Skessuhorn - 10.10.2018, Qupperneq 10
MIÐVIKUDAGUR 10. OKTÓBER 201810
Um klukkan 17:30 síðastliðinn
miðvikudag voru björgunarsveit-
ir kallaðar út til leitar og björgunar
í Kirkjufelli við Grundarfjörð. Fór
björgunarsveitarfólk af Snæfells-
nesi og víðar af Vesturlandi, sjúkra-
flutningamenn, sem og þyrlusveit
Landhelgisgæslunnar ásamt sér-
hæfðum fjallabjörgunarmönnum til
leitar. Alls munu 150 viðbragðsað-
ilar hafa komið að útkallinu, en að-
gerðum lauk klukkan 21 um kvöld-
ið. Neyðarkall hafði borist frá tví-
tugri franskri konu sem hringdi úr
hlíðum fjallsins. Hafði hún slasast á
höfði og fæti við það að renna niður
snarbratta hlíð í fjallinu. Stöðvaðist
hún einungis feti frá fjallsbrún, það-
an sem lóðrétt fall var tugi metra
niður. Aðstæður til leitar og björg-
unar voru mjög varasamar síðast-
liðinn miðvikudag; krapi í hlíðum
fjallsins, hált og byrjað að rökkva.
Þegar björgunaraðilar komu að
konunni var hún orðin köld og við
það að líða útaf. Náðist að koma
konunni í búnað til að hægt væri
að hífa hana um borð í þyrlu Gæsl-
unnar og með henni var konan flutt
á sjúkrahús í Reykjavík.
Björgunarfólki
var brugðið
Samkvæmt upplýsingum Skessu-
horns lögðu björgunaraðilar sig í
töluverða hættu við þessa leit og
björgun. Meðal annars lýstu fé-
lagar í Lífsbjörgu í Snæfellsbæ að-
stæðum þannig: „Gönguhópar
björgunarsveita og sjúkraflutninga-
menn komust að þeim slasaða eftir
þó nokkra stund en fjallið var erf-
itt yfirferðar. Á fjallinu eru mikil
klettabelti, blautur og laus gróður,
skriður og nýfallinn snjór í miklum
bratta.“ Strax um kvöldið var rætt í
röðum björgunarfólks og íbúa um
nauðsyn þess að hefja umræðu, í
ljósi tíðra slysa í Kirkjufelli, um
hvort ástæða væri til að takmarka
eða jafnvel banna göngur á fjallið
yfir vetrartímann. Björgunarfólk
sem Skessuhorn hefur rætt við tel-
ur að ekki sé forsvaranlegt að fólk,
jafnvel óvant fjallgöngum, reyni við
uppgöngu á fjallið óháð veðri, færð,
búnaði, klæðnaði og aðstæðum al-
mennt.
Ekki heimild
til valdboðs
Björg Ágústsdóttir er bæjarstjóri í
Grundarfirði. Aðspurð segir hún
að sveitarfélagið sem slíkt hafi ekki
formleg ráð til að bregðast við
för fólks á Kirkjufell með beinum
hætti, ekkert valdboð sé til staðar.
Lögreglan hafi ákveðnar heimild-
ir, en þær séu þó einnig takmark-
aðar. Kirkjufellið sé í eigu þriggja
jarða, en meginleiðin á fjallið liggi
í gegnum land jarðanna Kirkjufells
og Háls. Heimildir til að takmarka
eða banna för fólks sé í höndum
landeigenda, en meira að segja
þeir þurfi að gera slíkt á réttum
forsendum því að meginreglu til sé
almenningi heimil för um landið
og dvöl þar í lögmætum tilgangi,
samkvæmt svokölluðum almanna-
rétti. Björg segir að landeigendur
skoði nú hvernig heppilegast sé að
bregðast við ferðum vanbúins fólks
á fjallið. Hún segir að landeigend-
ur hafi að sjálfsögðu heimild til að
setja upp skilti á sínu landi og vara
fólk við hættum. „Undirbúning-
ur landeigenda að slíku var hafinn
og í september settu landeigendur
Háls upp staura og band til að gefa
til kynna lokun gönguleiðar upp
að fjallinu. Það hafði því miður lít-
ið að segja,“ segir Björg. Bæjar-
ráð Grundarfjarðarbæjar fundaði
síðastliðinn föstudag með fulltrú-
um landeigenda til að meta stöð-
una og ræða viðbrögð við þessum
tíðu og alvarlegu slysum. „Þarna
eru landeigendur í rauninni að fá í
fangið verkefni sem þeir hafa ekki
kallað eftir, en þurfa engu að síð-
ur að bregðast við. Landeigendur
ráða ferðinni og bæjarstjórn leitast
við að styðja þá,“ segir hún.
Margir fjölfarnir
staðir hættulegir
Björg segir að fólk bregðist við
tíðindum af þessum slysum með
mismunandi hætti. Björgunar-
fólk, heimamenn og landeigendur
séu vissulega slegnir. Ferðamenn
halda hins vegar áfram að streyma
á svæðið. Staðreyndin sé sú að
tæknilega væri erfitt að loka fyrir
umferð á fjallið. Kirkjufell sé frægt
fyrir formfegurð sína enda eitt
mest myndaða fjall á Íslandi. Gríð-
arlegur fjöldi ferðafólks heimsæki
áningarstaðinn við Kirkjufells-
fossa, hinum megin þjóðvegarins,
og margir sjái í hillingum að klífa
fjallið. Aðstæður við Kirkjufell eru
þó ekkert ósvipaðar fleiri stöðum
þar sem slys hafa orðið. „Það er
víða ferðast um hættulegar slóð-
ir hér á landi vegna mikilfengleika
náttúrunnar. Hættan felst í því að
á fjallið sæki fólk sem ekki er vant
fjallgöngum og ekki rétt útbúið til
þeirra. Þess vegna er gríðarlega
mikilvægt að samræma skilaboð og
koma upplýsingum til ferðafólks
um að ganga á Kirkjufell sé ekki
fyrir venjulegt ferðafólk, heldur
einungis fyrir vana fjallagarpa með
góðan búnað og við kjöraðstæður,“
segir Björg.
Upplýsingamiðstöð
um Kirkjufell?
Björg segir jafnframt að líta verði
á þetta tiltekna mál í stærra sam-
hengi og þar geti sveitarfélagið og
fleiri aðilar haft mikið að segja.
„Bráðaaðgerðir felast í að setja upp
skilti, koma enn betri upplýsing-
um til ferðafólks og mögulega að
verja svæðið tímabundið, eins og
landeigendur standa frammi fyr-
ir. Í stærra samhengi verðum við
hins vegar að skoða skipulag inn-
viða og uppbyggingu áfangastaða.
Leggja þarf fjármuni í göngustíga-
gerð og minnka álag akandi um-
ferðar á svæðið. Það er líka orðið
mjög skýrt í mínum huga að við
þurfum að beina för fólks mark-
visst inn í þéttbýlið og gera það
eftirsótt að skoða Kirkjufellið úr
fjarlægð. Við þurfum fleiri skipu-
lagða áningarstaði - líka í þéttbýl-
inu. Það eru til dæmis margir stað-
ir hér innan þéttbýlisins þar sem
fjallið er mjög fagurt á að líta. Við
þurfum að beina fólki kerfisbund-
ið á slíka staði, setja upp spennandi
aðstöðu og gera fleiri sjónarhorn
á fjallið vinsæl og helst „fræg“.
Þetta er þekkt úr skipulagsfræð-
inni. Íslendingar verða einfaldlega
að leggja meiri fjármuni í stíga-
gerð, upplýsingagjöf og góða án-
ingarstaði þannig að ferðafólk
upplifi náttúruna á þeim forsend-
um sem það ræður við. Þannig má
vera að besta svarið okkar væri að
byggja upp sérstaka upplýsinga-
miðstöð um Kirkjufell í þéttbýl-
inu, til að fræða fólk og gera því
kleift að upplifa fjallið með fjöl-
breyttum hætti. Auk þess að vera
tækifæri til atvinnusköpunar, þá
gæti slíkt dregið úr líkum á að fólk
reyni uppgöngu á fjallið og fari sér
og öðrum að voða,“ segir Björg
Ágústsdóttir. mm
Kona var hætt komin í Kirkjufelli
Aukin upplýsingagjöf talin vænlegust til að fækka megi slysum
Frá aðgerðum við Kirkjufell að kvöldi miðvikudags. Sjá má ljós þyrlunnar við hlíðar fjallsins. Ljósm. Björgunarsveitin Lífsbjörg, Snæfellsbæ á Facebook.
„Bráðaaðgerðir felast í að setja upp skilti, koma upplýsingum til ferðafólks og
mögulega að verja svæðið tímabundið. Í stærra samhengi verðum við að skoða
skipulag innviða og uppbyggingu áfangastaða,“ segir Björg. Ljósm. tfk.
Frá björgunaraðgerðum við Kirkjufell þegar banaslys varð í fjallinu í liðnum mánuði. Ljósm. tfk.