Skessuhorn


Skessuhorn - 10.10.2018, Blaðsíða 24

Skessuhorn - 10.10.2018, Blaðsíða 24
MIÐVIKUDAGUR 10. OKTÓBER 201824 Ljósmyndarinn og kvikmynda- gerðakonan Birta Rán Björgvins- dóttir situr sjaldan auðum höndum og gerir í því að skora á eigin sköp- unargleði eins oft og reglulega og hún getur. „Ég get ekki verið að gera það sama dag eftir dag. Ég vil fjöl- breytni og ég sækist í hana. Það að geta gert mismunandi hluti á hverj- um einasta degi, takast á við nýjar áskoranir hverju sinni og vera stöð- ugt að læra og vaxa sem einstakling- ur er æðislegt og ég get ekki hugs- að mér að lifa lífinu öðruvísi,“ seg- ir Birta Rán. „Ég verð svo rosalega eirðarlaus ef ég er ekki að gera eitt- hvað uppbyggjandi og skapandi.“ Blaðamaður Skessuhorns kíkti í heimsókn til Birtu á dögunum til að spjalla um Andvara og hvernig það er að fóta sig í kvikmyndaheiminum hér á Íslandi. Úr kvikmyndaskólanum í Kukl „Ég er þannig séð frekar ný í kvik- myndaheiminum,“ byrjar Birta frá- sögn sína aðspurð af hverju hún kaus að fara kvikmyndaleiðina í líf- inu. „Ég fór og sótti um í Kvik- myndaskólanum en með hikandi hugarfari. Ég velti fyrir mér fram og til baka hvort ég ætti eða ætti ekki að sækja um. Svo hugsaði ég bara, hverju hef ég að tapa?“ Birta Rán sótti um í skólanum og komst inn. Á haustönn 2015 byrjar Birta í skólan- um á deildinni, skapandi tækni, sem snýst um tökuhlutann í ferlinu. Að vísu eru kúrsar sem snúa að öllu sem viðkemur kvikmyndagerð í skólan- um; skrif, framleiðsla, leikstjórn, tökur og svo framvegis. Árið 2016 þegar vorönnin var komin langt á leið vissi Birta að það væri gott að fá starf innan geirans til að öðlast reynslu og mynda góð tengslanet sem eru gífurlega mikilvæg í brans- anum. „Ég leitaði til eins kennara míns sem starfar hjá eftirvinnslu- fyrirtæki. Ég spurði hann hvort það væri eitthvað laust hjá þeim sem reyndist ekki vera en hann hins veg- ar benti mér á að athuga hjá Kukli. Ég leitaði þangað og fékk að koma í prufu. Þau hjá Kukli voru þá nýbúin að ráða inn nýjan strák og voru eig- inlega ekkert að leita að fleira starfs- fólki. En, ég fæ að koma í prufu og átti sömuleiðis að senda hvað ég væri búin að gera, verkefni og svona,“ útskýrir Birta. „Um kvöld- ið fæ ég símtal um að ég hafi fengið vinnuna hjá Kukli.“ Í kjölfarið hætti Birta í skólanum eftir eins árs nám. „Ég hætti vegna þess að í rauninni hefur það að hafa fengið vinnu hjá Kukli verið marg- falt betra og meira nám en ég hefði nokkurn tíman fengið í kvikmynda- skólanum,“ segir Birta ákveðin. Hún byrjaði hjá Kukli vorið 2016 og hefur verið þar síðan. Með dag- vinnunni þar tekur Birta verkefni að sér til hliðar tengt kvikmyndabrans- anum eða ljósmynduninni sem hún sinnir á kvöldin eða um helgar. Kukl Kukl er tækjaleiga fyrir kvikmynda- búnað en ekki framleiðslufyrirtæki eins og margir halda. Fyrirtæk- ið sér um að leigja út búnað fyrir hverskonar framleiðslu á bíómynd- um og sjónvarpsefni. „Við leigj- um út bílana sem eru merktir okk- ur, kamerur, ljós, tæki, allt svoleið- is. Það hefur verið ótrúlega verð- mætt að komast þangað inn. Þetta er frekar stórt fyrirtæki en við erum ekki mörg sem vinnum þarna. Við erum hins vegar svona eins og stór fjölskylda og höfum myndað rosa- lega skemmtilegan hóp í vinnunni. Hjá Kukli getur fólk gengið inn og fengið aðstoð frá okkur. Það fer svo algjörlega eftir því hvort það sé ver- ið að skjóta auglýsingu eða viðtal, hvað fólk þarf hverju sinni. Svo þarf auðvitað að fara yfir alla hluti sem koma inn eftir leigu og passa að allt sé í lagi og góðu standi. Andvari Birta kynntist Guðnýju Rós Þór- hallsdóttur á unglingsárunum í gegnum Flickr, samfélagsmiðil sem einblínir á ljósmyndir, þar sem þær voru báðar duglegar að taka mynd- ir og deila á síðuna. „Við hittumst aldrei fyrr en seinna en vorum alveg með hvor aðra á Facebook og viss- um af hvor annarri. Hún bjó nefni- lega á Egilsstöðum og ég í Borgar- nesi. Svo komumst við að því báð- ar að við værum að byrja á sama tíma í kvikmyndaskólanum og viss- um hvorugar að hin hafði sótt um,“ segir Birta glöð. Það var á skóla- setningunni 19. ágúst 2015 sem þær vinkonur hittust í fyrsta skipti eftir nokkra ára kunningsskap í gegnum Internetið. „Við kynnumst í skólan- um og smellum rosalega vel saman. Það kemur svo í ljós seinna, þegar Guðný heldur ræðu í brúðkaupinu hjá mér og Jóni Atla, að brúðkaups- dagurinn okkar Atla var sama dag og ég og Guðný hittumst í fyrsta skipti. Þess vegna þykir mér mjög vænt um 19. ágúst,“ segir Birta og brosir. Birta og eiginmaður henn- ar Jón Atli Magnússon héldu fall- egt brúðkaup á æskuslóðum Birtu, í Skallagrímsgarðinum í Borgarnesi. „Guðný er mikið formfastari og ég er meira svona flæðandi og við fúnkerum einstaklega vel saman. Andvari kemur í framhaldinu. Mér fannst við þurfa sameiginlegan plat- form af því ég vissi að við vorum að fara að vinna mikið saman í framtíð- inni,“ segir Birta en þó svo að And- vari sé sameiginlegur flötur fyrir þær stöllur þá taka þær að sér önnur verkefni í sitthvoru lagi en setja þó Andvara nafnið á bakvið hvert og eitt þeirra. „Við erum ekki endilega að gefa okkur út sem framleiðslu- fyrirtæki heldur erum við teymi. Andvari er ég og Guðný. Við höfum þroskast saman og í sitthvoru lagi. Hún er til dæmis sterkari framleið- andi heldur en ég, örugglega út af skipulags hæfileikum hennar, og þá hefur hún verið að taka að sér fleiri verkefni sem snúa að framleiðslu. Ég hef hins vegar verið að taka að mér verkefni tengd eftirvinnslunni. Við erum í sitthvorum endanum á ferlinu og virkum vel saman,“ bætir hún við. Erfitt að tileinka sér ákveðinn stíl Birta segir erfitt að velja eitthvert eitt uppáhalds af þeim verkefnum sem hún hefur tekið að sér, hvort sem það sé tónlistarmyndband, stutt- mynd eða auglýsing, það fer algjör- lega eftir hversu langt hvert verkefni er komið hverju sinni, hversu mikið sköpunarfrelsi hún hefur. „Er þetta tónlistarmyndband? Er bandið með mótaða ímynd? Er þetta nýr artisti sem er ennþá að finna sig? Þetta fer allt saman eftir vettvangi og fólki,“ útskýrir Birta. „Þegar við vinnum með auglýsingastofum þá er yfirleitt stofa með kúnna og búið að ákveða nákvæmlega hvað á að gera. Aftur á móti, ef við erum að tala um stutt- mynd sem Guðný skrifaði, þá höf- um við algjört sköpunarfrelsi.“ Birta segist ennþá vera að finna stílinn sinn en segir mikilvægt að takmarka sig ekki við einhvern ákveðinn stíl, sérstaklega þegar maður er ennþá að fóta sig í brans- anum. „Stíllinn minn er að fæðast og gerjast. Svo er líka hluti af þessu að prófa sig áfram og sjá hvað virkar og hvað virkar ekki. Það er erfitt að vera tökumaður með ákveðinn stíl því það heftir þig, sérstaklega þegar þú ert að byrja,“ segir Birta. „Þetta er töluvert ólíkt því sem maður vill í ljósmyndun. Þá er betra að vera með sinn eigin mótaða stíl. Aftur á móti, sem tökumaður, þá er það meira heftandi heldur en annað og betra að kunna fleiri hluti og geta haft upp á meira að bjóða.“ Stöðug sjálfskoðun „Ég fer í sjálfskoðun eftir hvert ein- asta verkefni og passa að skoða vel hvað ég læri hverju sinni því það er hægt að læra eitthvað af hverju verkefni. Ef maður hættir að hugsa, hvað gerði ég gott? Hvað var ekki nóg og gott? Hvernig get ég bætt þetta? Þá staðnar maður, hættir að vaxa og verða betri. Þegar það gerist þá er best að fara og gera eitthvað annað. Ef hjartað er ekki í því sem þú ert að gera, þá á maður að fara að snúa sér að öðrum hlutum,“ segir Birta. „Draumurinn er að geta lifað af þessu. Að halda áfram svo lengi sem það sé gaman og hvetjandi,“ segir Birta að endingu. glh „Draumurinn er að geta lifað á þessu“ Rætt við Borgnesinginn Birtu Rán Björgvinsdóttur, ljósmyndara og kvikmyndagerðakonu Birta Rán Björgvinsdóttir. Birta á setti. Teymið á bakvið Andvara. Þær Birta og Guðný ræða málin á setti. Birta Rán og Jón Atli á brúðkaupsdeginum sínum í Skallagrímsgarði. Ljósm. Bernhard Kristinn. Birta segir mikilvægt að rækta sköp- unargleðina. Ljósm. Birta Rán.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.