Skessuhorn - 10.10.2018, Qupperneq 8
MIÐVIKUDAGUR 10. OKTÓBER 20188
Svínapest breiðist
um Evrópu
LANDIÐ: Ekki hefur tekist að
stöðva útbreiðslu afríkanskrar
svínapestar í Evrópu, þrátt fyrir
margvígslegar aðgerðir. Brýnt
er að gæta smitvarna við flutn-
ing og ferðir milli landa sem og
við umgengni og fóðrun svína.
Sjúkdómurinn berst þó ekki í
mannfólk, að því er fram kem-
ur í tilkynningu frá Matvæla-
stofnun. „Um er að ræða alvar-
legan sjúkdóm í svínum, sem í
flestum tilvikum veldur dauða.
Sjúkdómurinn berst ekki í önn-
ur dýr né fólk. Veiran sem veld-
ur sjúkdómnum getur m.a.
borist með sýktum svínum og
sæði, hráu kjöti af sýktum dýr-
um, sem og farartækjum, bún-
aði, fatnaði o.fl. sem mengast
hafa af veirunni. Smitdreifing
til nýrra landa er oftast rakin til
matvæla og lifandi svína,“ segir
í tilkynningunni. Til að sporna
við að smit berist til Íslands
segir stofnunin mikilvægt að
fólk sem ferðast erlendis, sér-
staklega til landa þar sem sjúk-
dómurinn hefur greinst, taki
alls ekki hrátt eða illa hitameð-
höndlað kjöt með sér heim. Þau
Evrópulönd sem um ræðir eru
Rússland, Úkraína, Hvíta-Rúss-
land, Eistland, Lettland, Lithá-
en, Pólland, Tékkland, Rúm-
enía, Ungverjaland, Búlgaría,
Moldavíka, Belgía og ítalska
Miðjarðarhafseyjan Sardinía.
Þar að auki er sjúkdómurinn
jafnframt til staðar í mörgum
löndum Afríku. „Mikilvægt er
að svínaeigendur viðhafi ávallt
góðar smitvarnir og tryggi að
svínin komist ekki í matarleifar
sem innihalda kjötafurðir. Jafn-
framt er rétt að minna á þá al-
mennu reglu að bannað er að
fóðra dýr sem alin eru til mann-
eldis á dýrapróteinum, að und-
anskildu fiskimjöli.“
-kgk
Aflatölur fyrir
Vesturland
dagana 29. september
- 5. október
Tölur (í kílóum) frá Fiski-
stofu:
Akranes: Engar landanir á
tímabilinu.
Arnarstapi: Engar landanir
á tímabilinu.
Grundarfjörður: 4 bátar.
Heildarlöndun: 276.000
kg.
Mestur afli: Steinunn SF:
119.345 kg í tveimur lönd-
unum.
Ólafsvík: 13 bátar.
Heildarlöndun: 139.110
kg.
Mestur afli: Ólafur Bjarna-
son: 26.740 kg í fjórum
róðrum.
Rif: 8 bátar.
Heildarlöndun: 78.648 kg.
Mestur afli: Magnús SH:
25.649 kg í fjórum róðrum.
Stykkishólmur: 5 bátar.
Heildarlöndun: 72.098 kg.
Mestur afli: Leynri SH:
24.352 kg í fjórum löndun-
um.
Topp fimm landanir á
tímabilinu:
1. Hringur SH - GRU:
67.986 kg. 3. október.
2. Steinunn SF - GRU:
64.764 kg. 2. október.
3. Steinunn SF - GRU:
54.581 kg. 29. september.
4. Helgi SH - GRU:
47.992 kg. 30. september.
5. Farsæll SH - GRU:
40.609 kg. 1. október.
-kgk
Í liðnum mánuði keypti Eðalfisk-
ur í Borgarnesi þrotabú Egils sjáv-
arafurða á Siglufirði. Innifalið í
kaupum voru vélar, tæki og vöru-
merkið Egils síld. „Meginhluti
starfsemi Egils var reyktur lax sem
seldur var á Bandaríkjamarkað og
með kaupunum erum við hjá Eð-
alfiski að styrkja stöðu okkar með
útflutningi. Nú má segja að Eg-
ill sé kominn heim í Borgarfjörð,“
segir Kristján Rafn Sigurðsson
framkvæmdastjóri Eðalfisks í sam-
tali við Skessuhorn.
mm
Egill kominn heim
í Borgarnes
Pökkun á reyktum laxi hjá Eðalfiski. Ljósm. úr safni Skessuhorns.
Eins og vegfarendur í Saurbæ í
Dölum urðu varir við á ferðum sín-
um þar síðastliðinn vetur og í sumar
voru þar miklar vegaframkvæmdir.
Þar voru starfsmenn Borgarverks
að störfum en vegurinn var breikk-
aður og byggður upp á um 5,7 kíló-
metra kafla. Þá voru vegaxlir jafn-
aðar og kantarnir gerðir flatari til
að auka öryggi vegfarenda. Verkið
er nú vel á veg komið og búið er að
leggja fyrra slitlag af klæðningu yfir
veginn. Seinna lagið verður svo lagt
næsta vor og lýkur þá verkinu.
arg
Mikil breyting á
veginum um Saurbæ
Hafnar eru framkvæmdir við end-
urgerð Kalmanstorgs á Akranesi, en
það er hringtorgið á mótum Esju-
brautar, Kalmansbrautar og Akra-
nesvegar. Er torgið í daglegu tali
stundum kallað spæleggið. Útbú-
inn verður nýr göngustígur norð-
an við Esjubraut og lagfæra á yfir-
borð götunnar til austurs að Esju-
torgi, á mótum Esjubrautar, Inn-
nesvegar og Þjóðbrautar. Samhliða
gatnaframkvæmdunum munu Veit-
ur endurnýja hitaveitu, vatnsveitu,
fráveitu og rafveitu á svæðinu.
Umferð er beint með hjáleið inn
á Esjubraut í báðar áttir frá Akra-
nesvegi. Einnig er lokað fyrir um-
ferð um Kalmanstorg og hluta Kal-
mansbrautar frá Esjubraut að inn-
keyrslunni á bakvið Skagaver. Gera
má ráð fyrir aukinni umferð vinnu-
véla á svæðinu og öðru raski vegna
framkvæmdanna. Íbúar mega auk
þess búast við rekstrartruflunum í
veitukerfum á verktíma. Verða þeir
upplýstir um þær hverju sinni.
kgk
Gatnaframkvæmdir í gangi á Akranesi
Kalmanstorg er á mótum Esjubrautar, Kalmansbrautar og
Akranesvegar.
Steypt gatan var brotin upp með fleyg og efninu mokað á bíl
með beltagröfu.
Norðan hvassviðri gekk yfir vest-
anvert landið síðasta fimmtudag og
slitnaði þá upp innsiglingarbaujan
fyrir utan Ólafsvíkurhöfn og rak
upp í fjöru. Hafði Þórður Björns-
son samband við Lífsbjörgu og bað
um aðstoð við að ná baujunni úr
fjörunni. Fóru fjórir félagar á At-
landic slöngubát Lífsbjargar að ná
í baujuna þar sem hún maraði hálf
í kafi. Þar sem hún hékk í keðjunni
á flóðinu gekk hálf brösuglega að
koma taug í hana vegna þess að það
var þungur sjór og töluverð hreyf-
ing á henni. Þurfti einn björgun-
arsveitamaður að fara í sjóinn og
koma tauginni í baujuna en þegar
var togað í hana vildi ekki betur til
en spottinn slitnaði og var þá tek-
inn sú ákvörðun að hnýta utanum
baujuna og gekk þá að ná henni.
Var hún svo dreginn inn í höfn-
ina þar sem kranabíll frá Þorgeir
ehf hífði hana á land. Ekki er vitað
hvenær baujan kemur í gagnið aft-
ur en þar til eru skipstjórnarmenn
beðnir að gæta að sér. þa
Innsiglingarbaujan slitnaði upp