Skessuhorn - 10.10.2018, Qupperneq 20
MIÐVIKUDAGUR 10. OKTÓBER 201820
Guðrún Sigríður Gísladóttir, forstöðumaður Vinnumála-
stofnunar á Vesturlandi, segir að þátttaka í Fyrirmyndardeg-
inum hafi verið gríðarlega góð á öllu Vesturlandi í ár. Þátt-
taka fyrirtækja og vinnustaða á Vesturlandi hafi alltaf verið
til fyrirmyndar. Á föstudeginum 5. október í síðustu viku var
Fyrirmyndardagurinn haldinn í fimmta sinn og fyrirtæki og
gestastarfsmenn á Vesturlandi voru þátttakendur í ár sem og
fyrri ár. Á Fyrirmyndardeginum bjóða fyrirtæki og vinnustað-
ir til sín einstaklingum með fötlun eða skerta starfsgetu til að
kynnast nýjum störfum og verkefnum á vinnumarkaði. Með
því er vonast til að fyrirtæki og vinnustaðir opni augun fyr-
ir starfskröftum og starfshæfni fólks með skerta starfsgetu og
sýni um leið fólki sem að öllu jöfnu vinnur önnur störf hve
verkefni og störf eru fjölbreytt úti á vinnumarkaðnum.
„Allur undirbúningur í tengslum við Fyrirmyndardaginn
var unninn í frábæru samstarfi við Starfsendurhæfingu Vest-
urlands, Endurhæfingarhúsið Hver, Fjöliðjuna á Akranesi,
Ölduna í Borgarnesi, Ásbyrgi í Stykkishólmi og Smiðjuna í
Snæfellsbæ,“ segir Guðrún Sigríður. Alls tóku fimmtíu og þrír
gestastarfsmenn þátt í Fyrirmyndardeginum á Vesturlandi,
langflestir á Akranesi. Fyrirtæki og vinnustaðir á Vesturlandi
sem tóku þátt voru fjörutíu og sex. Sú breyting varð á Fyrir-
myndardeginum í ár að hann var ekki afmarkaður við einn
dag. „Í raun varð þetta Fyrirmyndarvika því þátttökunni var
dreift á alla vikuna eftir því hvað hentaði bæði þátttakendum
og fyrirækjum,“ segir Guðrún Sigríður.
Meðfylgjandi myndir voru teknar á Fyrirmyndardeginum á
nokkrum stöðum á Vesturlandi. Þær sýna glöggt hversu fjöl-
breytt og skemmtileg störf fólk fékk að kynnast.
klj
Frábær þátttaka í Fyrirmyndardeginum á Vesturlandi
Stebbi fékk að reyna fyrir sér í Gámu. Með honum á mynd er Elli.
Aldís var gestastarfsmaður hjá Olís á Akranesi.
Hjá Nesbrauði í Stykkishólmi fékk Sigurður Fannar að spreyta sig.
Ólafía Sæunn fékk kynningu á þvottahúsinu á Dvalarheimilinu í
Stykkishólmi.
Ívar kíkti á vinnustofuna hjá Dýrfinnu gullsmið á Akranesi.
Thor og Jökull fóru saman til Dodda hjá Sansa á Akranesi. Laufey bar fram veitingar á kaffihúsinu Lesbókinni á Akranesi.
Helgi Jóhann reyndi fyrir sér hjá Hafnarvoginni í Stykkishólmi. Guðmundur kannaði starf hjá Póstinum í Borgarnesi.
Máni fékk kynningu á starfsemi Lögreglunnar á Vesturlandi.
Ölver fór í Íþróttamiðstöðina í Borgarnesi. Óli prófaði að vinna í Olís á Akranesi.