessum hætti“ Rætt við ábúendur á Stað í Reykhólasveit um hugmyndir um vegagerð á landi þeirra Kristján Þór Ebeneserson og Rebekka Eiríksdóttir á Stað í Reykhólasveit mótmæla tillögu Multiconsulant um nýjan Vest- fjarðarveg. Hér má sjá bæina Stað, til hægri, og Árbæ, til vinstri, en ábúendur á bæjunum tveimur gætu misst mikið land og hlunnindi ef nýr Vestfjarðarvegur verður lagður yfir þeirra jarðir.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.