Skessuhorn - 10.10.2018, Page 17
MIÐVIKUDAGUR 10. OKTÓBER 2018 17
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
Sérfræðingar skóla- og frístundasviðs Akraneskaupstaðar
bjóða upp á tvo fræðslufundi sem fjalla um uppeldi í
nútímasamfélagi. Aðgangur er án endurgjalds.
Kát og klár kríli
Fræðsla um uppeldi í nútímasamfélagi
Miðvikudaginn 17. október verður haldinn
fræðslufundurinn „Kát og klár kríli“. Fræðslan er ætluð
foreldrum 0-3 ára barna og fer hún fram í Tónbergi,
sal Tónlistarskóla Akraness, frá kl. 15:30-17:00.
Hugrakkar hetjur
Fræðsla um uppeldi í nútímasamfélagi
Miðvikudaginn 24. október verður haldinn fræðslufundurinn
„Hugrakkar hetjur“. Fræðslan er ætluð foreldrum
4-6 ára barna og fer hún fram í Tónbergi, sal
Tónlistarskóla Akraness, frá kl. 15:30-17:00.
Nánari upplýsingar og skráning fer fram á www.akranes.is
Fræðsla um uppeldi
í nútímasamfélagi
Snorrastofa, menningar- og miðaldasetur
í Reykholti
Sími 433 8000
www.snorrastofa.is
snorrastofa@snorrastofa.is
„Sömdu Sturlungar
þetta allt saman?“
Dr. Haukur Þorgeirsson flytur
Snorrastofa í Reykholti
Minningarfyrirlestur um Snorra Sturluson
Þriðjudagurinn 16. október 2018
kl. 20:30 í Bókhlöðu Snorrastofu
Fjallað verður um stórtækan
samanburð á orðtíðni miðalda-
texta í leitinni að höfundum
þeirra. Stílmæling með aðstoð
hugbúnaðar er aðferð sem, hefur
sannað gildi sitt, en hún hefur
einnig ákveðnar takmarkanir.
Umræður og kaffiveitingar
Aðgangur kr. 500
Hver er framtíð skógræktar
í ljósi kolefnisbindingar?
Samráðsfundur
Skógræktarinnar með
skógarbændum á Vesturlandi
Hótel Hamri Borgarnesi,
16. október kl. 16:00-18:00
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
Framkvæmdir við nýja frístunda-
miðstöð við Garðavöll á Akranesi
hófust seinni hluta janúarmánað-
ar. Byrjað var að grafa fyrir húsinu
í kjölfarið og voru fyrstu veggein-
ingar reistar á vormánuðum. „Hér
hefur allt verið á fleygiferð síð-
an fyrsta skóflustungan var tekin í
janúar og nú er svo komið að fram-
kvæmdum utanhúss er nánast lokið
og framkvæmdir inni eru komnar af
stað,“ segir Guðmundur Sigvalda-
son, framkvæmdastjóri Golfklúbbs-
ins Leynis, í samtali við Skessu-
horn. Guðmundur á jafnframt sæti
í framkvæmdanefnd verkefnisins,
sem skipuð var áður en framkvæmd-
ir hófust. Auk hans eiga sæti í nefnd-
inni Alfreð Þór Alfreðsson, rekstrar-
stjóri áhaldahúss Akraneskaupstaðar
og Lárus Ársælsson verkfræðing-
ur. Báðir eru þeir Alfreð og Lárus
jafnframt félagsmenn í Golfklúbbn-
um Leyni. „Hlutverk framkvæmda-
nefndarinnar er að gæta hagsmuna
bæði Akraneskaupstaðar og Leynis,
halda utan um verkefnið á fram-
kvæmdatíma og samskipti við verk-
taka. Allt saman hefur það gengið
eins og best verður á kosið,“ segir
Guðmundur.
Húsið tilbúið að utan
„Staðan á verkinu er sú í dag að
steypuvirkið er allt risið og hús-
ið er nánast alveg tilbúið að utan.
Þakfrágangi er að mestu lokið og
núna er unnið að frágangi utan-
húss og undirbúningi við steyptar
stéttar og plön. Innanhúss er búið
að reisa milliveggina og framund-
an er málningarvinna og spörsl-
un. Vinna við raf- og pípulagnir
verður unnin samhliða því,“ segir
Guðmundur. „Næst á dagskrá er
að velja gólfefni og setja það nið-
ur. Í lok október hefst vinna við
að koma inniaðstöðu félagsmanna
í gagnið í kjallara hússins. Við í
framkvæmdanefndinni munum
sinna þeirri vinnu að mestu leyti
sjálfir og leita til félagsmanna til að
aðstoða okkur við hana. Sú vinna
felst einkum í að mála veggi og
loft, leggja gólfefni og síðan sinna
ýmiss konar frágangi. Félagsmenn
eru alltaf duglegir að leggja hönd á
plóg og ég á ekki von á öðru en að
þeir verði það líka þegar kemur að
þessu. Ég hvet alla félagsmenn til
að koma og aðstoða okkur við þá
vinnu þegar þar að kemur,“ segir
hann.
Aðspurður segir Guðmundur
gert ráð fyrir að opna inniaðstöð-
una nálægt mánaðamótum nóvem-
ber og desember. „Á svipuðum
tíma, í lok nóvember, munum við
taka skrifstofurnar og afgreiðsluna
í notkun og síðan í beinu fram-
haldi af því opna inniaðstöðuna í
kjallaranum. Þetta er fyrsti áfangi
verkefnisins. Annar áfangi, það
er að segja veitingasalurinn, eld-
húsið og öll sérrými önnur verða
síðan tekin í notkun næsta vor og
þar með verður framkvæmdum að
fullu lokið,“ segir Guðmundur.
„Ég held að það geti orðið mikil
lyftistöng fyrir bæjarfélagið, ekki
aðeins fyrir golfklúbbinn. Margir
hópar, félagasamtök, aðildarfélög
ÍA, og einnig Akraneskaupstað-
ur koma til með að geta nýtt sér
veislusalinn og eldhúsið fyrir veisl-
ur og hvers kyns skemmtanir eða
mannfögnuði,“ segir hann. Guð-
mundur bætir því við að klúbb-
urinn hyggist semja við rekstrar-
aðila um veitingasölu við Garða-
völl. Sá sem taki það að sér muni
jafnframt annast allt sem tengist
útleigu á salnum í samstarfi við
golfklúbbinn. Rekstur veitingasöl-
unnar verði auglýstur nánar seinna
í vetur.
Verklok í vor
Smávægilegar tafir hafa orðið á
verkinu frá því framkvæmdir hóf-
ust, vegna slæms veðurs í febrúar
annars vegar og seinni part apríl-
mánaðar hins vegar. Guðmund-
ur áætlar að fyrsti áfangi verks-
ins sé um það bil sex vikum á eftir
áætlun miðað við það sem gert var
ráð fyrir í upphafi. „Í dag eru ekki
nema níu mánuðir síðan fram-
kvæmdir hófust. Framkvæmdirn-
ar hófust af miklum krafti og þrátt
fyrir smávægilegar tafir vegna veð-
urs hefur allt gengið vel fyrir sig
og allar áætlanir um að opna næsta
vor standast ennþá. Þar er fyrst og
fremst að þakka mikilli og góðri
undirbúningsvinnu. Kostnaðar-
áætlun verksins hefur sömuleið-
is staðist í öllum meginatriðum,“
segir hann. „Samstarf Golfklúbbs-
ins Leynis og Akraneskaupstaðar
við þessa framkvæmd hefur verið
alveg til fyrirmyndar. Ég færi bæj-
aryfirvöldum miklar þakkir fyr-
ir það og þann stuðning sem golf-
klúbbnum er sýndur með því að
ráðast í verkefni á borð við þetta,“
segir Guðmundur Sigvaldason að
endingu. kgk
Framkvæmdir við
frístundamiðstöð ganga vel
Guðmundur Sigvaldason, framkvæmdastjóri Golfklúbbsins Leynis.
Frístundamiðstöðin við Garðavöll á Akranesi. Framkvæmdum utanhúss er nánast
lokið og framkvæmdir inni eru komnar af stað. Hér sést sú hlið hússins sem snýr
út á völl.
Hluti kjallara frístundamiðstöðvarinnar, sem mun hýsa inniaðstöðu Golfklúbbsins
Leynis. Stefnt er að því að opna inniaðstöðuna nálægt mánaðamótum nóvember
og desember. Um sama leyti verða skrifstofur hússins og afgreiðsla teknar í
notkun.
Framkvæmdalegt um að litast í veitingasal frístundamiðstöðvarinnar, en þar verða
sæti fyrir um 200 manns.