Skessuhorn - 10.10.2018, Qupperneq 19
MIÐVIKUDAGUR 10. OKTÓBER 2018 19
Myndhöggvarinn Gerhard Kö-
nig hefur verið fenginn til að gera
við styttuna Stúlka með löngu eftir
Guðmund frá Miðdal. Styttan stóð
áður í Bæjargarðinum á Akranesi.
Styttan er frá árinu 1956. Gerhard
hefur nú þegar endurgert stytt-
una Hafmeyjuna eftir Guðmund
frá Miðdal sem að nýju hefur ver-
ið komið á stall sinn í Skallagríms-
garðinum í Borgarnesi. Þá má geta
þess að síðasta sumar vann hann að
endurbótum á safni Samúels Jóns-
sonar í Selárdal.
Stúlka með löngu brotnaði í sjö
misstóra hluta og Gerhard hef-
ur náð að líma saman meirihlut-
ann af verkinu. Styttan brotnaði
vegna frostskemmda og er töluvert
skemmd vegna veðrunar í áranna
rás. Upp í gegnum miðjuna á stytt-
unni gengur pípa fyrir vatn. Stúlka
með löngu var hluti af gosbrunni,
líkt og Hafmeyjan í Skallagríms-
garðinum. Gerhard segir að gallinn
við stytturnar hans Guðmundar frá
Miðdal og verk Samúels Jónssonar
í Selárdal sé að þær skortir járna-
bindingu í steypuna. Hann áætlar
því að bæta við ryðfríum stálvír sem
bindingu. Einnig mun hann nota
vatnsvarða steypu til að húða stytt-
una á ný, til að minnka líkurnar á að
hún springi að nýju. klj
Listaverkið Stúlka
með löngu í viðgerð
Gerhard König er hér að gera við styttuna.
Í Þurranesi í Saurbæ rekur Jón Ingi
Ólafsson sauðfjárbú og ferðaþjón-
ustu. Þar er hann með með þrjá
fullbúna sumarbústaði sem hver
hefur heitan pott og gistipláss er
fyrir sex manns. Að auki eru uppá-
búin rúm fyrir 20 manns í gamla
íbúðarhúsinu á bænum, þar sem
einnig er búið að byggja við matsal
fyrir 30 manns í sæti. Jón Ingi tók
við búinu af foreldrum sínum og er
hann þriðji ættliðurinn til að vera
með sauðfé í Þurranesi. „Ég tók við
sauðfjárbúinu í byrjun árs 2015 og í
upphafi þessa árs tók ég einnig yfir
ferðaþjónustuna,“ segir Jón Ingi en
foreldrar hans hafa rekið ferðaþjón-
ustu í Þurranesi í tvo áratugi.
Góð aðstaða fyrir hópa
Aðspurður hvernig aðsókn ferða-
manna hafi verið í sumar segir Jón
Ingi hana hafa verið mjög góða.
„Það var ekkert lát á bókunum frá
erlendum ferðamönnum en það var
aðeins minna af Íslendingum í sum-
ar,“ segir hann. „Það hefur verið
vinsælt meðal Íslendinga að leigja
gamla íbúðarhúsið fyrir lítil ætt-
armót, gönguhópa, hjólreiðahópa
eða aðra slíka hópa en núna í sum-
ar var aðeins minna um slíkar bók-
anir. Mögulega hafði Heimsmeist-
aramótið í fótbolta eitthvað um það
að segja nú eða veðrið sem var nú
ekkert sérstakt í allt sumar. Ætli Ís-
lendingar hafi ekki farið meira til
útlanda í sumar.“
Jón Ingi segir flesta ferðamann
sem gisti í Þurranesi koma frá Evr-
ópu. „Ætli stærsti hópurinn sem
kemur til mín séu ekki Þjóðverjar.
Það er allur gangur á því hversu
margar nætur þeir gista en sum-
ir eru alveg upp undir viku í einu.
Staðsetningin hér er góð fyrir þá
sem vilja skoða sig um á Vesturlandi
og Vestfjörðum, hér er svona mið-
punktur. Fólk dvelur oft hér í þrjár
til fjórar nætur og tekur dagsferðir
út á Snæfellsnes, Vestfirði eða bara
um Vesturland,“ segir Jón Ingi.
Vill auka ferðaþjónustu
yfir veturinn
Jón Ingi segist hafa í huga að stækka
ferðaþjónustuna og lengja ferða-
tímabilið hjá sér. „Það er náttúru-
lega mest að gera hjá mér yfir sum-
arið en ég stefni á að auglýsa mig
betur yfir veturinn og reyna að fá
fólk meira til mín allt árið. Ég held
að það sé alveg forsenda fyrir því,
það er alveg nóg um ferðamenn
sem koma til landsins allt árið,“
segir Jón Ingi og bætir því við að
hann sjái mikla möguleika í ferða-
þjónustu í Dölum. „Ég hef fulla
trú á því að hér í Dölunum séu enn
ónýttar auðlindir í ferðaþjónustu.
Sem dæmi er ég viss um að við gæt-
um gert meira út á það mikla fugla-
líf sem er hér. Til mín hefur verið
að koma fuglaáhugafólk frá Belgíu
og Hollandi að skoða mófuglana á
Íslandi. Ég held að við gætum gert
meira með þetta en hér á landi er
mikið um fugla sem sjást varla á
meginlandinu. Eins og til dæmis
spóinn sem er hér um allt yfir sum-
arið. Hann fer til Afríku yfir vet-
urinn en stoppar bara í Hollandi í
örfáa daga á leiðinni á milli. Þetta
er því fuglategund sem margir Evr-
ópubúar sjá varla. Ég er viss um að
ef við myndum auglýsa þetta betur
myndi fuglaáhugafólk sækja meira
hingað í Dalina og jafnvel stoppa í
nokkra daga í einu,“ segir Jón Ingi.
arg
Fuglalífið í Dölum vannýtt
auðlind í ferðaþjónustu
Jón Ingi Ólafsson bóndi í Þurranesi í Saurbæ ásamt syni sínum, Ólafi Vigni.
Sumarhúsin eru öll vel búin með tveimur svefnherbergjum og svefnlofti.
Í Þurranesi er matsalur fyrir 30 manns í sæti.