Skessuhorn - 10.10.2018, Blaðsíða 21
MIÐVIKUDAGUR 10. OKTÓBER 2018 21
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
Sérfræðingur á tæknideild
Vestursvæðis í Borgarnesi
Vegagerðin auglýsir eftir sérfræðingi á tæknideild Vestursvæðis með starfsstöð í Borgarnesi. Um er að ræða fullt starf, við verkefnastjórnun og umsjón framkvæmda.
Tæknideild Vestursvæðis hefur umsjón og eftirlit með nýframkvæmdaverkefnum, viðhaldi á slitlögum, efnisvinnslu, styrkingum og endurbótum á vegamannvirkjum.
Umdæmi deildarinnar eru Vesturland og Vestfirðir.
Við erum að leita eftir öflugum starfsmanni sem hefur áhuga á að takast við krefjandi og fjölbreytt verkefni á sviðið framkvæmdaverkefna á svæðinu.
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður sem hentar jafnt báðum kynjum. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi ríkisins og viðkomandi stéttarfélags. Umsóknar-
frestur er til og með 22. október. Umsóknir berist Vegagerðinni á netfangið starf@vegagerdin.is. Í umsókninni komi fram persónulegar upplýsingar ásamt upplýsingum
um þá menntun og hæfni sem gerð eru til starfsins, þar með talið menntunar- og starfsferilsskrá. Nánari upplýsingar um starfið veitir Pálmi Þór Sævarsson, deildarstjóri
tæknideildar Vestursvæðis (palmi.th.saevarsson@vegagerdin.is) í síma 522 1540. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun í byggingartæknifræði B.Sc. eða byggingarverkfræði M.Sc. eða •
önnur menntun sem nýtist í starfi.
Reynsla af verkefnastjórnun og/eða vegagerð er æskileg.•
Skipulagshæfni, fumkvæði og metnaður í starfi.•
Hæfni til ákvarðanatöku, eftirfylgni og að vinna sjálfstætt.•
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.•
Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli.•
Starfssvið Vinna við
verkefnastjórnun í
framkvæmdaverkum,
umsjón og eftirlit með
verkum, verkefni
tengd viðhaldi vega,
undirbúningur og
áætlanagerð ásamt öðrum
tilfallandi verkefnum innan
deildarinnar.
FAGMENNSKA
ÖRYGGI
FRAMSÝNI
Guðmundur Andrés Sveinsson,
jafnan kallaður Addi, er Skaga-
maður í húð og hár, fæddur á því
herrans ári 1963 og hefur alla sína
tíð verið búsettur á Akranesi. Addi
var í starfskynningu á Skessuhorni
á Fyrirmyndardeginum síðastlið-
inn föstudag. Á þeim degi býðst
fólki með skerta starfsorku tæki-
færi til að heimsækja hina ýmsu
vinnustaði og kynnast starfsem-
inni þar.
Eftir að hafa fengið kynningu á
starfsemi Skessuhorns fær starfs-
fólkið líka að kynnast Adda. Hann
segir frá því að hann hafi alltaf haft
mikinn áhuga á bílnúmerum, ekki
síst þegar hann var ungur piltur á
Akranesi. „Ég stóð úti á horninu
á Brekkubraut og Stillholti þeg-
ar ég var strákur og skráði niður
bílnúmer á bílunum sem keyrðu
framhjá. Ég fylgist enn með bíl-
númerum og hef áhuga á þeim.
Ég fékk mér einkanúmerið E-557
í september. Það er númerið sem
karl faðir minn átti og var með á
bílum hans,“ segir Addi. „Ég hef
líka mikinn áhuga á tónlist og á
dálítið gott safn af vínylplötum.
Ég fór alltaf til Robba diskó, sem
er frændi minn, en hann átti mik-
ið safn sjálfur. Hann gaf mér hug-
myndir að plötum og ég safnaði
þeim í mitt safn,“ segir hann.
Hefur miklar taugar til
Sementsverksmiðjunnar
Þegar Addi var unglingur byrjaði
hann eins og margir Akurnesing-
ar á hans aldri að vinna í Sements-
verksmiðjunni. Þar starfaði hann
í 16 ár, eða fram til ársins 1994.
Hann ber hlýjar taugar til staðarins
og sér á eftir Sementsverksmiðj-
unni. „Mér finnst sorglegt að verk-
smiðjan sé að hverfa af sjónarsvið-
inu. Ég hef miklar taugar þangað,
kíki reglulega á gamla vinnufélaga
þar sem þeir eru að setja á bílana
úr tönkunum,“ segir hann. „Einu
sinni í gamla daga festist ég uppi
á tönkunum. Þá var ég sendur upp
að mæla hvað væri mikið sement í
þeim. Það var gert þannig að mað-
ur fór upp á tankana og lét málband
síga niður. En þetta var að vetri til
og tréhurðin sem maður gengur í
gegnum þarna uppi fraus föst og
ég náði ekki að sparka henni upp.
Þetta var fyrir tíma farsímanna og
ég gat því ekki hringt og látið vita
af mér. Ég horfði á samstarfsmenn
mína, hvern á fæður öðrum, koma
til baka úr matartímanum ofan af
tönkunum, reyndi að kalla á þá en
það heyrði enginn í mér. Það er dá-
lítið fyndið að eini maðurinn sem
„heyrði“ í mér var heyrnarlaus,“
segir Addi og hlær við. „Ég kastaði
í hann lítilli steinvölu og náði þann-
ig athygli hans. Hann kom upp og
opnaði. Þá hafði ég verið fastur á
tönkunum í þrjá klukkutíma, misst
af matartímanum og var orðið dá-
lítið kalt,“ bætir hann við.
Í Sementsverksmiðjunni kynnt-
ist Addi þeim Jakobi R. Garðars-
syni og Flosa Einarssyni úr hljóm-
sveitinni Tíbrá og gerðist rótari hjá
hljómsveitinni. „Þetta var frábær
tími þegar ég var rótari hjá Tíbrá,
mjög skemmtilegt að ferðast með
þeim á alla þessa staði um helgar
og fara á öll þessi böll. Við vorum
stundum með ljósasjóv og ég sá um
að stjórna því þegar það var,“ seg-
ir hann og brosir við endurminn-
inguna.
Aldrei látið fötlunina
stöðva sig
Árið 1994 hóf Addi störf í Fjöliðj-
unni á Akranesi og var þar til ársins
2011. „Þá tók ég fjögur ár í frí en
byrjaði aftur 2016. Mér líkar rosa-
lega vel í Fjöliðjunni. Þar sinni ég
öllu sem til fellur. Ég var lengi í
dósunum en geri núna allt sem til
fellur af verkefnum. Áður var ég
stundum sendur upp í Borgarnes,
þegar Fjöliðjan var líka starfandi
þar. Ég hef miklar taugar til Borg-
arness, mér fannst alltaf gaman að
fara í nýtt umhverfi og þekkti stráka
þar á mínum aldri,“ segir hann.
Addi hefur aldrei látið fötlun sína
stöðva sig í að gera það sem hann
langar til, en viðurkennir þó að það
verði erfiðara með aldrinum. Hann
hefur alla tíð búið einn og ver-
ið virkur í hvers kyns félagsstarfi.
„Ég var einn af stofnendum Þjóts,
íþróttafélags fatlaðra, árið 1992. Ég
keppti í boccia, hlaupum og fleiru
fyrir félagið og sat í stjórn í tvö
ár. Í dag er ég í Lionsklúbbi Akra-
ness, búinn að vera þar síðan 2007.
Það er búinn að vera skemmtileg-
ur tími, góðir félagar og ýmislegt
gert saman. Lionsklúbburinn held-
ur íþróttamót með Þjóti einu sinni
á ári. Þar tek ég að mér hvaða verk
sem þarf að vinna,“ segir hann.
Aðspurður kveðst hann aldrei
áður hafa tekið þátt í Fyrirmyndar-
deginum en lætur afar vel af hon-
um. „Mér finnst mjög gaman að fá
að vera með ykkur og kynnast því
sem þið eruð að gera. Vonandi fæ
ég að koma aftur á næsta ári,“ seg-
ir hann og brosir. „Fyrirmyndar-
dagurinn er flott framtak og mjög
gaman að taka þátt í honum,“ seg-
ir Addi að endingu og þakkar fyr-
ir sig. Það gerir starfsfólk Skessu-
horns einnig, ánægt að hafa feng-
ið að kynnast þessum indæla manni
sem Guðmundur Andrés Sveinsson
er.
kgk
Addi tók þátt í Fyrirmyndardeginum í fyrsta sinn:
„Flott framtak og mjög gaman að taka þátt“
Addi hefur haft sérstakan áhuga á bílnúmerum frá því hann var strákur. Í síðasta
mánuði fékk hann sér einkanúmerið E-557 á bílinn sinn, en það er númerið sem
faðir hans var með á sínum bílum í gamla daga.
Guðmundur Andrés Sveinsson,
eða Addi eins og hann er jafnan
kallaður, fyrir framan inngang
Sementsverksmiðjunnar á
Akranesi.