Skessuhorn


Skessuhorn - 10.10.2018, Blaðsíða 12

Skessuhorn - 10.10.2018, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 10. OKTÓBER 201812 Sýningin Íslenskur landbúnaður 2018 verður haldin í Laugardals- höllinni í Reykjavík dagana 12. til 14. október næstkomandi. Að sögn Ólafs M. Jóhannessonar, fram- kvæmdastjóra sýningarinnar, verð- ur þetta stærsta landbúnaðarsýn- ing sem haldin hefur verið í Laug- ardalshöll. Þegar hafa um eitt hundrað sýn- ingaraðilar pantað bása bæði á úti- og innisvæði sýningarinnar og er uppselt. Jafnframt er haft eftir Ólafi í tilkynningu að mest komi á óvart hve fjölbreyttur landbúnaður sé stundaður á Íslandi. „Það eru ekki bara okkar fjölbreyttu og hreinu matvæli sem streyma frá íslenskum býlum heldur stunda bændur ferða- þjónustu í æ meira mæli en einnig skógrækt, orkuframleiðslu og hvers kyns heimilisiðnað og allt verð- ur þetta kynnt á sýningunni. Það verður ekki bara hægt að smakka og kynnast nýjungum í íslenskri matvælaframleiðslu heldur einnig nýjustu tækjum og tólum og ýmsu fleiru. Og svo verður afar áhuga- verð fyrirlestrardagskrá,“ segir Ólafur. kgk/ Ljósm. úr safni. Sýningin Íslenskur landbúnaður í Laugardalshöll um helgina Kynningarfundur um málefni leik- og grunnskóla á Kleppjárnsreykj- um var haldinn í Logalandi þriðju- dagskvöldið 2. október síðastlið- inn. Til stendur að færa starfsemi leikskólans Hnoðrabóls frá Gríms- stöðum að Kleppjárnsreykjum í nýja byggingu sem reist verður við húsnæði grunnskólans. Hluti af eldri byggingum skólans verð- ur rifinn og leikskólinn byggð- ur á sama stað. Nýr leikskóli á að geta rúmað allt að 47 börn. Verk- ið verður boðið út á haustdögum og stefnt er á að húsið verði tilbúið eftir rúmt ár. Að framkvæmdum loknum verður á Kleppjárnsreykj- um samstæður leik- og grunnskóli, þó ekki þannig að skólastofnanirn- ar verði sameinaðar í eina. „Slíkt samstarf tveggja skólastiga á sama stað felur í sér mikla möguleika í framþróun skólastarfs á staðnum,“ segir Gunnlaugur A Júlíusson sveitarstjóri í samtali við Skessu- horn. Lilja Björg Ágústsdóttir, forseti sveitarstjórnar Borgarbyggðar, hóf kynningarfundinn í Logalandi og fór yfir forsögu málsins og stöðu þess. Í samtali við Skessuhorn eft- ir fundinn segir hún að breyting- ar séu þegar hafnar á eldra hús- næði grunnskólans til að undir- búa það stóra verkefni sem fram- undan er. „Teikningar liggja fyrir að 530 fermetra nýbyggingu sem skiptist í 301 fm leikskóla og um 230 fm sameiginlega aðstöðu fyrir kennara og starfsfólk beggja skól- anna.“ Hún segir að í suðvestur- horni grunnskólans, í mötuneyt- isálmunni, sé byrjað að breyta eldra húsnæði þannig að það geti rúmað starfsemi yngstu deild- ar grunnskólans og raungreina- kennslu, starfsemi sem verið hefur í húsnæði sem í næsta áfanga verð- ur rifið til að rýma fyrir væntan- legri leikskólabyggingu. „Það má því segja að hafinn sé fyrsti áfangi þeirra miklu breytinga sem eru í vændum. Við gerum ráð fyrir að í vetur verði svo hægt að hefja næsta áfanga sem er niðurrif eldri bygg- inga í suðausturhorni skólans,“ segir Lilja Björg. Til stendur að rífa þar íbúð sem þjónaði fyrstu ár skólahalds sem skólastjóraíbúð og samliggjandi tveggja hæða rými sem upphaflega var byggt sem heimavist. Lilja Björg segir að ekki sé kom- inn tímarammi á hvenær fram- kvæmdum verður lokið, það muni ráðast af því hvernig gengur að tryggja verktaka og af öðrum þátt- um í því ferli sem framundan er. „Búið er að hanna nýbygginguna og ef allt gengur að óskum verð- ur verkið boðið út á næstunni og draumatímasetning væri þannig að hægt yrði að flytja leikskólann frá Grímsstöðum í nýtt hús eftir ríf- lega eitt ár,“ segir Lilja Björg. Hún segir að á þessu stigi sé ekki hægt að svara því hver kostnaður við framkvæmdirnar verður. Sóknarfæri í skólastarfi á Kleppjárnsreykjum Lilja Björg segir að ánægjulegt sé hversu skólasamfélagið sem teng- ist bæði leikskólanum og grunn- skólanum sjái mörg sóknarfæri í sambyggðum leik- og grunnskóla og stemningin fyrir verkefninu sé því góð. „Það er langt og ítar- legt samráðsferli búið að eiga sér stað. Um leið er sveitarfélagið að marka ákveðna stefnu í skólamál- um á Kleppjárnsreykjum þar sem flæði milli skólastiga verður aukið þannig að hæfileikar nemenda geti notið sín óháð aldri.“ Starfsfólk spennt fyrir verkefninu Á kynningarfundinum í Loga- landi fóru stjórnendur leikskól- ans og grunnskólans, þær Sjöfn G. Vilhjálmsdóttir leikskóla- stjóri Hnoðrabóls og og Dagný Vilhjálmsdóttir deildarstjóri og Helga Jensína Svavarsdóttir, skóla- stjóri Grunnskóla Borgarfjarðar, og Ingibjörg Adda Konráðsdótt- ir deildarstjóri, sameiginlega yfir þau tækifæri sem felast í samþætt- ingu á starfi leik- og grunnskól- ans eftir að framkvæmdum verð- ur lokið. Í máli þeirra kom fram að tækifærin sem felast í samþættingu skólastarfsins liggi ekki eingöngu í þeim hluta skólastarfsins sem snýr að nemendum heldur felast þau einnig í fjölmörgum tækifær- um fyrir starfsfólk skólanna. Fram kom hjá þeim að mikil tilhlökkun er meðal starfsfólks að takast á við þróun skólastarfsins á staðnum út frá nýjum forsendum sem opnast í kjölfar þeirra framkvæmda sem framundan eru. Í lok fundarins skýrði Kjartan Sigurbjartsson, byggingarfræð- ingur hjá Pro-Ark teiknistofu, út fyrirhugaða hönnun leikskól- ans og þær breytingar sem hafnar eru á húsnæði grunnskólans. Tals- verðar umræður urðu á fundin- um í kjölfar framsöguerinda sem sneru að ýmsum þáttum fyrirhug- aðra framkvæmda. Rætt var með- al annars um tímasetningu fram- kvæmda og einstakra verkáfanga, endurskipulagningu lóðar og inn- keyrslu á staðinn, rými innandyra og starfsaðstöðu kennara. Í máli margra fundarmanna kom fram ánægja með þá stefnumörkun að samþætta starf leik- og grunn- skólans þegar sá möguleiki gafst. Byggingarnefnd hefur nýlega ver- ið endurskipuð fyrir fyrirhugað- ar framkvæmdir og einnig hefur sami byggingarstjóri verið ráðinn að verkefninu og stýrir stækkun og breytingum sem nú standa yfir á Grunnskóla Borgarness. mm Stefna að samþættingu leik- og grunnskóla á Kleppjárnsreykjum: Nýr leikskóli verður sambyggður grunnskólanum Nýja viðbyggingin kemur í stað fyrrum heimavistar og skólastjóraíbúðar í suðausturhluta grunnskólahússins. Ljósm. mm. Svipmynd af frummælendum á fundinum í Logalandi. F.v. Lilja Björg, Helga Jensína, Ingibjörg Adda, Sjöfn Guðlaug og Dagný. Ljósm. amh. Grunnmynd af skólahúsnæði eftir breytingar. Teikning: ProArk.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.