Skessuhorn


Skessuhorn - 10.10.2018, Síða 13

Skessuhorn - 10.10.2018, Síða 13
MIÐVIKUDAGUR 10. OKTÓBER 2018 13 www.kb.is Egilsholti 1, 310 Borgarnes Tel. 430 5500 Kuldagallar og ullarundirföt í úrvali fyrir börn og fullorðna SK ES SU H O R N 2 01 8 SK ES SU H O R N 2 01 8 Starf iðju- eða þroskaþjáfa Brekkubæjarskóli óskar eftir að ráða iðju- eða þroskaþjálfa, eða einstakling með aðra uppeldismenntun, sem hefur áhuga og reynslu af að vinna með börnum. Um er að ræða 100% starf tímabundið frá 1. nóv. n.k. til loka skólaársins. Nánari upplýsingar um verkefni og hæfniskröfur starfsins má finna á www.akranes.is/lausstorf. Umsóknarfrestur er til og með 21. október. Laugardaginn 13. október fer fram fyrsta afhending hópsins „REKO Vesturland“ sem um leið er fyrsta REKO afhendingin hér á landi. Í Skessuhorni nýverið var sagt frá verkefninu sem nú er formlega farið í gang. Vörur sem pantað- ar hafa verið verða afhentar kaup- endum við bílaplan Krónunnar á Akranesi milli kl. 11 og 12. Að sögn aðstandenda REKO verður í boði fjölbreytt úrval frá fjölmörg- um bændum og smáframleiðend- um víðs vegar af suðvestanverðu landinu. Meðal þess sem er hægt að panta og fá afhent á laugardag- inn er birkireykt bleikja, tvíreykt hrákæfa, kanínukjöt, fersk jarðar- ber, kofareykt bjúgu, nautakjöt, kimchi, handgerður brjóstsykur, alikálfakjöt, grafinn geitavöðvi, mintusulta, súrkál, jarðarberjas- íróp, lambakjöt, kindahakk, sir- lon nautasteik, nautahamborg- arar, landnámshænuegg, jarðar- berjasulta, heimasætu salsa, svína- kjöt, útbeinaðað fyllt lambalæri og birkireyktur bláberjavöðvi. Viðskiptin fara þannig fram að áhugasamir kaupendur skrá sig í næsta afhendingahóp á REKO Vesturland á Facebook. Fara þarf inn í viðburðinn og skoða færslur frá framleiðendum sem bjóða mat- vörur til sölu, setja í athugasemd við hverja færslu hvað þeir vilji kaupa eða senda skilaboð beint á framleiðanda. Hver framleið- andi sér síðan um að innheimta greiðslur fyrir sínar vörur fyrir af- hendingardaginn. Loks þarf kaup- andinn að sækja vörurnar sem búið er að panta og greiða fyrir á fyrr- greindum tíma. Þeir sem hafa spurningar um REKO Vesturland eru hvattir til að hafa samband við Hlédísi Sveinsdóttur í síma 892-1780. Hún verður einnig stödd á Les- bókinni á Akranesi með tölvu milli kl. 17 og 18 í dag, miðvikudaginn 10. október. mm Fjölbreytt úrval í boði á fyrstu REKO afhendingunni Handavinnuhúsinu í Hyrnutorgi í Borgarnesi hefur verið lokað eft- ir 12 ára farsælan rekstur, fyrsta áratuginn við Brákarbraut 3 og nú síðustu tvö árin í Hyrnutorgi. Sig- ríður Karlsdóttir, eigandi Handa- vinnuhússins, segir í samtali við Skessuhorn að reksturinn hafi gengið mjög vel og það hafi ekk- ert með lokunina að gera. „Ég er búin að sjá um þennan rekstur í tólf ár og var bara búin að fá nóg og ætla að snúa mér að einhverju öðru,“ segir Sigríður. „Ég vil bara þakka öllum mínum viðskiptavin- um kærlega fyrir,“ segir Sigríður. arg Handavinnuhúsinu hefur verið lokað Handavinnuhúsið var staðsett í Hyrnutorgi síðustu tvö ár en stendur nú tómt.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.